Morgunblaðið - 01.07.2019, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Fundur helstuleiðtogaheims, G-20,
sem haldinn var í
Osaka í Japan skil-
aði engum stórtíð-
indum og við því var
svo sem ekki búist. Það þarf ekki
að þýða að hann hafi verið
gagnslaus, góð tengsl á milli
ríkja, samtöl og aukinn skiln-
ingur skipta máli.
Að þessu sinni var það einn
hádegisverður sem skilaði þýð-
ingarmeiri tíðindum en stóru
fundahöldin og svo óvænt heim-
sókn sem vakti heimsathygli.
Það var auðvitað Donald
Trump sem stal senunni, enda
Bandaríkjaforseti óhjákvæmi-
lega áberandi en enginn þó eins
og sá sem nú situr. Hádegisverð-
urinn með Xi forseta Kína var já-
kvætt skref í samskiptum
ríkjanna. Þar urðu forsetarnir
meðal annars ásáttir um að létta
á verndartollum á vörur frá Kína
gegn umtalsverðum kaupum
Kínverja á bandarískum land-
búnaðarafurðum. En það sem
meira máli skiptir er að þessi 80
mínútna og árangursríki hádeg-
isverður er sagður upphafið að
frekari viðræðum.
Skyndiheimsókn Trumps til
Norður-Kóreu eftir G-20 fund-
inn var þó það sem enn meiri at-
hygli vakti. Fyrirvaralítið lenti
hann í Suður-Kóreu, rölti yfir á
hlutlausa svæðið, hitti þar Kim
„vin“ sinn og rölti með honum til
Norður-Kóreu. Þar var að vísu
aðeins dvalið í
nokkrar sekúndur,
en heimsóknin var
táknræn og ekki
síður boðið í Hvíta
húsið sem Kim þáði.
Trump getur nú
sagt að hann hafi, ólíkt öðrum
sitjandi forsetum Bandaríkj-
anna, komið til Norður-Kóreu.
En spurningin er hvort hann
komist eitthvað með harðstjór-
ann Kim.
Augljóst er að Trump og Pom-
peo utanríkisráðherra voru
ánægðir eftir fundinn með Kim í
Frelsishúsinu sunnanvert við
landamærin. Pompeo tók fram
að þó að niðurstaða hafi ekki
orðið í Hanoi í febrúar hafi fund-
urinn þar ekki orðið til einskis
og að nú verði hægt að byggja á
honum og hefja viðræður á ný og
finna út hvort að forsendur eru
fyrir samkomulagi. Enn er þó
langt í land, eins og sést á því að
ríkin hafa ekki einu sinni sam-
eiginlegan skilning á því hvað
„kjarnorkuafvopnun“ þýðir, líkt
og Pompeo benti á í gær. En orð
eru til alls fyrst.
Þá er augljóst að bæði Trump
og Kim eiga mikið undir því að
árangur verði af viðræðunum.
Kim þarf að vísu ekki að mæta
kjósendum á næsta ári, en hann
býr stöðugt við þá hættu að þeir
sem næst honum standa og yf-
irmenn hersins telji ekki hægt
að búa við þær aðstæður sem
stjórn hans og efnahags-
þvinganirnar búa landsmönnum.
Trump hitti Xi og
svo Kim óvænt og
vekja þeir fundir að
minnsta kosti vonir}
Aukanúmer og óvænt
urðu aðalatriðin
Ýmsir hafa orðiðtil að benda á
hve undarlega hafi
verið staðið að mál-
um við að velja nýj-
an seðlabanka-
stjóra, og er þó enn
nokkuð í land að því
vali ljúki. Í einni af
ritstjórnargreinum Við-
skiptablaðsins er fjallað um
þetta og þar segir: „Staða seðla-
bankastjóra er án efa veiga-
mesta ókjörna embætti landsins.
Í ljósi sérstakra aðstæðna –
bæði í fortíð, nútíð og framtíð –
er einstaklega mikilvægt að
vanda valið á þeim sem þar
stendur við stjórnvölinn.
Af þeim ástæðum fékk for-
sætisráðherra, sem skipar í
embættið, til liðs við sig nefnd til
þess að fara yfir umsóknirnar og
meta hæfi lysthafanna, aðeins þó
til ráðgjafar. Nú hefur raunar
verið fundið að hæfi hæfisnefnd-
arinnar, bæði í fjölmiðlum og af
tveimur umsækjendum, því einn
nefndarmanna var ljóslega
ótækur í nefndina sakir stjórn-
arstarfa hjá stærsta viðskipta-
vini bankans. Samt var ekkert
gert með þær aðfinnslur.
