Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 11

Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 11
Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Opið laugardag 10-15 STÓRÚTSALA 30-70 SUMARYFIRHAFNIR - GÆÐAFATNAÐUR % AFSL. FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Messa í Úthlíðarkirkju Sunnudagur 7. júlí kl. 16.00 Prestur Sr. Hjálmar Jónsson. Jón Bjarnason og söngsveinar Úthlíðarkirkju leiða almennan safnaðarsöng. Sérstakur gestur Jóhann Friðgeir Valdimarsson, óperusöngvari. Veitingar í Réttinni að athöfn lokinni. „Ég held tvímælalaust að þetta muni auka áhugann á garðinum, innanlands og utan. Aðalbreytingin verður sennilega sú að við fáum kröfuharðari ferðamenn. Fólk sem gerir meiri kröfur til upplýsingar og fræðslu, og dvelur þá vonandi leng- ur í garðinum,“ sagði Magnús Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs, í samtali við mbl.is í gær. Vatnajökulsþjóðgarður komst í gær í hóp merkustu þjóðgarða heims þegar samþykkt var að hann yrði skráður á heimsminjaskrá UNESCO á heimsminjaráðstefnu samtakanna í Bakú í Aserbaídsjan. „Þetta eru stórkostlegar fréttir. Með þessu er staðfest að stórbrotin náttúra þjóðgarðsins og friðlandsins í Lónsöræfum teljist hafa einstakt gildi fyrir allt mannkyn. Vá. Til hamingju öll og þúsund þakkir fyrir vandaðan undirbúning öll þið sem hafið komið að þessu stóra verk- efni!“ skrifaði Guðmundur Ingi Guð- brandsson, umhverfis- og auðlinda- ráðherra, á fésbókarsíðu sína þegar fregnirnar höfðu verið gjörðar heyrinkunnugar í gær. Samspil elds og íss einstakt Um stærstu viðurkenningu sem náttúrusvæði getur hlotnast er ræða en til að komast á heimsminja- skrá UNESCO þarf staður eða fyrirbæri sannanlega að hafa það sem kallað er einstakt gildi á heims- vísu. Í tilnefningu Vatnajökulsþjóð- garðs var lögð áhersla á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eld- stöðvakerfi í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss sem talið er ein- stakt á heimsvísu. Vatnajökulsþjóðgarður er þar með orðinn þriðji heimsminjastað- urinn á Íslandi, ásamt Surtsey sem er á skrá sem náttúrustaður vegna einstæðrar jarðfræði og Þingvöllum sem menningarminjar. „Þetta er fyrst og fremst mikill heiður fyrir almenningsþjóðgarðinn og Ísland allt,“ sagði Magnús fram- kvæmdastjóri í gær þegar hann var staddur á heimsþinginu í Bakú. Sagði hann að í þessu væri fólgin viðurkenning á þeim einstöku nátt- úruöflum sem finna megi á svæðinu, jöklunum, landformunum, jökulán- um og eldfjöllunum. Heimsminja- stofnun UNESCO sé kröfuhörð og ekki hvaða svæði sem er komist inn á listann. Uppfylla þurfi strangar kröfur um rekstur garðsins og á þeim er ekki slakað þótt svæðið sé komið með viðurkenninguna. „Það má líta á þetta eins og gæðavottun,“ sagði Magnús. Fylgst sé með hvort þjóðgarðurinn standi í stykkinu, en dæmi séu um að svæði sem hafa komist hafa inn á listann detti af honum sé ekki staðið við skuldbind- ingar. Aðspurður sagði Magnús að stór hópur ferðamanna gerði út á að heimsækja heimsminjastaði og að slíkum mætti eiga von á. Fólki sem gerði meiri kröfur, eins og áður seg- ir, öfugt við ferðamenn sem stoppa við Jökulsárlón í tvo tíma og fara svo aftur í bæinn. Vinnan farin af stað Í umsögn Alþjóðlegu náttúru- verndarsamtakanna (IUCN), sem mæltu með því að þjóðgarðinum yrði bætt á listann, var m.a. þeim tilmælum beint til stjórnvalda að lokið yrði sem fyrst við endurskoð- un stjórnunar- og verndaráætlunar garðsins, og mannauður þjóðgarðs- ins yrði efldur. Sagði Magnús að vinna við þessa þætti væri í gangi og nefndi að atvinnustefna garðsins, sem tekur á samskiptum garðsins við atvinnurekendur á svæðinu, hafi nýlega verið samþykkt. Í framkvæmdastjórn heimsminja- stofnunar UNESCO sitja 58 ríki og taka fulltrúar þeirra endanlega ákvörðun um viðbætur á listann. Um 40 svæðum var í gær bætt á heimsminjaskrána, en þar af falla flest undir menningarverðmæti. Innan við tíu svæðum var bætt við á náttúruminjaskrána, sem Vatnajök- ulsþjóðgarður tilheyrir nú. Eins og áður segir er þjóðgarðurinn þriðja svæðið á Íslandi til að komast á heimsminjaskrána, Surtsey var tek- in inn 2008 og Þingvellir 2004. Vatnajökulsþjóðgarður nú á heimsminjaskrá  Framkvæmdastjóri býst við kröfuharðari ferðamönnum Morgunblaðið/RAX Viðurkenning Ferðamenn við Vatnajökul snemma á öldinni. Þjóðgarðurinn var stofnaður 2008 og ellefu árum síðar komst hann á heimsminjaskrá. Matarmarkaður verður á Laugar- dalsvelli næstu tvær helgar. Um tuttugu aðilar, matarvagnar og aðrir söluaðilar matvæla, taka þátt í her- legheitunum. Róbert Aron Magnússon, for- svarsmaður markaðarins, segist hæstánægður með veðurspána og spenntur fyrir helginni. Mathallir og matarmarkaðir hafa sprottið upp víðs vegar um Reykja- vík síðustu ár en Róbert stóð einnig fyrir matarmarkaði í Skeifunni síð- asta sumar og stendur fyrir svokall- aðri götubitahátíð á Miðbakka síðar í júlí. Spurður um skýringar á vinsæld- um þessa forms segir Róbert: „Þetta form gefur nýjum aðilum tækifæri til að kynna sína vöru án þess að þeir þurfi að taka á leigu heilan veitingastað í miðborginni eða hvað það er með öllum tilkostnaði. Þarna gefurðu fleirum tækifæri til að koma saman og kynna sínar vörur á svæði þar sem er saman- komið fullt af fólki sem vill prófa eitthvað nýtt og öðruvísi.“ Jói Pé og Króli halda uppi stuðinu á markaðnum á sunnudaginn og plötusnúðurinn Snorri Ástráðs á laugardaginn. ragnhildur@mbl.is Ljósmynd/Róbert Aron Grænkerastaðurinn Jömm hóf göngu sína á matarmarkaði í Skeifunni. Nú er staðurinn í Kringlunni. Róbert segir afar ánægjulegt að sjá staðina vaxa. Tækifæri fyrir rís- andi veitingamenn  Matarmarkaður á Laugardalsvelli Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra í síðasta mánuði fyrir nauðgun. Brot mannsins átti sér stað í heimahúsi í janúar í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir nauðgun með því að hafa haft sam- ræði og önnur kynferðismök við konu án hennar samþykkis og vilja með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung. Dómurinn mat framburð kon- unnar trúverðugan og dæmdi manninn eins og áður segir í tveggja ára fangelsi. Honum var einnig gert að greiða konunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.