Morgunblaðið - 12.07.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 12.07.2019, Síða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 ✝ Gústaf Ósk-arsson fæddist 3. júlí 1933 á Ísa- firði. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 2. júlí 2019. Foreldrar hans voru: Óskar Gúst- af Ingjaldur Jen- sen prentari frá Ísafirði, f. 1906, d. 2009, og Hansína Kristrún Einhildur Hannibalsdóttir frá Kotum í Önundarfirði, f. 1905, d. 1995. Systkini voru Aðal- heiður Óskarsdóttir Moskios, f. 1931, d. 2012, Málfríður Guðrún Óskarsdóttir, f. 1936, Anna Júlía Óskarsdóttir, f. 1940, og Ómar Óskarsson, f. 1949. Eftirlifandi kona Gústafs er Kristbjörg Markúsdóttir, f. 30. ágúst 1935 á Ísafirði, dóttir hann gegndi frá 1963 til 1993. Lengst af kenndi Gústaf á Ísafirði, en einnig á Barða- strönd, Kleppjárnsreykjum og í Hveragerði. Hann var skóla- stjóri barnaskólans á Drangs- nesi frá 1967 til 1971. Síðasta kennsluárið sitt var hann skólastjóri grunnskólans á Núpi í Dýrafirði. Gústaf var mikill söng- maður og söng bæði í Sunnu- kórnum og í kirkjukórnum á Ísafirði í mörg ár. Árið 2004 fluttu Gústaf og Kristbjörg til Hveragerðis og þar starfaði hann með kirkjukór Hvera- gerðiskirkju og með Hvera- fuglum, sem er kór eldri borg- ara í Hveragerði. Gústaf var mikill áhugamaður um leiklist og starfaði með Skallagrími í Borgarnesi og Litla leik- klúbbnum á Ísafirði. Hann samdi og setti upp mörg leik- rit með nemendum sínum. Útför hans fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag, 12. júlí 2019, klukkan 14. Markúsar Þórðar- sonar, f. 1910, d. 1990, og Auðar Ólafsdóttur, f. 1917, d. 2002. Börn Gústafs og Kristbjargar eru Ólafur Jón, f. 1955, Ragnheiður Helga, f. 1956, Ósk, f. 1957, óskírð stúlka, f. 1958, d. 1959, Hans, f. 1960, Rúnar, f. 1962, d. 2017, Áróra, f. 1966, og Óðinn, f. 1969. Barnabörnin eru 17 og barna- barnabörnin eru 13. Gústaf gegndi ýmsum störf- um á æviferli sínum. Vann m.a. við húsbyggingar og í mjólkurvinnslu, bæði í Borgar- nesi og á Ísafirði, auk þess að stunda grásleppuveiðar á Drangsnesi. Ævistarf Gústafs var þó kennarastarfið sem svo fingur undir orðin eftir því sem þau voru sungin. Á þennan hátt lærðu þau bæði lögin, vís- urnar og að lesa. Og urðu allir nemendur þessa bekkjar flug- læsir án þess að hann tæki nokkurn tímann upp formlega lestrarkennslubók. Það fór það orð af honum, og það hef ég eft- ir samkennara hans, að kennsl- an væri honum auðveld. Ég ætla ekki að halda því fram að hann hafi verið fullkom- inn og gallalaus. Allir sem ein- hvern tímann óku með honum í bíl uppgötvuðu fljótt að þar var enginn ökuþór á ferð. Og þó að hann hafi unnið við smíðar var margt annað sem lét honum bet- ur. Ýmsir voru því kallaðir til af mömmu til að „hjálpa“ honum við framkvæmdir, en hann var nógu skynsamur til að átta sig á því að líklegra væri betra að hlutverkunum væri snúið við. Þannig tókst að koma mörgu í verk og alveg fram til þess síð- asta var hann að leggja á ráðin um framkvæmdir. Núna í vor að planta út hlyn og elri við húsið en á óræktarspildu í eigu Hvera- gerðisbæjar sem hann tók í fóst- ur fyrir nokkrum árum. Í fyrra vildi hann reisa gróðurhús á pallinum „fyrir mömmu ykkar“. Og pallurinn var stækkaður fyr- ir þremur árum. En eftir því sem hann varð ónýtari