Morgunblaðið - 01.07.2019, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. JÚLÍ 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
3,6 L Hybrid. Glæsilegur 7 manna bíll.
Einn með öllu, t.d. hita/kæling í sætum, glerþak,
leðursæti, bakkmyndavél, Dvd spilari, Harman
Kardon hljómflutningskerfi ofl. ofl.
VERÐ
7.990.000 m.vsk
2019 Ford F-350 Lariat 35”
Litur: Ruby red/ gray, svartur að innan.
6-manna bíll. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque.
35” dekk. Með FX4 off-road pakka, quad beam
headlights, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall,
fjarstart, Driver altert-pakki, Trailer tow camera
system og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Litur: Hvítur og brúnn / brúnn að innan. Einnig
til í Ruby red. Mojave leður sæti, bakkmyndavél,
heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur o. fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb-ft
of torque
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2019 Ford F-350 Limited
35” breyttur
Litur: Svartur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö,
925 ft of torque. 35” breyttur, 35” dekk, 20” felgur,
brettakantar. LED ljós í grilli. Með FX4 off-road pakka,
upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart,
auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í
hlera og airbag í belti í aftursæti.
VERÐ
12.590.000 m.vsk
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Það er ekki á hverjum degi sem 38
ljóðabókadómar birtast á einu
bretti, en það gerðist í maí síðast-
liðnum með útkomu 16. tölublaðs
Sónar, tímarits um óðfræði.
Óðfræðifélagið Boðn, sem stendur
fyrir útgáfunni, segir Haukur Þor-
geirsson, einn þriggja ritstjóra, vera
félag um ljóðlistina, s.s. bragfræði
og hvað sem er annað er varðar
ljóðlist. „Són er öðrum þræði aka-
demískt tímarit, með greinum eftir
fólk í fræðasamfélaginu, en er líka
ætlað að hafa skírskotun til almenn-
ings, til fólks sem hefur áhuga á
ljóðlist.“ Tímaritið hefur komið út
árlega frá árinu 2003.
Í Són má finna fræðilegar greinar
um ljóðlist auk ljóða eftir starfandi
ljóðskáld sem yrkja á íslensku eða
þýða úr erlendum tungumálum,
bæði laust og bundið. Að þessu sinni
var að finna í tímaritinu umfjöllun
um 38 ljóðabækur sem komu út á
síðasta ári. „Þetta er tilraun til að
skapa menningarumræðu. Ég held
að marga fýsi að lesa fleiri ljóða-
bókadóma og við reynum að koma
til móts við það,“ segir Haukur.
Allar frumútgefnar ljóðabækur
„Það er merkilega mikið gefið út
af ljóðabókum þegar maður fer að
skoða það. Það er greinilegt að
margir vilja skrifa ljóðabækur þótt
það sé umdeilt hve margir vilja lesa
þær,“ segir Haukur um þennan
fjölda ljóðabóka. „Það virtist ekki
vera praktískt að taka fyrir algjör-
lega allt sem var gefið út en við tók-
um fyrir allar frumútgefnar ljóða-
bækur sem voru auglýstar í Bóka-
tíðindum. Það gerir ákveðið tilkall
til umfjöllunar að bók sé auglýst í
Bókatíðindum og fáanleg í bókabúð-
um. Sumar ljóðabækur eru hins
vegar bara gefnar út í pínulitlu upp-
lagi fyrir vini og kunningja og þá er
kannski ekki tilefni til þess að birta
einhvern aftökudóm í svona tíma-
riti.“
Eitt af markmiðum Boðnar er að
tengja saman fræðimenn, skáld og
aðra unnendur ljóðlistar. „Við vilj-
um ná til ljóðaunnenda hvar sem er,
