Morgunblaðið - 01.07.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
HM kvenna í Frakklandi
8-liða úrslit:
Ítalía – Holland ........................................ 0:2
Vivianne Miedema 70., Stefanie van der
Gragt 80.
Þýskaland – Svíþjóð ................................ 1:2
Lina Magull 16. – Sofia Jakobsson 22.,
Stina Blackstenius 48.
Holland og Svíþjóð mætast í undanúrslit-
um á miðvikudagskvöld.
EM U21 karla
Úrslitaleikur í Udine á Ítalíu:
Þýskaland – Spánn................................... 1:2
3. deild karla
Álftanes – Einherji................................... 1:3
KF – Vængir Júpíters.............................. 2:3
Staðan:
KV 9 8 0 1 21:8 24
Kórdrengir 9 6 2 1 23:9 20
KF 9 6 1 2 20:10 19
Vængir Júpiters 9 6 0 3 16:11 18
Reynir S. 9 4 3 2 15:11 15
Einherji 9 4 1 4 13:11 13
Sindri 9 4 1 4 18:18 13
Höttur/Huginn 9 2 3 4 14:17 9
Álftanes 9 2 3 4 13:16 9
Augnablik 9 1 3 5 13:21 6
Skallagrímur 9 2 0 7 12:27 6
KH 9 0 1 8 11:30 1
Mjólkurbikar kvenna
8-liða úrslit:
Þór/KA – Valur ....................................... 3:2
Stephany Mayor 11., 64., Lára Kristín Ped-
ersen 83. – Margrét Lára Viðarsdóttir 21.
(víti), Elín Metta Jensen 80.
Selfoss – HK/Víkingur ........................... 2:0
Barbára Sól Gísladóttir 71., 75.
2. deild kvenna
Grótta – Fjarð/Höttur/Leiknir ............... 2:1
Sindri – Hamrarnir .................................. 1:0
Leiknir R. – Fjarð/Höttur/Leiknir......... 0:8
Staðan:
Völsungur 5 5 0 0 12:6 15
Grótta 6 4 1 1 13:4 13
Fjarð/Hött/Leikn. 6 3 0 3 21:6 9
Álftanes 4 2 0 2 11:5 6
Hamrarnir 5 2 0 3 6:8 6
Sindri 5 2 0 3 5:12 6
Leiknir R. 7 0 1 6 2:29 1
Bandaríkin
Utah Royals – Seattle Reign .................. 0:2
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn fyrir Utah.
Houston Dash – Portland Thorns.......... 1:2
Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn
fyrir Portland.
Kasakstan
Astana – Kairat Almaty.......................... 0:2
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Astana.
Hvíta-Rússland
BATE Borisov – Vitebsk......................... 3:0
Willum Þór Willumsson kom inn á hjá
BATE á 81. mínútu.
KNATTSPYRNA
HM Í FRAKKLANDI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var erfiður vetur fyrir mig og
þetta mark hefur afar mikla þýðingu
fyrir mig,“ sagði hin 23 ára gamla
Stina Blackstenius eftir að hafa kveð-
ið „þýsku grýluna“ í kútinn á laugar-
daginn. Blackstenius skoraði sigur-
markið gegn Þýskalandi í 2:1-sigri á
HM í Frakklandi, og tryggði Svíum
leik við Holland í undanúrslitum
mótsins á miðvikudaginn. Holland
vann 2:0-sigur á Ítalíu.
Svíþjóð hafði ekki unnið Þýskaland
í 24 ár, eða í 11 leikjum, þar til á laug-
ardaginn. Og Blackstenius hafði ekki
skorað mark fyrir Svíþjóð í yfir eitt
ár þegar hún gerði sigurmarkið gegn
Kanada í 16-liða úrslitum. Aftur
skoraði hún svo sigurmarkið gegn
Þýskalandi. Þar með er líka ljóst að
Svíþjóð, Holland og England fá sæti
á Ólympíuleikunum í Tókýó á næsta
ári, sem þær þrjár Evrópuþjóðir sem
bestum árangri náðu á HM.
Blackstenius var orðin þreytt á at-
vinnumannslífinu í Frakklandi síð-
asta haust. Henni gekk ekki sem
skyldi með liði Montpellier, hafði
misst sæti sitt í byrjunarliðinu og var
staðráðin í að láta hið sama ekki ger-
ast í sænska landsliðinu. Í byrjun árs
fékk hún sig því lausa undan samn-
ingi við franska félagið og sneri aftur
í raðir Linköping þar sem hún hefur
notið sín vel, en þess má geta að þar
er hún liðsfélagi Önnu Rakelar Pét-
ursdóttur. Blackstenius viðurkennir
að í haust hafi henni ekki þótt sérlega
raunhæft að standa í þeim sporum
sem hún núna stendur í á HM:
Mæta Íslandi á næsta ári
„Að maður myndi vera hérna á leið
í undanúrslit, með möguleika á verð-
launum, er kannski ekki eitthvað sem
ég hafði þorað að vonast eftir. Að
sama skapi er þetta það sem mann
dreymdi um. Mér hefur fundist eins
og það sé eitthvað alveg sérstakt við
þetta lið,“ sagði Blackstenius við Af-
tonbladet.
