Morgunblaðið - 06.07.2019, Side 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Áttundu heimsmeistara-
keppni kvenna í knattspyrnu lýk-
ur á morgun með úrslitaleik
heimsmeistara Bandaríkjanna og
Evrópumeistara Hollands sem
eigast við í Lyon.
Mótið hefur verið hin mesta
skemmtun að mínu mati og ég
hef verið duglegur að fylgjast
með leikjunum á RÚV sem hefur
gert heimsmeistaramótinu góð
skil. Ég hef séð marga frábæra
leikmenn leika listir sínar á völl-
unum á HM í Frakklandi. Gæðin
eru að aukast, leikskilningurinn
er meiri og áhorfstölur í sjón-
varpi hafa rokið upp, líka hér á
landi, og mikil aðsókn og stemn-
ing hefur verið á leikjunum.
Kvennaknattspyrnan er
sífellt í sókn og forseti Alþjóða-
knattspyrnusambandsins lét
hafa eftir sér í gær að stefna
FIFA væri að auka fjármagn til
kvennaknattspyrnunnar í heim-
inum og tvöfalda verðlaunafé á
HM.
Forsetinn vill fjölga liðunum
úr 24 í 32. Því er ég ekki sam-
mála. Ég held að með því fengj-
um við fleiri slök lið og tölur eins
og 13:0 þegar Bandaríkin mætti
liði Taílands á HM í Frakklandi
gætu sést í fleiri leikjum.
Ég ætla að halda með Hol-
lendingum í úrslitaleiknum en ég
er ansi hræddur um að banda-
ríska liðið verji titilinn og fagni
honum í fjórða sinn. Lið Banda-
ríkjanna er eins og vel smurð vél
og hvergi er veikan hlekk að
finna. Leikmenn liðsins eru sam-
an við æfingar og leiki miklu
meira en önnur lið og heims-
meistararnir eru nánast eins og
félagslið.
Ég spái Bandaríkjunum 2:0
sigri með mörkum frá Alex Morg-
an. Hún verður þar með marka-
drottning mótsins!
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
„Það hefur ansi mikið gengið á hjá
mér undanfarna daga. Í bland við
langar samningaviðræður kemur
barn í heiminn og svo er að skrifa
undir þannig að þetta hefur verið
hálfgerð sturlun þessir síðustu dag-
ar og þetta er í raun allt í smá móðu
hjá mér,“ sagði Haukur Helgi Páls-
son, nýjasti leikmaður rússneska
körfuknattleiksliðsins Unics Kazan,
í samtali við Morgunblaðið í gær.
Haukur Helgi lék með Nanterre í
efstu deild Frakklands í vetur en
hann eignaðist sitt fyrsta barn mið-
vikudaginn 3. júlí síðastliðinn með
unnustu sinni Söru Dögg Jóns-
dóttur. Tveimur dögum síðar skrif-
aði hann undir samning við Unics
Kazan sem leikur í efstu deild Rúss-
lands og nágrannalandanna en þar
með er ekki öll sagan sögð því Hauk-
ur hafnaði samningstilboði ísraelska
liðsins Hapoel Jerúsalem hinn 2. júlí
síðastliðinn og því ljóst að það hefur
margt á daga hans drifið undanfarna
sólarhringa.
„Ég vissi að ég væri á blaði hjá
Unics Kazan ásamt öðrum sextíu
leikmönnum eða svo. Venjan í Rúss-
landi hefur verið sú að liðin þar
reyna að fá stráka sem eru að detta
út úr NBA-deildinni í Bandaríkj-
unum eða leikmenn sem eru með
mikla reynslu í Evrópudeildinni
þannig að ég var ekki að gera mér
neinar sérstakar vonir um að ég
væri að fara þangað þótt það hefði
vissulega verið gaman að vera á
blaði hjá þeim.“
Skilinn eftir í lausu lofti
Haukur var að fara að skrifa undir
hjá ísraelska úrvalsdeildarliðinu
Hapoel Jerúsalem þegar umboðs-
maður hans hringir óvænt í hann og
þá fer ótrúleg atburðarás af stað.
„Þegar ég er að fara að skrifa
undir hjá Hapoel Jerusalem fæ ég
upphringingu frá umboðsmanninum
mínum. „Það er komið upp ákveðið
vandamál Haukur, Unics Kazan var
að hringja,“ segir hann við mig og þá
tjáir hann mér það að rússneska lið-
ið hafi fylgst mjög vel með mér og að
þeir hafi áhuga á að fá mig. Hann
segir mér svo að hann þurfi að fara
að sofa svo hann sé tilbúinn fyrir
undirskriftina daginn eftir hjá
Hapoel Jerúsalem og skilur mig í
rauninni algjörlega eftir í lausu lofti.
Hann hringir svo daginn eftir og
segir að við höfum 45 mínútur til
þess að taka ákvörðun um hvort við
ætlum að fara til Jerúsalem eða
ekki. Hann segir mér jafnframt að
það sé fínn möguleiki á því að Unics
Kazan vilji fá mig en það sé ekkert
staðfest í þeim efnum. Ég þarf því að
taka ákvörðun um það á hálftíma
hvort ég ætli mér að fara til Ísraels
eða gefa Rússlandi séns. Umboðs-
maðurinn minn er ekki vanur því að
taka sénsa og hvetur menn í raun
alltaf til þess að taka þann samning
sem er á borðinu en í þetta skiptið
sagði hann mér að veðja á Rússland
og það gekk eftir á endanum.“
Haukur segir að ekki hafi komið
til greina að vera áfram hjá Nan-
terre í Frakklandi þar sem hann
skoraði níu stig að meðaltali, tók
þrjú fráköst og gaf tvær stoðsend-
ingar í 32 leikjum með liðinu í vetur.
