Morgunblaðið - 01.07.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 01.07.2019, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 Dýralíf Í Mosfellsdal geta íbúar höfuðborgarsvæðisins notið grænnar náttúru í nálægð við heimkynnin. Ljósmyndari Morgunblaðsins hitti þar fyrir hestastóð sem lét læti hóps máva ekki á sig fá. Hari „Náttúra Íslands er einstök á jörðinni eins og tungumálið sem ís- lensk þjóð talar. Nátt- úran og tungumálið haldast hönd í hönd og samtvinnuð gefa þau okkur Íslendingum þjóðareinkenni sem við þekkjum hvert í öðru. Landið og tungan hafa í ellefu hundruð ár veitt okkur af auðlegð minn- inga í orðum sem lýsa mannlífi kynslóð eftir kynslóð.“ Þannig mælti Vigdís Finnbogadóttir forseti Íslands. Oft bað hún okkur að vanda og varðveita málið und- urfríða. Þó var hún kona tungumálanna og virt sem slík með heilu tungumála-Hofi hér. En hvernig förum við að? Alltaf er verið að hneykslast á börnum, að þau kunni málið verr en við sem eldri erum. En hvað gera svo þeir eldri sem halda utan um fjör- eggið þegar þeir gefa fyrirtækinu nafn, ekki síst eftir að við urðum ferðamannaland? Atvinnulífið, ekki síst hótel og ferðamannaþjónustan, nefna fyrirtækin í stórum stíl upp á ensku og stundum veit maður ekki í hvaða borg maður er staddur hér í Reykjavík, ekkert nema útlensk nöfn á fyrirtækjum, sama á við á lands- byggðinni. Sá sem víða ratar sér þessa þróun hvergi. Jú, á Kanarí heita tveir staðir upp á íslensku Klöru- og Mannabar, því Íslendingar sitja þar að sumbli. Verðum við ekki að nefna fjöllin dal- ina og fossana upp á ensku? Ég held að þetta sé útlendingum ekki þókn- anlegt, þeir undrast þetta að þjóð sem varðveitt hefur elsta tungumál Norðurlanda og skrifað sögu Norð- urlanda og talar enn mál Snorra Sturlusonar skuli hegða sér með þessum hætti. Eyjafjallajökull er „glatað nafn“ – eða hvað? Hvað með Eyjafjalla- jökul, en gosið þar og nafnið gerðu mikið í að auglýsa Ísland af því að fréttamenn kunnu illa að bera þetta nafn fram. „Nýtt nafn á Eyjafjalla- jökul og enginn tekur eftir fréttinni,“ sagði kerlingin. Þessi þróun er til skammar og skað- ar íslenskuna til lang- frama og gerir Ísland um margt aumkunar- vert. Það eru fullorðnir karlar og konur sem ráða þessari för, ekki börnin, en þau læra það sem fyrir þeim er haft. Menntamálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðs- dóttir, fylgir nú í fótspor Vigdísar Finnboga- dóttur og vill efla íslenskuna á öllum sviðum. Ég skora á menntamála- ráðherra að byrja að taka til í mál- garði þeirra fullorðnu og þá þeirra sem stýra atvinnulífinu. Öll fyrirtæki á Íslandi eiga að bera íslenskt nafn, það gera Össur, Marel og Íslensk erfðagreining, það gerir Ísey-skyr. Og eru þessi fyrirtæki víðförul um veröld alla. Það gera enn Hekla, Katla, Gullfoss og Geysir, Dettifoss, Akureyri og enn ber Ölgerðin Egill Skallagrímsson sitt nafn með sóma. Ferðamenn eru hingað komnir til að njóta, þar er sagan í öndvegi, náttúr- an og allt sem við eigum best. Vigdís og Lilja tala mörg tungumál en unna sínu máli og vita hvað það gerir fyrir okkur. Ég bið íslenskunni griða, þetta nafnarugl er það vitlausasta og mesta aðför að íslenskri tungu í ellefu hundruð ár. Eftir Guðna Ágústsson »Ég skora á mennta- málaráðherra að byrja að taka til í málgarði þeirra fullorðnu og þeirra sem stýra atvinnu- lífinu. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Hvað er að Íslend- ingum – er það minnimáttarkenndin? Parísarsáttmálinn um loftslagsmál sem samþykktur var síðla árs 2015 er sem kunn- ugt er almenn stefnu- yfirlýsing um að stöðva hækkun meðalhita á jörðinni sem næst 1,5°C. Undir hana tóku 195 þjóðríki, þar á meðal Bandaríkin sem nú hóta að draga sig út úr samkomulaginu. Þrjú og hálft ár eru liðin frá þessum tímamótafundi og síðan hafa mælingar og framtíð- arspár bent til að horfurnar um hlýnun séu mun dekkri en áður var talið. Því er eðlilega spurt um efndir á hátíðlegum yfirlýsingum Parísar- fundarins. Nú ber ekkert málefni hærra en loftslagsmálin í stjórn- málaumræðu í okkar heimshluta og veruleikinn með sívaxandi áhrifum loftslagsbreytinga mun aðeins herða á kröfum almennings um að staðið verði við stóru orðin. Uppskeran úr dönsku þingkosningunum