Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Það virtist enginn ætla að akafram úr neinum við upphafmóts nr. 2 í mótaröð þeirrisem fengið hefur nafnið Grand chess tour og stendur yfir þessa dagana í Zagreb í Króatíu þar sem flestir stigahæstu skákmenn heims eru samankomnir og tefla með venjulegum umhugsunartíma. Heimsmeistarinn Magnús Carlsen vann að vísu auðveldan sigur í 1. um- ferð en svo virtist hann fastur í jafn- teflisgír og gerði fjögur slík í röð. Ungur maður sem Rússar binda von- ir við, Jan Nepomniachtchi, vann þrjár fyrstu skákir sínar og virtist til alls vís. Hann hefur ekki unnið fleiri skákir en heldur sig þó í námunda við toppsætin þrátt fyrir að hafa tap- að fyrir Magnúsi sjöundu umferð. Staðan eftir áttundu umferð á fimmtudaginn var þá þessi. 1. Magn- ús Carlsen 6 v. (af 8) 2. Wesley So 5½ v. 3.-5. Caruana, Nepomniachtchi og Aronjan 4½ v. 6. Liren Ding 4 v. 7.-10. Anand, Giri, Vachier Lagrave og Karjakin 3½ v. 11.-12. Nakamura og Mamedyarov 2½ v. Magnúsi Carlsen tókst að vinna bæði bæði Nepo og Liren Ding í síð- ustu umferðum þökk sé torræðum peðsleikjum í miðtafli gegn Nepo og í byrjun tafls gegn Liren Ding. Þegar menn eru í svona feikna stuði er eins og allt vinni með þeim: Zagreb 2019; 7. umferð: Jan Nepomniachtchi – Magnús Carlsen Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Hann vill ekki tefla Svesnikov- afbrigðið sem hefst með 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 o.s.frv. og hann þekkir betur en flest- ir. 3. … e5 4. Bc4 g6 5. d3 h6 Hann hafði áður leikið 5. … Be7 en vissi að Nepo var undir það búinn. 5. … Be7 6. h4 d6 7. h5 g5 8. Rh2 Bg7 9. Rg4 Rge7 10. Re3 0-0 11. Bd2 Kh8 12. g4 Girðir fyrir framrás f-peðsins og lokar stöðunni. Svartur leitar fanga á drottningarvængnum. 12. … Hb8 13. a4 Rd4 14. Rcd5 Rxd5 15. Rxd5 Re6 16. f3 Rf4 17. Db1 Be6 18. Da2 Dd7 19. Hg1 b6 20. Bc3 Bxd5 21. Bxd5 a6 22. Bd2 De7 23. Hf1 b5 24. axb5 axb5 25. Kf2 Það virðist ekki mikið vera á seyði í þessari stöðu. Samt hrynur hvíta staðan í sex leikjum! 25. ... c4!? Stundum er hægt að leika svona leikjum án þess að taka mikla áhættu. Nepo virðist hafa óttast framhaldið 26. dxc4 bxc4 27. Bxc4 d5!? 28. Bxd5 f5 með hugmyndinni 29. gxf5? g4! o.s.frv. Hann hefði átt að velja þessa leið og leika 29. Kg3! og stendur þá heldur betur að vígi. 26. Bxf4? Losar sig við riddarann en opnar línu fyrir biskupinn á g7. 26. … exf4 27. Had1 f5!? Aftur og nýbúinn en þetta er til- raunarinnar virði þó ekki að sjá að svartur hafi mikla sókn eftir 28. exf5 De3+ 29. Kg2 De2+ 30. Kh3 en get- ur þó leikið 30. … cxd3 31. cxd3 Dxb2 með jafnteflislegri stöðu. En Nepo greip í hitt peðið. 28. gxf5? g4! 29. d4 Það er engin betri vörn. Nú vinnur svartur með nokkrum hnitmiðuðum leikjum. 