Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Blaðsíða 6
HEIMURINN 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019 vansvottuð etra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Ný kynslóð málningarefna ONE SUPER TECH S b u Byggir á nanótækni - sjálfhreinsandi u Fyrir við, bárujárn og innbrenndar klæðningar u Þekur ótrúlega vel u Endist margfalt á við önnur málningarkerfi Veldu betri málningu Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Árið 2013 tilkynnti Toronto Raptors að kanadíski tónlistar- maðurinn Drake hefði verið út- nefndur sendiherra liðsins á heimsvísu. Hann hefur alla tíð haldið mikið upp á liðið og síð- ustu árin verið mjög áberandi á heimaleikjum þess, sér í lagi í úrslitakeppninni. Mörgum þykir hann á stund- um ganga of langt og getur hann verið þreytandi fyrir and- stæðinga Raptors enda situr hann ávallt rétt við hliðarlínu vallarins. Minnir hann oft á leik- stjórann Spike Lee sem fór mik- inn á leikjum New York Knicks á árum áður. Það náðist til að mynda á myndband þegar Drake var mikið skemmt yfir óförum Gi- annis Antetokounmpos á víta- línunni í leik Raptors við Bucks í úrslitum Austurdeildarinnar. Drake hefur þó ekki aðeins lagt stuðning sinn við Raptors heldur hefur hann stutt við bakið á öðr- um íþróttamönnum, t.d. hinum umdeilda Conor McGregor. Þessum íþróttamönnum virðist ávallt ganga einkar illa þegar mest er undir, líkt og átt hefur við um lið Raptors síðustu ár. Því hafa netverjar talað um „Bölvun Drakes“ sem á ensku útleggst „The Drake Curse“. Stuðningsmenn Raptors vonast til þess að með sigri sinna manna sé bölvuninni aflétt fyrir fullt og allt og Larry O’Brien- bikarinn, sem veittur er sigur- vegurum NBA-deildarinnar, verði þeirra á næstu vikum. Hvort sem það reynist rétt eður ei er ljóst að Drake mun ekki láta sig vanta á heimaleiki Raptors í úrslitaeinvíginu við Warriors og líklega vera áberandi á hliðarlínunni. Það er að minnsta kosti ljóst að fáir munu fagna jafn innilega og Drake vinni Raptors. TÓNLISTARMAÐURINN DRAKE Bölvuninni aflétt? Drake fagnar sín- um mönnum. Ég er skemmtilegur gaur,“ sagðiKawhi Leonard á vandræða-legum blaðamannafundi í lok september í fyrra, mánuði áður en nýtt tímabil í NBA-deildinni átti að hefjast. Honum hafði verið skipt til kanad- íska liðsins Toronto Raptors frá San Antonio Spurs, í Texas í Bandaríkj- unum, eftir mikla samskiptaerfiðleika milli hans og þjálfarans goðsagna- kennda, Greggs Popovich, í júlí. Hann hafði aðeins spilað níu leiki vegna meiðsla tímabilið áður og flest- ir töldu víst að hann myndi flytja sig yfir til uppeldisborgar sinnar, Los Angeles, þegar samningur hans rynni út næsta sumar. Gárungarnir vestanhafs töldu það víst að Masai Ujiri, forseti Raptors, hefði keypt köttinn í sekknum þegar hann skipti á DeMar DeRozan, besta leikmanni liðsins, og leikmanni sem færi frá liðinu eftir eitt tímabil. Þetta var ekki það eina umdeilda sem Ujiri gerði þetta sumarið en hann rak einnig þjálfara liðsins, þrátt fyrir frábæran árangur síðustu tíma- bil. Raunar var þjálfarinn, Dwane Ca- sey, valinn besti þjálfari deildarinnar þetta árið. Ujiri var hins vegar viss í sinni sök um að breyta þyrfti til eftir að LeBron James, ásamt félögum sínum í Cleveland Cavaliers, hafði niðurlægt Torontomenn í úr- slitakeppninni síðustu þrjú árin. Á blaðamannfundinum, sem segja má hápunkt tilvistarkreppu stuðn- ingsmanna Raptors, hló Leonard afar sérstökum hlátri og höfðu netverjar mjög gaman af. Leonard, sem margir sögðu ekki frá plánetunni jörð, var ekki talinn líklegur til að falla vel inn í lið Raptors. Veggurinn LeBron Toronto Raptors hóf veru sína í NBA-deildinni árið 1995 þegar tvö lið voru stofnuð í Kanada, Raptors og Vancouver Grizzlies. Nafnið Raptors var valið