Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 Norðlingabraut 8 110 Reykjavík S: 530-2005 Bíldshöfði 16 110 Reykjavík S: 530-2002 Tryggvabraut 24 600 Akureyri S: 461-4800 &530 2000 www.wurth.is Verkfæri – Festingar – Fatnaður – Persónuhlífar – Efnavara – Bílaperur – Rafmagnsvörur Skrúfbitasett • Skrúfbitasett með 12 bitum, bitahaldara, bitaskralli og beltisklemmu • Fyrir heimilið og vinnustaðinn Vnr: 0614 250 013 Verð: 3.708 kr. Magasín skrúfjárn • Glæsilegt magasín skrúfjárn fyrir hvert heimili • 13 tví-enda bitar Vnr: 0613 600 10 Verð: 9.500 kr. Orkupakki þrjú og umræður um hann hafa slegið öll þing- met hvað umræðu- lengd varðar. Aðeins Icesave-samningarnir eru sambærilegir. En sammerkt þessum gjörningum er að í báðum tilfellum átti að leyna þingi og þjóð um innihaldið. Fara þvert gegn íslenskum þjóðarhagsmunum! Já, fara þvert gegn meirihlutavilja þjóðarinnar! Nú á tíu ára afmæli Icesave- samningsins hefði íslenska þjóðin verið sett á ómældan skuldaklafa fram eftir allri 21 öldinni með skelfilegum afleiðingu. En þjóðin og þáverandi forseti komu í veg fyrir það. Ekki Alþingi! – Allir orkupakkar ESB skylda Ísland undir orkumálastjórn ESB, og orkumarkað ESB, með öllu því yf- irþjóðlega valdi og reglugerðafarg- ani sem því fylgir, og sem hentar alls ekki íslenskum hagsmunum og aðstæðum. Jafnvel dómsvalds- lögsaga Íslands færist til dóms- valds ESB, komi til ágreinings í orkumálum, en þá verður einungis dæmt eftir ESB-lögum og reglum en ekki íslenskum. Slíkt er 100% brot á íslensku stjórnarskránni! Svokallaðir fyrirvarar utanrík- isráðherra halda því ekki vatni, enda notaðir til heimabrúks og meiriháttar blekkinga! Að þessu leyti virðast orkupakkarnir hálfu verri en Icesave. Því þeir verða ævarandi ánauð fyrir þjóðina. EES samningurinn úreltur Fyrir frjálsa og fullvalda þjóð er EES-samningurinn löngu orðinn úreltur og jafnvel þjóðhættulegur. Hann er í dag í raun orðinn aðlög- unarferli Íslands að fullri aðild þess að ESB! Án þess að þjóðin sé að því spurð! Hver tilskipunin á fætur annarri færir Ísland nær að- ild að ESB, því ESB færir sig stöðugt upp á skaftið og seilist í grundvallar-mála- flokka sem áttu að vera utan EES- samningsins í upphafi. Þar má td nefna ný- verið persónuvernd- arlög, landbúnaðarmál og nú orkumálin. Og þar sem stjórnvöld og stjórnmálamenn standa aldrei í lapp- irnar við að verja ís- lenska hagsmuni hvað EES-samninginn varð- ar, þótt í honum sé skýrt ákvæði um að slíkt sé leyfi- legt, er ekki að furða að Bruss- elvaldið gangi á lagið. Stöðugt! Og til að bæta svo gráu ofan á svart hafa stjórnmálamenn sem segjast í orði ekki vera aðildarsinnar að ESB ekki haft enn kjark og dug til að draga ESB-aðildarumsóknina til baka á Alþingi Íslendinga. Til mik- illar gleði ESB-sinnum. Dapurlegt! EES-samningurinn hefur verið lofaður „sem besti viðskiptasamn- ingur“ sem Ísland hefur gert. Þetta er alrangt og ekki síst nú í dag þegar mun fleiri gallar en kostir blasa við á 25 ára afmæli hans. Nægir þar að nefna t.d. skýrslu Hagfræðistofnunar í jan- úar 2018 sem m.a utanríkisráðu- neyti hefur stungið undir stól og algjör þöggun hefur verið um. Þá setti Viðskiptaráð fram tölur 2015 um kostnað við eftirlit með at- vinnulífinu vegna EES. Þar er beinn kostnaður metinn um 20 milljarðar en óbeinn kostnaður hvorki meira né minna en 143 milljarðar. Þessi tala hefur hækkað verulega síðan, og segir „að af þessu samanlögðu sé beinn kostn- aður langt umfram beinan við- skiptalegan ábata af