Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 ✝ GuðbjörnKristmanns- son var fæddur á Ísafirði 19. októ- ber 1935. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Ísafjarð- ar 25. júní 2019. Foreldrar hans voru hjónin Krist- mann Gunnar Jónsson, f. 1. jan- úar 1906, d. 28. apríl 1961, og Björg Sigríður Jónsdóttir, f. 13. júlí 1911, d. 26. september 1995. Bræður Guðbjörns eru: Jón, f. 12. maí 1933, d. 22. desember 2013, Saman eignuðust Guðbjörn og Ingibjörg fjögur börn: Þor- steinn Hörður, f. 2. desember 1957, Guðbjörg, f. 8. nóv- ember 1959, maki Sigurður Þórisson, Kristbjörg María, f. 12. október 1964, maki Stein- grímur Árni Guðmundsson, og Lilja Guðmunda, f. 9. júní 1974. Hann lætur eftir sig fimm börn, 13 barnabörn og 15 barnabarnabörn. Ungur byrjaði Guðbjörn að stunda sjó, hann vann við beitningar, var verkstjóri í Fiskiðjunni Freyju og vann við smíðar þar til hann fór aftur á sjó. Í framhaldi af því stofnaði hann ásamt syni sín- um útgerðina Berta G. Hann sinnti útgerðinni þar til hann lést. Útför Guðbjörns fer fram frá Suðureyrarkirkju í dag, 6. júlí 2019, kl. 14. Kristmann, f. 24. desember 1939, og Jens Sigurður, f. 14. febrúar 1941. Haustið 1956 hóf Guðbjörn sam- búð með Ingi- björgu Friðberts- dóttur, f. 22. október 1937, d. 14. apríl 2012. Þau gengu í hjónaband 22. október árið 1960 í Suðureyr- arkirkju. Guðbjörn gekk dótt- ur Ingibjargar í föður stað: Hjördís, f. 22. febrúar 1955, maki Ragnar Guðleifsson. Afi minn var hörkutól, en það er orðið sem kemur fyrst upp í huga þegar ég hugsa til afa. Hörkutól með gel í hárinu, six- pensara á höfði, axlabönd og tóbak í hendi. Afi var ofsalega iðinn og duglegur og ég man ekki eftir mér nema afi hafi ver- ið að bardúsa við eitthvað. Jafn- vel orðinn rúmlega áttræður var hann alltaf eitthvað að grúska enda nóg að gera, flaka, laga bátinn eða hvað það var sem þurfti að gera. Í námi mínu í Kennaraháskólanum vann ég eitt skipti verkefni um vinnu barna og var afi viðmælandi minn. Þarna kynntist ég afa frá öðru sjónarhorni þar sem hann sagði mér sögur úr æsku sinni en hann fór snemma að vinna og elskaði það. Hann var alla tíð duglegur og eljusamur. Það var líka þess vegna sem maður bjóst alveg við því að hann myndi harka þessi veikindi af sér. Tölurnar og staðreynd- irnar unnu kannski ekki með honum en sagan gerði það. Afi, þetta hörkutól sem hann var, myndi harka þetta af sér, sem hann svo gerði ekki. Söknuðurinn er sár og það verður erfitt að koma heim á Súganda og fara ekki í heim- sókn til afa í ömmu og afa hús, sitja úti á svölum og horfa upp í fjallshlíðina. Ég var svo heppin að þekkja ömmu mína og afa mjög vel og var náin þeim báð- um. Ég var mikið hjá þeim bæði sem barn og unglingur en eftir að við fluttum suður fór ég vest- ur á sumrin og vann í fiski, var þá alltaf hjá ömmu og afa. Með aldrinum fækkaði vesturferðun- um og þær urðu styttri, síðustu ár höfum við Ægir þó reynt að fara reglulega og gistum oft hjá afa. Það eru góðar minningar sem við og börnin okkar eigum um Bjössa afa. Afa sem kenndi mér svo margt en það mikilvægasta held ég af öllu sem hann kenndi mér er að við „siglum í gegnum þetta“. Leiðin er kannski ekki auð- veld eða bein en við finnum okk- ar leið. Stundum er bræla og allt stopp en stundum viðrar vel og þá gengur betur. Nú er afi kominn yfir í Sum- arlandið og amma eflaust fegin að fá hann. Sjáumst síðar, afi minn, ég bið að heilsa. Ingibjörg. Ljúfar minningar um góðan dreng hrannast upp í huga okk- ar við fráfall Bjössa Kristmanns, allt frá æskuárunum á Túngötu 6 á Suðureyri til síðasta hausts. Bjössi og Imba, móðursystir mín, bjuggu í því sama húsi og við fjölskyldan í mörg ár. Sam- gangurinn var mikill, sambúðin ljúf og náin, og fjörið takmarka- laust. Þau hjónin umvöfðu mig kærleik og mér var alltaf