Morgunblaðið - 01.07.2019, Side 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019
✝ Skúli ÓlafurÞorbergsson
fæddist í Reykja-
vík 3. apríl 1930.
Hann lést á LSH
Fossvogi 23. júní
2019. Foreldrar
hans voru Krist-
jana Sigurbergs-
dóttir húsmóðir
og Þorbergur
Skúlason skó-
smíðameistari í
Reykjavík. Systir
Skúla var Ingibjörg Þorbergs,
tónskáld og textahöfundur, f.
25. október 1927. Hún lést 6.
maí sl. Skúli giftist eftirlifandi
eiginkonu sinni 4. ágúst 1955,
Guðrúnu S. Björnsdóttur
verslunarmanni, f. 20. október
1934. Börn þeirra eru Skúli
Þorbergur Skúlason, f. 30.
inum og síðan á Óðinsgötunni.
Hann vann ýmis störf á ung-
lingsárunum, m.a. á Ríkis-
útvarpinu ásamt systur sinni.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Íslands 1954
og hóf þá störf á hótelinu á
Keflavíkurflugvelli þar sem
hann starfaði í níu ár. Eftir
það vann hann hjá Skeljungi
sem fulltrúi í um 30 ár. Skúli
og Guðrún bjuggu alla sína tíð
í Keflavík, fyrst á Sólvallagötu
2 en lengst af á Melteig 12 og
Aðalgötu 6. Skúli var víðles-
inn, góður teiknari, orti ljóð,
var ágætis skákmaður, söng í
Þjóðleikshúskórnum og óp-
erum Þjóðleikhússins. Þau
hjónin voru áhugasöm um
garðrækt og sjást þess merki
enn í dag á Melteignum sem
þau fengu viðurkenningu fyrir
árið 1971. Á Þingvöllum
byggðu þau sumarbústað þar
sem börn og barnabörn þeirra
nutu samvista með þeim. Út-
för Skúla Ólafs fer fram frá
Keflavíkurkirkju í dag, 1. júlí
2019, klukkan 13.
apríl 1956, eig-
inkona hans er
Inga Lóa Guð-
mundsdóttir.
Börn þeirra eru
María Rós, Berg-
lind og Guð-
mundur Ingi.
Björn Víkingur
Skúlason, f. 8.
nóvember 1957,
giftur Elínu
Gunnarsdóttur.
Dætur þeirra eru
Vala Rún og Jana Birta. Erla
Guðjónsdóttir, f. 11. sept-
ember 1959, sambýlismaður
hennar er Valur Björnsson.
Synir Erlu eru Gunnar Þór
Reynisson og Skúli Rúnar
Reynisson.
Skúli Ólafur ólst upp í
Reykjavík, fyrst í Skerjafirð-
Fyrir rétt rúmri viku kvaddi
ég mann sem hefur verið mér af-
skaplega kær alla mína ævi.
Hann afi minn, Skúli Ólafur
Þorbergsson, fór frá okkur og yf-
ir í Sumarlandið þann 23. júní.
Sáttur með sitt líf, með fjöl-
skylduna sína hjá sér.
Ég gæti skrifað heila ritgerð
um hann afa minn, en hann
kenndi mér heilmikið á mínum 38
árum sem komin eru.
Heiðursmaður mikill.
Allaf svo kátur heim að sækja.
Ég er skírður í höfuðið á hon-
um og ömmu minni, skírður
heima hjá þeim þar sem þau áttu
heima áður, á Melteig 12 í Kefla-
vík. Hann var góður við okkur
krakkana og svo síðar mína
krakka.
Ég er heppinn að hafa fengið
að hafa hann í mínu og barnanna
minna lífi. Öll nutum við góðs af
okkar kynnum við afa Skúla.
Eina systkini afa, Imma, Ingi-
björg Þorbergs, fór einnig frá
okkur nýlega.
Fyrir rétt rúmum tveimur vik-
um fór einmitt afi á fund Guðna
forseta, til að skila til hans fálka-
orðunni, sem Imma systir hans
hafði fengið.
Stundum gerast hlutirnir
hratt. Of hratt.
Þau tvö farin á svona skömm-
um tíma. Sorgin er því margföld
þessar vikurnar. Það má samt
ekki bara horfa á það slæma.
