Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Blaðsíða 8
Eggert
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019
Sjálfstæðisflokkurinn hefur í níu-tíu ár verið bæði kjölfestan í ís-lenskum stjórnmálum og drif-
kraftur framfara. Full innistæða er
fyrir því þegar sagt er að enginn
stjórnmálaflokkur hafi gert meira til
að skapa okkar góða samfélag hér á
Íslandi. Það er staðreynd sem allir
flokksmenn mega með réttu vera
stoltir af.
Hlutverk kjölfestunnar er að
standast ágjöf og láta ekki hagga sér.
Hlutverk drifkraftsins er að sækja
fram. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gert hvort tveggja.
Lykillinn að árangri
Annar lykillinn að glæsilegri arfleifð
og árangri flokksins eru hin tæru,
sönnu og sígildu grundvallargildi
sjálfstæðisstefnunnar. Enginn Sjálf-
stæðismaður velkist í vafa um hvað
sameinar okkur.
Hinn lykillinn er samstaða flokks-
manna um að vinna að framgangi
þessara gilda í sameiningu, hvað sem
líður blæbrigðamun eða jafnvel
ágreiningi í afstöðu til einstakra
mála. Vegna þeirrar samstöðu truflar
það ekki Sjálfstæðismenn að vera
ósammála um sumt í þágu þess að
grundvallargildin nái fram að ganga.
Róttæk frelsishugsjón
íhaldsins
Íhaldssemi er flokknum okkar vissu-
lega í blóð borin en á sama tíma get-
um við vel verið róttæk þegar kemur
að framgangi grundvallarhugsjóna
okkar, ekki síst þegar kemur að ein-
staklingsfrelsi, athafnafrelsi og við-
skiptafrelsi. Við erum hægriflokkur,
við viljum hafa frjálst og opið mark-
aðshagkerfi þar sem er réttarríki.
Það var réttilega talað um „upp-
reisn frjálshyggjunnar“. Glæsileg og
tímabær frelsisvæðingin sem flokk-
urinn okkar og forysta hans stóð fyrir
á árunum fyrir síðustu aldamót var
auðvitað róttæk í samhengi sinnar
tíðar. Hin „gömlu gildi“ þeirra tíma
voru einokun og alltumlykjandi kæf-
andi opinber umsvif. Íhaldið lét sig
ekki muna um að brjóta þau gömlu
gildi á bak aftur í þágu frelsishug-
sjónarinnar.
Á sama tíma var flokkurinn í for-
ystu landsmálanna þegar djarft en
gæfuríkt skref var stigið með aðild
Íslands að Evrópska efnahagssvæð-
inu – skref sem allmargir á þeim tíma
töldu brjóta gegn bæði stjórnarskrá
og grundvallargildum sjálfstæðis-
stefnunnar um sjálfstæði þjóð-
arinnar. Kröfur komu fram um þjóð-
aratkvæðagreiðslu, meðal annars frá
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, en
þeim var ekki sinnt.
Að hlusta á efasemdir
Það er ekkert launungarmál að efa-
semdir hafa verið uppi um svokall-
aðan þriðja orkupakka innan Sjálf-
stæðisflokksins að undanförnu. Við
slíkar aðstæður á flokksforysta sem
styður málið tvo kosti: að valta yfir
efasemdaraddirnar með offorsi eða
taka þær alvarlega og fara vandlega
ofan í saumana á þeim.
Sumir forystumenn bregða sér
gjarnan í líki valtarans. Þá læra menn
fljótt að standa ekki í vegi fyrir þeim.
Auk þess verður ósköp þægilegt að
standa í skjóli og elta síðan brautina
sem rudd er – og til er fólk sem hefur
sérhæft sig í að feta ruddar brautir.
Þetta fyrirkomulag getur gefist mjög
vel um hríð. Vandinn er að því stærri
og öflugri sem valtarinn verður, því
erfiðara verður fyrir fylgjendurna að
sjá þegar hann stefnir ofan í skurð.
Slíkt hefur endað með ósköpum.
Nálgun forystu Sjálfstæðisflokks-
ins hefur verið allt önnur í orku-
pakkamálinu. Þó að við styddum mál-
ið eftir vandlega skoðun slógum við
efasemdir ekki út af borðinu heldur
tókum þær alvarlega.
Þær háværustu komu úr ranni
Heimssýnar, samtaka andstæðinga
ESB-aðildar. Til að gefa þeim sem
mest vægi fengum við fyrrverandi
framkvæmdastjóra Heimssýnar til að
gera úttekt á málinu. Niðurstaða
hans var að efasemdirnar styddust
ekki við sterk rök.
Fram á sjónarsviðið kom virtur
sérfræðingur í lögum sem lýsti efa-
semdum um að málið stæðist stjórn-
arskrá. Til að gefa efasemdum hans
sem mest vægi leituðum við sér-
staklega til hans. Niðurstaðan var út-
færsla sem hann telur hafið yfir allan
vafa að standist stjórnarskrá.
Andstæðingar málsins líktu því við
Icesave og lögðu til svipaðan leið-
angur og þá var farinn. Til að gefa
þessu sjónarmiði sem mest vægi var
leitað álits hjá dómaranum í Icesave-
málinu. Niðurstaða hans var að hér
væri hreint ekkert Icesave-mál á
ferðinni. Þvert á móti væri vandséð
hvernig það þjónaði íslenskum hags-
munum að leggja í þann leiðangur
sem andstæðingar málsins lögðu til.
Við þetta bætist hafsjór af mál-
efnalegum svörum við bæði rétt-
mætum spurningum sumra og hrein-
ræktuðum rangfærslum annarra.
Með yfirvegaðri og málefnalegri
nálgun, án alls yfirgangs, hefur
myndast breið samstaða um málið á
þingi. Eftir standa fáeinir menn sem
tala við sjálfa sig og framkalla næsta
stig fyrir ofan storm í vatnsglasi, sem
er fellibylur í fingurbjörg. Því verður
þó ekki neitað að þeim hefur því mið-
ur tekist með upphrópunum og ítrek-
uðum rangfærslum að rugla of marga
í ríminu. Það var auðvitað tilgang-
urinn.
Áfram kjölfesta og
drifkraftur
Það er mikilvægt að átta sig á að það
felst engin stefnubreyting í því fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að styðja þriðja
orkupakkann. Þvert á móti væri það
stefnubreyting að leggjast gegn því
viðskiptafrelsi sem hann boðar og
hefur áður verið bæði dyggilega stutt
og samþykkt í orkumálum af hálfu
þeirra sem á undan gengu.
Veltingurinn sem málið hefur vald-
ið mun þegar upp er staðið verða okk-
ur áminning um það hvers vegna
Sjálfstæðisflokkurinn er bæði drif-
kraftur og kjölfesta í íslenskum
stjórnmálum og mun verða það
áfram.
Kjölfestan og drifkraftur framfara
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’ Íhaldssemi er flokkn-um okkar vissulega íblóð borin en á sama tímagetum við vel verið róttæk
þegar kemur að framgangi
grundvallarhugsjóna okkar.
Happy Talk kertastjakar
kr. 6.900, 9.800 og 16.000 Spiladósir kr. 6.600
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur
Vantar þig pípara?
FINNA.is