Morgunblaðið - 28.06.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019
Lopapeysa
í sveitina
Verið velkomin í nýja og glæsilega
verslun okkar okkar á Laugavegi 4-6
Álafossvegi 23, Laugavegi 4-6, alafoss.is
Þessi eina sanna sem verður bara betri
eftir því sem þú nota hana meira.
Danska knattspyrnufélagið FC
Köbenhavn hefur keypt hinn 16 ára
gamla Hákon Arnar Haraldsson af ÍA
og samið við hann til þriggja ára. Há-
kon á að baki 11 leiki með yngstu lands-
liðum Íslands og hefur verið í hópi
Skagamanna í nokkrum leikjum á Ís-
landsmótinu í sumar.
Skagamenn hafa hinsvegar gengið
frá kaupum á bakverðinum Aroni Krist-
ófer Lárussyni frá Þór á Akureyri. Aron
er 21 árs og hefur leikið 44 leiki með
Þór í 1. deildinni. Afi hans var Sigurður
Lárusson sem var fyrirliði Skagamanna
um árabil og faðir hans er fyrrverandi
atvinnu- og landsliðsmaðurinn Lárus
Orri Sigurðsson.
Kári Árnason verður ekki löglegur
með Víkingi og Gísli Eyjólfsson ekki
með Breiðabliki í leikjum liðanna í
Pepsi Max-deild karla á mánudaginn.
Þar sem þeir koma erlendis frá fara fé-
lagaskipti þeirra ekki í gegn fyrr en á
mánudag, 1. júlí, og þeir verða því ekki
með leikheimild fyrr en daginn eftir.
Þetta staðfesti Haukur Hinriksson,
lögfræðingur KSÍ, við fotbolti.net í gær.
Handknattleiksmaðurinn Gunnar
Valdimar Johnsen er kominn til liðs við
uppeldisfélag sitt, Stjörnuna, eftir að
hafa verið í láni hjá Gróttu og Akureyri
undanfarin tvö ár. Gunnar skoraði 50
mörk í 22 leikjum fyrir Akureyri síðasta
vetur. Þá hafa m.a. Bjarki Már Gunn-
arsson og Ari Magnús Þorgeirsson
samið að nýju við Stjörnuna.
Kvennalið Selfoss í handknattleik
hefur fengið til sín danskan markvörð,
Henriette Östergaard. Hún er tvítug,
kemur frá Aalborg og hefur samið við
Selfyssinga til tveggja ára. Selfoss féll
úr úrvalsdeildinni í vor.
Eitt
ogannað
BELGÍA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Stefán Gíslason, fyrrverandi lands-
liðsmaður í knattspyrnu var í gær
kynntur til leiks sem nýr þjálfari
belgíska liðsins Lommel. Hann hætti
störfum hjá Leikni í Reykjavík í
fyrradag eins og fram kom í blaðinu í
gær.
Stefán er þriðji Íslendingurinn
sem þjálfar belgískt atvinnulið, á eft-
ir þeim Rúnari Kristinssyni hjá
Lokeren og Arnari Þór Viðarssyni
hjá Cercle Brugge, en Arnar stýrði
líka Lokeren um tíma þar sem hann
var aðstoðarþjálfari.
Lommel er frá samnefndri 34 þús-
und manna borg á landamærum
Belgíu og Hollands, aðeins um 30 km
í suður frá hollensku borginni
Eindhoven. Félagið, Lommel SK,
var reist á rústum samnefnds félags
árið 2003, eftir gjaldþrot. Lommel
hafði þá leikið um nokkurra ára
skeið í efstu deild, best náð 5. sæti
árið 1997, leikið tvisvar í Evr-
ópukeppni og komist í bikarúrslit ár-
ið 2001.