vegna vinsælda myndar- innar Jurassic Park á þeim tíma. Til að byrja með gekk liðinu illa og áhuginn fyrir liðinu takmarkaður. Körfubolti var ekki ofarlega á baugi í Toronto og Kanada á þessum tíma en það breyttist með komu Vince Cart- ers til liðsins. Hann var valinn besti nýliði deildarinnar tímabilið 1998-99 og með ótrúlegum tilþrifum laðaði hann marga að. Segja má að vinsæld- irnar hafi náð hámarki með sigri hans í troðslukeppni deilarinnar árið 2000 þar sem margir göptu yfir frammi- stöðunni. Carter leiddi liðið í úrslitakeppnina þrjú ár í röð, 2000-2002, og var hárs- breidd frá því að komast í úrslit Aust- urdeildar NBA árið 2001. Carter var skipt úr liðinu á miðju tímabili árið 2004 eftir tvö mögur tímabil þar á undan. Árangurinn næstu níu árin var ekki saga til næsta bæjar; liðið komst aðeins tvisvar í úr- slitakeppnina og datt út í fyrstu um- ferð í bæði skiptin. Liðið komst í úr- slitakeppnina tímabilið 2013-14 og tímabilið þar á eftir en enn og aftur datt það út í fyrstu umferð. Á 20 ár- um í deildinni hafði liðið aðeins unnið eitt einvígi í úrslitakeppninni. Það breyttist hins vegar ári seinna og síðustu árin hefur liðið verið eitt það besta í deildinni en ávallt lent á vegg í úrslitakeppninni. Sá veggur kallast LeBron James og lið hans Cleveland Cavaliers en þrjú ár í röð átti liðið ekki möguleika gegn James og félögum. Það var því smá sárabót fyrir stuðningsmenn Raptors, eftir fjölmiðlafárið síðasta sumar, að sjá James færa sig yfir í Vesturdeilina, og því ljóst að Raptors myndi ekki lenda í hrömmum hans fyrr en í úr- slitum NBA hið fyrsta. Eins og flís við rass Ekki er hægt að segja að árangur Raptors í vetur hafi komið á óvart; liðið er gríðarlega vel mannað og Leonard einn sá besti í deildinni. Ujiri tók hins vegar mikla áhættu síð- asta sumar sem hefur borgað sig og komið liðinu á hærri stall. Besti árangur liðsins frá upphafi er stað- reynd og Leonard virðist hafa fallið eins og flís við rass inn í liðið. Birting- armynd þess mátti sjá þegar Kyle Lowry, leikmaður Raptors, gat keyrt að körfunni og skorað í hraðaupp- hlaupi gegn Milwaukee Bucks í síð- asta leik úrslita Austurdeildarinnar um síðustu helgi. Hann ákvað frekar að senda til baka á Leonard sem kom á siglingu og tróð af öllu afli yfir „gríska undrið“, Giannis Antetoko- unmpo, besta leikmann Bucks, og allt varð vitlaust bæði innan og utan veggja Scotiabank Arena, leikvangs Raptors. Raptors töpuðu fyrstu tveimur leikjunum í einvíginu við Milwaukee en unnu næstu fjóra og tryggðu sér sigur í Austurdeildinni og þar með sæti í úrslitum NBA-deildarinnar. Þeirra bíður hins vegar verðugt verk- efni þar sem Raptors mætir Golden State Warriors, meisturum síðustu tveggja ára. Warriors er talið eitt besta lið körfuboltasögunnar en Raptors á heimaleikjaréttinn og vel getur verið að þeir kanadísku veiti Warriors verðuga keppni. Alls kostar óvíst er hvað Leonard gerir í sumar þegar samningur hans við Raptors rennur út en ef marka má ummæli hans gæti verið að hon- um snúist hugur og semji við Raptors í sumar. „Mér er sama hvort ég er besti leikmaðurinn, ég vil vera í besta lið- inu,“ sagði Leonard um síðustu helgi en fróðir menn telja hann hafa fest sig í sessi sem besti leikmaður deild- arinnar með frammistöðu sinni í úr- slitakeppninni. Áhættan hef- ur borgað sig Kanadíska körfuboltaliðið Toronto Raptors lék sinn fyrsta leik í úrslitum NBA-deildarinnar á fimmtudag. Síðasta sumar var þjálfarinn rekinn og besti leikmaðurinn sendur til Texas. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Kawhi Leonard treður yfir hinn ótrúlega Giannis Antetokounmpo, leikmann Milwaukee Bucks. Innan við andartaki síðar varð allt vitlaust í höllinni. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.