Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2019, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2019 TRATTO model 2811 L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,- L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla SAVOY model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 330.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 469.000,- ESTRO model 3042 L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,- STAN model 3035 L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,- L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- JEREMY model 2987 L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,- L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,- „Vísindamenn spá því að íslensku jöklarnir verði horfnir innan 150 til 200 ára,“ sagði Ragnar Axelsson ljósmynd- ari á fyrirlestri fyrir boðsgesti við opnun sýningar sinn- ar, Jökull eða Glacier, í Alfred Nobel-galleríinu í Sænska húsinu í Washington á dögunum. „Þá verðum við reynd- ar flest farin – nema hvað við Keith Richards verðum hérna ennþá!“ bætti hann við og uppskar mikinn hlátur, að sögn Einars Geirs Ingvarssonar, hönnuðar sýning- arinnar, sem einnig var á staðnum. „Það getur verið gott að byrja á léttu nótunum í svona fyrirlestrum til að brjóta ísinn,“ segir Einar Geir. Bráðnun jökla er þó vitaskuld grafalvarlegt mál. „Ég sagði fólki að ímynda sér fimm þúsund fótboltavelli en þeim nemur bráðnun jökla á Íslandi á einu ári. Það er mjög mikilvægt að ljósmynda á norð- urslóðum á þessum miklu breyt- ingatímum, mannlífið alveg eins og jökl- ana,“ segir Ragnar en í hópi boðsgesta voru háttsettir embættismenn. Sýn- ingin, sem tengist því að Ísland hefur tekið við formennsku í Norðurskautsráðinu, mun standa fram í september en einnig stendur til að setja hana upp í Seattle og New York. Og svo víðar um heim. Ragnar Axelsson og Einar Geir Ingv- arsson, hönnuður bókarinnar og sýn- ingarinnar Jökuls. Sýning á jöklaljósmyndum Ragnars Axelssonar var opnuð í Washington á dögunum. Við sama tækifæri hélt hann fyrirlestur um lífið á norðurslóðum. „Við Keith verðum hér enn“ Keith Richards „Ofsókn hefir verið einkunn- arorð núverandi valdhafa,“ segir í frétt Morgunblaðsins á þessum degi í sumarbyrjun 1929 en þá sat Framsóknarflokkurinn að völdum, undir forsæti Tryggva Þórhallssonar. „Hefir ofsóknaræðið aðallega beinst að þeim einstaklingum í opinberum trúnaðarstöðum er hafa haft aðra skoðun á þjóð- málum en klíka sú sem stjórnar óhappaverkum valdhafanna. Þessir menn hafa verið flæmdir frá lífsstörfum sínum og auð- mjúkir stjórnargæðingar settir í þeirra stað,“ hélt blaðið áfram. „Svo langt hefir ofsóknin gengið að valdhafarnir hafa þrá- sinnis borið fram á Alþingi frum- vörp er höfðu það eina markmið að gefa hinum gráðugu vald- höfum tækifæri til þess að leggja í einelti heila flokka trún- aðarmanna þjóðarinnar. Á þingi í vetur kom röðin að póst- afgreiðslumönnum landsins. Þeirri ofsóknarherferð varð að vísu afstýrt á síðustu stundu, en valdhafarnir munu þó áreið- anlega ganga þar lengra en meirihluti Alþingis lagði fyrir. Þeir hafa fyr brotið landslög.“ GAMLA FRÉTTIN Einelti valdhafa Framsóknarmennirnir Jónas Jónsson frá Hriflu, Tryggvi Þórhallsson og Ein- ar Árnason sátu í ríkisstjórninni sem Morgunblaðið hafði lítið dálæti á. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Steiney Skúladóttir skemmtikraftur Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbanka Paris Hilton hótelerfingi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.