29. … Dh4+ 30. Ke2 Dh2+ 31. Hf2 gxf3+ – og hvítur gafst upp. 32. Kxf3 er svarað með 32. …. Dxh5+ og hrók- urinn á d1 fellur. Hannes efstur í Tékklandi Nýbakaður Íslandsmeistari, Hannes Hlífar Stefánsson, hóf lok- aða mótið í Budejovice í Tékklandi með því að tapa fyrstu tveim skákum sínum. Hann sneri blaðinu við og vann fjórar skákir í röð! Eftir sex umferðir af níu er hann í efsta sæti ásamt Tékkanum Jan Vykouk en þeir eru báðir með 4 vinninga. Mótinu lýkur um helgina. Torræðir peðsleikir reynast andstæðing- um Magnúsar erfiðir Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Chessbase Ný hárgreiðsla dugði skammt Nepo gefst upp gegn Magnúsi Carlsen. Bogi Jóhann Bjarnason fæddist 2. júlí 1919 á Neðra- Hóli í Staðarsveit . Foreldrar hans voru hjónin Bjarni Jóhann Bogason, bóndi á Neðra-Hóli, og Þórunn Jóhannesdóttir. Eftir að hafa útskrifast frá Lögregluskólanum 1946 hóf Bogi hóf störf hjá lögreglunni sama ár. Hann var skipaður varðstjóri 1963 og síðan aðal- varðstjóri 1976 og lauk störfum vegna aldurs 1.1. 1990. Einnig stundaði Bogi ökukennslu í frí- tímum frá 1950 til 1980. Hann hafði yfirumsjón með vörslu borgarlandsins 1976-1990. Bogi sá svo um rekstur bifreiðaverk- stæðis lögreglunnar 1976-1990. Bogi var virkur í félags- málum, gekk í Oddfellowregl- una, var í stjórn lögreglufélags- ins, formaður Lögreglukórs Reykjavíkur, varaformaður landssambands lögreglumanna, í stjórn BSRB, varaformaður Sjálfstæðisfélags Hlíða- og Holtahverfis, varamaður í sátta- nefnd Reykjavíkurborgar, for- maður Félags Snæfellinga og Hnappdæla og fleira. Bogi hlaut ýmsar viðurkenn- ingar fyrir störf sín, bæði innan- lands og erlendis. Eiginkona Boga var Erla Sveina Jórmundsdóttir, f. 19.12. 1924, d. 3.9. 2009. Þau eignuðust þrjú börn. Bogi lést 18.9. 2013. Merkir Íslendingar Bogi J. Bjarnason Þegar fréttist af utanvegaakstri, hella-vandalisma og útspörkuðum náttúruperlum kemur berlega í ljós að við erum varnarlaus. Skaðinn er skeður, einhverjar sektir greiddar með glott á vör og þjóðin situr uppi með skemmdirnar og skömmina að hafa látið þetta viðgangast. Þarf ekki að fara að fylgjast betur með hvernig landið er markaðssett í útlöndum? Er kannski látið að því liggja, t.d. í duldum auglýsingum, að hér sé allt leyfilegt og sjálfsagt að haga sér eins og villimenn og sleppa virkilega beislinu fram af sér? Sum auglýsingamyndbönd síðustu ára sitja enn í hugskotinu, þar sem ekki aðeins var djöflast á landinu sjálfu heldur virtist þar líka ríkja einhver galgopaglannaskapur sem sannarlega sýndist bjóða hættunni heim fyrir tilvonandi ferðalanga og vera síst til eftirbreytni. Vonandi erum við að komast af gelgjuskeiðinu í ferðabransanum og getum farið að skipuleggja hlutina af skynsemi. En þangað til erum við vörnum svipt þjóð í stóru landi. Og það er sótt að úr öllum áttum. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Varnarlaus þjóð Ljósmynd/Gísli Sigurðsson Lakagígar Íslendingar og gestir þeirra eiga að umgangast landið af virðingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.