Kannski Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráð-
herra hafi ekki þótt
það ómaksins virði,
þar sem hún væri í
engu bundin af áliti
nefndarinnar. Sem
er líka eins gott,
svona þegar horft er
til álits nefndar-
innar um hverjir af umsækjend-
unum væru „mjög hæfir“. Sú
niðurstaða var svo einkennileg,
að engu tali tekur, og raunar
engu líkara en að nefndin hafi
ekki í neinu leitt hugann að verk-
efnum seðlabankastjóra, hvorki
almennt né þeirra sérstöku
verkefna, sem bíða hins nýja
bankastjóra.“
Valnefndir hins opinbera áttu
að verða til að hjálpa við að finna
hæfustu umsækjendur og
tryggja það sem kallað var fag-
leg vinnubrögð. Síðan hefur
ítrekað komið í ljós að þessar
nefndir standa ekki undir vænt-
ingum og ráðherrar sitja uppi
með afarkosti, eða telja sig að
minnsta kosti gera það. Við val á
seðlabankastjóra ganga vita-
skuld ekki vinnubrögð eins og
stunduð hafa verið að þessu sinni
og nauðsynlegt að ráðherra leggi
sjálfstætt mat á umsækjendur.
Fram hefur komið
mikil og réttmæt
gagnrýni á ferlið
við val á nýjum
seðlabankastjóra}
Vanhæf valnefnd
M
ennta- og vísindamálaráð-
herra Færeyja, Hanna Jen-
sen, heimsótti Ísland í ný-
liðinni viku. Það var sérlega
ánægjulegt að hitta sam-
starfsráðherrann frá Færeyjum og við átt-
um uppbyggilegan fund þar sem fram
komu ýmsar hugmyndir um frekara sam-
starf á milli landanna. Okkur er báðum um-
hugað um stöðu og þróun okkar móður-
mála, íslenskunnar og færeyskunnar. Bæði
tungumál standa frammi fyrir sömu áskor-
unum vegna örrar tækniþróunar.
Markvissar aðgerðir
Íslensk stjórnvöld geta miðlað miklu til
annarra þjóða þegar kemur að því að snúa
vörn í sókn fyrir tungumálið. Í þessu sam-
hengi höfum við kynnt heildstæða áætlun sem miðar
að því að styrkja stöðu íslenskunnar og vitund-
arvakningu um hana undir yfirskriftinni Áfram ís-
lenska! Nýverið náðist sá ánægjulegi áfangi að Al-
þingi samþykkti samhljóða þingsályktunartillögu
mína um eflingu íslensku sem opinbers máls á Ís-
landi. Megininntak hennar verða aðgerðir í 22 liðum
sem snerta m.a. skólastarf, menningu, tækniþróun,
nýsköpun, atvinnulíf og stjórnsýslu.
Íslenskan gjaldgeng í stafrænum heimi
Hanna Jensen var mjög áhugasöm um máltækni-
áætlun íslenskra stjórnvalda. Með þeirri
áætlun vilja íslensk stjórnvöld tryggja að
íslenskan verði gjaldgeng í stafrænum
heimi, rafrænum samskiptum og upplýs-
ingavinnslu sem byggist á tölvu- og fjar-
skiptatækni. Ákveðið hefur verið að efna
til formlegs samstarfs ríkjanna, þar sem
ríkin deila sinni reynslu og þekkingu á
sviði máltækni. Aukinheldur samþykkti Al-
þingi einnig á dögunum þingsályktunar-
tillögu um samstarf vestnorrænu landanna,
Íslands, Færeyja og Grænlands, á sviði
tungumála og þróunar þeirra í stafrænum
heimi. Þar er lagt til að fulltrúar landanna
taki saman skýrslu um stöðu og framtíð-
arhorfur tungumálanna þriggja ásamt yfir-
liti um máltæknibúnað sem til staðar er
fyrir hvert málanna.
Stöndum með móðurmálunum
Það ríkir mikil pólitísk samstaða um að vekja sem
flesta til vitundar um mikilvægi þess að efla móður-
málið. Við getum, hvert og eitt okkar, tekið þátt í að
þróa tungumálið okkar, móta það og nýta á skapandi
hátt. Það er ánægjulegt að við getum lagt okkar af
mörkum á þeirri vegferð til frændþjóða okkar – því
öll eigum við það sammerkt að vilja að móðurmálin
okkar dafni og þróist til framtíðar.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Vestnorrænt tungumálasamstarf
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Apus apus
LOFTVOG
METHAFI
0
3.000 m
MEISTARI
FARFLUGSINS
líffræðilegs fjölbreytileika
loftslagsbreytinga
Fleiri lífverur, svo sem spörvar
og leðurblökur, nýta sér op í
byggingum þar sem svölungar
byggja sér hreiður
Fjöldi skipta sem svölungur sest
um ævina á öðrum stöðum en
á hreiðrinu en hann sefur á flugi
Hæð þar sem
svölungur blundar
170 km/h Hámarkskraði á flugi
20.000 Fjöldi skordýra semsvölungur étur á dag
sinnum umhverfis jörðina
Vegalengdin sem svölungur
flýgur um ævina (3,8 millj. km)
22.000 km
97
Vegalengdin sem
svölungur flýgur í
farflugi
Múr-
svölungur
Múrsvölungur
hringferð
Pekingsvölungur
ekki upplýsingar
um heimferðina
Árstíðabreytingar og öfgar í veðurfari
hafa áhrif á einu fæðu svölunganna:
örsmáar flugur
Svölungur
Heimild: worldswiftday.org, RSPB, BTO, swift-
conservation.org, commonswift.org, PLOS
SVIÐSLJÓS
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Svölungar eru merkilegirfuglar, raunar svo merki-legir að einn dagur hversárs, 7. júní, hefur nú verið
helgaður þeim. Svölungar eru með
hraðfleygustu fuglum í heimi, þeir
sofa og éta á flugi og áætlað er að
um ævina fljúgi þeir samtals um 3,8
milljónir kílómetra eða 97 sinnum
umhverfis jörðina.