samningnum. Óbeinn kostnaður af afleiðingum regluverks á atvinnulíf er ógn- armikill og má ætla að jafnvel óbeinn ábati samningsins, styrkir til rannsókna og annarra sam- félagsþátta, sé aðeins brot af óbeinum kostnaði við saminginn“. Það er því augljóst að tvíhliða við- skiptasamningur við ESB á jafn- réttisgrundvelli yrði mun hagstæð- ari sbr. Sviss. Orkupakkar ESB eru okurpakkar EES-samningurinn er sniðinn fyrir milljónaþjóðir en ekki fyrir örþjóð og Íslendinga. Hann er að kaffæra íslenskt stjórnkerfi í alls- kyns óþarfa reglugerðafargani sem þenur út hið opinbera bákn á öll- um sviðum með hrikalegum til- kostnaði. Er þar ekki komin að- alskýringin á dýrtíðinni á Íslandi? Þá hefði bankahrunið aldrei komið til nema fyrir fjórfrelsi EES! Stór- kostlegt ómælt fjárhagslegt tjón þar fyrir íslenskt samfélag! Sem enn blæðir úr! Og nú á enn að höggva í sama knérunn. Afhenda Brussel-valdinu orkuauðlindir /orkumál Íslendinga, í svokölluðum orkupökkum sem eru í eðli sínu hreinir okurpakkar! Orkan sem færist þá á evrópskan markað mun margfaldast í verði á Íslandi, í höndum einkagróðapunga inn- lendra sem erlendra. 90% orkufyr- irtækja sem nú eru í almennings- eign verða splittað upp (sbr. Landsvirkjun) í þágu útvalinna séruppalinna gullkálfa. Flokks- samþykktir ríkisstjórnarflokkanna gegn öllu slíku virðist engu skipta. Ungæðislegum hroka forystu þess- ara flokka gagnvart flokksmönnum sínum og kjósendum virðist engin takmörk sett, sbr. t.d. Reykjavík- urbréf Morgunblaðinu 8. júní sl.! En mun sannarlega koma þeim í koll fyrr en seinna! Það eitt er víst! Orkupakkar = Okurpakkar ESB Eftir Guðm. Jónas Kristjánsson Guðmundur Jónas Kristjánsson » Alllir orkupakkar ESB skylda Ísland undir orkumálastjórn ESB, og orkumarkað ESB, með öllu því yfir- þjóðlega valdi og reglu- gerðafargani. Höfundur er bókhaldari og situr í flokksstjórn Frelsisflokksins. gjk@simnet.is Borgarumferð snýst um miklu meira en flutning fólks til og frá vinnu eða skóla. Borg- arumferð snýst líka um ferðir fólks við innkaup til heimilis, ferðir for- eldra með börn til og frá leikskóla, heim- sóknir til vina og ætt- ingja, heimsóknir til heilbrigðisþjónustuað- ila, ferðir í kvikmyndahús, leikhús og á aðrar skemmtanir o.fl. Þá snýst hún líka að stórum hluta um flutninga á vörum af ýmsum gerðum og í ýmsum farmstærðum. Almenningsvagnar geta því aðeins sinnt broti af þessari þörf fyrir flutninga og hið sama á við um göngu- og hjólaferðir. Þess vegna skiptir svo miklu máli að almennt um- ferðarflæði sé greitt innan borgar. Víðast í borgum erlendis er nú mikil áhersla lögð á að bæta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfar- endur, en samhliða er líka gætt að því að tryggja að slíkt skerði ekki eða tefji aðra umferð. Þannig eru útskot sett fyrir strætisvagna, svo að þeir stöðvi ekki alla umferð fyrir aftan sig þegar þeir þurfa að hleypa farþegum til og frá borði, beygjuakreinar eru settar þar sem því verður viðkomið til að létta á umferð um gatnamót, brýr eða undirgöng gera gangandi og hjól- andi vegfarendum auðveldara að þvera stofnbrautir, umferðarljós eru samstillt eða stýrt með skynjurum, o.s.frv. Þessu er öfugt farið í Reykjavík. Þar hafa útskot strætisvagna jafnvel verið fjarlægð, eyjar settar á miðja götu nálægt strætisvagnastoppistöð til þess að bílar geti ekki ekið fram hjá vagni sem hefur stöðvað, beygju- akreinar fjarlægðar með tilheyrandi kostnaði og þannig dregið á ýmsa vegu úr umferðarflæði. Þá er stýring með um- ferðarljósum með ólík- indum. Þannig má finna umferðarljós á einum af fjölfarnari gatnamótum borgarinnar, þar sem gatnamótin eru oft tóm, meðan raðir ökutækja bíða eftir grænu ljósi, sem varir síðan svo stutt að aðeins 3 bílar komast yfir gatnamótin hverju sinni. Það verður vart öðruvísi skilið en að það sé stefna núverandi borgaryf- irvalda að tefja umferð í borginni. Kostnaðurinn af þessari stefnu er gríðarlegur:  Frítími fólks til hvíldar og tóm- stunda er skertur sem nemur um- ferðartöfum.  