Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 32
www.velasalan.is Frá 1940 Sími 520 0000, Dugguvogi 4, 104 Reykjavík Verslunin er opin 8-17 virka daga - Bátur - Kerra - F30Hp Mercury utanborðsmótor. - Stjórntæki - Rafstart - Bensíntankur fullur af bensíni Frí heimsending hvert á land sem er Bátur með hnakk & beisli Leggðu árar í bát og fáðu þér einn með öllu 450cc Utanborðsmótorar 30Hpf TILBOÐ* 2.399.000 kr. með vsk. fullt verð 2.692.579 kr með vsk. Allt að 90% fjármögnun í boði *Tilboðið gildir út júlí eða á meðan birgðir endast. Þú sparar 293.579 kr. Pólski sönghópurinn Simultaneo flytur pólska barokktónlist, nýjar tónsmíðar, bæði pólskar sem og frá Eistlandi og Íslandi, á Sumartón- leikum í Skálholti um helgina. Hópurinn heldur tónleika á morgun kl. 14 og 16 og á sunnudag kl. 14. Stjórnandinn Karol Kisiel held- ur fyrirlestur um pólska tón- list í Skálholtsskóla á morg- un kl. 13. Ný og gömul tónlist frá Póllandi í Skálholti FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Stjarnan var eina íslenska liðið sem vann sigur í fyrri leik fyrstu umferð- ar í Evrópumótum karla í knatt- spyrnu. Stjörnumenn unnu Levadia frá Eistlandi 2:1 í gær en Breiðablik gerði jafntefli við Vaduz frá Liecht- enstein, 0:0, og bæði lið eiga erfiða útileiki fyrir höndum. KR steinlá fyrir Molde í Noregi, 7:1, og á enga möguleika á að fara áfram. »25-27 Stjarnan eina íslenska liðið sem vann ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Óþreyju barn, kom innst í lundinn nefnist sýning sem opnuð er í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16. Að sýningunni standa listakon- urnar Harpa Dís Hákonardóttir og Hjördís Gréta Guðmundsdóttir, sem báðar útskrifuðust í vor frá myndlistardeild LHÍ. Sýningin er hluti af rannsóknarverkefni þeirra sem ber heitir Farsæl, fróð og frjáls þar sem skyggnst er inn í líf og list Huldu skáldkonu (Unnar Benediktsdóttur Bjarklind) og áhrif hennar á íslenska menningar- arfleifð skoðuð. Ný sýning um líf, list og áhrif Huldu um afla, farið út klukkan þrjú til fjögur á nóttunni og oft verið að fram að kvöldmat.“ Landhelgisgæslan var meðal ann- ars á vita- og baujuvakt, þegar Sig- rún vann þar, og segir hún það hafa verið skemmtilega vinnu. „Ég náði í gamla tímann hjá Gæslunni.“ Eigendur Nesskips unnu með norskum útgerðarmönnum og sigl- ingarnar gátu oft verið langar, til dæmis frá Norður-Noregi til Flór- ída í Bandaríkjunum. „Ég var lengst að heiman í einu úthaldi í átta mánuði,“ rifjar Sigrún upp. Hún segir að langar siglingar hafi gjarn- an verið tilbreytingarlausar en al- mennt hafi þetta bara verið ánægju- legt. „Þegar ég var í saltfisks- flutningunum var farið á ströndina og lestað og síðan siglt til Spánar, Portúgals, Ítalíu og Grikklands. Það var frábær tími.“ Þegar Sigrún lítur yfir farinn veg segir hún að sjómennskan hafi verið skemmtilegasti tími ævinnar. „Þetta var ótrúlega fjölbreytt vinna, yfirleitt alltaf eitthvað að ger- ast, og mér finnst ég nánast ekkert hafa gert síðan ég kom í land.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigrún Elín Svavarsdóttir var fyrst íslenskra kvenna til þess að ljúka námi á þriðja stigi farmannadeildar Stýrimannaskólans, en hún útskrif- aðist vorið 1979, fyrir um 40 árum. „Ég fór svo í „lordinn“ eða varð- skipadeildina og lauk námi þaðan vorið 1982, held að ég sé eina konan sem hafi gert það,“ segir hún, en Sigrún varð að hætta til sjós eftir að hafa slasast í bílslysi vorið 1993. „Ég þrjóskaðist við að vera á sjó til 1999, en þá gat ég það ekki leng- ur vegna afleiðinga slyssins,“ heldur Sigrún áfram. Engu að síður var hún í afleysingum á Særúnu hjá Sæ- ferðum í Stykkishólmi sumrin 2003 og 2004 en hefur ekki farið á sjó síð- an. „Heilsan leyfir það ekki,“ segir hún með eftirsjá. Lífið var fiskur og veiðar Sjómennskan kom af sjálfu sér. Sigrún ólst upp á Djúpavogi og seg- ir að lífið og tilveran hafi að mestu snúist um fisk og veiðar. Systurnar hafi byrjað að hjálpa til við að salta síld, þegar þær voru sjö og átta ára, og ári síðar farið að salta sjálfar. Þaðan lá leiðin í frystihúsið og Sig- rún segir að þar hafi henni leiðst, sérstaklega á sumrin. „Árið sem ég fermdist marði ég það út að fá að fara á sjó, vera á handfærum með pabba í fríinu hans, og síðan þróaðist þetta. Ég fór sem háseti á stærri fiskibáta, en þá þurfti að hafa verið háseti í tvö ár til að komast í Stýrimannaskólann. Eftir að hafa lokið öðru stigi eða fiskimannaprófi fór ég til Gæsl- unnar, fyrst sem háseti og svo stýri- maður, og síðan í siglingar á skipum Nesskipa, þar sem ég hætti sem yfirstýrimaður. Einnig var ég stýri- maður hjá Ríkisskipum um tíma.“ Sigrún á góðar minningar frá sjónum. „Sjómennskan var mikil lífsreynsla,“ segir hún og leggur áherslu á að tímarnir hafi verið allt öðruvísi en nú. „Þegar ég var á skakinu með pabba var enginn kvóti og allt miðaðist við að ná sem mest- Eintóm sæla hjá Sigrúnu á sjónum  Braut blað í sögu íslenskra kvenna fyrir 40 árum Ljósmynd/Aðsend Á Djúpavogi Sigrún Elín Svavarsdóttir þar sem ballið hófst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.