gjarnan til almennings og skálda-
samfélagsins,“ segir Haukur og
nefnir að bókadómarnir hafi aukið
áhuga skálda á tímaritinu. „Allir eru
forvitnir að lesa dóma um eigin verk
og við höfum orðið vör við að nokkur
skáld sem við skrifuðum um hafa
gerst áskrifendur. Það er mjög
jákvæð þróun.“
Mætti vera meiri umræða
Um ljóðaumræðu á Íslandi segir
Haukur: „Nú þyrfti ég að vera Ei-
ríkur Örn Norðdahl og geta sagt
eitthvað krassandi en ég er bara
kurteis fræðimaður og get lítið
sagt,“ en bætir svo við: „Það er heil-
margt sem fer fram í skáldskapn-
um, það er ákveðið samtal þar, og
það er vert að gefa því gaum. Okkur
í ritstjórninni fannst að það mætti
vera meiri umræða um ljóð og sáum
þarna gat sem við reyndum að fylla
aðeins upp í.“
Haukur segir umfjöllun um ljóða-
bækur hafa áður verið að finna í
tölublöðum tímaritsins en það hefur
yfirleitt verið ein yfirlitsgrein. „Við
reyndum að hafa þetta aðeins öðru-
vísi núna.“
Boðn stefnir að því að endurtaka
leikinn í næstu útgáfu. „Við erum
byrjuð að sanka að okkur bókum
sem koma út 2019. Vonandi verða
fleiri sem skrifa dómana næst, ég
skrifaði svolítið mikið af þeim sjálf-
ur en það voru líka dómar eftir
reynda ritdómara, Ólínu Kjerúlf
Þorvarðardóttur og Hjalta Snæ
Ægisson.“ Guðrún Laufey Guð-
mundsdóttir og Teresa Dröfn
Freysdóttir Njarðvík skrifuðu einn-
ig dóma.
Kemur til móts við hverja bók
Ljóðabókadómarnir 38 eru flestir
stuttir. „Það var hugmyndin að ná
breitt yfir sviðið frekar en að hafa
fáa mjög langa dóma. Svo er oft
ekkert auðvelt að skrifa langan dóm
um ljóðabækur sem eru sjaldan
mikill texti. Ef maður ætlar að
tyggja upp efni bókarinnar þá getur
maður ekki gert það í mjög löngu
máli án þess að birta alla bókina eða
endursegja hana.“
Það er ákveðin kúnst að skrifa rit-
dóma. „Maður reynir að koma til
móts við hverja bók á hennar eigin
forsendum. Það finnst mér sann-
gjarnt og eðlilegt. Maður athugar
hvort henni tekst það sem hún ætlar
sér að gera. Þótt það sé kannski
ekki það sem maður sjálfur hefði
gert eða einhver annar. Stundum
skilst manni að maður er ekki sjálf-
ur kjörlesandi bókarinnar en reynir
engu að síður að fjalla um hana af
sanngirni. Það verður líka að vera
eitthvað greinandi í þessu og eitt-
hvert mat. Maður reynir að hafa
þetta eitthvað meira en bara rit-
fregn.“
Sjón er Sónarskáldið í ár
Ritstjórn Sónar velur á hverju ári
eitt ljóðskáld sem titlað er Sónar-
skáld og birtir eftir það frumsamið
ljóð sem er haft í heiðurssessi
fremst í ritinu. Haukur segir að
Sónarskáld hafi verið valin allt frá
fyrsta heftinu. „Við erum mjög stolt
af þessum lista skálda. Öll hafa þau
tekið okkur vel og sýnt okkur þann
heiður að frumbirta hjá okkur nýtt
ljóð. Val á Sónarskáldi er okkar leið
til þess að heiðra samtímaskáld sem
hafa markað djúp spor í íslenska
skáldskaparhefð, og jafnframt er
þetta val hluti af þeirri viðleitni
tímaritsins frá upphafi að vera í
góðum tengslum við starfandi
skáld.“ Að þessu sinni varð Sjón
fyrir valinu, árið áður var það Stein-
unn Sigurðardóttir og þar áður Sig-
urður Pálsson heitinn.
Goðsaga prýðir kápuna
Kápumynd Sónar vísar yfirleitt á
einhvern hátt til goðsögunnar um
skáldskaparmjöðinn. „Við höfum á
hverju ári beðið nýjan listamann að
túlka eitthvað úr goðsögunni um
skáldamjöðinn,“ segir Haukur.