Skilvirkni vöruflutninga er ófull- nægjandi, sem dregur úr hagkvæmni atvinnulífsins og skerðir þannig öll lífskjör landsmanna.  Loftmengun er langt umfram það sem annars væri. Sé borgaryfirvöldum einhver al- vara í því að vilja bæta lífskjör fólks, bæði fjárhagslega og í formi aukinna frístunda, svo og draga úr óþarfa loft- mengun, þá ættu þau að skipta um stefnu. Sé þeim sama um þessi atriði, nú þá halda þau líklega óbreyttri stefnu. Eftir Erlend Magnússon Erlendur Magnússon »Kostnaðurinn af stefnu borgaryf- irvalda er skertur frí- tími, óhagkvæmni at- vinnulífsins og meiri loftmengun. Er áhugi á að breyta? Höfundur er fjárfestir. Samgöngur í borg Það er með ódæmum hvað margir lögfræðingar okkar elskulegir eru duglegir að skara eld að eigin köku. Þó þeir séu alls góðs maklegir, virðast þeir ekki snúa sér við fyrir minna en milljón. Hvað þá heldur þegar þeir taka að sér einhver mál sem bragð er að. Til dæmis þegar þeir eru settir í það djobb að vera skiptastjórar. Þá er róinn lífróður dag og nótt. Stundum í ein tíu ár. Tugir milljóna eða kannski hundruð í skut. Sjálftaka í góðum búum. Svona hefur dælan gengið í áratugi án þess stjórnmálaelítan hreyfi litla fing- ur. Þeir eru nefnilega að tæja hrosshárið sitt. Meðferðin á dánarbúi konu nokk- urrar var í fréttum um daginn. Hún sýnir svart á hvítu að frjáls veiðileyfi eru mikils virði þegar eftir einhverju er að slægjast. En það eru ekki bara lögfræð- ingar sem hér eiga hlut að máli, þó þeir séu mest áberandi. Aðrir sérfræðingar komast líka stundum í feitt, einkum „hjá því opinbera“. Þá veltur á miklu að kunna að skrifa reikninga. Það er eiginlega aðal kúnstin virðist oft vera. Auðunn vestfirski. „Viskum vera að tæja hrosshárið okkar“ Fé „Sumir virðast ekki snúa sér við fyrir minna en milljón.“ Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Ég er fyllilega sammála og tek heils hugar undir hvert orð sem sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson skrifaði hér í blaðið á þjóðhátíðardaginn, og finnst hann hafa lög að mæla. Hvað er meira viðeigandi en að kalla þau göng, sem nú er verið að gera milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, eftir einum helsta sögustað Vestfjarða þar í nágrenninu, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar forseta, sem gerður hefur verið að safni um hann? Þeir eru ekki svo margir merkir sögustað- irnir á Vestfjörðum, sem vert er að vekja athygli á með slíkum hætti, svo að það er rík ástæða til þess að styðja enn betur við minningu Jóns Sigurðssonar en verið hefur með því að láta göngin, sem eru svo skammt frá bæjarhlöðum Hrafnseyrar, heita eftir staðnum. Ég skora því hér með eindregið á forsætisráðherra, sam- gönguráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra hæstvirta, að beita sér fyrir því, að göngin fái framvegis að heita Hrafnseyrargöng. Guðbjörg Snót Jónsdóttir. Hrafnseyrargöng – áskorun Guðbjörg Snót Jónsdóttir Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.