Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Veldu öryggi SACHS – demparar ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA Mengun andrúms- lofts, lands og sjávar fer hraðvaxandi. Nú þegar búa hundruð milljóna manna við banvæna loftmengun, mengað vatn og vatns- skort. Milljónir stríðs- hrjáðra og sveltandi á vergangi vítt og breitt um heiminn. Hlýnun lofthjúpsins af völdum útblásturs gróðurhúsa- lofttegunda ógnar öllu lífríki jarðar. Tegundum plantna og dýra fækkar æ hraðar og fólksflutningar vegna veðurfarsbreytinga og upp- skerubrests aukast. Starf Sameinuðu þjóðanna sl. áratugi hefur ekki borið tilætlaðan árangur þrátt fyrir fyrirheit leið- toga aðildarríkjanna. Á sama tíma vex neysluþjóðfélagið með slíkum skriðþunga að vart verður við ráðið. Vísindamenn benda á að tjónið sem þegar er orðið á lífríki jarðar vaxi með auknum hraða og að við- snúningur sé ekki fyrirsjáanlegur að óbreyttri stefnu í meng- unarmálum (loftslagsmálum, meng- un lands og sjávar). Við almennir borgarar erum því í fjötrum skammsýni og aðgerðaleys- is stjórnmálaforystu þjóðanna. Fjölmargir leikir og lærðir hafa varað við andvaraleysi og skilnings- leysi á afdrifum jarðar, en þrátt fyr- ir mikinn þrýsting á ríkisstjórnir heims er árangurinn alltof lítill. Við Íslendingar verðum að átta okkur á því að við björgum litlu í mengunarmálum heims ef við ein- ungis hugsum um aðgerðir tengdar okkar þjóð, því með réttum áherslum og réttum ákvörðunum yrði það tiltölulega einfalt mál. Það sem nú skiptir mestu máli er að allir borgarar, fyrirtæki og stofn- anir hinna ríku þjóða heims, en þar eru Íslendingar einna fremstir í flokki, taki höndum saman og leggi fram þann viðbótarkraft sem gæti ráðið úrslitum um hvort við stöðv- um nægilega hratt hina skaðlegu þætti mengunarinnar, en það verður ekki gert nema með beinu og reglulegu fjár- framlagi allra borgara þessara þjóða, auðvit- að allt eftir getu hvers og eins, en jafnframt að borgararnir hefji sem allra fyrst aðgerð- ir í vistvænum lifn- aðarháttum í enn rík- ari mæli en fram að þessu. Ofangreindar að- gerðir borgaranna munu einnig stórauka vonir þeirra sem nú horfa á aðgerðaleysi sundurleitra stjórn- valda, en einnig setja pressu á stjórnmálakerfið. Að þessu sögðu er hér með skor- að á alla íslenska þjóð að hefja fulla þátttöku í þessu mikilvæga verkefni sem frumkvöðlar í þeirri von að aðrar þjóðir fylgi í kjölfarið því ef við borararnir bregðumst ekki við nú þegar og bætum stórlega við það afl sem þegar er fyrir hendi af hálfu ríkisstjórna og alþjóðastofnana verður lítið úr framtíðaráformum mannkyns. Við Íslendingar erum örsmátt samfélag í mannhafi þjóðanna en getum haft frumkvæði að samstilltu átaki í fjáröflun sem byggist á stöð- ugu framlagi allra, einnig fyr- irtækja og stofnana, en allt óháð ríkisafskiptum enda er hugmyndin að bæta við afli. Fjárframlag frá borgurunum verður væntanlega mishátt eftir að- stæðum hjá hverjum og einum, en ef meðaltalsframlag yrði í fyrstu 250 krónur á dag hjá 350 þús. Ís- lendingum mundi árssöfnun nema um 32 milljörðum króna. Í fyrstu er líklegt að þeir sem lakast standa muni ekki ná þessu marki. Markmiðin eru að nýta það fjár- magn sem kann að safnast til stuðn- ings þeim verkefnum sem talin eru mikilvægust í baráttunni við meng- unina, m.a.: Fjarlægja plastflekana úr höfunum, breyta eða bæta starf- semi orkuvera sem knúin eru af óvistvænum orkugjöfum, stöðva ágang á viðkvæm vistkerfi jarðar, styrkja fátæka þjóðfélagshópa víðs- vegar um heim sem berjast við hungur, sjúkdóma, heilsuspillandi umhverfi, skort á heilbrigðisþjón- ustu, menntun og húsnæði til að fjölskyldur nái tökum á fjöl- skylduuppbyggingu