Morgunblaðið - 15.07.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Níu látnir eftir flugslys
Þjóðarsorg ríkir í Svíþjóð eftir að lítil flugvél hrapaði skammt sunnan Umeå
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Níu manns létust þegar lítil flugvél
hrapaði laust eftir kl. 14 að staðartíma
í Svíþjóð í gær. Flugvélin, sem var af
GippsAero GA8 Airvan-gerð, hafði
einkum verið notuð til fallhlífarstökks
og sýniflugs fyrir ferðamenn. Voru
farþegar vélarinnar allir meðlimir í
samtökum sænskra fallhlífarstökkv-
ara.
Brak vélarinnar fannst á eyjunni
Storsandskör, sem er rétt sunnan
Umeå, en vélin tók á loft af flugvell-
inum þar um hálftvöleytið að sænsk-
um tíma. Ekki var vitað um orsakir
slyssins, en flugstjóri vélarinnar
sendi frá sér neyðarkall kl. 14.12.
Flugvélar af þessari gerð eru ekki
með flugrita, og gæti því reynst erfitt
að greina nákvæmlega hvað olli slys-
inu. Sænska dagblaðið Aftonbladet
birti í gær á vefsíðu sinni myndband,
sem tekið var af sjónarvotti, þar sem
vélin sést hrapa lóðbeint til jarðar. Þá
sagði Jan Ohlsson, sérfræðingur í
flugslysum, við blaðið að snöggar
breytingar á þyngdarpunkti vélarinn-
ar kynnu að hafa valdið slysinu. Sagði
hann ólíklegt að um vélarbilun hefði
verið að ræða í ljósi þess hvernig vélin
féll til jarðar.
Vottaði samúð sína
Karl Gústaf Svíakonungur sendi
frá sér tilkynningu í kjölfar slyssins,
þar sem hann sagði að hugur sinn og
fjölskyldu sinnar væri hjá þeim sem
létust, fjölskyldum og aðstandendum.
Stefan Löfven forsætisráðherra sendi
einnig samúðarkveðjur, en sænsk
stjórnvöld hafa þegar boðið fjölskyld-
um hinna látnu aðstoð.
Þetta er sjöunda mannskæðasta
flugslys í sögu Svíþjóðar, en 31 lést
þegar flugvél hrapaði við Ängelholm í
nóvember 1964.
AFP
Flugslys Björgunarfólk fór þegar á slysstað og leitaði að braki úr vélinni.
Starfsmenn inn-
flytjenda- og toll-
stofnunar Banda-
ríkjanna (ICE)
hófu í gær að-
gerðir sem ætlað
var að skera upp
herör gegn fjölda
ólöglegra inn-
flytjenda í
Bandaríkjunum.
Fólu aðgerðirnar
meðal annars í sér rassíur á híbýli
um 2.000 ólöglegra innflytjenda í tíu
af stærstu borgum Bandaríkjanna.
Matthew Albence, forstjóri stofn-
unarinnar, vildi ekki staðfesta nein-
ar upplýsingar um umfang aðgerð-
anna í gær, en sagði þær nauðsyn-
legar til þess að framfylgja fyrir-
skipunum dómara sem hefðu þegar
ákveðið að viðkomandi innflytj-
endur væru ólöglega í Bandaríkj-
unum.
Þá var Donald Trump Banda-
ríkjaforseti gagnrýndur fyrir um-
mæli sín í tengslum við aðgerðirnar
á samskiptasíðunni Twitter, þar
sem hann sagði að ákveðnar þing-
konur demókrata ættu að snúa aft-
ur til þeirra staða sem þær kæmu
upphaflega frá. Nefndi Trump ekki
hvaða þingkonur hann hafði í huga.
Sagði Ben Ray Lujan, varaforseti
fulltrúadeildarinnar, að tíst forset-
ans væri rasískt og beindist gegn
bandarískum ríkisborgurum.
Sótt að ólög-
legum inn-
flytjendum
Donald
Trump
Trump gagn-
rýndur fyrir tíst sitt
Filippseyski öldungadeildar-
þingmaðurinn Imee Marcos krafð-
ist þess um helgina að ríkið sliti
þegar í stað öllu stjórnmála-
sambandi við Ísland vegna um-
deildrar ályktunar mannréttinda-
ráðs Sameinuðu þjóðanna um
rannsókn á „fíkniefnastríði“ stjórn-
valda þar. Þannig yrðu send skila-
boð um að pólitískri stefnu þróaðra
ríkja yrði ekki troðið á Filipps-
eyjar.
Marcos er dóttir einræðisherra-
hjónanna Ferdinands og Imeldu
Marcos, sem ríktu á Filippseyjum í
rúmlega 20 ár. Beindi hún í yfir-
lýsingu sinni sjónum að stefnu Ís-
lands og annarra ríkja sem sam-
þykktu ályktunina í fóstur-
eyðingum og sagði þau ríki vilja
beina fingri að Filippseyjum fyrir
meint mannréttindabrot á sama
tíma og varnarlaus og ófædd börn
væru deydd.
Vill slíta stjórnmála-
sambandi við Ísland
FILIPPSEYJAR
Emmanuel Macron Frakklandsforseti talaði fyr-
ir nánara samstarfi Evrópusambandsríkjanna í
varnarmálum í ræðu sinni á Bastilludeginum,
þjóðhátíðardegi Frakklands. Voru nokkrir af
helstu leiðtogum sambandsríkjanna saman-
komnir í Parísarborg og horfðu þeir á hersýn-
ingu þar sem 4.300 hermenn úr herjum tíu mis-
munandi Evrópuríkja gengu fylktu liði framhjá
Sigurboganum. Í kjölfar hersýningarinnar dró
til tíðinda þegar lögreglu og mótmælendum úr
hópi hinna svonefndu „gulu vesta“ lenti saman.
Rifu mótmælendurnir niður girðingar og
kveiktu elda. Þurfti lögreglan að beita táragasi
til þess að dreifa mótmælunum og voru 180
manns handteknir fyrir ofbeldisverk.
Óeirðir skyggðu á hátíðahöldin
AFP
Róstur í Parísarborg á þjóðhátíðardegi Frakklands