Það verður að horfa á það góða
sem lifir í minningunni um
ókomna tíð. Afi minn kenndi mér
fyrstur manna á tölvur.
Fyrst var það Sinclair Spectr-
um þegar ég var krakki.
Að spila tölvuleiki í Sinclair-
tölvunni uppi á háalofti á Melteig
12 með afa, bróður mínum og
frændsystkinum mínum.
Það voru dásemdartímar sem
lifa í minningunni.
Þegar ég var að nálgast ferm-
ingu gaf afi okkur Gunna fyrstu
eiginlegu PC-tölvuna sem við
komumst í tæri við (að undanskil-
inni Amstrad-tölvu sem við feng-
um frá pabba okkar á árum áður).
Um var að ræða (0)86 IMB
PC-tölvu sem var tekin úr notkun
hjá Skeljungi, þar sem hann hafði
verið þar að vinna í hartnær 45
ár.
Stórir floppy diskar, 5.2
tommu harður diskur sem spann
21mb.
Svartur skjár með grænu letri.
Dos-kerfi með svarthvítu Win
2.0 ef ég man rétt.
Allt þetta var kveikjan að mín-
um áhuga á tölvum.
Allt þetta ásamt svo mörgu
mörgu öðru á ég afa mínum að
þakka.
Nesti fyrir lífsins veg gaf hann
mér margt.
Fyrstu eiginlegu vinnuna mína
útvegaði hann mér.
Fann ekki sumarvinnu árið
1998, var í eldhúsinu hjá ömmu og
afa að ræða þau mál, vorið 1998.
Afi Skúli fann lausn á því. Tók
upp símann, hringdi í hann Birgi
Guðna, BG, vin sinn.
Þar með einu stuttu símtali
hafði hann útvegað mér vinnu í
varahlutaverslun BG Bílakringl-
unnar í Grófinni, Kef.
Já hann afi minn.
Vertu bless, afi minn.
Ég skal hugsa um hana ömmu
eins mikið og ég get.
Þú skilar kveðju til hennar
Immu.
Þinn afastrákur og nafni,
Skúli Rúnar.
Elsku afi okkar.
Rúmum einum og hálfum mán-
uði frá því að Imma frænka deyr
eruð þið systkinin sameinuð á ný.
Frá því að við munum eftir okkur
hefur þú alltaf verið til staðar.
Það var ávallt notalegt að koma
til ykkar ömmu þar sem oft var
eitthvað um að vera í eldhúsinu,
garðinum, á háaloftinu eða í
skúrnum.
Þú fræddir okkur um heima og
geima, sagðir okkur sögur,
kenndir okkur ýmislegt og veittir
okkur stuðning og athygli þegar á
þurfti að halda. Stuttu eftir að þú
kvaddir kom prestur til okkar á
spítalann, hann minnti okkur á að
þakka fyrir allt það sem þú lagðir
á þig svo að við gætum átt það líf
sem við eigum í dag. Það er því
með þakklæti og sorg sem við
kveðjum þig, því eins og sagt er,
þá er ekki hægt að syrgja án þess
að elska.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
Loks beygði þreytan þína dáð,
hið þýða fjör og augnaráð;
sú þraut var hörð – en hljóður nú
í hinsta draumi brosir þú.
(Jóhannes úr Kötlum)
Jana Birta Björnsdóttir,
Vala Rún Björnsdóttir.
Skúli Ólafur
Þorbergsson
Elsku hjartans Ægir-Ib, Ellen
og Jon Emil. Orð fá því ekki lýst
hvernig mér líður núna. Það er
svo óraunverulegt og óréttlátt að
þið séuð farin frá okkur. Þið gerð-
uð lífið svo sannarlega skemmti-
legra fyrir okkur hin. Ægir-Ib
sem var eins og gleðisegull sem
dró alla til sín með sinni skemmti-
legu nærveru, dásamlega, hæg-
láta Ellen, með fallega brosið sitt
og hláturinn og yndislegi Jon
Ægir-Ib Wessman,
Ellen Dahl Wessman,
Jon Emil Wessman
✝ Ægir-IbWessman
fæddist 12. sept-
ember 1963, Ell-
en Dahl Wessm-
an fæddist 26.
júní 1964 og Jon
Emil Wessman
fæddist 10. ágúst
1998. Þau létust
9. júní 2019. Út-
för þeirra fór
fram frá Hall-
grímskirkju 21. júní 2019. Emil, sem lífið blasti við. Í einu
vetfangi er allt breytt og verður
aldrei samt aftur. Ég kveð ykkur
að sinni og þakka margar góðar
stundir. Ykkar verður sárt sakn-
að en góðar minningar lifa áfram
í hjörtum okkar hinna.
