Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Pappelina á pallinn Pappelina er tilvalinn félagi bæði innan og utandyra. Kíktu á úrvalið í Kokku eða á kokka.is Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Kapellan í St. Jósefsspítala verður nýtt aðsetur Leik- félags Hafnarfjarðar, í að minnsta kosti ár, en bæjarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt samning bæjarins við leik- félagið sem felur því afnot af kapellunni. Leikfélag Hafnarfjarðar lýkur þar með tveggja og hálfs árs leit að hentugu húsnæði en félagið hefur í þann tíma þurft að haf- ast við í gámi. Þetta segir Gunnar Björn Guðmundsson, formaður Leikfélags Hafnarfjarðar, í samtali við Morgun- blaðið en leikfélagið kom í fyrsta sinn saman í kapellunni í gær til að vinna í húsnæðinu og undirbúa það fyrir nýju starfsemina. „Þetta er algjör björgun fyrir félagið. Það var bara á leiðinni að verða lagt niður. Það getur enginn starfað í gámi,“ segir Gunnar og bætir við að nú ætli félagið að blása til sóknar. „Leikfélag Hafnarfjarðar var með stærstu leikfélögum landsins og var ofboðslega sterkt hér áður fyrr. Núna erum við bara að reyna að endurvekja það,“ segir hann. Gunnar telur tenginguna við kapelluna vera ákaflega jákvæða og segir meðlimi leikfélagsins vera spennta fyrir húsnæðinu. Segir hann að leikfélagið haf haft augastað á kapellunni í nokkurn tíma. „Þetta er stórkostlegt hús sem mun henta leikfélaginu mjög vel. Við höfum skoðað fullt af húsnæði en þetta er það sem okkur leist best á,“ segir Gunnar sem býst við að leikfélagið geti hafið sýningar í kapellunni í september. Hann kveðst þó ekki vita hvort kapellan hafi verið afhelguð. „Við lítum bara á þetta sem húsnæði og berum mikla virðingu fyrir því enda munu engin myrkraverk fara fram þarna,“ segir Gunnar og hlær. „En það er góður andi þarna. Það er alveg öruggt. Mað- ur finnur að húsið er mjög gott. Ég held að allir Hafnfirð- ingar beri hlýjar tilfinningar til þess,“ segir hann. Kapellan verður leikhús Morgunblaðið/Árni Sæberg Leikhús Stund á milli stríða hjá Gunnari Birni Guðmundssyni fyrir framan kapelluna í gærkvöldi. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Skipum er að fjölga á makrílmiðunum suður af Vestmannaeyjum þessa dag- ana. Dagamunur er á veiðinni, góður afli hefur fengist suma daga en slakur aðra. Það ræðst nokkuð af veðrinu. „Við komum í gær en það var hálf- gerð bræla. Við köstuðum seinnipart- inn og drógum undan veðrinu. Feng- um um 160 tonn og síðan hefur lítið verið,“ sagði Hjalti Einarsson, skip- stjóri á Víkingi AK, síðdegis í gær. Hitt uppsjávarskip HB Granda fór fyrr til veiða og var í gær að landa fyrsta aflanum í frystihús fyrirtækis- ins á Vopnafirði. Hafa komið góðir kaflar Huginn VE fór fyrstur til makríl- veiða á miðunum suður af Eyjum, fyr- ir um hálfum mánuði, og skip Vinnslu- stöðvarinnar Kap VE og Ísleifur VE, hafa einnig stundað veiðarnar. Upp- sjávarfrystihús Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hefur verið starf- andi frá 1. júlí og unnið afla af þessum þremur skipum. „Þetta hefur gengið vel. Veiðin hef- ur verið upp og ofan, ræðst mikið af veðrinu. Það hafa komið góðir kaflar. Makríllinn virðist vera að tínast inn á svæðið,“ segir Sindri Viðarsson, yfir- maður uppsjávarsviðs Vinnslustöðv- arinnar. Ástand makrílsins er ágætt. Hann er stór en ekki mjög feitur, að sögn Hjalta. Sindri segir að fituprósentan sé 16-18% sem sé ágætt miðað við þennan tíma. Hann segir að stutt sé fyrir skipin að sækja til löndunar í Eyjum og því sé alltaf verið að vinna ferskan fisk. Í gær bættust fyrstu skipin að austan í hópinn. Búist er við því að skip stórra útgerða haldi til makríl- veiða um helgina og í næstu viku. Hjalti Einarsson segir gott að fleiri séu að leita en færri. Þá sé hægt að fylgja makrílnum eftir yfir stærra svæði. Skipum fjölgar á makrílslóð Morgunblaðið/Árni Sæberg Afli Makríll er sunnan við Eyjar en ekki er vitað hvert hann heldur. Mannréttindaráð Sameinuðu þjóð- anna samþykkti í gær tillögu Íslands um rannsókn á mannréttindabrotum á Filippseyjum. Í henni felst að ít- arleg úttekt verði gerð á stríði filippseyskra stjórnvalda gegn fíkni- efnum. Tillagan var samþykkt með 18 atkvæðum gegn 14 en 15 ríki sátu