til verka vegna heilsuleysis urðu hend- urnar fleiri sem tilbúnar voru að hjálpa. Sá þáttur í fari pabba sem ég hef þó borið mestu virðingu fyr- ir er heiðarleiki hans og hrif- næmni. Að stela, svindla eða ljúga var ekki til í hans bók. Og hann gat tárast ef eitthvað hreif hann; fal- leg tónlist, bíómynd eða góð bók. Sem unglingi fannst mér þetta vandræðalegt en seinna bara fallegt. Að leiðarlokum er ég vitan- lega hryggur að geta ekki hitt hann aftur en um leið óendan- lega þakklátur fyrir að hann hafi verið faðir minn. Hann kenndi mér margt og hefur alla tíð ver- ið mér fyrirmynd. Ég mun sakna hans en á sama tíma ylja mér við dýrmætar minningar um mann sem var einstaklega falleg og heilsteypt manneskja. Með hlýju í hjarta kveð ég hann pabba minn. Meira: mbl.is/minningar Hans. Gústafs Óskarssonar minnist ég með hlýju. Við kenndum saman í Hnífsdal. Hann að ljúka sínum kennsluferli og ég að byrja minn. Á litlu kennarastof- unni skemmti Gústaf okkur með vísum sem hann samdi og sög- um auk þess að vera hafsjór fróðleiks um allt sem viðkom kennslunni, hvaða fugl flaug hjá og hvaða planta óx í vegkant- inum. Á þessum árum var skólinn tvísetinn, eldri börnin á morgn- ana og þau yngri eftir hádegi, kennslustofurnar þrjár. Þegar nálgaðist hádegi mátti sjá mann í dökkbláum kuldagalla koma gangandi einbeittum skrefum frá Ísafirði, stundum á skíðum. Það var eitthvað notalegt við það að sjá reynsluboltann nálg- ast skólann í snjónum, losa sig við kuldagallann, fara inn í stof- una sína og skrifa forskriftina á töfluna. Auk þess að kenna saman sungum við saman í kirkjukórn- um. Einhvern veginn finnst mér í minningunni eins og Gústaf væri einhvers konar verndari eða akkeri fyrir mig á Ísafirði. Ég vissi um öruggt skjól ef eitt- hvað bjátaði á. Jólin okkar fyrir vestan lá mörgum litlum börn- um á að koma í heiminn. Gústaf vissi að konan mín gæti þurft að vera uppi á spítala að taka á móti börnum um jól, hann full- vissaði mig snemma á aðvent- unni um að ég þyrfti ekki að ótt- ast einveru um jólin, ég væri alltaf velkomin til þeirra Krist- bjargar. Það var ég alltaf þakk- lát fyrir þó ekki kæmi til þess. Alla daga síðan höfum við skipst á sögum í jólakortum, ég hef sagt frá hversdagslífinu og hann sent mér nýskráðar sögur og ævintýri sem ég get deilt áfram með börnum í kennslustofu rétt eins og hann gerði svo vel. Hildur Heimisdóttir. með forsetaúrskurði full kenn- araréttindi. Hann mætti kennsl- unni með því hugarfari að allir gætu lært eitthvað og væru ein- hverjir nemenda hans ekki mikl- ir námsmenn á bókina var hann alltaf sannfærður um að þeir hefðu einhverja aðra hæfileika sem myndu nýtast þeim. Hann var ekki heldur sérstaklega hrif- inn af normalkúrfum og reyndi alltaf að kenna öllum sínum nemendum þannig að þeir væru nokkurn veginn á sama stað í náminu. Það tókst honum yfir- leitt án þess að það bitnaði á bestu námsmönnunum en hinir sem verr gekk námið nutu góðs af. Megnið af kennaraferlinum kenndi hann eldri bekkjum grunnskóla og sérhæfði sig í kennslu raungreina. Þó kom fyr- ir að hann væri með fyrsta árs nemendur. Einum slíkum bekk fylgdi hann í nokkur ár og kall- aði alltaf, með smá kímni, „bekkurinn minn sem ég kenndi aldrei að lesa“. Hann notaði sönghæfileika sína til að kenna þeim