og fjöl- skyldustærð. Styðja við ein- staklinga og hópa sem lagt hafa mikið af mörkum í baráttunni við mengunaröflin. Auka samvinnu milli þjóða sem gæfi ný tækifæri til betri skilnings á samstarfi til sam- nýtingar auðæfa jarðar og sann- gjarnari og nytsamari skiptingu þeirra gæða. Með þessu frumkvæði getum við sýnt öðrum þjóðum að með því að við öll, jafnt einstaklingar, samtök og fyrirtæki, leggjum eins mikið af mörkum og hvert okkar megnar og með bjartsýnina að leiðarljósi get- um við náð miklum árangri í barátt- unni við mengunina. En til þess að koma þessu verkefni af stað og skapa sem mest traust þarf hóp vís- indamanna á ýmsum sviðum. Fjár- málasérfræðinga sem byggja upp það fyrirkomulag sem hentar best við söfnun á fjárframlögum frá landsmönnum og vísindamenn á ýmsum þekkingarsviðum. Um vörslu fjár, sem safnast kann, til stuðnings ofangreindri áskorun, yrði það virðulegt hlutverk háskólasafélagsins og nátt- úruverndarsamtaka á Íslandi að fremstu vísindamenn á sviði meng- unarmála og fjármála sæju um að útdeila söfnunarfé til verkefna sem koma að sem mestu gagni fyrir heimsbyggðina hverju sinni. Íslendingar, sýnum frumkvæði Eftir Jón Hannes Sigurðsson. »Með frumkvæði að samstilltu átaki í fjáröflun getum við orðið öðrum þjóðum góð fyrirmynd til bjargar lífkerfi jarðar án ríkisafskipta. Jón Hannes Sigurðsson Höfundur er verkfræðingur. jhsigurdsson@gmail.com Í gegnum EES- samninginn komumst við með allar okkar framleiðsluvörur og af- urðir frjálslega og að mestu leyti tollalaust inn á stærsta markað heims; ESB/EES, 30 ríki, með vel yfir 500 milljónir íbúa. Á sama hátt opnaðist okkur að mestu vega- bréfalaust frelsi til heimsókna, dval- ar og búsetu í öllum þessum löndum, með fullum réttindum til starfa, at- vinnu og eigin reksturs. Okkar heim- ur fimmtánhundruðfaldaðist. Þökk sé EES-samningnum getum við líka sótt erlenda starfskrafta frá ESB-löndunum til okkar, til að manna og styrkja okkar eigin at- vinnuvegi, einkum ferðaþjónustu og byggingariðnað. Lengi virtist það þó hafa verið lenzka hér að hallmæla Evrópu og evru, þó að einmitt aðild okkar að EES og Schengen-samkomulaginu hefði tryggt okkur efnahagslegar framfarir og margvíslegt frelsi langt umfram það, sem áður hafði þekkzt eða ella hefði getað orðið. Sem betur fer hefur orðið mikil breyting á afstöðu flestra til EES/ ESB og Evrópu síðustu misserin. Upplýst umræða hefur leitt til þess að fleiri og fleiri skilja nú hversu mikilvægur og dýrmætur EES- samningurinn er. Ef miðað er við afstöðu þing- manna til þriðja orkupakkans, sem í umræðu og afstöðu er orðinn nokk- urs konar „persónugervingur“ EES- samningsins, þá virðist yfirgnæfandi meirihluti þeirra vera hlynntur þriðja orkupakkanum – enda sjálf- sagður hluti af EES-samningnum, eins og frjálsar flugsamgöngur, frjálsir skipaflutningur, frjáls fjar- skipti og önnur frjáls og gagnkvæm viðskipti – en ætla má, að flestir þessara þingmanna meti EES- samninginn í heild sinni að verð- leikum. Hvað varðar almenning og afstöðu hans þá sýnir nýleg skoðanakönnun Maskínu að 57% landsmanna eru hlynnt eða í meðallagi hlynnt fullri aðild Íslands að ESB. Meta má umfang EES-samnings- ins – með Schengen – í núverandi formi sem 80-90% af fullri ESB- aðild. Það, sem upp á vantar fulla ESB-aðild, er einkum tvennt:  Samkomulag um fiskveiðar við Ísland og stjórn þeirra.  