„Í janúar/febrúar byrjaði Nan-
terre að ræða um nýjan samning við
mig. Síðan byrja ég að spila mjög vel
eftir áramót og ég fæ meira traust til
þess að vera með boltann eftir að
einn af bakvörðum liðsins meiðist.
Ég finn það þarna þegar hlutirnir
fara að ganga mjög vel að ég hef
ekki áhuga á að vera þarna áfram.
Ég fann fyrir áhuga frá öðrum liðum
og ákvað þess vegna að hafna Nan-
terre. Næsta skref hjá mér var að
spila í Evrópubikarnum og það var
hálfskrítið að segja nei við Nanterre
eftir að þeir tryggðu sér sæti í þeirri
keppni en ég var í raun ákveðinn í að
yfirgefa Frakkland. Ég var svo orð-
in hálfstressaður um að fá ekkert til-
boð frá liðum í Evrópubikarnum en
ákvörðunin um að yfirgefa Nanterre
var fyrst og fremst körfuboltalegs
eðlis.“
Kominn tími á næsta skref
Haukur Helgi er meðvitaður um
að hann sé að fórna ákveðnum hlut-
um fyrir körfuboltann en Unics Kaz-
an er eitt af sterkustu liðum Rúss-
lands. Þrátt fyrir að liðið hafi aldrei
orðið landsmeistari hefur það þrí-
vegis orðið bikarmeistari, síðast
2014, og einu sinni fagnað sigri í
Evrópubikarnum, árið 2011.
„Það var mjög þægilegt að vera í
París og okkur leið mjög vel þar.
Það er stutt að fljúga heim til Ís-
lands en mér fannst vera kominn
tími til þess að taka næsta skref. Ég
ræddi þetta við Söru og þótt hún
hafi ekki alveg búist við því að við
værum að fara til Rússlands var hún
tilbúin að taka þetta skref með mér
eftir stutt fundahöld. Unics er
hörkulið sem spilar í mjög sterkri
deild. Þeim hefur gengið vel á und-
anförnum árum og enduðu meðal
annars í öðru sæti deildarkeppn-
innar í ár og féllu úr leik í undan-
úrslitum úrslitakeppninnar. Liðið
hefur spilað í Evrópukeppni frá 1997
og gæðalega séð er þetta sá styrk-
leikaflokkur sem ég vil spila í.
Stundum þarf maður að fórna
ákveðnum hlutum fyrir körfubolt-
ann og í þessu tilfelli er maður að
fórna því að vera nær heimaslóðum.“
Haukur er ekki farinn að undir-
búa flutninga til Rússlands og ætlar
sér að taka næstu daga í að kynnast
dóttur sinni og eyða tíma með fjöl-
skyldunni.
„Þetta var stress, ég get alveg við-
urkennt það. Ég vissi það fyrirfram
að það væru samningaviðræður að
fara í gang og ég ætti von á nokkrum
símtölum frá bæði stjórnarmönnum
og þjálfurum hjá Unics Kazan. Þeir
vissu hins vegar af því að við ættum
von á barni og voru þess vegna ekki
mikið að stressa sig á því ef ég svar-
aði ekki í símann. Um leið og unn-
usta mín fékk hríðir gleymdist hins
vegar allt hitt sem var í gangi og við
ætlum núna að taka okkur góðan
tíma í að kynnast sem fjölskylda áð-
ur en við förum að undirbúa flutn-
inga til Rússlands,“ sagði Haukur
Helgi í samtali við Morgunblaðið.
Skiptin í
móðu eftir
fæðinguna
Haukur Helgi endaði óvænt í Rúss-
landi eftir ótrúlega atburðarás
Ljósmynd/FIBA
VTB Haukur Helgi Pálsson leikur með Unics í VTB-deildinni en þar spila
bestu lið Rússlands, Lettlands, Hvíta-Rússlands, Kasakstan og Póllands.
KR og Breiðablik fá tækifæri um helgina til að styrkja
enn frekar stöðu sína á toppi úrvalsdeildar karla í fót-
bolta en andstæðingar þeirra eru tvö neðstu lið deild-
arinnar, ÍBV og HK.
Rúnar Kristinsson og hans lærisveinar í KR náðu fjög-
urra stiga forskoti á Blika með sigri í leik liðanna á
mánudagskvöldið og í dag verða Vesturbæingar mættir
á goslokahátíðina í Vestmannaeyjum þar sem þeir mæta
ÍBV klukkan 16. Segja má að himinn og haf skilji liðin
að; KR er með 26 stig á toppnum og hefur unnið sjö leiki
í röð en ÍBV er með fimm stig á botninum og hefur unnið
einn leik af tíu í sumar.
Breiðablik fær nágranna sína í HK í heimsókn á Kópavogsvöll annað
kvöld klukkan 19.15. Það verður þriðja viðureign liðanna á tveimur mán-
uðum en þau skildu jöfn, 2:2, í deildinni í byrjun maí og Blikar unnu bik-
arleik þeirra í lok maí, 3:1. Blikar eru með 22 stig í öðru sæti en HK átta
stig í næstneðsta sætinu.
Þá mætast ÍA og Fylkir á Akranesi í dag klukkan 14 en Skagamenn eru
með 17 stig í fjórða sæti og Fylkir er með 15 stig í sjötta sæti. vs@mbl.is
Toppliðin mæta botnliðunum
Rúnar
Kristinsson