Morgunblaðið - 01.07.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019
a.
595 1000
s
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
ánn
fyr
i
r
12. nóvember í 16 nætur
Frá kr.
234.995
Bir
tm
e
.
im
sfe
r
BarceloMargaritas
ALLT INNIFALIÐ
aaaa
Landsmót UMFÍ 50+ fór fram í
Neskaupstað um helgina í miklum
veðursveiflum að sögn Auðar Ingu
Þorsteinsdóttur, framkvæmda-
stjóra UMFÍ. Hún segir að hátíðin
hafi tekist vel:
„Það voru 23 gráður einn daginn
og svo fór hitinn í þrjár gráður um
nóttina. Keppendur klæddu sig í
úlpurnar fyrir púttið á sunnudags-
morgun en voru á stuttbuxunum á
laugardag,“ sagði Auður.
Á mótinu var keppt í fjölda
greina; pílukasti, hlaupum, frjáls-
um íþróttum, ringó, boccia og
brids.
Um 300 þátttakendur yfir fimm-
tugu voru með á mótinu í Nes-
kaupstað og skemmtu sér alla
helgina. Hinn 102 ára Norðfirð-
ingur Stefán Þorleifsson keppti í
pútti og var tekið fagnandi sem
þjóðhetju þegar hann hóf leik á
sunnudagsmorgun. Þá var einn
keppandinn í kúluvarpi handleggs-
brotinn en það gerði lítið til: „Hún
kastaði bara með hinni hendinni,“
sagði Auður, aðspurð.
„Það sem stendur upp úr er að
margir voru að prófa nýjar greinar
sem þeir hafa aldrei prófað áður.“
Mótinu lauk með stígvélakasti í
„úrvali af íslensku veðri“, að því er
fram kemur á heimasíðu UMFÍ; í
gegnum súldarúða og smávegis rok
með tilfallandi sólskini og stillu.
Ljósmynd/Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
Hlaup Keppendur kepptu í ýmsum greinum á Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri.
Miklar veðursveiflur á
Landsmóti UMFÍ 50+
Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri lauk í gær
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
40% sautján ára ungmenna, sem
stunduðu íþróttir og tóku þátt í
rannsókn, sem Selmdís Þráinsdótt-
ir, íþrótta- og
heilsufræðingur,
vann úr sem
hluta af meist-
araverkefni sínu
í vor, féllu í
áhættuflokk fyrir
lífsstílstengda
sjúkdóma. Þetta
kemur fram í nið-
urstöðum nýrrar
rannsóknar
Selmdísar sem
benda til þess að of hátt hlutfall ein-
staklinga á fimmtán og sautján ára
aldri sé með of háa fituprósentu og
glími við þrekleysi óháð þátttöku í
íþróttum. Markmið rannsóknarinn-
ar var að skoða áhrif íþróttaiðkunar
á þrek og holdafar og segir Selmdís
í samtali við Morgunblaðið að nið-
urstöðurnar séu sláandi.
32% með háa fituprósentu
Spurð um rannsóknina segir hún
að í úrtakinu hafi verið 137 einstak-
lingar hverra þrek og fituprósenta
var mæld við fimmtán ára aldur og
aftur við sautján ára aldur. Verk-
efnið er hluti af rannsókninni
Heilsuhegðun ungra Íslendinga
sem fram fór árin 2015 og 2017 sem
dr. Erlingur S. Jóhannsson veitti
forstöðu. Vann Selmdís rannsókn
sína upp úr gögnum frá þeirri rann-
sókn.
„Þegar fituprósenta þátttakenda
var skoðuð með tilliti til viðmiðun-
arflokka fituprósentu unglinga kom
í ljós að 32% þeirra sem stunduðu
íþróttir við fimmtán ára aldur voru
með háa eða mjög háa fituprósentu,
og svo 30% við sautján ára aldur,“
segir Selmdís og segir þessar nið-
urstöður vera í takt við mælingar á
þreki. „Samkvæmt viðmiðunar-
flokkum þreks féllu 26,5% þátttak-
enda sem stunduðu íþróttir við
fimmtán ára aldur í áhættuflokk
fyrir lífsstílstengda sjúkdóma sem
eru orsakaðir af kyrrsetu. Þetta eru
sjúkdómar á borð við sykursýki 2,
offitu og hjarta- og æðasjúkdóma
svo fátt eitt sé nefnt. Og fjörutíu
prósent þeirra sem stunduðu íþrótt-
ir við sautján ára aldur féllu líka í
þennan áhættuflokk.“
Spurð hver sé ástæðan fyrir því
að svo stór hluti ungmenna sem
stunda reglulega íþróttir sé of feit-
ur og þreklítill segir hún: „Rann-
sóknin svarar auðvitað ekki spurn-
ingunni hvers vegna þetta er en ég
get auðvitað gefið mér ýmsar hug-
myndir. Ef við lítum á þróun
íþróttaiðkunar undanfarin ár þá
virðast áherslur íþróttaiðkunar
hafa breyst. Æfingum er að fjölga
og áhersla á árangur hefur aukist.
