Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 71.500.000,- Borgartún 30a, 105 Reykjavík & 585 8800 Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800 Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515 Grettisgata 31, 101 Reykjavík Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í reisulegu steinhúsi við Grettis- götu. Íbúðin skiptist í forstofu, setustofu og borðstofu (væri unnt er að nýta sem svefnherbergi), rúmgott hjónaherbergi og baðherbergi. Sameign er snyrtileg. Húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum, m.a. múrviðgert og málað 2011, járn á þaki endurnýjað 2006, frárennslislagnir fóðraðar 2012. 46.900.000,- 118.000.000,- Einbýlishús með aukaíbúð Fallegt og reisulegt einbýlishús með aukaíbúð neðst í Grundunum í Kópavogi. Húsið, sem hefur verið mikið endurnýjað, er einstaklega vel staðsett niður við Fossvogsdalinn. Í hluta neðri hæðarinnar er búið að gera 3ja herbergja íbúð með sérinngangi aftan við hús. Eignin er samtals 268,2 fm - þar af er aukaíbúðin ca 60 fm og bílskúr 36 fm. Birkigrund, 200 Kópavogur 47.000.000,- 2ja herb. útsýnisíbúð á 7. hæð Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús-borðstofu, setustofu með útgengi á útsýnissvalir, baðherbergi. Frábær staðsetning, stutt í alla helstu verslun og þjónustu. Kringlan verslunarmiðstöð hinum megin við götuna. Í húsinu er rekin þjónstumiðstöð fyrir eldri borgara á vegum Reykjavíkurborgar. Heitur matur í hádeginu, ýmis dægradvöl. Hárgreiðslustofa og snyrtistofa eru einnig starfræktar í húsinu. Hvassaleiti 58, 105 Reykjavík 163,9 fm - bílastæði Glæsileg 150,4 fm íbúð í ásamt stæði í bílageymslu í góðu lyftuhúsi við Borgartún 30a. Lyftan opnast beint inní íbúðina. Þvottahús er innan íbúðar. Íbúðin skiptist í forstofu, rúmgott eldhús, flísalögð sólstofa með útgengi á svalir, mjög stórar samliggjandi borðstofu/setustofur, gestasalerni, hjóna- svíta með baðherbergi, fataherbergi og þvottahúsi innaf. Afar glæsileg íbúð á eftirsóttum stað. Fasteignasköttum hefur veriðleyft að þróast með óviðun- andi hætti hér á landi á undan- förnum árum. Eins og Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka verslunar og þjón- ustu, benti á í at- hyglisverðri grein hér í blaðinu í vik- unni eru þessir skattar mun hærri hér á landi en í ná- grannlöndunum. Hér á landi eru þeir 1,5% af landsframleiðslu, sem er nær tvöfalt hærra hlutfall en ann- ars staðar á Norðurlöndum.    Ýmsar ástæður eru fyrir þessummun, meðal annars sú að hér á landi getur skatthlutfallið af at- vinnuhúsnæði farið í 1,65%, en ann- ars staðar á Norðurlöndum er þetta hlutfall á bilinu 0,5-1,0%.    Þetta er sláandi og ekki síður þaðsem Jón Ólafur bendir á, að á sama tíma og árleg hækkun verð- lags hefur verið 2-3% hér á landi hefur skattheimta í formi fast- eignaskatts aukist um 14-18% á ári.    Ástæðuna segir Jón Ólafur verabreytta aðferð við útreikninga skattsins hjá Þjóðskrá árið 2015 og hann lýkur grein sinni á þessum orðum: „Stjórnvöld verða að grípa hér inn í. Það er ekki með nokkru móti hægt að una við að breytt að- ferð Þjóðskrár við útreikning fast- eignaskatts hafi leitt af sér þá gíf- urlegu skattahækkun sem hér er lýst. Fasteignaeigendur, bæði að íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði, hljóta að gera þessa kröfu og stjórnvöld hafa í hendi sér aðferð- ina við að tryggja að skipan þessara mála komist í ásættanlegt horf.