Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 37
DÆGRADVÖL 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að vita að hún er nammi-grís. HVER DAGUR AFHJÚPAR EITTHVAÐ NÝTT ÉG HELD AÐ GAURINN Á MÓTI SÉ UPPVAKNINGUR OG ÉG VILDI ÓSKA ÞESS AÐ HANN HÆTTI ÞVÍ HELGA FÉKK HUGMYND UM ÚRBÆTUR Á HEIMILINU! ÆTTIR ÞÚ ÞÁ EKKI AÐ VERA AÐ KAUPA MÁLNINGU EÐA EITTHVAÐ ÁLÍKA? ÞAÐ AÐ SENDA MIG ÚT VAR HUGMYND HENNAR AÐ ÚRBÓTUM! „HÚN VANN MEÐ PABBA ÞÍNUM – EN STUNDUM VELTI ÉG ÞVÍ FYRIR MÉR HVORT ÞAÐ VAR EITTHVAÐ MEIRA.” „EIGUM VIÐ FLEIRI KASSA AF HRAUNBITUM?” annars stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, lánasjóðs sveitar- félaga, ofanflóðasjóðs og Spalar ehf. svo eitthvað sé nefnt. Við hjónin höfum mjög gaman af því að ferðast bæði innanlands og erlendis. Einnig hef ég mikinn áhuga á skák og varð Borgarnes- meistari nokkrum sinnum og ekki má gleyma íþróttaáhuganum.“ Fjölskylda Eiginkona Óla Jóns er Ósk G. Bergþórsdóttir, f. 1.9. 1948, skrif- stofumaður og húsfreyja. For- eldrar Óskar voru hjónin Bergþór Guðjónsson skipstjóri, f. 18.3. 1913, d. 26.2. 2000, og Guðrún Brynjólfsdóttir húsmóðir f. 1.4. 1918 d. 16.1. 2005 á Akranesi. Synir Óla Jóns og Óskar eru: 1) Bergþór, alþingismaður og við- skiptafræðingur, f. 26.9. 1975, hann á dótturina Lottu Ósk, f. 24.4. 2016; 2) Jóhann Gunnar, flugstjóri hjá Icelandair, f. 3.1. 1980, í sambúð með Kolbrúnu Þor- oddsdóttur, f. 5.12. 1982 og eiga þau soninn Erik Óla, f. 25.11. 2013; 3) Rúnar, framkvæmdastjóri Búlandshöfða ehf., f. 26.6. 1986, í sambúð með Maríu Rohko, f. 27.8. 1992. Allir búa þeir á Akranesi. Bræður Óla Jóns eru Arnar Eiríkur Gunnarsson, verktaki og bifreiðastjóri, f. 14.4. 1956 á Bálkastöðum og býr í Reykjavík; Eyjólfur Valur Gunnarsson, bif- reiðastjóri og fv. bóndi, f. 14.4. 1956 á Bálkastöðum og býr þar. Foreldrar Óla Jóns voru hjónin Gunnar Haraldsson, bóndi og bif- reiðastjóri á Bálkastöðum, f. 26.8. 1914, d. 19.8. 1997, og Jóhanna S. Jónsdóttir húsfreyja, f. 28.4. 1922, d. 28.12. 2001. Óli Jón Gunnarsson Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja á Fögrubrekku Finnbogi Jakobsson bóndi á Fögrubrekku í Hrútafi rði Ólafía Finnbogadóttir húsfreyja á Bálkastöðum Jón Valgeir Jóhannsson bóndi og landpóstur á Bálkastöðum Jóhanna Sigurlaug Jónsdóttir húsfreyja á Bálkastöðum Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Bálkastöðum Jóhann Jónsson bóndi á Bálkastöðum Óskar Haraldsson bifreiðastjóri á Hellu Eiríkur Jónsson bóndi á Bálkastöðum Guðrún Markúsdóttir húsfreyja í Reykjavík Jósep Jónsson járnsmiður í Reykjavík Guðfi nna Jósefsdóttir húsfreyja í Haga í Gnúpverjahr. Haraldur Tryggvi Þorfi nnsson sjómaður í Vestmannaeyjum Steinunn Magnúsdóttir húsfreyja í Drangshlíð undir Eyjafjöllum Þorfi nnur Jónsson veitingamaður í Tryggvaskála á Selfossi Úr frændgarði Óla Jóns Gunnarssonar Gunnar Ágúst Haraldsson bóndi og bifreiðastjóri á Bálkastöðum í Hrútafi rði Gátan er sem endranær eftir Guð-mund Arnfinnsson: Geymsluhólf á hæðinni. Hét það galdrapilturinn. Með því kasta mæðinni. Mun það vera geimurinn. Enn verð ég að biðjast afsökunar þar sem fyrsta vísuorð gátunnar misritaðist í Vísnahorni, stóð „geymsluloft“ í staðinn fyrir „geymsluhólf“, en hér er hún rétt. Guðrún Bjarnadóttir svarar: „Sumt get ég geymt uppá lofti“, Galdra-Loftur sagði og blés lúnu lofti úr hvofti. Á loft tókst á augabragði. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Uppi á lofti ýmislegt var geymt, ekki Lofti hefi ég nú gleymt. Treystir mæði á loftsins töframátt, tíðum horfi í loftið fagurblátt. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Við glugga á geymslulofti um Galdra-Loft hugsaði. Að mér ég andaði lofti og út í loft þusaði. Sjálfur skýrir Guðmundur gátuna þannig: Loft er hólf á hæðinni. Heitið Galdra-Loftur bar. Lofti með blæs mæðinni. Mun á lofti skýjafar. Þá er limra: Það var óttalegt ástand á Lofti, uppi á geymslulofti hjó af sér fingur sá Hnífsdælingur með hnífinn stöðugt á lofti. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Björt og fögur sumarsól signir bæði dal og hól. Fuglinn syngur glatt á grein og gáta bætist hér við ein: Eiginkvinnu kalla má. Koti sínu býr hún á. Háöldruð er hún með sann. Heybrók margir nefna þann. Enn verð ég að biðjast afsökunar þar sem fyrsta vísuorð gátunnar mis- ritaðist og varð vísan vitlaust kveðin fyrir vikið. Og ég sem hélt að ég hefði óskeikult brageyra! En eins og Indr- iði á Fjalli orðaði það: Allir hafa einhvern brest, öllu fylgir galli. Öllum getur yfirsést og einnig þeim á Fjalli. Þormóður í Gvendareyjum Eiríks- son orti: Mótgangsóra mergðin stinn mér vill klóra um bakið. Illa fór hann Móri minn mikið stóri sauðurinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hent á lofti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.