Vandamálið er því mjög ólíklega
íþróttaiðkunin sjálf, heldur það sem
gerist utan íþróttanna, eða réttara
sagt það sem gerist ekki utan
þeirra.“
Of mikil kyrrseta útskýringin?
„Við getum spurt okkur: Gæti
verið að kyrrseta sé svo mikil milli
æfinga að æfingarnar dugi ekki til
að halda holdafari ákjósanlegu og
þreki góðu? Gæti verið að fæðuval
sé svo slæmt að regluleg íþrótta-
iðkun vinni ekki á móti þessari um-
fram fitusöfnun? Þetta er það sem
mér dettur í hug.“
Spurð hvað sé til ráða segir hún:
„Ef maður ætti að koma með ein-
hver ráð eða einhverjar lausnir, eða
hugmyndir um eitthvað sem hægt
væri að gera til að sporna gegn
þessu, þá eyða þessi ungmenni
stórum hluta dagsins í skólanum og
þar af leiðandi er skólinn alveg
kjörinn vettvangur til að draga úr
kyrrsetu.“
Þreklítil þrátt fyrir íþróttaiðkun
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að mörg ungmenni séu þrátt fyrir reglulega íþrótta-
iðkun of þreklítil og með of háa fituprósentu 137 einstaklingar voru mældir við 15 og 17 ára aldur
Morgunblaðið/Hari
Á hjólum Selmdís telur að meiri
hreyfing í skólum sé möguleg lausn.Selmdís Þráinsdóttir
Bæjarhátíðin Bíldudals grænar var haldin á Bíldudal um helgina og
mættu fleiri en oft áður, að sögn Öldu Hlínar Karlsdóttur, eins skipuleggj-
enda hátíðarinnar. Segir hún að allt hafi gengið glimrandi vel en hátíðin
hófst á fimmtudag og stóð fram til eftirmiðdags í gær. Á meðal hápunkta
hátíðarinnar voru grillveisla, sem Arnarlax bauð til á laugardag, og
Tungusöngurinn á föstudagskvöld. „Það er okkar eigin brekkusöngur. Þá
erum við hérna á hátíðarsvæði okkar Bílddælinga, kveikjum lítinn varðeld
og Vegamótaprinsinn, eins og við köllum hann, það er vert hér í bæ, Gísli
Ægir Ágústsson, hann stjórnar þar söng af mikilli röggsemi. Okkur finnst
það svolítið standa upp úr.“ Þá nefnir hún einnig hljómsveitina Albatross
sem „tryllti liðið hér í gærkvöld“, en einn liðsmanna þeirra, Halldór Gunn-
ar Pálsson, oft kenndur við Fjallabræður, var tónlistarstjóri hátíðarinnar.
Mikið fjör á Bíldudals grænum
„VEGAMÓTAPRINSINN“ STÝRÐI SÖNG AF MIKILLI RÖGGSEMI
Morgunblaðið/Ágúst Ingi Jónsson
Stuð Mikil stemning var í „Tungusöngnum“ á hátíðarsvæðinu á föstudagskvöld.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðhera, hefur skip-
að nýtt þjóðleikhúsráð til næstu fjög-
urra ára. Allir fulltrúar í ráðinu
sögðu sig úr því í byrjun júní og var
vísað til þess að það hefðu þeir gert
til að umsóknarferli vegna ráðningar
þjóðleikhússtjóra væri hafið yfir all-
an vafa um mögulegt vanhæfi ein-
stakra fulltrúa í ráðinu.
Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og rithöfundur, verð-
ur nýr formaður ráðsins. Varafor-
maður verður Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri og
einnig sitja Pétur Gunnarsson rit-
höfundur, Sigmundur Örn Arn-
grímsson leikari og Fríða Björk
Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla
Íslands, í nýja þjóðleikhúsráðinu.
Fresturinn rennur út í dag
Í ráðinu sem sagði af sér sátu Ey-
þór Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi
og formaður ráðsins, Herdís Þórð-
ardóttir varaformaður, Birna Haf-
stein, Ragnar Kjartansson og Sara
Hlín Marti Guðmundsdóttir.
Spurður hvers vegna ráðið hafi
sagt af sér segir Eyþór að það hafi
verið skipað fólki úr ólíkum áttum
sem „hafi verið í fréttum“ og segir:
„Svo við töldum best að við myndum
ekki koma að ráðningarferli [þjóð-
leikhússtjóra],“ en starf þjóðleikhús-
stjóra var auglýst laust til umsóknar
í vor. Segir Eyþór að ekki sé þar vís-
að til neins einstaks meðlims ráðsins
heldur hafi verið ákveðið að ráðið
segði af sér í heild. „Við vorum sam-
mála um að fá ætti nýtt fólk að,“ bæt-
ir hann við.
Umsóknarfrestur um starf þjóð-
leikhússtjóra rennur út í dag.
Nýtt þjóðleikhúsráð
hefur verið skipað
Halldór Guðmundsson nýr formaður
Morgunblaðið/Ómar
Þjóðleikhús Nýtt ráð hefur verið
skipað í stað þess sem sagði af sér.