Mikill hugur í félaginu
Frá þeim tíma hefur Lommel
lengst af leikið í B-deildinni. Þar
endaði liðið í næstneðsta sæti á síð-
asta tímabili en keppni í belgísku B-
deildinni er mjög flókin. Þar spila
átta lið og að lokum fer eitt þeirra
upp og eitt niður í C-deildina. Lom-
mel var aldrei í alvarlegri fallhættu
þrátt fyrir þessa lokastöðu og var í
fjórða sæti eftir fyrri hluta tímabils-
ins.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér frá Belgíu er
mikill hugur í forráðamönnum Lom-
mel um að koma félaginu skrefi
lengra og útlit er fyrir að þeir fái
meira fjármagn til umráða en hingað
til. Þá hafa tveir kunnir kappar sem
léku um skeið með liðinu verið ráðnir
til starfa, Davy Heymans og Philip
Haagdoren, en sá síðarnefndi lék
með Anderlecht um skeið og kom við
sögu með belgíska landsliðinu.
Heymans verður aðstoðarþjálfari
Stefáns og Haagdoren verður með
ýmis mál liðsins á sinni könnu.
Hendrickx er mættur
til Lommel
Í leikmannahópi Lommel er belg-
íski bakvörðurinn Jonathan Hend-
rickx sem félagið keypti af Breiða-
bliki fyrr í þessum mánuði og samdi
við hann til tveggja ára. Hann mætti
til starfa hjá félaginu í byrjun þess-
arar viku. Í heildina er liðið skipað
tiltölulega ungum leikmönnum, flest-
um belgískum. Eflaust á hópurinn
eftir að stækka áður en deildakeppn-
in hefst í Belgíu í byrjun ágúst.
Leikvangur félagsins, Soeve-
reinstadion, rúmar 13 þúsund áhorf-
endur en aðsókn á síðasta tímabili
fór sjaldan yfir tvö til þrjú þúsund
manns en var þó rúmlega sjö þúsund
þegar best lét um veturinn.
Langur ferill Stefáns sem
leikmaður
Stefán Gíslason er 39 ára Eskfirð-
ingur sem lék með liði KVA í 2. og 3.
deild frá 15 ára aldri en var jafn-
framt um skeið hjá enska stórliðinu
Arsenal og spilaði þar með unglinga-
liði. Stefán lék með KR 1998, síðan
með Strömsgodset í Noregi og Gra-
zer AK í Austurríki en kom aftur
heim og spilaði með Keflvíkingum
árin 2003 og 2004.
Stefán hélt aftur til Noregs 2005
og lék með Lyn í hálft þriðja ár, síð-
an með Brøndby í Danmörku í fjögur
ár, þar sem hann var fyrirliði um
skeið. Hann lék einnig með norsku
liðunum Viking og Lillestrøm en
lauk ferlinum erlendis með Leuven í
belgísku A-deildinni árin 2012 til
2014. Stefán kannast því ágætlega
við sig á þessu svæði en aðeins er um
klukkutíma keyrsla milli Lommel og
Leuven.
Eftir heimkomuna lék Stefán eitt
tímabil með Breiðabliki, 2014, en
lagði síðan skóna á hilluna.
Stefán átti fast sæti í íslenska
landsliðinu um skeið og lék 32 lands-
leiki á árunum 2002 til 2009 en hafði
áður spilað 46 leiki með yngri lands-
liðum Íslands.
Þjálfaði Hauka og Leikni
Stefán þjálfaði fyrst lið Hauka í 1.
deildinni tímabilið 2017 en það end-
aði í sjöunda sæti undir hans stjórn.
Hann tók síðan við Leikni R. í sömu
deild í vetur og skilur við Breiðholts-
liðið í sjöunda sæti eftir fjóra sigra
og fjögur töp með Stefán við stjórn-
völinn. Fram kemur á vef Leiknis að
Stefán hafi kvatt leikmenn liðsins á
fundi á þriðjudagskvöldið en aðstoð-
arþjálfarinn Sigurður Heiðar Hösk-
uldsson tók við af honum og stýrði
Leikni í fyrsta skipti gegn Keflavík í
gærkvöld.
Stefán er á
kunnuglegum
slóðum
Hefur þjálfaraferil erlendis á sama
svæði og hann kvaddi sem leikmaður
Morgunblaðið/Eggert
Þjálfari Stefán Gíslason fylgist með liði Hauka í leik í 1. deildinni fyrir
tveimur árum en þar hóf hann ferilinn sem þjálfari í meistaraflokki.
Ef að líkum lætur munu 13 íslenskir handboltakarlar,
ein íslensk handboltakona, og íslenskur aðstoðarþjálfari
taka þátt í Meistaradeildum Evrópu í handbolta á næstu
leiktíð. Eins og frægt er orðið mun hins vegar ekkert ís-
lenskt félagslið taka þátt í keppnunum eftir að Selfossi
var synjað um þátttöku. Dregið var í riðla í gær.
Í Meistaradeild karla er leikið í fjórum riðlum. Betri
liðin eru í A- og B-riðli, þar sem sex lið af átta komast
áfram úr hvorum riðli (efstu liðin fara beint í 8-liða úrslit
en liðin í 2.-6. sæti fara í 16-liða úrslit). Samtals komast
svo tvö lið úr C- og D-deildunum í 16-liða úrslitin.
Fimm „Íslendingalið“ eru í A-riðli. Það eru PSG (Guðjón Valur Sigurðs-
son), Barcelona (Aron Pálmarsson), Aalborg (Janus Daði Smárason, Ómar
Ingi Magnússon og Arnór Atlason aðstoðarþjálfari), Pick Szeged (Stefán
Rafn Sigurmannsson) og Elverum (Sigvaldi Guðjónsson). Í þeim riðli leika
einnig Flensburg, Zagreb og Slóveníumeistarar Celje Lasko.
Í B-riðli er Kiel, lið Gísla Þorgeirs Kristjánssonar, ásamt liðunum sem
léku úrslitaleikinn í keppninni í vor – meisturum Vardar frá Makedóníu og
Veszprém frá Ungverjalandi – auk Kielce frá Póllandi, Meskhov Brest frá
Hvíta-Rússlandi, Motor Zaporozhye frá Úkraínu, Montpellier frá Frakk-
landi, og Porto frá Portúgal.
Ágúst Elí Björgvinsson ver mark Svíþjóðarmeistara Sävehof í C-riðli þar
sem einnig leika Tatran Presov frá Slóvakíu, Riihimäen Cocks frá Finn-
landi, Rabotnik frá Makedóníu, Bidasoa frá Spáni og Sporting frá Portú-
gal. Í D-riðli leikur GOG frá Danmörku með þá Óðinn Þór Ríkharðsson,
Viktor Gísla Hallgrímsson og Arnar Frey Arnarsson innanborðs, sem og
Kristianstad frá Svíþjóð með Ólaf Guðmundsson og Teit Örn Einarsson.
Þar leika einnig Dinamo Búkarest frá Rúmeníu, Chekhovski Medvedi frá
Rússlandi, Kadetten frá Sviss og Wisla Plock frá Póllandi.
Rut í riðli með silfurliðinu
Í Meistaradeild kvenna er leikið í fjórum fjögurra liða riðlum og komast
þrjú áfram úr hverjum riðli í tvo sex liða milliriðla. Rut Jónsdóttir leikur á
ný í keppninni næsta vetur, nú með Esbjerg eftir að hafa orðið danskur
meistari með liðinu, og verður í riðli með Rostov-Don frá Rússlandi, MKS
Lublin frá Póllandi og CSM Búkarest frá Rúmeníu. Rostov-Don fékk silfur í
Meistaradeildinni í vor og CSM Búkarest, sem vann Meistaradeildina 2016,
komst í 8-liða úrslit. Gyori frá Ungverjalandi hefur unnið keppnina þrjú
síðustu ár í röð en er ekki með Esbjerg í riðli. sindris@mbl.is
15 íslensk í Meistaradeildum
Aron Pálmarsson