Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.07.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2019 Það setur stórt strik í reikninginn hjá íslenska U21 árs landsliðinu í handbolta fyrir þátttöku þess á heimsmeistara- mótinu sem hefst á Spáni í næstu viku að tveir bestu leik- menn liðsins gáfu ekki kost á sér verkefnið. Selfyssingarnir Teitur Örn Einarsson, leikmaður Kristian- stad í Svíþjóð, og Haukur Þrast- arson, sem varð Íslandsmeistari með Selfyssingum í vor, verða fjarri góðu gamni og það er engin smá blóðtaka fyrir ís- lenska liðið enda öflugir leik- menn þar á ferð sem eru farnir að láta vel til sín taka með A- landsliðinu. Báðir útskýrðu þeir afboð- un sína á mótið í viðtali við mbl.is í vikunni. Það ber að virða ákvörðun þeirra en ég er samt þeirrar skoðunar að Teitur og Haukur hefðu átt að taka slaginn og fórna sér fyrir mál- staðinn. Þeir eru heilir heilsu, vitaskuld svolítið lúnir eftir langt og strangt tímabil en ung- ir og frískir strákar sem ættu að hafa orku á tanknum. Og þá má velta því fyrir sér hvort forráðamenn HSÍ og Einar Andri Einarsson, þjálfari liðsins, hafi sett nægilegan þrýsting á leikmennina að vera með. Ég man ekki betur en að Ar- on Pálmarsson hafi verið í svip- aðri stöðu og þeir Teitur og Haukur hér um árið nema að Ar- on var þá að spila með Kiel sem var þá eitt besta lið heims og að spila í sterkustu og erfiðustu deild í heimi. Það kom aldrei til greina af hálfu Arons að sleppa verkefni með íslenska landslið- inu né yngri landsliðum. Vonandi þjappa leikmenn sér saman og ég óska liðinu alls hins besta á HM þar sem Ísland er í afar sterkum riðli. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is kringum liðin er allt önnur en alveg eins og við í dag, þá lenda norsku liðin í vandræðum þegar þau mæta liðum frá til dæmis Belgíu og Hollandi og þau norsku eiga í raun ekki séns held- ur á móti þessum stærri liðum þannig að bilið er mjög mikið á milli deilda.“ Íslendingar hafa gert sér vonir um að sjá íslenskt lið í riðlakeppni Evr- ópudeildarinnar á næstu árum en þá þarf allt að falla með íslensku lið- unum að sögn Rúnars. „Menn hafa gert sér vonir um þetta í einhvern tíma og vonandi styttist í það að við eigum lið í riðla- keppni Evrópudeildarinnar en það verður mjög erfitt. Þú þarft á heppni að halda, ekki bara í þeim leikjum sem þú spilar, heldur líka í drætt- inum sjálfum og það þarf allt að falla með okkur ef þetta á að takast.“ Draumurinn um íslenskt lið í riðlakeppni fjarlægist  Topplið Noregs í allt öðrum gæðaflokki en topplið íslensku úrvalsdeildarinnar Ljósmynd/NTB Molde Leke James sem skoraði þrennu í fyrri hálfleik eltir Skúla Jón Friðgeirsson í leiknum í Noregi í gær. EVRÓPUDEILD Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Evrópuævintýri KR-inga í ár átti sér ekki langa ævidaga en hægt er að fullyrða að liðið sé úr leik í Evr- ópudeildinni í knattspyrnu eftir 7:1- tap gegn norska úrvalsdeildarliðinu Molde í fyrri leik liðanna í 1. umferð undankeppninnar á Aker-vellinum í Molde í gær. Vesturbæingar sáu til sólar á fyrstu mínútum leiksins en síðan ekki söguna meir en Evrópu- ævintýrið var í raun úti í hálfleik þar sem Norðmennirnir leiddu 4:0. Vesturbæingar fengu á sig þrjú mörk eftir hornspyrnur í gær og það eru mörk sem liðið hefði átt að verjast betur. Í þokkabót voru mörkin öll keimlík en fyrstu tvö mörkin voru eft- ir skalla á nærsvæðinu sem fór á fjærsvæðið þar sem Molde-menn voru grimmari. Þriðja markið kom eftir skalla á fjærsvæðinu inn á nær- svæðið þar sem leikmenn Molde voru gapandi fríir. Vissulega voru leik- menn Molde bæði stærri og sterkari en leikmenn KR en samt sem áður þá á liðið ekki að fá á sig þrjú nákvæm- lega eins mörk og leikmenn liðsins eiga að vera það reyndir að þeir eiga að geta dekkað menn almennilega, jafnvel þótt fyrsti boltinn tapist. KR-ingar töpuðu fyrir miklu betra liði eins og úrslitin gefa til kynna en tapið hefði ekki endilega þurft að vera svona stórt. Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, þekkir vel til í Noregi eftir að hafa þjálfað úrvalsdeildarlið Lilleström á árunum 2014 til ársins 2016, en hann segir að bilið á milli deildanna sé mikið. „Á undanförnum árum hafa menn hér heima aðeins verið að gera lítið úr norskum fót- bolta sem dæmi. Ég hef starfað þar, ég veit hvernig umhverfið þar er,“ sagði Rúnar í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Við erum ekki að æfa allan daginn eins og þeir. Umgjörðin í 1:0 Leke James 6. 2:0 Fredrik Aursnes 29. 3:0 Leke James 31. 4:0 Leke James 40. 5:0 Vegard Forren 63. 6:0 Etzaz Hussain 66. 6:1 Tobias Thomsen 71. 7:1 Ohi Omoijuanfo 90. I Gul spjöldEngin. Molde: (4-3-3) Mark: Craninx. Vörn: Haraldseid, Björnbak, Forren, Hau- gen. Miðja: Aursnes (Sjölstad 69), MOLDE – KR 7:1 Wolff Eikrem (Moström 82), Huss- ein. Sókn: Hestad, James (Knudtzon 74), Omoijuanfo. KR: (4-3-3) Mark: Beitir Ólafsson. Vörn: Kennie Chopart (Björgvin Stef- ánsson 85), Arnór S. Aðalsteinsson, Finnur Pálmason (Gunnar Þór Gunn- arsson 46), Kristinn Jónsson. Miðja: Skúli Jón Friðgeirsson, Pálmi Rafn Pálmason, Arnþór Ingi Kristinsson (Ægir Jarl Jónasson 77). Sókn: Pablo Punyed, Tobias Thomsen, Ósk- ar Örn Hauksson. Dómari: Aleksandrs Golubevs, Lett- landi. Áhorfendur: 3.000. Aron Jóhannsson skrifaði í gær undir þriggja ára samn- ing við sænska knattspyrnufélagið Hammarby og verður þar með níundi Íslendingurinn sem spilar með liðinu en það er í sjöunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. Pétur Marteinsson lék þar fyrstur árin 1996 til 1998 og aftur 2003 til 2006. Pétur Björn Jónsson lék með lið- inu 1998, Gunnar Þór Gunnarsson árin 2006 og 2007 og Heiðar Geir Júlíusson árið 2007. Þeir Birkir Már Sæv- arsson og Ögmundur Kristinsson voru báðir með liðinu árin 2015 til 2017 og Arnór Smárason árin 2016 til 2018. Viðar Örn Kjartansson varð sá áttundi þegar hann kom til Hammarby sem lánsmaður fyrir yfirstandandi tímabil en hann er væntanlega á förum eftir komandi helgi. Aron, sem er með tvöfalt ríkisfang og hefur leikið 19 landsleiki fyrir Bandaríkin, hefur undanfarin fjögur ár verið leikmaður Bremen í Þýska- landi en dvölin þar einkenndist af meiðslum. Hann náði aðeins að spila 28 deildaleiki með liðinu og skoraði 4 mörk. Aron lék áður með AZ í Hollandi og AGF í Danmörku og þrjú fyrstu meistaraflokksárin með uppeldisfélagi sínu, Fjölni. vs@mbl.is Aron níundi hjá Hammarby Aron Jóhannsson Ian Jeffs mun stýra karlaliði ÍBV í knattspyrnu út þetta keppnistímabil en hann tók við því til bráðabirgða fyrr í þessum mánuði þegar Pedro Hipólito var sagt upp störf- um. ÍBV tilkynnti þetta í gær og jafnframt að Andri Ólafsson, samherji Jeffs í Eyjaliðinu um árabil og fyrir- liði þess, yrði honum til aðstoðar. Jeffs er 36 ára gamall og lék með ÍBV frá 2003 til 2007 og frá 2011 til 2016. Hann þjálfaði kvennalið ÍBV í nokkur ár og stýrði áður karlaliðinu í síðustu umferðunum tímabilið 2016. Jeffs er ennfremur aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Verkefnið sem við honum blasir er stórt. Eyjamenn sitja einir og yfirgefnir á botni úrvalsdeildarinnar með aðeins 5 stig eftir ellefu leiki. Jeffs var við stjórnvölinn í fyrsta sinn síðasta laugardag þegar ÍBV tapaði 1:2 fyrir toppliði KR og á morgun spilar liðið aftur á Hásteinsvelli þegar það fær FH í heimsókn. Í kjölfarið eiga Eyja- menn útileiki við Fylki og Grindavík. vs@mbl.is Jeffs og Andri með ÍBV Ian Jeffs

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.