tekið sem einu af þeirra börnum, lík- lega af því að ég var yngst af mínum systkinum og þau eldri farin að heiman. Varla var far- inn sá sunnudagsbíltúr til Ísa- fjarðar til að heimsækja Bubbu ömmu nema ég, heimasætan á loftinu, væri með í þéttum barnahóp aftursætisins á Mosk- vítsnum. Alltaf skyldi vera pláss fyrir mig bæði þá og síðar á lífs- leiðinni fyrir mig og mína. Bjössi bjó alltaf að hinni fyrstu gerð alþýðumannsins, þær rætur og heimabyggðarinn- ar slitnuðu aldrei og í allri hans breytni endurspegluðust rótgró- in réttlætiskennd og umhyggja fyrir umhverfi sínu. Þetta um- hverfi var fyrst og fremst bund- ið við fjölskylduna hans, fólkið og náttúruna við þann fallega vestfirska fjörð, en einnig við hið víða samhengi hlutanna. Hann stundaði sjómennsku lengst af, í skipsrúmi annarra og síðar í sínu eigin. Hann var talinn hinn mesti dugnaðarforkur, einnig þegar í land kom þar sem hann sá um útgerð báts síns og beitningu og var miðdepill hafnarlífsins á Suðureyri. Starfsfólk hans naut hans sem hins trausta vakandi hirðis sem ávallt gaf án skilyrða. Þótt fullorðinsárunum hafi mestan hluta verið varið erlend- is skyldi alltaf haldið vestur til Súgandafjarðar hvert síðsumar til berja og Imba og Bjössi heimsótt. Gestrisni þeirra var annáluð og eftir fráfall Imbu tók Bjössi einn gestgjafahlutverkið að sér en þrátt fyrir mikinn missi var eins og hann hefði hana við hlið sér. Þau hjónin gáfu óspart úr gnægtabrunni mannkosta sinna og hvert samneyti við þau dýr- mætur lærdómur og veganesti. Bjössi hafði lag og lausnir á öllu og smitaði með glettni sinni og blíðu og alltaf reiðubúinn að skjóta báti undir sjómennsku- þörf eiginmannsins. Í lok heim- sóknanna voru einatt lögð drög að því að tryggja okkur harðfisk og Þorláksmessuskötu til að hafa á borðum okkar í útlönd- um. Nú hefur lífsblómið hans Bjössa misst blómann og líkt og gróður að hausti lagst í dvala og kvatt þessa jarðvist. Þar með hefst nýtt upphaf fyrir honum, blómið hans vaknar til annars lífs, nýrrar vitundar sem bíður okkar allra, og endurfunda við hana Imbu sína sem hann hefur beðið eftir í 7 ár. Þegar við kvöddum hann síðastliðið haust fannst okkur í fallegu bliki augnanna tilhlökkun til þeirra endurfunda. Um leið og við yljum okkur við hlýjar minningar kveðjum Bjössa með dýpsta þakklæti og virðingu, biðjum góðan Guð um blessun við minningu hans og styrk til allra barnanna hans í sorg þeirra. Aðalheiður Óskarsdóttir og Benedikt Jónsson. Guðbjörn Kristmannsson ✝ Hildur ÁsaBenedikts- dóttir, Dadda, fæddist 6. júlí 1948 á Birningsstöðum í Laxárdal. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 1. janúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Benedikt Jónsson frá Auðn- um í Laxárdal og Sigríður Torfadóttir frá Birn- ingsstöðum í sömu sveit. Hildur var yngst sinna systkina, elst var Guðrún, f. 3. júní 1940, d 2016, og Jón, f. 17. mars 1946. Hildur giftist Emil Birgissyni, f. 2. maí 1953. Eign- uðust þau tvö börn: Sigurbjörn Þór, f. 1975, d. 1996, og Valdísi, f. 1978, gift Sigurði Breiðfjörð búsett í Danmörku og eiga þau soninn Jörund. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku Dadda, minningarnar eru ótal margar, heimsóknir í Lyng- og Birkihraunið, garða- bandsspjall á sauðburði, hitting- ur hér og þar og rætt um landsins gagn og nauðsynjar. Dadda var fróðleiksfús manneskja sama á hvaða stigi það var og fylgdist vel með og ófeimin að spyrja frétta. Það er ekki meiningin að vera með langa ræðu, þú vildir frekar hugsa um hag annarra og það máttir þú svo sannarlega eiga hvað þú varst dugleg að hringja í mömmu og Fríðu og heimsækja þær kellur í kringum þig og nut- um við þeirra heimsókna líka. Dadda starfaði lengi í þvotta- húsinu í Hótel Reynihlíð og þar eignaðist hún marga góða vini, einnig vann hún við