Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2019
LÍFSSTÍLL
afganginn af farangrinum; svefnpoka
og vistir. Gangan hefst í 2.600 metra
hæð en endar í 5.400 metrum og því
mikil hætta á hæðarveiki. Gengið var
í fimm til sex tíma á dag með hvíld og
gist í svokölluðum tehúsum á leiðinni.
Þar var spilað, snætt og spjallað og
kröftum safnað fyrir komandi göngu-
dag. „Það var alveg bannað að leggja
sig því þá verður maður veikur,“ seg-
ir Helga Guðrún.
„Maður notar minna súrefni þegar
maður sefur og þá hægir á aðlög-
unarferlinu,“ útskýrir Benedikt. „Það
var algjört lykilatriði að leggja sig
ekki.“
Tehúsin voru oft í litlum þorpum
eða bæjum og því gafst tækifæri á að
skoða sig um og drekka í sig fram-
andi menningu Nepals.
„Í sumum bæjum voru markaðir
þar sem gaman var að ganga um og
skoða,“ segir Helga Guðrún og þau
segja að afar skemmtilegt hafi verið
þegar þau fengu að kynnast inn-
fæddum á bakaleiðinni og sjá hvernig
þau búa, fjarri túrismanum. Það hafi í
raun staðið upp úr þegar þau horfa til
baka. „Að hitta fólkið og upplifa
menninguna var það merkilegasta,“
segir Helga Guðrún.
Benedikt tekur undir það. „Við
fengum að fara heim með einum
fararstjóranum og sjá hvernig hann
býr og það var alveg magnað.“
Aldrei liðið eins illa
Í grunnbúðum er gist í tjaldbúðum
sem búið er að reisa áður en göngu-
fólkið mætir á svæðið. Þar má finna
fjöldann allan af tjaldbúðum ýmissa
fyrirtækja en alls dvelja þar um 2.000
manns á þessum tíma. Í hópnum
þeirra voru ellefu göngumenn og
álíka margir sjerpar sem ætluðu á
toppinn, þar á meðal Bjarni faðir
þeirra. Systkinin gistu eina nótt í
grunnbúðum og fannst það alveg nóg.
Hæðarveikin hafði gert vart við sig á
leiðinni og einnig var ekki hættulaust
að dvelja þarna ofan á jökli.
„Við erum ofan á jökli en í raun
ekki á ís, heldur steinum. Þetta er
mjög hrjóstrugt og allt á hreyfingu,“
útskýrir Benedikt. „Um nóttina upp-
lifðum við að finna ísinn brotna undan
tjaldinu og heyra í og sjá snjóflóð
uppi í jöklinum, yfir skriðjökulinn þar
sem pabbi var að fara að labba,“ segir
hann.
„Veðrið var ágætt þegar við vorum
þarna en við fréttum að nóttina eftir
hefði fólk ekki sofið því það var svo
vindasamt. Við vorum í raun mjög
heppin,“ segir Helga Guðrún.
„Það var alveg nóg að gista þarna
eina nótt. Ég hafði veikst tveimur
dögum áður og ekki náð mér al-
mennilega og það var alveg spurning
á tímabili hvort ég kæmist alla leið,“
segir Helga Guðrún.
„Ég myndi segja að það væri rosa-
lega stórt persónulegt afrek fyrir
Helgu að hafa náð í grunnbúðir. Hún
lagði af stað veik.“
Bæði segjast hafa upplifað hæðar-
veiki einhvern tímann á leiðinni.
„Þetta er versta tilfinning sem ég hef
upplifað, mikil vanlíðan,“ segir Bene-
dikt. „Svolítið eins og að vera sjóveik-
ur. Ég fékk þetta eftir þriggja daga
göngu en þessi dagur sem ég veiktist
var erfiður því við hækkuðum okkur
um þúsund metra,“ segir hann. „Ég
var alveg búinn á því en ég píndi ofan
í mig mat og tók lyf við hæðarveikinni
og 40 mínútum seinna leið mér betur.
Þetta getur komið og farið jafn
skjótt.“
Hvorugt þeirra segist hafa viljað
gefast upp á leiðinni, þrátt fyrir erfiða
göngu og veikindi. „Mér fannst þetta
stundum heldur langt ferðalag. Á
degi átta eða níu var ég orðin spennt
að komast í sturtu, á venjulegt kló-
sett, fá venjulegan mat og vera ekki
alltaf kalt,“ segir hún.
„En mér fannst þetta aldrei líkam-
lega erfitt og sé ekki eftir að hafa far-
ið.“
Þau segjast hafa skipst á að vera
veik á leiðinni. Púlsinn var hár og öll
áreynsla reyndi á. „Þegar ég var
kominn í grunnbúðir og við vorum að
ganga að okkar búðum leið mér
hræðilega; mér hefur aldrei liðið eins
illa á ævinni,“ segir hann og Helga
Guðrún bætir við: „Þá var ég orðin
mun betri en Benni alveg búinn.“
Eftir einn sólarhring í grunn-
búðum ákváðu systkinin að ganga
niður, ásamt Hilmu, en í boði var að
taka þyrlu. „Við þáðum ekki að fara
með þyrlunni; okkur langaði að klára
þetta.“
Að takast á við áskoranir
Systkinin segja bæði að gaman hafi
verið að deila þessari reynslu með
föður sínum og eru þau reynslunni
ríkari. „Mér fannst það mjög
skemmtilegt af því að þetta var svo
krefjandi og reyndi á,“ segir Helga
Guðrún.
„Pabbi sagði strax í upphafi að
þetta væri ferðalag en ekki frí,“ segir
Benedikt.
„Já, ég myndi aldrei segja að ég
hefði farið í frí til Nepals. Það er ekki
alveg lýsandi. Þetta var leiðangur,“
segir hún.