ógrynni vísna og laga sem hann skrifaði upp á töflu, bar Við pabbi höfum þekkst frá mínum fyrstu andartökum. Bók- staflega! Hann tók á móti mér ásamt ljósmóður. Það eitt segir margt um hann en það var nán- ast óþekkt á þeim tíma að feður væru viðstaddir fæðingu barna sinna. Tónlist og kennsla var honum í blóð borin. Hann var músík- alskur, lærði á fiðlu og selló og var góður söngmaður. Hann byrjaði snemma að syngja með kórum og í hartnær sjö áratugi var hann viðloðandi kórsöng. En köllun hans og ástríða var kennslan. Hann lagði mikið á sig til að geta sinnt þeirri köllun. Sem unglingi stóð honum ekki til boða að mennta sig umfram þess tíma skólaskyldu. Þegar hann var kominn með stóra fjöl- skyldu tók hann landspróf og fór að kenna sem farandkennari. Til fjölda ára sótti hann sumarnám- skeið á vegum Kennarasam- bandsins, svo smátt og smátt safnaðist reynsla og menntun í sarpinn. Fór svo, eftir að hann hafði starfað í næstum tvo ára- tugi sem kennari, að hann fékk Gústaf Óskarsson ✝ Sigurður Krist-jónsson fæddist á Ytri-Bug 5. ágúst 1929. Sigurður lést á dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík 4. júlí 2019. Foreldrar Sig- urðar voru Jóhanna Oktavía Kristjáns- dóttir og Kristjón Jónsson, Ytri-Bug. Jóhanna og Kristjón eignuðust 10 börn. Þau voru auk Sigurðar: Björn Mark- ús Leó, f. 28. nóvember 1930, lát- inn, Þórdís, f. 30. janúar 1932, Guðmundur Kristján, f. 11. ágúst 1933, Kristjana, f. 26. des- ember 1934, Einar, f. 22. desem- ber 1936, Elín, f. 8. maí 1938, lát- Valdís, f. 1976, maki Þorvaldur Konráðsson, börn Patrekur, Árni Dagur og Svanbjörn Kon- ráð, Dröfn, f. 1983, maki Ísak Fannar Sigurðsson, börn Hug- rún Magnea, Kristín Mjöll og Linda Marín. Sigurður Valdimar er giftur Kristínu Björk Marísdóttur. Börn þeirra eru: Lea Hrund, f. 1980, maki Jóhannes Berg- sveinsson, börn Telma, Berg- sveinn Kári, Ari Kristinn og Agnes, Sif, f. 1981, maki Hörður Tryggvason, börn Björk og Tryggvi Steinn, Magnús Darri, f. 1991, maki Helga Jóhannsdóttir, Gils Þorri, f. 1992, maki Aníta Rut Aðalbjargardóttir. Sigurður stundaði nám við Stýrimannaskólann á Ísafirði og í Reykjavík. Hann var útgerðar- maður og skipstjóri hjá Skarðs- vík ehf. Útför Sigurðar fer fram frá Ingjaldshólskirkju í dag, 12. júlí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. in, Ingibjörg, f. 22. október 1939, Úlf- ar, f. 3. maí 1941, látinn, og Sigurvin, f. 9. september 1944. Hinn 25. desem- ber 1958 giftist Sig- urður Valdísi Magnúsdóttur, f. 23. maí 1931, d. 3. apríl 2012. Börn Sigurðar og Valdís- ar eru: Kristín Magnea, f. 28. júní 1952, og Sigurður Valdi- mar, f. 30. mars 1961. Kristín Magnea er gift Svan- birni Stefánssyni. Börn þeirra eru: Sigurður Magnús, f. 1973, maki Monica Pinkovska, börn Aron Darri og Jónbjörn Orri, Nú hefur elsku afi lagst til hinstu hvílu, þessi mikli höfð- ingi, dugnaðarforkur og aflakló. Afi var mjög gjafmildur, rómantískur og hlýr inn við beinið og hafði ótrúlega glettið bros. Afi var mikill vinnuþjarkur, var mjög ákveðinn og þver og ætlaðist til mikils af þeim sem í kringum hann voru. Hann kenndi okkur réttu vinnubrögð- in við öll þau störf sem við unn- um fyrir hann og með honum og fór fram á stundvísi og vinnusemi og búum við vel að því í dag. Eftir að afi hætti á sjónum