Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 28

Morgunblaðið - 01.07.2019, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019 hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Í Listasafni Árnesinga í Hveragerði hefur verið opnuð sýning á völdum verkum úr hinni merku stofngjöf Ragnars Jónssonar í Smára til Listasafns ASÍ árið 1961 og eru á henni lykilverk eftir margra af þekktustu myndlistarmönnum þjóð- arinnar á síðustu öld. Sýningin ber heitið Gjöfin til íslenzkrar alþýðu og það er einnig heiti afar veglegrar bókar sem komin er út þar sem fjallað er um öll verkin 147 sem til- heyrðu gjöf Ragnars í Smára og þau sýnd í fallegri hönnun og prentun. Kristín G. Guðnadóttir listfræð- ingur er sýningarstjóri og einnig höfundur megintexta bókarinnar en þetta er í fyrsta skipti sem myndir af hinni kunnu stofngjöf koma út í heild. Listasafn ASÍ gefur bókina út og ritstýrði Elísabet Gunnarsdóttir safnstjóri útgáfunni. Fyrsta sending frá prentsmiðjunni seldist strax upp og er sú næsta á leið til landsins. Fyrir almenning að njóta „Safnið rekur ekki eigin sýning- arsal um þessar mundir og við það myndast svigrúm til að gefa út bæk- ur að nýju,“ segir Elísabet. Rætt hafði verið um að gefa út bók um sögu safnsins á sextíu ára afmæli þess að tveimur árum liðnum, en svo var ákveðið að ráðast strax í þessa útgáfu þegar samvinna hófst við Listasafn Árnesinga um sumarsýn- ingu safnsins þar sem sýndur er stór hluti stofngjafarinnar. „Það stóð alltaf til að gefa út veg- lega sýningarskrá en hún óx að vöxt- um og varð að þessari fallegu bók með öllum 147 verkunum sem Ragn- ar gaf,“ segir hún og bætir við að verkin hafi nær öll verið mynduð að nýju fyrir útgáfuna, ártöl einstakra verka endurskoðuð og umtalsverð vinna lögð í að þýða heiti myndanna og allan texta bókarinnar á ensku. „Ragnar gaf fyrst 120 verk en bætti svo talsvert fleirum við því hann lagði metnað í að safnið gæfi góða mynd af íslenskri myndlistar- sögu. Og hann vildi að almenningur fengi að njóta þessara verka. Út- gáfa bókarinnar er ein leið til að koma verk- unum á framfæri við fólkið í landinu.“ Hún segir ekki nógu mikið um útgáfu á vönd- uðum og sögulegum listaverkabókum hér á landi. „En Kristín hefur komið að ritun margra, eins og bók- anna um Kjarval og Svavar Guðna- son, hún er afar vandaður fagmaður og þekkir stofngjöfina manna best.“ Kristín ritar vandaðan og upplýs- andi inngang um Ragnar og stofn- gjöfina og þá bendir Elísabet á að stutt umfjöllun sé um valin verk í bókinni, texti sem er lýsandi fyrir tíðarandann, hvað lista- mennirnir voru að hugsa og hvernig þeir tjáðu sig um verk sín og annarra. Við þekktasta verkið í safngjöfinni, Fjallamjólk Jóhannesar Kjarvals, segir til að mynda: „Þeg- ar Ragnar Jónsson var spurður um það hvaða mynd honum þætti mest gersemi í stofngjöf Lista- safns ASÍ svaraði hann: „Ég er ekki í neinum vafa um það, að þar er mesta snilldarverkið Þingvalla- myndin hans Kjarvals, sem hann kallar Fjallamjólk. Þar er saman- þjöppuð í einum punkti hin mikla snilld málarans og allt það dásam- lega rómantíska ofstæki, sem eng- inn á til nema Kjarval.“ Bókin er fallega hönnuð af Arnari Fells Gunnarssyni og Arnari Inga Viðarssyni, sem sækja meðal annars innblástur í hönnun listaverkabók- anna sem Listasafn ASÍ gaf út á ár- um áður en fella verkið jafnframt að samtímalegum straumum. Stofnun safnsins stórtíðindi Í grein Kristínar G. Guðnadóttur „Til að mennta almenning í málara- list“ segir að listaverkagjöf Ragnars til Alþýðusambands Íslands hafi verið stórfengleg. Í bréfi hans til sambandsins segir: „Myndir þessar hef ég ákveðið að gefa samtökum ís- lenskra erfiðismanna – fyrir þeirra hönd Alþýðusambandi Íslands – í minningu Erlends Guðmundssonar, Unuhúsi. … Ég hef í meira en þrjá áratugi safnað listaverkum eftir ís- lenzka málara og ég ákvað fyrir tveimur áratugum, að Helgafell skyldi koma á fót vísi að alþýðu- listasafni […] til að mennta almenn- ing í málaralist […] Myndirnar munu vera um 120, rúm 100 mál- verk, sum mjög stór, eftir flesta helztu málara okkar. Mun ég síðar bæta við myndum eftir nokkra mál- ara, þannig að safnið megi vera yf- irlit um ísl. nútímalist.