Morgunblaðið - 06.07.2019, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 2019
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Tónlistarkonan og skáldið Steinunn
Arnbjörg Stefánsdóttir hefur lagt í
tvöfalda útgáfu nú í sumar. Annars
vegar gefur hún út ljóðabókina
FUGL/BLUPL, sem er komin í
bókabúðir, og hins vegar plötuna
Ljúfa huggun með hljómsveitinni
Süsser Trost sem er einnig kominn
út.
„Bókin heitir FUGL/BLUPL svo
það er strax komið eitthvert skrítið
hljóð í hana. Það má segja að hljóð-
in í tungumálinu séu eitt þema en
það er samt bara mjög fjarlægt
þema enda óhjákvæmilega hluti
ljóðagerðar,“ segir Steinunn og
bætir við að sumartónn einkenni
bókina. „Sum ljóðanna eru einfald-
lega ort um sumar. Þetta er sumar-
bók sem ég vildi þess vegna að
kæmi út að sumri. Svo er lífið og
dauðinn meðal yrkisefna eins og
kannski í öllum ljóðabókum.“
Sleppti beislinu af bókinni
Fyrri ljóðabók Steinunnar, Uss,
kom út árið 2016 og þegar hún er
spurð hvort bækurnar séu svipaðar
segir hún: „Ein vinkona mín sem
las ljóðabókina sagðist heyra í mér
tala þannig að það hlýtur að vera
einhver tónn úr mér sem er sam-
eiginlegur með bókunum tveimur.“
Nýja ljóðabókin, FUGL/BLUPL,
er þó ólík þeirri fyrri. „Ég sleppti
aðeins meira beislinu af þessari
bók. Ég reyndi að hafa aðeins
mátulega mikla stjórn á henni. Það
var hugmyndin að leyfa henni að
ráða sér svolítið sjálf. Hún fékk að
vera nett lummó. Sum ljóðin eru í
bundnu máli og bara hálfgerður
leirburður. En drullumallið er líka
skemmtilegt og mér fannst þetta
vera góður leir.“
Steinunn segir ljóðlistina vera
eins konar hljóða-, orða- og merk-
ingarhnoð þar sem búnir eru til
skúlptúrar. „Ég var nú líka bakari í
eitt ár þannig að mér finnst ekkert
leiðinlegt að hnoða og það þarf ekki
að koma neitt lélegt út úr því.“
Girnisstrengja-indípopp
Á nýju plötunni Ljúfa huggun
flytur hljómsveitin Süsser Trost,
sem Steinunn er sjálf hluti af, lög
hennar og texta. Ásamt henni
mynda sveitina þeir Mathurin
Matharel og Brice Sailly. „Þetta er
hljómsveit sem er eiginlega tvöföld
í roðinu. Við erum öll barokktónlist-
armenn, vorum saman í skóla og
erum búin að spila lengi saman.
Svo vildi það þannig til að okkur
fannst við verða að útsetja lagið
„Venus in Furs“ með Velvet Und-
erground. Við fórum að útsetja
fleiri lög og ég fór líka að útsetja
mín eigin lög fyrir okkur. Eiginlega
langar okkur að vera rokk-
hljómsveit en við erum samt bara
barokktónlistarmenn. Mamma segir
að við séum ægilegir nördar. Þetta
er svona girnisstrengja-indípopp,
eða það er alla vega það sem ég
kalla það.“
Þegar Steinunn er beðin að lýsa
plötunni segir hún: „Þetta eru lög
og ljóð eftir mig, þannig að þá er
enn kominn svona minn tónn. Ég
myndi alveg vilja vera rokkari en
er sennilega meira krútt ef eitthvað
er. Þetta eru lög eftir mig frá mis-
munandi tímum. Í sumum er ég
bara ein að syngja og spila undir en
annað gerum við öll saman.“
Prýðisfallegt og skemmtilegt
Efni ljóðabókarinnar og plöt-
unnar skarast að vissu leyti. „Ég
held það séu þrjú ljóð sem eru bæði
á plötunni og í bókinni, þannig að
þessi fyrirbæri haldast aðeins í
hendur, en að öðru leyti lifa þau
sjálfstæðu lífi. Þetta er prýðis-
fallegur diskur og skemmtilegur og
bókin sömuleiðis, svo ég snúi nú
„fyrirgefiði hvað þetta er ómerki-
legt“ á rönguna,“ segir Steinunn.
„Það að vera tónlistarmaður og
ljóðskáld fer að mínu mati sjálf-
krafa saman og þar af leiðandi vel.
