Morgunblaðið - 12.07.2019, Side 23
DÆGRADVÖL 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019
„ÆTLAR ÞÚ Í JÓLABOÐIÐ?”
„MÉR ER SLÉTT SAMA HVERN HÚN KAUS.
ÞAÐ ER EKKI SÉNS AÐ ÉG KYSSI BARN
MEÐ MISLINGA!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... innilegur koss þegar
hann kemur aftur heim.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HÉR ERUM VIÐ
GRASKERINGRETT-
IR!!
HRÓLFUR
TÓK HVERJA
EINUSTU
MERKJAVÖRU
SEM ÞÚ HEFUR
GEFIÐ MÉR!
HAH! HANN ER NÚ
MEIRI ASNINN! ÞÆR
ERU ALLAR FALSAÐAR!
JÁ ER
ÞAÐ?
ÞÆR SLÁ ALDEILIS Í
GEGN HJÁ ÞÉR!
HEI, FLOTTUR
BÚNINGUR, GULLI!
m.a. hæfnisnefndum. Hann hefur
verið félagi í Lionsklúbbnum Nirði
frá 1977, Melvin Jones-félagi frá
2005, og hann var formaður
MedicAlert á Íslandi 1985-1999.
Fjölskylda
Eiginkona Jóhannesar er Jó-
hanna Árnadóttir, f. 11. apríl 1945,
sem er fyrrverandi forstöðumaður
umsjónarnefndar eftirlauna og
hefur síðan fengist við ýmis störf.
Foreldrar Jóhönnu eru Árni Ing-
ólfsson skipstjóri, f. 3. ágúst 1902,
d. 22. mars 1992, og kona hans
Magný Kristjánsdóttir, húsfreyja í
Reykjavík, f. 15. júní 1910, d. 17.
maí 1968.
Foreldrar Jóhannesar eru Pálmi
Friðriksson, f. 19. október 1900, d.
16. febrúar 1970, sjómaður á
Akureyri, og kona hans Guðrún
Jóhannesdóttir, f. 21. september
1904, d. 23. mars 1993, húsfreyja á
Akureyri.
Dætur Jóhannesar þrjár eru all-
ar búsettar í Reykjavík. Þær eru
a): Magný, f. 6. september 1965,
sérfræðingur hjá KPMG. Maki
hennar er Haukur Hilmarsson
verkfræðingur. Börn þeirra eru
fimm. Guðrún, f. 3. júní 1967,
kaupmaður. Maki hennar er Þor-
steinn Torfason bókagerðarmaður.
Börn þeirra eru þrjú. c) Auður, f.
28. maí 1975, kaupmaður. Maki
hennar er Ingi Steinar Ingason,
teymisstjóri rafrænna heilbrigð-
islausna hjá Embætti landlæknis.
Börn þeirra eru fjögur.
Úr frændgarði Jóhannesar Pálmasonar
Jóhannes Pálmason
Þorbjörg Kristjánsdóttir
vinnukona á Lokinhömrum
Vagn Jónsson
vinnumaður á Lokinhömrum
Guðbjörg Vagnsdóttir
húsfreyja á Patreksfi rði
Guðrún Jóhannesdóttir
húsfreyja á Akureyri
Jóhannes Bjarni Friðriksson
smiður á Patreksfi rði
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Litla-Laugardal
Friðrik Friðriksson
bóndi í Litla-Laugardal Tálknafi rði
Friðrika
Guðjónsdóttir
húsfreyja í
ReykjavíkFriðrik Kristján
Guðbrandsson læknir
Þorkell Guðbrandsson
læknir
Guðjón
Jóhannesson
smiður á
Patreksfi rði
Friðrik Vagn
Guðjónsson
læknir á Akureyri
Hermann Guðjónsson
fv. siglingamálastjóri
Sigríður
Friðriksdóttir
húsfreyja á
Akureyri
Friðrik Daníel
Stefánsson
viðskiptafræðingur
Anna Gabríella
Stefánsdóttir húsfreyja
Anna Soffía Stefánsdóttir
húsfreyja í Hraukbæjarkoti
Guðmundur Árnason
bóndi í Hraukbæjarkoti í Kræklingahlíð
Anna Guðmundsdóttir
húsfreyja á Syðra-Kambhóli
og á Akureyri
Friðrik Daníel Guðmundsson
bóndi á Syðra-Kambhóli
Sigríður Sæunn Sigurðardóttir
húsfreyja í Teigi
Guðmundur Guðmundsson
bóndi í Teigi í Hrafnagilshreppi
Pálmi Friðriksson
sjómaður á Akureyri
Ámiðvikudaginn skrifaði DavíðHjálmar í Davíðshaga í Leir-
inn: „Héðan er stutt í grænmet-
isgarðana þar sem ég er með mikla
ræktun. Upp úr miðjum júní er hér
etið grænmeti og varla annað. Það
að rækta garðinn sinn og grænmet-
isát bætir hvern mann og breytir
honum“:
Af gleði og natni ég garðyrkju stunda
og grænmetið brúka í rétti og te.
Oft ligg ég og jórtra og hugsa um hunda
og helvíska tófuna. Meme-me-me.
Á mánudag skrifaði Guðmundur
Arnfinnsson limru á Boðnarmjöð:
Hann Eyjólfur uppgjafaprestur
er endemis hrossabrestur
sem orgar og snýst,
og auli sá víst
mun endurfæðast sem hestur.
Helgi Ingólfsson þekkir vel til
prestsins:
Þótt klerkurinn þessi sé klossi
og kannski þá líkastur hrossi,
þá met ég það nú,
að með sína trú
hann muni víst enda á krossi.
Guðmundur Halldórsson kann
líka frá honum að segja:
Er þrýstir klerkurinn kossi,
kviknar í meyjum blossi.
En áður en seggur
sig oná þær leggur,
þær segja að karl sig krossi.
En þannig fór það eins og Jón Atli
Játvarðsson segir:
Eyjólfur aldrei var betri
þá axlaði skinnin að vetri,
auðnir hann gekk
við galdranna hrekk,
því sátt fékk hann ekki á setri.
Ragna Guðvarðardóttir orti „eftir
óþægilega byltu“ og fékk hlýjar
kveðjur með óskum um skjótan bata
sem tekið er undir:
Löskuðust mín liðabönd
á ljósu sumardægri.
Vanmáttug er vinstri hönd
en verri þó sú hægri.
Pétur Stefánsson yrkir:
Við orðadútl ég oftast finn
innri ró og kæti.
Það má segja að þanki minn
sé þjáður af vísnablæti.
Kristján frá Gilhaga rifjaði upp og
sagði Eystein í Skáleyjum hafa ort:
Hleypir skeiði götu úr götu,
götufáka ólmur her,
einn á minni lötu Lödu..
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af grænmetisáti og
Galdra-Lofti
TAKTU ÍSINNMEÐ TRUKKI