“ Kristín segir að í ljósi þess að á þessum tíma voru einungis starf- rækt tvö listasöfn á Íslandi hafi stofnun nýs listasafns verið stórtíð- indi í íslensku menningarlífi. Ragnar Jónsson ólst upp á Eyrar- bakka en flutti sextán ára til Reykjavíkur, lauk verslunarprófi og hóf störf hjá smjörlíkisgerðinni Smára sem hann varð fljótlega hlut- hafi í. Honum vegnaði vel í við- skiptum en varð einnig upptendr- aður af menningaráhuga; hann kynntist mörgum merkum lista- mönnum og listunnendum á borð við Erlend Guðmundsson í Unuhúsi. Kristín skrifar: „Ragnar varð fljótt mikill menningarpostuli í orðsins fyllstu merkingu og brann fyrir þá hugsjón að veita sem flestum að- gang að fögrum listum. Upptendr- aður af jafnt myndlist, tónlist og bókmenntum vildi hann deila með sem flestum þeirri stórkostlegu gleði sem hann fann á vettvangi list- arinnar; jafnt sem stórvirkur bóka- útgefandi og eigandi bókaútgáfu Helgafells, listaverkasafnari, útgef- andi eftirprentana af listaverkum, útgefandi listaverkabóka, og frum- kvöðull að ritun íslenskrar lista- sögu.“ Kristín segir að listin hafi verið Ragnari lífsnauðsyn og vitnar í orð hans: „Dýrið, sem fæðist, leitar uppi samkvæmt eðlislögmáli spena eða brjóst, þar sem næringu er að finna. Listin er mér sams konar veruleiki – andlegur næringar- kraftur, sem viðheldur heilsu minni og lífi.“ Ragnar byrjaði að safna mál- verkum um 1930 og, að sögn Krist- ínar, sagði hann „að kjarni safnsins væru verk „eftir fimm þekktustu listmálarana“, sem að hans mati voru þeir Ásgrímur Jónsson, Jó- hannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Gunnlaugur Scheving og Þorvaldur Skúlason.“ Skerpa á sérstöðunni Þegar spurt er hvort unnið sé að því að koma aftur upp sýningarsal í nafni Listasafns ASÍ segir Elísabet svo vera. Nú sé aðeins millibils- ástand eftir að húsnæðið við Freyju- götu var selt. „Þegar ég tók við starfi safnstjóra lagði ég fram til- lögu um að við gæfum okkur fimm ár til að móta sýningarstefnuna og finna nýtt húsnæði við hæfi. Tillagan var samþykkt. Þar horfum við meðal annars til hugmynda Ragnars í Smára um safnhús sem setur mann- lífið í fyrsta sæti og þangað til það er orðið að veruleika höldum við áfram að kalla eftir tillögum frá listamönn- um og setja upp sýningar á völdum stöðum víðsvegar um landið. Við viljum skerpa á sérstöðu þessa safns meðal íslenskra safna. Færa það nær fólkinu. Það er ólík- legt að við finnum húsnæði á viðráð- anlegu verði í Reykjavík, og þar eru líka mörg söfn fyrir, en hugmyndin er að koma safninu upp húsnæði í fallegu náttúrulegu umhverfi og vera þar með sýningarsal en líka opnar geymslur þar sem öll verkin eru ávallt sýnileg.“ Listaverkaeign Listasafns ASÍ er nú yfir fjögur þúsund verk og eru um tvö hundruð og fimmtíu þeirra í útláni á hverjum tíma, meðal annars í sölum Alþingis og í ráðuneytum. „Nú má sjá úrval margra bestu verkanna í stofngjöf Ragnars í Listasafni Árnesinga og ég vil hvetja fólk til að koma við og skoða,“ segir Elísabet. Á stöðli Eitt þekktasta verk Gunnlaugs Scheving, málað 1958-59, er einn hornsteina stofngjafar Ragnars í Smára. Ragnar sagði verk Gunnlaugs hluta af kjarna safnsins. Blóm á rauðum grunni Málverk eftir Jón Stefánsson frá árinu 1942. Ein níu verk eftir Jón voru í stofngjöf Ragnars í Smára. Mennti almenning í málaralist  Öll 147 listaverkin í einstakri stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ komin út í veglegri bók  Stór hluti verkanna sýndur í sumar í Listasafni Árnesinga  Listin „andlegur næringarkraftur“ Elísabet Gunnarsdóttir Kristín G. Guðnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.