Svíþjóð verður andstæðingur Ís-
lands í undankeppni næsta stórmóts,
Evrópumótsins sem fram fer á Eng-
landi 2021. Undankeppnin hefst í lok
ágúst en Ísland og Svíþjóð mætast þó
ekki fyrr en undir lok keppninnar,
sumarið og haustið 2020. Efsta lið
hvers riðils kemst á EM og liðið í 2.
sæti mögulega einnig. Miðað við
frammistöðu Svía í Frakklandi verð-
ur enn erfiðara að eiga við þá en lið
Þjóðverja sem Ísland mætti í undan-
keppni HM.
Holland á ókunnugum slóðum
Uppgangur hollenska landsliðsins
heldur áfram en Evrópumeistararnir
eru nú komnir í undanúrslit HM í
fyrsta sinn eftir öruggan sigur á Ítal-
íu, 2:0. Raunar er þetta aðeins í ann-
að sinn sem Holland leikur í loka-
keppni HM, og nú er ljóst að liðið
liðið fer á Ólympíuleika í fyrsta sinn:
„Það er mjög sérstök tilfinning. Mig
hefur dreymt um að keppa á Ólymp-
íuleikum síðan ég var lítil stelpa,“
sagði Vivianne Miedema. Þær Stef-
anie van der Gragt tryggðu Hollandi
sigur í seinni hálfleik með sköllum
eftir aukaspyrnur Sheridu Spitse, en
Ítalía skapaði varla færi í leiknum.
Blackstenius kvað gömlu
þýsku grýluna í kútinn
Tók góða ákvörðun í ársbyrjun Svíþjóð og Holland mætast í undanúrslitum
AFP
Grýla felld Stina Blackstenius fagnar marki sínu gegn Þýskalandi sem reyndist sigurmark Svía á laugardaginn.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Tiana Ósk Whitworth
hlupu hvor um sig tvö 100 metra hlaup undir 11,63 sek-
úndna Íslandsmeti Sunnu Gestsdóttur á Junioren Gala,
sterku unglingamóti í Þýskalandi, um helgina. Tiana sló
metið í undanrásum með 11,57 sekúndna hlaupi, 5/100
úr sekúndu á undan Guðbjörgu. Í úrslitunum, innan við
tveimur klukkustundum síðar, vann Guðbjörg á 11,56
sekúndum. Tiana fékk silfur en hún hljóp á nákvæmlega
sama tíma og í undanrásum, eða aðeins 1/100 úr sek-
úndu hægar en Guðbjörg, æfingafélagi hennar í ÍR.
Guðbjörg Jóna fékk silfurverðlaun í 200 metra hlaupi,
sinni aðalgrein, sem hún hljóp á 23,51 sekúndu, aðeins
6/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti sínu. Rætt er við hana á mbl.is/sport.
Tiana og Guðbjörg voru í 4x100 metra boðhlaupssveit sem hljóp á 45,75
sekúndum, sem er nýtt aldursflokkamet 18-19 ára sem og 20-22 ára. Þórdís
Eva Steinsdóttir og Birna Kristín Kristjánsdóttir voru einnig í sveitinni.
Birna Kristín bætti svo met sitt í flokki 17 ára og yngri í langstökki þegar
hún stökk 6,12 metra og endaði í 10. sæti.
Metið féll eftir tvo klukkutíma
Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir
Íslenskir kastarar unnu til þrennra gullverðlauna á móti
í Bottnaryd í Svíþjóð um helgina. Það voru spjótkast-
ararnir Ásdís Hjálmsdóttir og Dagbjartur Daði Jónsson,
og sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson.
Dagbjartur Daði hélt áfram að bæta sig en hann kast-
aði lengst 78,30 metra og bætti Íslandsmet sitt í flokki
20-22 ára, sem hann setti á Smáþjóðaleikunum fyrir
mánuði síðan, um 72 sentímetra.
Hilmar Örn vann sleggjukastið með 73,96 metra kasti
en hann bætti ellefu ára gamalt Íslandsmet Bergs Inga
Péturssonar í vor með 75,26 metra kasti.
Ásdís náði sínu lengsta kasti í ár þegar hún vann spjót-
kastið með 58,53 metra kasti. Íslandsmet hennar er 63,43 metrar.
Þess má svo geta að sænski kringlukastarinn Daniel Ståhl, lærisveinn
Vésteins Hafsteinssonar, fagnaði sigri með 71,86 m kasti. Það er lengsta
kastið í 11 ár. Heimsmet Jürgen Schults frá árinu 1986 er 74,08 metrar.
Þrenn gullverðlaun Íslands
Dagbjartur Daði
Jónsson