varði hann öllum stund- um í Bjarmaskúrnum og fylgd- umst við oft með honum við netavinnu og brögðuðum á há- karlinum sem alltaf hékk uppi skúrnum. En þetta er eitt dæmi um gamlar matarvenjur sem við systkinin tengjum við þau afa og ömmu sem og kúttmaga, hrogn og lifur, svið, vélindu og ekki má gleyma skötunni. En afi hafði gaman að því að verka sína eigin skötu og var mikil hefð í kringum kæsinguna fyrir Þorláksmessuna. Skatan var vanalega vel kæst og reif vel í, best var ef við misstum andann og táruðumst. Einna skemmtilegast fannst okkur systkinunum að fylgjast með afa japlandi á brjóskinu en hon- um fannst engin ástæða til að hreinsa það frá. Einnig var ótrúlegt að fylgjast með honum borða óbeinhreinsaðan fisk en það var magnað hvernig hann hreinsaði beinin frá uppi í sér og spýtti þeim út um annað munnvikið og lá oft við að við- kvæmir misstu matarlystina. Hann var ótrúlega fiskinn jafnt á láði sem legi og var ótrúlegt að fylgjast með honum við árbakkann hvernig honum tókst að tæla hina erfiðustu laxa til að bíta á agnið. Hann var með miklar serimóníur þeg- ar kom að laxveiðinni og varð alltaf að gefa ánni einn koní- akssjúss áður en veiðin hófst og henda smá torfu út í til að hressa upp á laxinn. Við munum aldrei gleyma því ein jólin þegar afi kafnaði næst- um því af jólaskrautinu sem dreift var á veisluborðið. En einhvern veginn hafði þetta litla jólaskraut ratað upp í hann með þeim afleiðingum að hann stóð á öndinni. Það varð uppi fótur og fit við matarborðið en hann náði nú með herkjum að hósta því upp úr sér og urðu allir mjög hissa þegar skrautið kom í ljós. Aldrei var veisluborðið skreytt aftur með svona fínu glimm- erskrauti. Afi átti forláta pallbíl sem var algjör eðalkerra. En bíllinn skekktist fljótt og skældist við hin ýmsu störf á bryggjunni og voru ófá fiskikörin flutt á pall- inum á honum. En það fór nú ekki fyrir brjóstið á afa hversu illa útleikinn bíllinn varð heldur var hann ótrúlega seigur að lappa upp á bílinn með ýmsum ráðum. Það var t.d. fyllt upp í öll göt með kítti og drengirnir látnir rúlla yfir hann með þeirri máln- ingu sem til var í skúrnum. Þetta er gott dæmi um það hversu nýtinn og nægjusamur afi var þegar kom að honum sjálfum. Afi og pabbi voru miklir vinir og eyddu þeir miklum tíma saman bæði við leik og störf og voru þeir farsælir og samstiga. Við vitum að afi verður þeim pabba og mömmu ævinlega þakklátur fyrir alla þá um- hyggju og elju sem þau veittu honum enda voru þau hans hægri hönd. Við minnumst þín með hlýju í hjarta. Hvíldu í friði, elsku afi. Þín barnabörn Lea Hrund, Sif, Magnús Darri og Gils Þorri. Í dag kveðjum við Sigurð Kristjónsson skipstjóra á Hell- issandi. Hann var elstur tíu systkina, foreldrar hans treystu því mikið á hann og fór hann snemma að vinna fullan vinnu- dag. Faðir hans lést þegar Siggi var tvítugur og flutti þá móðir hans til Ólafsvíkur þar sem Siggi keypti íbúð fyrir fjöl- skylduna. Hann byrjaði ungur til sjós, varð fljótt skipstjóri og ávann sér virðingu samborgara sinna fyrir dugnað og ósérhlífni. Siggi var þekktur skipstjóri, mjög farsæll og fengsæll. Hann var skipstjóri á Skarðsvíkinni og er mér mjög minnisstætt þegar hann bauð mér pláss hjá sér. Ég var að rétta honum hjálparhönd þar sem hann var að dytta að húsinu