Endanlegt samkomulag um landbúnaðarmál. Maltverjar voru um margt í svip- aðri stöðu og við gagnvart ESB. Lítil eyþjóð, háð fiskveiðum og ferðaþjón- ustu. Þegar landið gekk 2003 í ESB, fékk það full yfirráð yfir sínum fiski- miðum og fulla stjórnun fiskveiði- lögsögu sinnar á grundvelli sög- unnar en þeir höfðu sjálfir og einir farið með þessi yfirráð í gegnum tíð- ina. Það sama gildir um fiskveiði- lögsögu okkar og fiskimið og virðist það fyrirsjáanlegt og öruggt að við myndum fá sömu góðu úrlausnina fyrir þessi mál og Malta. Við inngöngu Svía og Finna í ESB 1995 fengu þeir líka sérákvæði inn í samninginn fyrir landbúnað sinn, honum til verndar og styrktar, vegna þess, sem nefnt var „norræn lega“. Ljóst virðist vera að við myndum fá sömu sérkjör fyrir ís- lenzkan landbúnað við fulla inn- göngu. En hví er full ESB-aðild, í stað 80- 90% aðildar með EES og Schengen nú, svo mikilvæg!? EES-samningurinn var alltaf hugsaður sem fyrsta skref inn í ESB; til bráðabirgða. Samningurinn veitir því ekki aðgang að nefndum, ráðum og framkvæmdastjórn ESB; m.ö.o. við und- irgengumst það – sem átti að vera í bili – að taka upp lög, tilskip- anir og reglugerðir ESB – sem reyndar eru nær allar af hinu góða – án þess að hafa nokkuð um þær að segja; án nokkurrar umsagnar eða áhrifa, nánast án nokkurrar fyrirfram hug- myndar um, hvað koma skyldi. Þetta var og er auðvitað ófært til lang- frama. EES-samningurinn veitir heldur ekki aðgang að öflugasta og stöð- ugasta myntkerfi heims, evrunni, sem bæði tryggir lægstu vexti sem völ er á fyrir almenning og atvinnu- vegina og stórfellt aukalegt öryggi í formi launa, tekna og eigna, jafnt sem kostnaðar, gjalda og skulda í einni og sömu traustu myntinni. Íhalds- og afdalamenn landsins fullyrða að stóru þjóðirnar ráði öllu í ESB; þó við værum inni myndum við engu ráða. Þetta er enn ein rang- færslan og ósannindaklisjan. Minnstu þjóðirnar hafa hlutfalls- lega langmest að segja í ESB. Við fengjum sex þingmenn á Evrópu- þingið. Það þýðir 57.000 Íslendinga á bak við hvern þingmann. Þjóðverjar, með sínar 82,4 milljónir íbúa, hafa 96 þingmenn; hjá þeim standa 858 þús- und landsmanna á bak við hvern þingmann. Danir, sem eru 5,8 millj- ónir, hafa 14 þingmenn; 414 þúsund Danir standa á bak við hvern þing- mann þeirra á Evrópuþinginu. Svona er það í öllu; þess er gætt, að líka þeir „minnstu“ hafi fullan að- gang að áhrifum og völdum. Hver aðildarþjóð, stór eða smá, fær þann- ig einn ráðherra eða kommissar. Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir fá líka bara einn hver. Oft veljast fulltrúar smærri aðild- arþjóða til forustu; Jean-Claude Juncker, frá Lúxemborg, næstfá- mennasta ríki ESB, hefur t.a.m. ver- ið annar valdamesti maður sam- bandsins síðustu 5 ár. Margrethe Vestager, frá Dan- mörku, kynni að taka við af honum. Skandinavar hafa alltaf haft mikið að segja í ESB, enda menn valdir eftir persónuleika og hæfileikum, en ekki eftir stærð þjóða. Hver aðildarþjóð hefur auk þess í raun neitunarvald, þar sem þjóðþing allra – nú 28 – aðildarríkjanna verða að samþykkja alla meiriháttar samn- inga, sem ESB gerir, og alla meiri- háttar löggjöf eða breytingar á fyrri löggjöf. Loks skal bent á, að ESB er nú með fríverzlunarsamninga við þrjú mikilvæg lönd – öfluga markaði með samtals 216 milljónir íbúa; Japan, Suður Kóreu og Kanada – en þessir fríverzlunarsamnngar eru ekki með í EES-samkomulaginu. Full ESB-aðild tryggir þannig í dag frjálsan og tollalausan aðgang að markaði með nær 730 milljónum manna með verulega kaupgetu. Hvernig getum við enn verið að væflast með þetta!? Eftir Ole Anton Bieltvedt »EES-samningurinn var alltaf hugsaður sem fyrsta skref inn í ESB; til bráðabirgða. Og veitir því ekki að- gang að nefndum, ráð- um og framkvæmda- stjórn ESB Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaup- sýslumaður og stjórnmálarýnir. Sé EES gott, hvernig getur ESB þá verið slæmt?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.