“    Augljóst er að stjórnvöld hljótaað hlusta á slíkar ábendingar. Jón Ólafur Halldórsson Óhófleg skattahækkun STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Á einni klukkustund eftir hádegi á mánudaginn myndaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brot 100 öku- manna sem óku Hringbraut í austur- átt við Furumel. Á miðvikudaginn var sami hátturinn hafður á og voru þá mynduð brot 76 ökumanna sem óku í vesturátt. Í gær var lögreglan aftur með eftirlit á sama stað í eina klukku- stund og voru þá mynduð brot 122 ökumanna. Samtals er því um að ræða brot 298 ökumanna á tveimur klukkustundum í þessari viku. Há- markshraði á Hringbraut var nýlega lækkaður í 40. 21% brotahlutfall ökumanna Í tilkynningu frá lögreglunni kem- ur fram að á mánudaginn hafi 479 far- ið um Hringbraut á þessari aksturs- leið. Því var brotahlutfallið 21%, en meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/ klst. og sá sem hraðast ók mældist á 67 km/klst. hraða. Í gær fóru 475 ökutæki þessa akst- ursleið og því var brotahlutfallið 26%, en meðalhraði hinna brotlegu var 54 km/klst. Nítján óku á 60 km hraða eða meira, fjórir á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 80. Þess má geta að við þrjár hraðamæl- ingar á sama stað í ársbyrjun, þegar leyfður hámarkshraði var 50, var brotahlutfallið 2-4%. Mikið um hraðakstur á Hringbraut  298 ökumenn brutu umferðarlög á tveimur klukkustundum á Hringbraut Morgunblaðið/Árni Sæberg Umferðarlög Fjölmargir ökumenn óku of hratt á Hringbraut í vikunni. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri á umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkurborgar, segir enga einfalda lausn vera á þeim mikla umferðarvanda sem daglega skapast við Vatnsmýri í Reykjavík. Í Morgunblaðinu í gær kallaði framkvæmdastjóri Strætó eftir lausn vandans og vill fá borgina, fulltrúa Háskólans í Reykjavík og aðra hagsmunaaðila að borðinu sem fyrst, en þegar verst er sitja fjórir vagnar Strætó fastir þarna í um- ferð. „Það er engin töfralausn til. En það er þó tvennt í pípunum og ger- ist vonandi á þessu ári. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingar á gatna- mótum Flugvallarvegar og Naut- hólsvegar. Þar verða gerðar stuttar forgangsreinar fyrir strætó og ljósastýring bætt. Það hjálpar eitt- hvað þótt við vitum að það leysi ekki allt málið. Í öðru lagi er svo unnið að því að hanna breytingar á gatna- mótum Bústaðavegar og Kringlu- mýrarbrautar. Þar á að breikka rampa til að bæta flæði umferðar og það mun samkvæmt hermilíkönum hafa áhrif langt aftur að Flugvall- arvegi,“ segir Þorsteinn. „Það er ekki á dagskrá að fara að breikka neinar götur á þessu svæði að öðru leyti. En með því að stór- bæta almenningssamgöngur von- umst við til þess að fleiri nýti sér þær og með því að byggja upp borg- arlínu og forgangsreinar í gegnum svæðið verða almenningssamgöngur miklu betri kostur en þær eru í dag. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki góður kostur að sitja fastur í strætó,“ segir hann. Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir þrengsli í borginni of mikil. „Stofnanir hafa ekki fengið að byggjast upp í aust- urhlutanum, sem myndi létta mjög á allri umferð. Það er því undirliggj- andi skipulagsklúður og svo vantar allan undirbúning til að bregðast við á uppbygginartímanum.“ Vigdís Hauksdóttir, oddviti Mið- flokksins, segir umferðarvandann afleiðingu af „þrengingarstefnu Dags [B. Eggertssonar borgar- stjóra]“. „Aldrei, þeir vilja ekki hlusta á rök,“ svarar Vigdís spurð hvort hún telji líklegt að borgin muni leysa vandann líkt og Strætó hefur kallað eftir. Engin einföld lausn á vandanum  „Þrengingarstefna“ er ástæða tafa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.