Elsku Ida Björg, Thor Ib, Inga
og Ib, Laila, Flemming og fjöl-
skyldur, ég sendi ykkur mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Tárið
Þú sæla heimsins svalalind,
ó, silfurskæra tár,
er allri svalar ýtakind
og ótal læknar sár.
Æ hverf þú ei af auga mér,
þú ástarblíða tár,
er sorgir heims í burtu ber,
þótt blæði hjartans sár.
Mér himneskt ljós í hjarta skín
í hvert sinn, er ég græt,
en drottinn telur tárin mín –
ég trúi’ og huggast læt.
(Kristján Jónsson)
Anna Björg Ingadóttir
og fjölskylda.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minning-
argreinahöfundar eru beðnir að
hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa not-
uð með minningargrein nema
beðið sé um annað. Ef nota á
nýja mynd skal senda hana
með æviágripi í innsendikerf-
inu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda mynd-
ina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN ÖNUNDARDÓTTIR
frá Neskaupstað,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
fimmtudaginn 27. júní. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. júlí klukkan 13.
Bjarni Gunnarsson Gerður Gunnarsdóttir
Salóme Rannveig Gunnarsd. Þorkell Guðmundsson
Kristján Gunnarsson Hrafnhildur H. Rafnsdóttir
Haraldur Gunnarsson Kolbrún Jónsdóttir
Kristjana Una Gunnarsdóttir Kristján Hjálmar Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Útför móður okkar og tengdamóður,
EVU HARNE RAGNARSDÓTTUR,
verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík
þriðjudaginn 2. júlí klukkan 15.
Greta Önundardóttir Páll Halldórsson
Ásgeir Önundarson Riszikiyah Hasansdóttir
Ragnar Önundarson Áslaug Þorgeirsdóttir
Páll Torfi Önundarson Kristín Hanna Hannesdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR KARLSSON
bifreiðastjóri,
Barðastöðum 45,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
þriðjudaginn 25. júní. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 8. júlí klukkan 13.
Svanhvít Magnúsdóttir
Garðar Gunnarsson Bertha Eronsdóttir
Sævar Guðmundsson
Sigríður I. Guðmundsdóttir
Magnús Ingi Guðmundsson Ólöf Jóhannsdóttir
Auður Ósk Guðmundsdóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN ÁSGEIRSSON,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 25. júní.
Útför hans fer fram frá Seljakirkju
fimmtudaginn 4. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Steinunn Ósk Magnúsdóttir
Jón Ingólfur Björnsson
Ásgeir Björnsson Alma E. Kobbelt
Fanney Magga Jónsdóttir
Jóhanna Björnsdóttir Halldór Magnússon
Guðbjörg Björnsdóttir Gunnar B. Sigurgeirsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARÍA ELÍSABET ÁRNADÓTTIR
FREDERIKSEN,
áður til heimils að Karfavogi 18,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu við Brúnaveg, Reykjavík,
þann 21. júní síðastliðinn.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þórunn Elísabet Green
Árni Gunnar Frederiksen
Baldvin Már Frederiksen Sigríður Jóhannsdóttir
Kristján Örn Frederiksen Aðalheiður Gunnarsdóttir
Ellen María Frederiksen Ólafur Alexander Ólafsson
barnabörn og
langömmubörn
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, afi og
langafi,
GUÐBJÖRN KRISTMANNSSON
trillukarl,
Eyrargötu 2,
Suðureyri,
lést þriðjudaginn 25. júní á sjúkrahúsi
Ísafjarðar.
Hjördís Harðardóttir Ragnar Guðleifsson
Þorsteinn Höröur
Guðbjörnsson
Guðbjörg Guðbjörnsdóttir Sigurður Þórisson
Kristbjörg María
Guðbjörnsdóttir
Steingrímur Árni
Guðmundsson
Lilja Guðbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn