Morgunblaðið - 28.06.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 28.06.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 2019 Er ferðavagninn rafmagnslaus? TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu örugg t start með TUDO R Frístunda rafgeymar í miklu úrvali, AGM þurr rafgeymar eða lokaðir sýrurafgeymar. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Snert hörpu mína er yfirskrift Sönghátíðar í Hafnarborg sem hefst í dag, 28. júní, og lýkur 14. júlí og er nú haldin í þriðja sinn. Meðal þess sem boðið verður upp á að þessu sinni er frumflutningur á 20 ör- lögum, sönglagaflokkurinn Liederk- reis eftir Schumann, ókeypis fjöl- skyldutónleikar, fornir hljómar og minningartónleikar um tónskáldið Atla Heimi Sveinsson. Titill hátíðarinnar í ár er sóttur í eitt ástælasta lag Atla Heimis sem hann samdi við „Kvæðið um fuglana“ eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi en Atli lést fyrir skömmu og verð- ur minning hans heiðruð á hátíð- inni á loka- tónleikunum þar sem sex söngv- arar flytja úrval sönglaga hans og lýkur þeim með samsöng flytjenda og áhorfenda. Listrænir stjórnendur hátíð- arinnar eru Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari og segir Guðrún að bæði verði flutt lög eftir Atla sem allir þekki og lítt þekktari sönglög. „Ég fékk til liðs við mig fimm söngvara, við verðum sex alls sem flytjum heila efnisskrá með sönglögum Atla Heimis. Við ljúkum þeim tónleikum og hátíðinni með því að syngja „Kvæðið um fuglana“ og bjóðum gestum að taka undir með okkur,“ segir hún. Þegar Atli hafi fallið frá hafi þau Francisco verið búin að skipuleggja hátíðina og því verði lög Atla aðeins flutt á lokatón- leikunum. Masterklass með Kristni Sjö tónleikar verða haldnir alls á hátíðinni auk þess sem haldin verða námskeið fyrir börn sem fullorðna. Börnum standa til boða námskeið fyrir ólíka aldurshópa, allt frá 6-18 mánaða með foreldrum til master- klassa með Kristni Sigmundssyni fyrir söngvara og söngnemendur en allar upplýsingar um þau og hátíð- ina má finna á vef hennar, www.songhatid.is. Í kvöld kl. 20 mun Andri Björn Róbertsson bassabarítón og Ástríð- ur Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja Söngvasveig (Liederkreis) eftir Robert Schumann og íslensk sönglög. Andri er rísandi stjarna í heimi sígildrar tónlistar, hefur ný- verið sungið í Covent Garden og öðrum af fremstu óperuhúsum Evr- ópu. Á morgun kl. 17 flytur svo Kammerkór Suðurlands, undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar, 20 ör-lög eftir mörg tónskáld og verk eftir Pál á Húsafelli en Páll mun leika á eigin hljóðfæri í tilefni sextugsafmælis síns. Á sunnudaginn, 30. júní, kl. 16.30 verða haldnir ókeypis fjölskyldu- tónleikar með Dúó Stemmu þar sem Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverks- leikari fagna sumrinu með íslensk- um þjóðvísum, þulum, ljóðum og hljóðum og 6-12 ára krakkar af námskeiði hátíðarinnar taka undir. List raddarinnar Guðrún og eiginmaður hennar Javier stýra hátíðinni í þriðja sinn og segir Guðrún að þau hafi langað til að halda hátíð sem einbeitti sér að list raddarinnar. „Markmið þess- arar hátíðar er að koma söngbók- menntunum á framfæri og söngv- urum og líka söngtækni. Bæði bjóðum við upp á tónleika og nám- skeið fyrir fólk á mjög ólíkum aldri, algjöra byrjendur og börn og líka langt komna söngnemendur. Þannig að við erum með námskeið fyrir fólk frá sex mánaða aldri upp í 99 ára,“ segir Guðrún kímin. „Svo erum við líka með YouTube-stöð þar sem við erum með viðtöl við söngvara um söngtækni og þar höfum við líka birt upptökur af tónleikum,“ bætir hún við. Hátíðin fer fram í stóra salnum í Hafnarborg á efri hæðinni og segir Guðrún hljómburð þar prýðilegan fyrir órafmagnaðan söng og hljóð- færaleik. „Fólk sem kemur á tón- leika getur líka séð þá myndlistar- sýningu sem er í gangi þannig að þetta er í raun þreföld upplifun því þarna mætast ljóð, tónlist og mynd- list,“ segir hún. Allir tónleikar hátíðarinnar verða teknir upp í hágæðum og segir Guð- rún það mikilvægt því stundum sé flutt tónlist á hátíðinni sem sé ekki til neins staðar á upptökum. „Í ár er t.d. verið að frumflytja mjög mörg verk sem hafa aldrei heyrst áður og munu þau þá geymast bæði með góðum hljóðupptökum og mynd- böndum,“ segir hún. Forn tónlist og virtúósasöngur 11. júlí kl. 20 flytja 15 nemendur á masterclass-námskeiði Kristins Sig- mundssonar aríur og sönglög ásamt Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara og degi síðar, kl. 20, flytur Umbra En- semble persónulegt úrval fornrar tónlistar og þjóðlaga víða að úr heiminum. 13. júlí kl. 17 flytja Sig- rún Hjálmtýsdóttir/Diddú sópran og Guðrún efnisskrá með virtúósa- söng frá 19. öld eftir meistarana Bellini, Donizetti, Rossini og Verdi og Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó og Francisco Javier Jáuregui á klassískan gítar. Lokatónleikarnir fara svo fram 14. júlí kl. 17 og verða minning- artónleikar um Atla Heimi, sem fyrr segir, en á þeim koma fram Kristinn Sigmundsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Alex- ander Jarl Þorsteinsson og Þórhild- ur Steinunn Kristinsdóttir (Vox Domini-verðlaunahafi) með Franc- isco fyrrnefndum og Evu Þyri Hilmarsdóttur píanóleikara. Guðrún nefnir að lokum að lista- menn hátíðarinnar muni einnig koma fram á ókeypis tónleikum ut- an Hafnarborgar til að færa lifandi tónlist út í samfélagið til þeirra sem komast ekki á tónleika og dveljast á stofnunum. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu hátíðarinnar, songha- tid.is, og miða á tónleika er hægt að nálgast á tix.is. Á YouTube-síðu há- tíðarinnar má svo sjá viðtöl við ís- lenska söngvara um söngtækni, sem fyrr segir. Fjölskyldutónleikar Sunnudaginn 30. júní kl. 16.30 verða haldnir ókeypis fjölskyldutónleikar með Dúó Stemmu sem fagnar sumrinu. Heiðra minningu Atla Heimis  Sönghátíð í Hafnarborg hefst í dag og er nú haldin í þriðja sinn  „Kvæðið um fuglana“ eftir Atla Heimi lokalag hátíðarinnar  Fjölbreytt tónleikadagskrá og námskeið fyrir 6 mánaða upp í 99 ára Söngdíva Diddú kemur fram með Guðrúnu Jóhönnu 13. júlí. Minning Atla Heimis Sveinssonar tónskálds verður minnst á hátíðinni. Masterklassi Kristinn Sigmunds- son syngur og heldur námskeið. Á uppleið Andri Björn Róbertsson bassabarítón er rísandi stjarna. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Sumardagskrá Múlans, Jazz með útsýni, heldur áfram á Björtu- loftum í Hörpu í kvöld. Að þessu sinni kemur fram hljómsveitin Jazz sendiboðarnir, kvintettinn sem tek- ur ofan hattinn fyrir goðsögnum hard bop-tímabilsins, þeim Art Blakey, Horace Silver, Kenny Dor- ham og Lee Morgan ásamt fleirum. Leikin verða lög sem hljómsveit Art Blakey’s, The Jazz Messengers, gerði þekkt á sínum tíma. Snorri Sigurðarson leikur á trompet, Ólafur Jónsson á saxófón, Kjartan Valdemarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Blásari Snorri Sigurðarson. Morgunblaðið/Kristinn Jazz sendiboðarnir leika á Múlanum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.