Niðurstaða þingkosninganna í Danmörku 5. júní sl. þar sem flokk- ar með áherslu á umhverfismál bættu verulega við sig fylgi hefur nú leitt til myndunar minnihluta- stjórnar sósíaldemókrata í skjóli þingmanna þriggja annarra flokka: Radikale venstre, sem er gam- algróinn miðjuflokkur, Sosialistisk folkeparti og Enhedslisten. Í Norð- urlandaráði eru tveir þeir síðast- nefndu starfandi í flokkahópi með Vinstri grænum. Í málefna- samkomulagi flokkanna fjögurra ber langhæst loforðið um að lögfesta niðurskurð í losun gróðurhúsa- lofttegunda um meira en helming frá núverandi stöðu eða um 70% miðað við árið 1990. Þetta yrði vendipunktur í dönskum efnahags- og stjórnmálum næsta áratuginn og til að ná þessu metnaðarfulla marki er þegar á vetri komandi stefnt að lögfestingu þessa í bindandi áföng- um. Síðan skuldbindur ríkisstjórnin sig til að gera grein fyrir stöðunni ár hvert samhliða fjárlagaund- irbúningi. Jafnframt verður gerð fram- kvæmdaáætlun sem dregur upp leiðir að settu marki. Þetta mun óhjákvæmilega reyna á tekjuhliðina hjá ríkis- sjóði Danmerkur, sem missir af gjöldum, m.a. á orku, bíla og bensín. Viðurkennt er af tals- mönnum flokkanna að róðurinn komi eflaust til með að verða þungur síðasta spölinn að 70%-markinu, Orkuskipti, landbúnaður og umferð Þau svið sem einkum er vísað til með almennum orðum í sam- komulagi flokkanna eru orkuskipti á bílaflotanum, græn umskipti í land- búnaði, orkusparnaður í bygging- ariðnaði og umskipti yfir á raforku í flutningum, almennum iðnaði og víð- ar í samfélaginu. Stefna á að aukinni vistvænni raforkuframleiðslu, ekki síst með fleiri vindmyllugörðum á hafi úti, en Danir hafa undanfarið verið í forystu um hagnýtingu á vindorku. Leita á eftir samkomulagi við önnur Norðursjávarríki um sam- eiginlega vindmyllugarða og tengi- stöðvar. Þá er áformað að nýta nú- verandi fjárhagsstuðning við landbúnaðinn til að ná fram æskileg- um breytingum, en tæpur fjórð- ungur allrar CO2-losunar í Dan- mörku, um 13 milljónir tonna, er rakinn til þessarar mikilvægu at- vinnugreinar. Loftslagsráð sem hugmyndabanki Í Danmörku hefur starfað Lofts- lagsráð (Klimarådet) frá árinu 2014, skipað sjö viðurkenndum sérfræð- ingum sem veita skulu stjórnvöldum hlutlæga ráðgjöf um aðgerðir í lofts- lagsmálum, horft allt til ársins 2050. Í samkomulagi flokkanna sem hér um ræðir er vísað á Klimarådet um tillögur til að ná fram með sem hag- kvæmustu móti settum markmiðum til skemmri og lengri tíma. Hér á landi hafa frá árinu 2012 verið í gildi lög um loftslagsmál, sem tillaga liggur nú fyrir um að breyta, m.a. varðandi Loftslagsráð sem sett var á fót á árinu 2018. Eflaust gætum við sitthvað lært af starfi Dana á þessu sviði, ekki síst nú eftir að fram eru komin mjög metnaðarfull mark- mið í loftslagsmálum, þar sem Klimarådet fær aukið og veigamikið hlutverk. Hægriflokkar og loftslagsmálin Það hefur lengi blasað við, hér á landi sem annars staðar, að flokkar sem teljast til hægri á stjórnmála- sviðinu hafa reynst svifaseinir að bregðast við augljósum loftslags- breytingum af mannavöldum. Það á raunar einnig við um marga flokka sósíaldemókrata með rætur í verka- lýðshreyfingu. Þessu valda eflaust margbrotin hagsmunatengsl og ótti við miklar samfélagsbreytingar. Nú er skammsýni í umhverfismálum víða farin að bitna á kjörfylgi þess- ara flokka eins og ljóslega kom fram í Þýskalandi í kosningum til Evr- ópuþingsins í vor og nú aftur í þing- kosningunum í Danmörku. Sjálft Evrópusambandið hefur einnig átt erfitt með að fóta sig gagnvart lofts- lagsbreytingunum og nýlega brá ríkisstjórn Póllands fæti fyrir áformuð og þó hógvær markmið ESB um að draga úr losun næsta áratuginn. Það leynir sér ekki að Danir telja sig nú vera að senda skilaboð til Brussel með sínum nýju og róttæku tillögum. Vonandi verð- ur sem víðast eftir þeim tekið til eftirbreytni, einnig við nyrstu höf. Eftir Hjörleif Guttormsson » Langhæst ber lof- orðið um að lögfesta niðurskurð í losun gróð- urhúsalofttegunda um meira en helming frá núverandi stöðu eða um 70% miðað við árið 1990. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Dönsk stjórnvöld ætla að skora stórt í loftslagsmálum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.