Stundum hefur það verið Gunnlöð
með kerin þrjú, tvö þeirra heita ein-
mitt Són og Boðn og gera má ráð
fyrir að þaðan séu nafn félagsins og
titill ritsins dregin. Einnig hafa
dvergarnir Fjalar og Galar og Óðinn
í arnarham prýtt forsíðuna. Haukur
segir örninn hafa verið fastagest á
forsíðunni en í ár er hræ af erni þar
í fyrsta sinn. Listamaðurinn sem á
heiðurinn af kápunni að þessu sinni
heitir Paul Kalemba og er frá Ástr-
alíu.
Óðfélagið Boðn stendur fyrir mál-
þingi einu sinni á ári. Síðasta mál-
þing var haldið 11. maí. Hægt er að
nálgast frekari upplýsingar um fé-
lagið og tímaritið Són á vefnum
bodn.is. Þar má meðal annars finna
upplýsingar um hvernig panta má
eintak af tímaritinu hjá Hauki sjálf-
um. Það er einnig fáanlegt í Bóksölu
stúdenta. Um þessar mundir lýsir
Són eftir efni til birtingar í næsta
tölublaði. Skilafrestur er til 1. ágúst
fyrir ritrýndar greinar en 15. sept-
ember fyrir annað efni.
Morgunblaðið/RAX
Akademískt „Són er öðrum þræði akademískt tímarit, með greinum eftir fólk í fræðasamfélaginu, en er líka ætlað
að hafa skírskotun til almennings, til fólks sem hefur áhuga á ljóðlist,“ segir Haukur Þorgeirsson.
Tilraun til að skapa
menningarumræðu
Óðfélagið Boðn gefur út tímaritið Són í 16. sinn Birta
dóma um 38 ljóðabækur Vilja ná til ljóðaunnenda
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og
Ourania Menelaou píanóleikari
halda þrenna tónleika í röð í Frí-
kirkjunni í Reykjavík dagana 2., 3.
og 4. júlí. Höfuðskáld Tékka, klassík
og perlur fyrir fiðlu og píanó verða á
boðstólum og hefjast tónleikarnir öll
kvöld kl. 20.
Hjörleifur og Ourania hafa tvisv-
ar áður haldið tónleika hér á landi
og á morgun, þriðjudag, leika þau
verk eftir nokkur höfuðtónskáld
Tékka; þá Petr Eben, Antonin Dvor-
ák, Leoš Janácèk og Bedrich Smet-
ana. Á miðvikudaginn halda þau
tónleika þar sem „hin mikla klassík“
er tekin fyrir, eins og stendur í til-
kynningu en þá verða flutt verk eftir
Wolfgang Amadeus Mozarts, Lud-
wig van Beethoven, Pjotr Iljitsj
Tsjaíkovskíj og Alfred Schnittkes. Á
þriðju og síðustu tónleikunum,
fimmtudaginn 4. júlí, verða svo flutt-
ar perlur fyrir fiðlu og píanó.
Hjörleifur hefur verið búsettur og
starfandi í Noregi í ein tíu ár en
hann lauk einleikaraprófi frá Tón-
listarháskólanum í Ósló árið 1993 og
hlaut styrk frá tékkneska ríkinu til
náms við Konservatoríið í Prag. Þar
nam hann fiðluleik og kammertón-
list í þrjú ár og lék með ýmsum
kammerhópum og hljómsveitum.
Hann lauk dipl. mus.-gráðu frá
Folkwang Hochschule í Essen sum-
arið 2000 og að námi loknu flutti
hann til Íslands þar sem hann starf-
aði til ársins 2010.
Ourania Menelaou er fædd á Kýp-
ur en býr og starfar í Prag. Hún út-
skrifaðist frá Konservatoríinu í
Prag árið 1996 sem píanóleikari og
þar hófst samstarf þeirra Hjörleifs.
Ourania hélt svo til náms við Charles
University í Prag og lauk þaðan
meistaraprófi í tónvísindum.
Miðasala á tónleika í Fríkirkjunni
fer fram við innganginn.
Samspil Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Ourania Menelaou píanóleikari.
Tónleikatrílógía í Fríkirkjunni