Þegar ég hugsa út í það hvað Ís-
lendingar séu, ef það er eitthvað til
sem heitir Íslendingar, þá er það
fólk sem er öldum saman búið að
vera að búa til vísur. Þegar ég var
lítil og bjó í Svíþjóð þá var sagt „Ís-
lendingar eru allir skáld“ og ég tók
það á orðinu. Þótt Íslendingar spili
sinfóníur eða tónverk á hljóðfæri,
eða bara sama hvað þeir gera, þá
heyrist mér þeir alltaf vera að
yrkja eða fara með ljóð.“
Skálholt og Norðurland
Steinunn er að flytja heim til Ís-
lands eftir langa fjarveru. „Ég er
38 ára og er búin að búa 18 af þeim
árum í Frakklandi og það er alveg
komið nóg í bili, svo nú er ég að
flytja heim til Akureyrar ásamt
fjölskyldunni þar sem ég mun spila
og kenna. Ég tek svolítinn tónleika-
rúnt áður.“ Steinunn spilar á Sum-
artónleikum í Skálholti í dag, 6. júlí,
kl. 16 áður en hún heldur norður í
land með músíkina og ljóðin.
„Á þessu ferðalagi mun ég spila
svítu eftir Bach sem er skrifuð fyrir
fimm strengja selló og það hljómar
aðeins öðruvísi en fjögurra strengja
sellóið og er svolítið „fríkað“ og
skemmtilegt hljóðfæri. Ég spila líka
lög eftir sjálfa mig. Mig langaði að
hafa þetta saman þótt þetta sé
þannig séð fáránleg samsetning en
samt fannst mér það góð samsetn-
ing.“
Krútt vill verða rokkari
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir gefur út ljóðabókina FUGL/BLUPL og
hljómplötuna Ljúfa huggun Hefur tónleikaferð um landið í Skálholti
Morgunblaðið/Hari
Fjölhæf „Það að vera tónlistarmaður og ljóðskáld fer að mínu mati sjálfkrafa saman og þar af leiðandi vel.“
Það verður mikið um að vera í Al-
þýðuhúsinu á Siglufirði um helgina.
Í dag kl. 14 opnar Unndór Egill
Jónsson sýningu í Kompunni sem
ber yfirskriftina Fleygur. Undan-
farin ár hefur hann verið heillaður
að viðarsamsetningum og þeirri
virkni sem þær gegna í strúktúrum
og fyrir sýninguna vann hann fjög-
ur þrykk þar sem sérstakri athygli
er beint að því mótsagnakennda
hlutverki sem fleygur gegnir í þeim
samsetningum. Á morgun kl. 14.30
mun Linus Orri Gunnarsson standa
fyrir þjóðlagasamspili í Alþýðuhús-
inu sem fer þannig fram að fólk sest
í hring með hljóðfærin sín og spilar
það sem það kann úr alþýðuarfi.
Þrykk Hluti af verki eftir Unndór.
Sýningaropnun og
þjóðlagasamspil
Sænski organist-
inn Johannes
Skoog leikur um
helgina í Hall-
grímskirkju á
Orgelsumri.
Skoog flytur í
dag kl. 12 verk
eftir Marcel
Dupré, Jehan
Alain og Maurice
Duruflé. Á morgun kl. 17 leikur
hann svo verk eftir Claude De-
bussy, Jean-Louise Florentz, Mar-
cel Dupré, Jehan Alain og Maurice
Duruflé. Skoog fæddist í Stokk-
hólmi í Svíþjóð árið 1992 og hóf
orgelnám átta ára en þá hafði hann
lært á píanó frá fimm ára aldri.
Sumarið 2017 var hann eini nem-
andinn sem hlaut hæstu einkunn í
orgelleik við tónlistarskólann Con-
servatoire National Supérieur de
Musique í París fyrir bæði árin sem
hann stundaði meistaranám þar.
Tvennir tónleikar
með Skoog
Johannes Skoog
„Syngið þið fuglar“ nefnast næstu
tónleikar í Englum og mönnum,
tónlistarhátíð Strandarkirkju í Sel-
vogi sem fram fara á morgun,
sunnudag, kl. 14. Á þeim koma
fram Lilja Guðmundsdóttir sópran
og Kristín Sveinsdóttir messósópr-
an og með þeim leikur Helga Bryn-
dís Magnúsdóttir á harmóníum og
píanó. Gestur þeirra á tónleikunum
verður Bjarni Thor Kristinsson
bassi.
Á efnisskránni verða einsöngs-
lög, aríur og dúettar eftir Mendels-
sohn, Monteverdi, Atla Heimi
Sveinsson, Jón Ásgeirsson og Jó-
hann G. Jóhannsson ásamt íslensk-
um og enskum þjóðlögum.
Björg Þórhallsdóttir sópransöng-
kona er listrænn stjórnandi og
framkvæmdastjóri hátíðarinnar
sem er styrkt af Sambandi sunn-
lenskra sveitarfélaga, Tónlistar-
sjóði og Strandarkirkjunefnd. Að-
gangseyrir að tónleikunum í
Strandakirkju er kr. 2.900
Messósópran Kristín Sveinsdóttir
syngur í Strandarkirkju á morgun.
Syngið þið fuglar
í Strandarkirkju
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
GLÁMUR
DVERGARNIR R
Dvergurinn Glámur
er 35 cm á hæð,
vegur 65 kg og er með
innsteypta festingu fyrir 2“ rör
Öflugur skiltasteinn
fyrir umferðarskilti