Svölungar eru af svölungaætt og
alls eru til 96 svölungategundir í
þeirri ætt. Margar tegundirnar eru
farfuglar og þeir algengustu, múr-
svölungar, sjást oft hér á landi, eink-
um á landinu sunnanverðu á vorin og
haustin á leið til eða frá vetrarstöðv-
unum sunnan Saharaeyðimerkur í
Afríku. Svölungar hafa einnig sést á
höfuðborgarsvæðinu, Jóhann Óli
Guðmundsson, fuglafræðingur seg-
ist til dæmis fyrst hafa séð múrsvöl-
ung við Reykjavíkurtjörn fyrir
nokkrum áratugum. Þá hafa fleiri
svölungategundir, svo sem alpasvöl-
ungar, einnig sést hér, en þó mun
sjaldnar.
Lifnaðarhættir múrsvölunga eru
afar sérstakir. Vitað var að múr-
svölungar dvelja í um tvo mánuði á
sumrin í norðanverðri Evópu þar
sem þeir byggja hreiður, liggja á og
ala upp unga sína, en síðan halda
þeir á vetrarstöðvarnar í frum-
skógum Afríku og dvelja þar í um 10
mánuði.
Þar sem múrsvölungar sáust aldei
setjast á vetrarstöðvunum grunaði
fuglafræðinga að fuglinn væri allan
þennan tíma á flugi. Og þetta tókst
að sanna þegar sænskir vísinda-
menn í háskólanum í Lundi komu ör-
smáum mælitækjum fyrir á nokkr-
um múrsvölungum og gátu fylgst
með þeim þar til þeir komu aftur á
varpstöðvarnar. Í ljós kom, að fugl-
arnir settust afar sjaldan og þrír
settust raunar aldrei þessa 10 mán-
uði. Er fullyrt, að engir fuglar geti
verið jafnlengi á flugi í einu.
Vísindamenn hafa ekki enn skilið
til fulls hvernig fuglarnir sofa en ein
kenning er sú, að þeir fljúgi upp í
þrjú þúsund metra hæð daglega –
láti sig síðan svífa hægt niður og fái
sér blund á meðan.
Vísindamenn frá sama skóla hafa
mælt flughraða múrsvölunga sem
reyndist vera 110 km á klukkustund.
Samkvæmt þessu er múrsvölungur
hraðfleygasti fugl í heimi; raunar
geta fálkar náð meiri hraða þegar
þeir steypa sér.
Múrsvölungastofninn er ekki tal-
inn í hættu en blikur eru á loft.
Þannig hefur þeim skordýrateg-
undum, sem svölungar nærast á,
fækkað vegna loftslagsbreytinga,
betri hús hafa það í för með sér að
fuglarnir eiga erfitt með að finna
sprungur og glufur til að verpa í og
þeir eiga einnig í samkeppni við aðr-
ar fuglategundir um hreiðurstæðin.
Methafar háloftanna
matast og sofa á flugi
Múrsvölungur var áður nefndur
múrsvala á íslensku, væntan-
lega vegna þess að fuglinn heit-
ir mursejler á dönsku. En svöl-
ungar og svölur eru hvor af
sinni fuglaættinni, raunar eru
svölungar skyldastir kólibrí-
fuglum. Fram kemur í desem-
berhefti Blika, tímariti um
fugla, árið 1985, að Finnur Guð-
mundsson, fuglafræðingur, hafi
reynt að eyða þeim misskilningi
sem nöfnin olllu með því að
taka upp viðskeytið „svöl-
ungur“ í Fuglabók AB árið 1962
og láta hinum eiginlegu svölum
eftir viðskeytið „svala“.
Fékk íslenska
nafnið 1962
MÚRSVÖLUNGUR
Methafar Múrsvölungar á flugi.
Ljósmynd/Wikipedia