ræstingar hjá K-Þ á þeim tíma og leikskólanum Yl, og minnast þær leikskólakon- ur þess þegar Dadda var að þrífa eitt sinn að kraftarnir voru held- ur miklir og hún kippti skipti- borðinu af veggnum og þegar nýtt var sett upp var haft á orði að það væri Dödduhelt. Það eru margar góðar minningar sem við eigum um hana en viljum hafa fyrir okkur. Haustnótt í hjarta mér skyggir, huggun það alls enga sér. Sumarið fagra er flúið, flúið um eilífð frá mér. (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) Nú hvílir þú við hlið sonar þíns og vitum við að vel hefur verið tekið á móti þér. Elsku Dadda, hafðu þökk fyrir allt. Fjölskyldu og vinum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Þar vil ég gista geislum hjá, gef mig himni og sól, gleyma, hve þessi góða jörð margt grimmt og flárátt ól. (Unnur Benediktsdóttir Bjarklind) Herdís og Elín Steingríms- dætur (Dísa og Ella). Hildur Ása Benediktsdóttir Sálm. 14.2 biblian.is Drottinn horfir á mennina af himnum ofan til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn, nokkur sem leiti Guðs. FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Á góðu verði Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Opið: 10-17 alla virka daga Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og systur, SIGRÚNAR SIGURGEIRSDÓTTUR, Fjarðarstræti 35, Ísafirði, áður til heimilis á Skólastíg 14a, Stykkishólmi. Sérstakar þakkir fær það fólk sem stóð þétt við bakið á henni, sýndi henni vinarþel og studdi hana eftir að ástkær eiginmaður hennar og stjúpi okkar Gunnlaugur Valdimarsson lést 27. mars. Sveinsína Björg Jónsdóttir Sigurgeir Hrólfur Jónsson Þórdís Mikaelsdóttir Bjarnþór H. Sverrisson Sigríður Inga Sverrisdóttir Árni Sigurðsson Kolbrún Sverrisdóttir Guðmundur B. Sverrisson Sakuntara Chantavong Halldór B. Sverrisson Hafsteinn Sverrisson Margrét Björgvinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, EINAR BOGI SIGURÐSSON, Suður-Reykjum 3, Mosfellsbæ, varð bráðkvaddur á heimili sínu hinn 30. júní. Útförin verður auglýst síðar. Kristján Ingi Jónsson Ágúst Rafn Einarsson Rakel Guðmundsdóttir Matthías Einarsson Clare Patricia Dilworth Erna Einarsdóttir Sigurður Ágúst Finnbogason Guðríður Einarsdóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ELÍN HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR, Vestursíðu 9, Akureyri, lést á Hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð í faðmi fjölskyldu þriðjudaginn 2. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristjana Rúnar Halldór Lovísa Hólmkell Kristín Sóley Þórir Alyona Hólmfríður Berglind Guðmundur Már ömmu-, langömmu-, langalangömmubörn og aðrir aðstandendur Okkar ástkæra móðir, systir og frænka, YNGVILD SVENDSEN, Osló, Noregi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 26. júní. Útför hennar fer fram frá Nordstrand-kirkju fimmtudaginn 11. júlí klukkan 12. Sindre Einarsson Freyr Einarsson Siri Randers-Pehrson Jetmund Maurstad Ragnhild Hofgaard Per-Henning Wold Nils Randers-Pehrson, Øyvind Randers-Pehrson, Sigrid Randers-Pehrson Une Hofgaard, Anders Hofgaard Turid Eriksen Móðir okkar, amma og langamma, BERGNÝ JÓHANNSDÓTTIR frá Skriðufelli, lést 13. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI ÞÓRARINSSON húsasmíðameistari, til heimilis á Kópavogsbraut 1a, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 7. júní. Útförin fer fram í Seljakirkju mánudaginn 8. júlí. klukkan 13. Sigríður Þorláksdóttir Ólafur Helgason Linda Sunnanvader Salína Helgadóttir Einar Long Guðmundur Helgason Hildur Jósefsdóttir Þröstur Helgason Gerður Jónsdóttir Hermann Brynjólfsson Eygló Lilja Ásmundsdóttir barnabörn og langafabörn Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletr- aður, en ekki í minningargrein- unum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.