Morgunblaðið - 12.07.2019, Side 8

Morgunblaðið - 12.07.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 Um nokkurt skeið hefur staðið tilað breikka Vesturlandsveg á Kjalarnesi. Þetta er hættulegur veg- arkafli og framkvæmdin tímabær. Sú framkvæmd gæti þó tafist vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar, sem segir að breikk- unin sé háð mati á umhverfisáhrifum.    Þessu hafnar Sæv-ar Freyr Þrá- insson, bæjarstjóri Akraness. Bæjarráð Akraness hefur falið honum að kæra ákvörðun Skipu- lagsstofnunar og síðdegis í gær barst yfirlýsing frá byggðaráði Borgarbyggðar þar sem lýst er yfir stuðningi við kæruna.    Sævar Freyr segir í viðtali viðmbl.is að ákvörðunin um um- hverfismatið sé „byggð á mjög lang- sóttri lögskýringu og ekki sé laga- heimild fyrir ákvörðuninni“.    Bæjarstjórinn bendir á að þetta séeldri vegur, en ekki nýr og mjög litlu landi sé raskað. Fram- kvæmdin verði ekki á umhverfis- verndarsvæði, svæðið njóti ekki sér- stakrar verndar, ekki sé brotið nýtt land vegna hennar og hún hafi ekki áhrif á opin víðerni. Skipulags- stofnun horfi til lagatæknilegs atrið- is í Evróputilskipun um fjölda hlið- arvega til að rökstyðja umhverfis- matið. „Það er atriði sem er mjög langsótt að mati okkar lögmanna og okkar. Þar af leiðandi er það mat okkar að ekki sé lagaheimild fyrir ákvörðuninni og þess vegna viljum við fá hana ógilda,“ segir hann.    Umhverfið á vissulega að njótavafans en það verður að vera heil brú í þeim kröfum sem gerðar eru. Hættan á umhverfisspjöllum virðist engin vera, en hins vegar er vegurinn hættulegur lífi og limum í núverandi mynd. Sævar Freyr Þráinsson Ástæðulausar tafir á Kjalarnesi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR PLÚS+ Öflugri undirstöður DVERGARNIR R Dvergarnir plús+ henta vel undir merkingar og skilti. Ofan á þá er hægt að festa úrval af tengistykkjum, t.d. fyrir skiltarör eða kaðalgrip til afmörkunar. NAGGUR PLÚS+ PURKUR PLÚS+ TEITUR PLÚS+ ÁLFUR PLÚS+ Indverskir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að ferðamaður með íslenskt ríkisfang hefði fundist látinn á herbergi sínu á gistiheimili í gær í bænum Manali í norðurhluta Indlands. Haft var eftir þarlendum lögregluyfirvöldum að eig- andi gistiheimilisins hefði tilkynnt lögreglu dauðsfallið og að dánarorsök væri óþekkt. Jafnframt sögðu indverskir fjölmiðlar að lögreglan hefði tilkynnt íslenska sendiráðinu um málið. Talsmaður utanríkisráðuneytisins kvað sér síðdegis í gær, í samtali við mbl.is, vera kunnugt um málið og væru hafin samskipti milli íslenskra og indverskra stjórnvalda vegna þess, eins og það var orðað. Íslendingur sagður hafa látist á Indlandi Miðbakki Reykjavíkurhafnar verður opnaður sem almannarými í dag en svæðið hefur á undanförnum árum verið bílastæði. Segir á vef Faxaflóahafna að á Mið- bakkanum verði nú lögð áhersla á samspil milli hafnar, borgar og borg- arbúa. Ungir listamenn hafi málað svæðið með hafsæknum myndum og ýmis tímabundin verkefni hafi verið sett upp á svæðinu fyrir alla fjöl- skylduna. Á svæðinu sé til að mynda hjólabrettavöllur, hjólaleikvöllur, körfuboltavöllur og matartorg með matarvögnum. Opnunarhátíðin hefst klukkan 16 í dag og stendur til klukkan 18. Verður leikin tónlist og sýndur dans og hjóla- fimi. Þá eru allir reiðhjólaeigendur hvattir til að koma með hjólin sín í fría ástandsskoðun. Í sumar verður boðið upp á ýmsa viðburði á svæðinu, þar á meðal fyrstu götubitahátíðina á Íslandi hinn 19.-21. júlí nk. Verður götubiti seldur í gámum, matvögnum og tjöldum. Einnig verða básar fyrir pop up- verslanir, bar, kaffisölu og mat- armarkað. Boðið verður upp á lifandi tónlist og önnur skemmtiatriði. Einnig opnar Reykjavíkurborg á Miðbakkanum fyrsta umferðargarð- inn á höfuðborgarsvæðinu sem er ætlaður ungum vegfarendum og þeirra uppalendum til að þjálfa hjóla- færni. Samkomusvæði opnað á Miðbakka  Sérstök opnunarhátíð síðdegis í dag  Götubitahátíð haldin í næstu viku Ljósmynd/Faxaflóahafnir Málað Samkomusvæði á Miðbakka. mbl.is að mennirnir teldu sig vera í lögmætum erindagjörðum og að þeir hefðu heimildir til þess að stunda sín viðskipti á Íslandi, í skjóli EES- samningsins. Maður sem kynnti sig sem for- svarsmann malbikunarhópsins var yfirheyrður en mennirnir sögðust vera frá breska fyrirtækinu Tar- macadams, sem er skráð í borginni Darlington í Englandi. Útlit er fyrir að vinnuflokkur er- lendra malbikunarmanna, sem reynt hafa að svíkja fé út úr fólki á lands- byggðinni, sé á leið úr landi. Ökutæki mannanna stóðu á athafnasvæði skipafélagsins Smyril Line í Þorláks- höfn um hádegisbil í gær en þaðan heldur flutningaskipið Mykines af stað í dag til meginlands Evrópu. Mennirnir hafa stundað það að rukka fólk fyrir malbikun, á inn- keyrslum og bílaplönum, sem það óskaði ekki eftir, fyrst á Suðurlandi og síðar á Vesturlandi. Hjónin Trausti Eiríksson og Ása Ólafsdóttir sögðu frá samskiptum við mennina á vef Skessuhorns í gær. Þá komu þeir að bæ þeirra norðan Borgarness og malbikuðu heimreið bæjarins að þeim óspurðum og kröfðust þriggja milljóna greiðslu fyrir sem hjónin greiddu ekki. Jón Haukur Hauksson, staðgengill lögreglustjóra, sagði í samtali við Malbiksvinna Meðal vinnutækjanna sem mennirnir komu með til landsins. Rukkuðu fyrir verk sem ekki var beðið um

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.