hjá. Gunnlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær að hann væri ánægður með niðurstöðuna. „Þetta er áþreifanleg sönnun þess að okkar rödd og okkar verk skipta máli,“ sagði Guðlaugur. Hann sagði það hafa verið sér- staka áherslu Íslands að þau ríki sem hefðu verið kjörin til setu í mannréttindaráðinu fylgdu ákvæð- um mannréttindasáttmálans og sýndu þannig gott fordæmi. Forseti Filippseyja er síður en svo ánægður með ályktun Íslands og sagði hana „klikkaða“. Fastafulltrúi Íslands í mannrétt- indaráði Sameinuðu þjóðanna, Har- aldur Aspelund, sagði í ræðu sinni í gær að nýlega hefðu ellefu sérfræð- ingar mannréttindaráðsins kallað sameiginlega eftir óháðri rannsókn á mannréttindabrotum á Filippseyj- um. Samþykktu tillögu Íslands  Okkar rödd og verk skipta máli, segir utanríkisráðherra Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Leiðtogar stéttarfélaganna Framsýn- ar og Einingar/Iðju, sem heyra undir Starfsgreinasambandið (SGS), hafa lýst mikilli óánægju yfir framgöngu samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) í kjaraviðræðum samtakanna við SGS og boðað að til verkfalla geti komið. Samninganefnd sveitarfélaga ákvað í síðustu viku að hverjum starfsmanni sveitarfélaganna yrði greidd ein- greiðsla á væntanlegan kjarasamning sem yrði metinn hluti af kostnaðar- áhrifum hans. Eingreiðslan fer þó ekki til félagsmanna SGS, Eflingar og Verkalýðsfélags Akraness, sem vísað hafa kjaradeilum við SNS til ríkis- sáttasemjara. Framsýn hefur skorað á aðildar- félög SGS að boða til verkfalla gangi fyrirætlanir sveitarfélaga eftir. „Við munum fara í það að safna liði og ég vil sjá að aðildarfélög lami allt skólastarf í haust,“ sagði Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýn- ar, og bætir við að félagsmenn geti ekki horft upp á „þessa mismunun“. Eining/Iðja hefur einnig boðað til verkfalla verði áform sveitarfélaga ekki dregin til baka. „Hinir, sem hafa beðið á kantinum eftir því að við útkljáum okkar mál, eru verðlaunaðir sérstaklega fyrir það. Þessir starfsmenn fá 105 þúsund á meðan okkar fólk á ekki að fá krónu. Þetta er siðlaust og til skammar fyrir sveitarfélögin í landinu,“ sagði Aðal- steinn. Þá hefur Framsýn sent fjórum sveitarfélögum bréf og óskað eftir því að þau hunsi tilmæli samninganefndar SNS og borgi starfsmönnum sínum, sem aðild eiga að SGS, sambærilega eingreiðslu og aðrir starfsmenn sveit- arfélaga eiga von á. Tjörneshreppur hefur samþykkt að borga starfsmönn- um sínum hlutfall af eingreiðslunni en tvö sveitarfélög hafa hafnað fyrir- spurninni. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar/Iðju, segir deiluna komna í harðan hnút. „Okkar takmark er að semja og vonandi næst það. En það er alveg ljóst að okkar menn eru tilbúnir í þær aðgerðir sem þarf,“ sagði Björn. Verkfallsaðgerðir SGS myndu hafa áhrif á marga, þar sem félagsmenn vinna með eldri borgurum og fötluðum og ýmis störf í grunn- og leikskólum. Í ályktun frá Einingu/Iðju sem sam- þykkt var á fundi stéttarfélagsins í fyrradag segir m.a. að fái félagsmenn ekki fyrrgreinda eingreiðslu, og SNS ljái ekki máls á lífeyrisjöfnun, sem hafi verið aðaldeilumálið í kjaradeilunum, muni nefndarmenn sjá verkfallsað- gerðir „sem ekki hafa sést á undan- förnum árum“. Gæti komið til verkfalla  Formenn Framsýnar og Einingar/Iðju telja að félagsmönnum sé mismunað  Starfsmenn sveitarfélaga fá eingreiðslu í ágúst  Þó ekki félagsmenn SGS Björn Snæbjörnsson Aðalsteinn Árni Baldursson Maður sem grun- aður er um til- raun til mann- dráps í heima- húsi í Nes- kaupstað í fyrrinótt var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Þetta staðfesti Helgi Jensson sak- sóknari í samtali við mbl.is. Árásarmaðurinn er grunaður um að hafa ítrekað stungið í hönd og fótlegg fórnarlambsins sem komst undan honum og yfir til nágranna sinna þar sem hringt var á hjálp. Hann var færður með sjúkraflugi til Reykjavíkur og gekkst undir að- gerð, en var útskrifaður af gjör- gæslu síðdegis í gær. Að sögn systur hins stungna er hann slappur og aumur, en allt sé á réttri leið. Árásarmaðurinn er frændi kærustu fórnarlambsins og hafði hann haft í hótunum við fórn- arlambið um nokkurt skeið. Grunaður um tilraun til manndráps

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.