„Maður hafði nógan tíma til að
hugsa og það var oft smá stressandi
að þurfa að passa upp á allt,“ segir
hann.
„Mér fannst ég læra það hvernig
ég bregst við erfiðleikum. Ég hafði
aldrei prófað neitt svona erfitt áður;
þetta var áskorun. Og ég sá hvernig
ég myndi standa mig. Ég er kannski
minnsta fjallageitin af okkur fjórum
Íslendingunum sem vorum þarna í
hópi þannig að mér fannst gaman að
finna að ég gæti staðið mig,“ segir
hún og bætir við að hún hafi lært að
meta ýmislegt betur eftir að hafa far-
ið í þessa ferð.
„Það hljómar kannski eins og klisja
en eftir ferðina lærði ég líka að kunna
betur að meta hluti eins og venjulega
heita sturtu og almennilegt klósett,“
segir Helga Guðrún og brosir.
„Svo auðvitað víkkaði sjóndeildar-
hringurinn við að koma á svona fram-
andi stað.“
Niðurleiðin segja þau að hafi verið
erfiðari en uppleiðin. Gengið var nið-
ur á skemmri tíma en upp og því
lengri ganga á hverjum degi, eða átta
til níu tímar. Einnig gerði hæðar-
veikin aftur vart við sig. „Þetta voru
erfiðir dagar,“ segir hún.
Erfið kveðjustund
Áður en lagt var af stað niður þurftu
systkinin að kveðja föður sinn. Bjarni
fylgdi börnum sínum að stíg þar sem
leiðir skildi. Benedikt segir að
kveðjustundin hafi verið tilfinninga-
þrungin.
„Það var erfiðara en ég hélt að það
yrði,“ segir Helga Guðrún. „Ég var
ekki búin að hugsa almennilega út í
það en þegar kom að því var það mjög
erfitt,“ segir hún.
„Því laust niður í huga minn að
þetta gæti verið í síðasta skipti sem
ég sæi hann. Það voru 2,5 % líkur á að
hann dæi og það var ekki hægt að líta
framhjá því,“ segir Benedikt en
Helga Guðrún segist ekki hafa hugs-
að um það. „Eftir að hafa verið í
grunnbúðum í einn dag vissi maður
hvað aðstæðurnar voru erfiðar. Ég
gat ekki ímyndað mér að hann ætti
eftir að vera þarna í margar vikur í
viðbót, við miklu verri aðstæður en
við vorum í. Mér fannst erfitt að vita
af honum þarna, svona langt í burtu
og að eiga eftir þessa þrekraun,“ seg-
ir hún.
Þau segjast bæði vel hafa treyst
föður sínum, sem er mjög reyndur
göngumaður, til að ganga á tindinn en
viðurkenna að hafa haft áhyggjur af
aðstæðum sem maðurinn ræður ekki
við. „Það er algjört prinsipp hjá
pabba að bera virðingu fyrir náttúr-
unni og aldrei halda að maður hafi
yfirhöndina gagnvart henni,“ segir
Benedikt og segist vita að náttúran sé
manninum sterkari.
„Allt getur gerst,“ segir Benedikt
og viðurkennir að þessi síðasta vika
þegar hann vissi af föður sínum á
niðurleið hafi tekið á taugarnar.
Endir á okkar ferðalagi líka
Benedikt segist hafa verið í golfi þeg-
ar fréttir bárust af því að faðir hans
hefði komist á toppinn. Vinir hans
óskuðu honum til hamingju en þá
fyrst fór Benedikt að fá áhyggjur.
„Mér fannst á þeim tímapunkti að ég
gæti á hverri stundu frétt eitthvað
hræðilegt. Það var stressandi tími.“
Eins og fjallað hefur verið um í fjöl-
miðlum komst Bjarni á toppinn, átt-
undi Íslendingurinn sem það afrekar.
Þaðan komst hann heill á húfi niður,
en fjallið tók mörg mannslíf síðustu
vikur. Bjarni sagði í samtali við mbl.is
að átakanlegt hefði verið að ganga
fram á nýlátið fólk og segir: „Það er
auðvitað mjög sorglegt að sjá þegar
fólk er að fylgja draumum sínum að
þetta sé verðið og það kosti það lífið.“
„Við vorum fegin að komast niður
og ég get ekki ímyndað mér hvernig
honum hefur liðið,“ segir Helga Guð-
rún.
„Ég talaði við hann í síma og hann
var mjög djúpt snortinn eftir þennan
dag. Það var erfitt fyrir hann að vera
stoltur af sjálfum sér þegar hann svo
gengur fram á fólk sem var að gera
það nákvæmlega sama og hann og
borgaði fyrir það með lífi sínu,“ segir
Benedikt.
Þau systkinin áttu von á föður sín-
um þetta sama kvöld sem viðtalið var
tekið. „Það að hann komi heim er líka
svolítill endir á okkar ferðalagi. Það
verður rosalega gott að fá hann heim
í kvöld. Við vorum að grínast með það
að setja tjald inn í svefnherbergið
hans og allar vistir með,“ segir Bene-
dikt og hlær.
„Manni fannst maður mjög lítill einhvern veginn í þessum stóru fjallasölum. Þarna voru endalausir fjallgarðar. Þegar mað-
ur komst nálægt tindum sá maður hvað þeir voru ógnvænlega háir,“ segir Benedikt.
Gangan upp í grunnbúðir Everest tók tíu daga og reyndi á en sumir dagar voru
betri en aðrir og þá var hægt að brosa framan í myndavélina.
Bjarni og Helga Guðrún ræða málin í grunnbúðum Everest.
Mannlífið og menningin er það sem stóð upp úr hjá tvíburunum.