Morgunblaðið - 01.07.2019, Page 6

Morgunblaðið - 01.07.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 / l o k a ð l a u g . 2 9 . j ú n í Sierra borðstofustólar KR. 19.900 um sínum. Eins og kunnugt er hefur breski iðjuhöldurinn og fjárfestirinn, sem mun vera auðugasti maður Bret- landseyja, eignast allmargar jarðir í Vopnafirði og víðar á norðaustur- horni landsins. Er hann þar með orð- inn áhrifamikill hluthafi í laxveiði- ánum þremur í Vopnafirði, Selá, Hofsá og Vesturdalsá. Við ræðum saman á bakkanum meðan synir hans veiða og það fer ekki á mili mála hvað Ratcliffe nýtur þess að vera kominn að ánni sem hann heldur svo mikið upp á. „Ég hef hlakkað allt árið til að koma hingað,“ segir hann og brosir og bætir við að það sé gaman að vera við veiðar með börnunum. „Og byrj- unin gæti vart hafa verið betri,“ bætir hann við. Ratcliffe segir að það sé aldrei hægt að vita fyrr en komið er að ánni hverjar aðstæðurnar verði, svo margt hafi áhrif, veður og staðan á vatninu til að mynda. „En mér finnst áhuga- vert að sjá hvað vatnsstaðan er góð hér í Selá á meðan Vesturdalsá hér í næsta dal rennur varla, þar er ekkert vatn í farveginum. Ég hef aldrei séð hana svona rýra þau ár sem ég hef komið til veiða. Og þar getur enginn lax gengið í ána meðan okkur sýnist fullt af fiski vera gengið hér í Selá.“ Ratcliffe hefur síðustu ár verið fyrstur til að veiða í Selá og hann við- urkennir fúslega að það sé afar ánægjulegt og vitaskuld forréttindi að fá að gera það. Hugmyndir um fiskveg í Hofsá Ratcliffe kveðst sannfærður um að Selá sé aftur á uppleið eftir að laxa- gengd í ána fór í nokkra lægð síðustu ár. Mjög vel sé gengið um ána og laxastofninn, laxinum sé sleppt aftur og veiðiálagið hóflegt. „Það hefur tek- ist vel með fiskvegina sem hafa verið gerðir í ána, búsvæði laxins hefur stækkað en það má alltaf halda áfram að bæta ána og við erum með sitthvað í huga hvað það varðar,“ segir hann. Þegar spurt er um Hofsá, þar sem Ratcliffe á einnig jarðir og hann hefur veitt, þá segir hann að það sé einnig frábær veiðiá. Hann minnist á hug- mynd sem lengi hefur verið á kreiki, að það mætti gera fiskveg við fossinn efst á svæði 1 í ánni. „Það myndi lengja fiskgengan hluta árinnar úr þrjátíu kílómetrum í um eitt hundrað kílómetra, og hrygningarsvæðum myndi fjölga mikið. Áin gæti þannig borið þrefaldan fjölda fiska miðað við það sem nú er,“ segir hann. Er slík framkvæmd til skoðunar? „Okkur finnst þetta áhugaverð hugmynd en meirihluti landeigenda þyrfti að vera því samþykkur og það yrði býsna dýr framkvæmd.“ Náttúran hér einstök Talið berst aftur að veiðiáhuga Ratcliffe sjálfs og hann segist ekki geta lýst því með nógu sterkum orð- um hvað hann nýtur þess vel að vera við ána. „Ég dvel lengstum í borgum, aðallega í London, og er á fundum frá klukkan átta á morgnana og fram á kvöld, er mjög upptekinn allan daginn og svo taka við kvöldverðir sem eru iðulega líka fundir. Það er töluvert álag – en svo kem ég hing- að!“ segir hann og lítur ánægjulega kringum sig í gilinu við ána. Hefur hann látið sig dreyma undanfarnar vikur um þessa veiði? „Ekki bara undanfarið – mig dreymir um það allt árið að vera hér!“ segir hann og hlær. „Þetta er dásam- legt. Síminn hringir ekki einu sinni. Náttúran hér er einstök. Það eru svo fáir staðir eftir á jörðinni sem mað- urinn hefur ekki breytt á neikvæðan hátt. Hvar sem ég kem annars staðar er verið að reisa byggingar, vegi, verksmiðjur, farsímamöstur … en hér hefur maðurinn ekki bylt nátt- úrunni með slíkum hætti, hér er ekki dælt út skordýraeitri eða áburði sem eitrar vötnin, og hér sést ekki ein ein- asta bygging. Vitaskuld eru það gæði.“ Ratcliffe og börn hans héldu áfram að kasta flugum sínum og laxinn að taka – þegar fyrstu vaktinni lauk höfðu þau landað níu löxum, 70 til 78 cm löngum, í Fosshyl, á Fossbreiðu og í Efri-Sundlaugarhyl, og allir reyndust lúsugir. Veiðin í nágrannaánni Hofsá fór heldur hægar af stað en fjórum var landað í fyrsta hollinu. Skríða inn í hundraðatali Loksins tók að rigna á Vesturlandi fyrir helgi en sumar kunustu ár landsins hafa verið óveiðandi í júní vegna vatnsleysis. Í Sporðaköstum á mbl.is er haft eftir Einari Sigfússyni, staðarhaldara við Norðurá, að þegar hækkaði aðeins í ánni hafi lax ruðst upp hana. Einar sagði frá manni sem fór ásamt syni sínum með spúnastöng að Haugahyl á Flóðatangasvæðinu, fyrir neðan Baulu-sjoppuna. „Þeir sáu þá að hylurinn var pakk- aður af laxi og var fullt af fiski að skríða inn og var hann í hund- raðatali,“ sagði Einar. Það svæði gaf þá sex laxa. „Nú er fiskur stökkvandi um allt og leiðsögumenn sem eru að veiða í gilinu hafa séð grúppu eftir grúppu mæta og synda fram hjá þeim.