sínu og þá spurði hann mig hvað ég ætlaði að gera um sumarið. Ég sagði honum sem var að ég ætlaði að reyna að komast á sjóinn. Siggi sagði þá við mig, 15 ára ung- linginn, þú kemur þá bara með mér! Þetta var náttúrlega ótrú- legt tækifæri fyrir ungan mann að fá að róa með þessum þekkta skipstjóra og hans reynslumiklu áhöfn en um borð voru á þess- um tíma meðal annarra Gvend- ur Tomm, Hemmi í Garði, Konni Ragnars og Jói Long sem höfðu verið í áhöfn Sigga í áratugi. Plássið um borð var mjög eftirsótt og því merkilegt að Siggi skyldi gefa ungum manni slíkt tækifæri. Siggi var í Lionsklúbbi Nes- þinga og unnum við saman við undirbúning kútmagakvölds eldri borgara í Snæfellsbæ ásamt fleirum í áratugi. Sam- starfið gekk alltaf vel og margs er að minnast frá þeim tíma. Siggi setti manni fyrir verkefni og einu sinni sem oftar fékk ég það verkefni að láta fisk síga. Hann gaf mér nákvæm fyrir- mæli um verkunina. Mér fannst tíminn fulllangur sem fiskurinn átti að liggja í kös. Ég tók því upp á mitt eindæmi ákvörðun um að stytta tímann. Þegar fiskurinn var tilbúinn fannst mér vel hafa heppnast og fór með fisk til Sigga til smökk- unar. Sigga fannst fiskurinn bragðlaus og því ekki boðlegur. Þá var úr vöndu að ráða því ein- ungis vika var í kútmagakvöld- ið. Siggi tók þá ákvörðun um að nú skyldum við láta hraðsíga, þ.e. við skyldum verka fiskinn á viku sem venjulega tók nokkrar vikur. Aðferðin fólst í því að keyra fyrst hita á fiskinn til að fá bragðið og síðan þurrka hann með köldum blæstri. Þetta var lýsandi fyrir Sigga, engar skammir eða dramatík, hann hugsaði alltaf í lausnum. Sjórinn og sjómennskan voru Sigga mjög hugleikin fram á síðasta dag og hann spurði ávallt frétta af fiskiríi þegar við hittumst. Tveimur dögum fyrir andlátið kom ég við hjá honum á Jaðri. Ég sá á honum að hann hafði verið lasinn og hafði orð á því við hann. Hann svaraði því til að hann væri nú orðinn gamall og þreyttur. Þegar ég heyrði af andláti Sigga varð mér hugsað til síðasta samtals okkar og þá áttaði ég mig á því að ég hefði ekki áður heyrt hann tala um að hann væri þreyttur. Sigurður Kristjónsson skip- stjóri hefur nú leyst landfestar og látið úr höfn í hinsta sinn. Ástvinum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Ásbjörn Óttarsson. Sigurður Kristjónsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN HAGALÍNSDÓTTIR húsmóðir, Skólavörðustíg 26, lést mánudaginn 1. júlí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 15. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Guðrún Haraldsdóttir Einar Ólafur Haraldsson Helga Hrönn Elíasdóttir Ómar Ingi Magnússon Guðrún Kristín Einarsdóttir Vilhjálmur Vilhjálmsson Eydís Björk Einarsdóttir Karen María Einarsdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, LINDA GUÐBJÖRG SAMÚELSDÓTTIR Tungu, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi fimmtudaginn 27. júní. Verður jarðsungin frá Akraneskirkju fimmtudaginn 18. júlí klukkan 13. Þökkum öllu því starfsfólki á Sjúkrahúsinu á Akranesi sem annaðist hana af alúð og hlýju. Guðni Þórðarson Fjóla Lind Guðnadóttir Sigurður Kári Guðnason Þórður Guðnason Guðný Kristín Guðnadóttir Guðbjörg Rós Guðnadóttir Linda Björg Guðnadóttir Ólöf Húnfjörð Samúelsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.