Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 10

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Þegar borgarráð samþykkti að ganga til samninga við Víking um að taka við íþróttastarfi Fram við Safa- mýri var undanskilið stórt gras- svæði, sem knattspyrnumenn hafa notað til æfinga. Í samþykkt borgar- ráðs var sagt að þetta svæði yrði tek- ið til annarrar þróunar, eins og það var kallað. Um er að ræða afar verð- mætt svæði nálægt Miklubraut, gegnt Kringlunni. „Varðandi að núverandi gras- æfingasvæði í Safamýri verði tekið til annarrar þróunar, þá hafa engar nýjar ákvarðanir verið teknar og ekki gerðar nýlegar rýmisathuganir á byggingarmagni á þessu svæð- i,“segir Jón Halldór Jónasson, upp- lýsingafulltrúi hjá Reykjavíkurborg. Róttæk breyting gerð 2014 Á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010- 2030 er svæðið sýnt sem grænt. Hins vegar má búast við að þarna verði skipulögð íbúðarbyggð eða verslun- arstarfsemi. Við endurmat á aðal- skipulaginu árið 2014 var boðuð rót- tæk breyting á stefnu borgarinnar í skipulags- og umhverfismálum. Í stefnunni er gert ráð fyrir því að að minnsta kosti 90% allra nýrra íbúða á skipulagstímabilinu rísi innan nú- verandi þéttbýlismarka. Til að und- irstrika þá yfirlýsingu voru dregin skýr vaxtarmörk um þéttbýli borg- arinnar. Í stað nýrra úthverfa er lögð áhersla á þéttingu á fjölmörgum smærri reitum innan núverandi byggðar, einkum með endurnýtingu eldri atvinnusvæða. Ýtt er undir aukna blöndun byggðar með íbúðarbyggð í ná- grenni við núverandi atvinnukjarna, samtvinnun íbúða og vinnustaða inn- an sama reits og félagslegri blöndun með fjölbreyttum húsnæðislausnum. Borgin hefur á síðustu árum verið skipulögð í anda nýrrar stefnu. Jón Halldór segir að það sem hafi verið teiknað upp vegna Miklubraut- ar í stokk hefi einkum verið innan helgunarsvæðis götunnar og ekki farið inn á græna svæðið. Það sé hins vegar eðlilegt að þró- un grasvallarsvæðisins verði skoðuð í samhengi við „Miklubraut í stokk“- verkefnið. Mögulegt sé að gera það í breytingum á Aðalskipulagi Reykja- víkur, sem er nú í burðarliðnum. Hugmyndir um uppbyggingu á þessum reit hafa komið fram áður. Í Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu, er pistill um Svein Andra Sveinsson lögmann. Sveinn Andri tók sæti í stjórn Knattspyrnufélagsins Fram árið 1991 og var formaður félagsins frá 1994 til 2000. Orðrétt segir: „Sveinn Andri setti til hliðar hug- myndir forvera síns á formannsstóli, Alfreðs Þorsteinssonar, um að flytja Fram úr Safamýrinni í austari byggðir borgarinnar eða í Laugar- dalinn. Þess í stað vildi hann byggja upp það svæði sem fyrir væri. Meðal annars setti hann fram metnaðar- fullar hugmyndir um að selja hluta svæðisins undir verslunarmiðstöð með knattspyrnuleikvangi á þak- inu.“ Reykjavíkurborg hafnaði þess- um hugmyndum og benti á að hún ætti landið en ekki Fram. Byggð þróuð á verðmætum reit  Grasæfingasvæði Fram við Miklubraut verður þróað til annarra nota  Áður hafa verið reifuð áform um að þar risi verslunarmiðstöð  Þéttingarstefnu borgarinnar hefur verið framfylgt undanfarin ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Svæði Fram við Safamýri Grasæfingasvæðið er fyrir miðri mynd. Hægra megin er íþróttahús og gervigrasvöllur sem Víkingur fær til afnota í framtíðinni. Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.