“ Dreymir allt árið um að vera hér Morgunblaðið/Einar Falur Einbeitt Julia Ratcliffe glímir við fyrsta laxinn sem sett var í í Selá en hann tók í fyrsta kasti. Faðir hennar fylgist með en laxinn losnaði skömmu síðar. Hástökkvari Jim Ratcliffe hefur sett í fyrsta laxinn sem var landað úr Selá í ár, 76 cm hrygnu sem tók flugu í Fosshyl. Gísli Ásgeirsson er til aðstoðar.  Laxveiðin fór vel af stað í Selá í Vopnafirði  „Byrjunin gæti vart hafa verið betri,“ segir landeigand- inn Jim Ratcliffe sem hóf veiðarnar ásamt börnum sínum  Fiskvegur í Hofsá áhugaverð framkvæmd STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Julia dóttir Jims Ratcliffes tók fyrstu köstin í Fosshyl í Selá í Vopnafirði þegar laxveiðin hófst þar á laugar- dagsmorguninn var. Og hún þurfti reyndar ekki nema eitt stutt kast til að ná laxi sem hún hafði séð þegar hún gekk niður að hylnum því hann tók strax, vænn og silfraður fiskur. Julia togaðist langa hríð á við fiskinn, yf- irveguð og einbeitt, og naut við það leiðsagnar Gísla Ásgeirssonar, staðar- haldara við Selá, og föður síns sem fylgdist spenntur með. Eftir rúmlega fimmtán mínútur, þegar laxinn var kominn á grynningar og veiðikonan unga var að renna honum að bakk- anum, skaust flugan úr fiskinum og hann þaut út í hylinn að nýju. Julia var skiljanlega svekkt en bræður hennar og faðir sögðu að það myndi ganga betur næst. Ratcliffe bætti við og það réttilega að það að missa fiska væri hluti af veiðiskapnum. Julia óð aftur út með klettaveggn- um norðan við hylinn og tók að kasta en laxarnir höfðu greinilega fært sig dýpra út í hylinn, þangað sem hún náði ekki til, svo faðir hennar og Gísli tóku við og óðu þangað út. Og strax í öðru góða kastinu sem Ratcliffe náði tók lax. Sá var einnig kröftugur, stökk og streðaði, en ekki löngu síðar var hann kominn á land, fysti lax sumars- ins úr Selá, 76 cm hrygna. Selá tók því vel á móti veiðimönnum þetta sumarið, hún er vatnsmikil og það var greinilega mikið af laxi í Foss- hylnum. Fjörið var ekki búið því þá var komið að sonum Ratcliffes, þeim Sam og George, að spreyta sig. Þeir óðu út eins langt og vöðlurnar leyfðu og settu báðir strax í fiska sem voru háfaðir þar úti í hylnum, annar 76 cm hrygna og hinn 70 cm hængur. Allir þrír lúsugir og það veit á gott hvað göngur varðar. Árnar ólíkar í Vopnafirði Eins og undanfarin ár hóf Jim Ratcliffe veiðarnar í Selá ásamt börn- Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Samþykkt var á fundi skóla- og frí- stundaráðs Reykjavíkur í síðustu viku að nemendur í grunnskólum borgarinnar, sem búa í meira en 1,5 kílómetra fjarlægð frá hverfisskóla sínum, fái ókeypis strætókort. Regl- urnar ná ekki til nemenda sem sækja skóla utan síns hverfis. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborg- ar, segir að gert sé ráð fyrir að reglubreytingarnar skili sparnaði um „allt að 16 milljónum“, þar sem skólaakstur verður aflagður í nokkrum hverfum. Hann segir einn- ig að dreifing strætómiða, sem hef- ur verið við lýði, hafi falið í sér til- tekna mismunun og sömuleiðis akstur rúta í tilteknum hverfum. „Þar sem sérstækar aðstæður eru að skapast munum við ennþá hafa skólaakstur,“ segir hann og nefnir nýja Vogabyggð sem dæmi. Þar verði skólaakstur vegna þess hve erfið gönguleiðin í skólann sé. Reglurnar eiga að taka gildi í byrjun næsta skólaárs, hinn 22. ágúst, en þær taka gildi 1. janúar á næsta ári fyrir nemendur í 1.-4. bekk Hlíðaskóla með lögheimili í Suðurhlíðum og nemendum á sama aldri í Melaskóla með lögheimili í Skerjafirði. „Það eru að koma ný hverfi og við sjáum ekki allt út vegna byggingar- hraða. Við erum líka að skoða strætósamgöngur, eins og í Skerja- firði þar sem verið er að setja yngstu börnin í akstur áfram fram að áramótum. Við þurfum að skoða bæði strætóleiðina og fara í gegnum öryggisþáttinn í samráði við sam- göngustjóra borgarinnar,“ segir Helgi og bætir við að enn sé verið að skerpa á reglunum með tilliti til samgönguaðstæðna í borginni. Grunnskólanem- ar fá strætókort  Skólaakstur verður aflagður víða Morgunblaðið/Hari Strætó Fjöldi grunnskólanema gæti átt rétt á strætókortum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.