Morgunblaðið - 15.07.2019, Blaðsíða 27
ekki of langt fram í tímann,“ sagði
Kolbeinn.
Erfitt að endurstilla sig
Þá vann Aníta Hinriksdóttir úr ÍR
öruggan sigur í 800 metra hlaupi
kvenna; hún hljóp á 2:08,17 og var
ekki langt frá því að bæta mótsmetið
í greininni sem er 2:08,14. Hálfsystir
Anítu, Iðunn Björg Arnaldsdóttir,
hljóp á tímanum 2:22,10 og hafnaði í
þriðja sæti en Aníta viðurkennir að
það geti stundum verið erfitt að inn-
stilla sig á það að taka þátt í hlaupi og
koma langfyrst í mark.
„Ég er orðin nokkuð góð í því bara
að setja hausinn undir mig og hlaupa.
Ég var frekar villt þegar ég var yngri
og þá var þetta ekkert vandamál en
það getur verið erfitt að endurstilla
sig upp á nýtt þegar að maður er bú-
inn að vera einhvers staðar erlendis
að taka þátt í hlaupi þar sem keppnin
er mikil og koma svo heim og hlaupa
hér,“ sagði Aníta í samtali við
Morgunblaðið.
Aníta hefur verið að glíma við
meiðsli í læri en hún er öll að koma til
og leið vel eftir hlaupið í gær.
„Þetta var fyrsta 800 metra hlaup-
ið mitt á tímabilinu og maður var að-
eins inni í eigin þægindaramma fyrir
hlaupið og ég vissi ekki alveg á
hverju ég átti von með sjálfa mig. Ég
er búin að vera í smá brasi með lærið
á mér, sem hefur aðeins haldið mér
frá keppni. Ég hef getað æft í gegn-
um meiðslin en ég hef átt erfitt með
hraðabreytingarnar sem maður þarf
á að halda í 800 metra hlaupinu. En
það hefur allt verið á réttri leið há
mér í þessum mánuði.“
Aníta setur stefnuna á HM í Doha
í Katar í lok september og vonast til
þess að toppa þar á réttum tíma.
„Ég er í raun bara að undirbúa
mig fyrir HM sem hefst í september,
sem er vissulega í seinni kantinum
þetta árið, en það er líka bara fínt
fyrir mig persónulega þar sem ég á
það til að vera sein í gang en stefnan
er sett á HM og öll einbeitingin fer á
það næstu vikurnar.“
ÍR-ingar sigursælastir
Þá setti kúluvarparinn Erna Sóley
Gunnarsdóttir úr ÍR mótsmet á
laugardaginn þegar hún kastaði kúl-
unni 15,65 metra. Thelma Lind
Kristjánsdóttir, ÍR, hafnaði í öðru
sæti með kast upp á 12,7 metra og
fjölþrautarkonan María Rún Gunn-
laugsdóttir úr FH endaði í þriðja
sæti, en hún kastaði kúlunni 11,52
metra. María reyndist sigursæl á
mótinu en alls fékk hún fimm verð-
laun um helgina. Hún fékk gull í
spjótkasti og 100 metra grinda-
hlaupi, silfur í langstökki og hástökki
og loks brons í kúluvarpi.
ÍR hrósaði sigri í liðakeppninni
þriðja árið í röð, en liðið hlaut 76 stig.
FH varð í öðru sæti með 72 stig og
Breiðablik hafnaði í þriðja sæti með
27 stig.
Nánar má lesa um úrslit og
sigurvegara á mótinu á mbl.is/sport/
adrar
Morgunblaðið/Árni Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvíld Guðni Valur Guðnason hvílir lúin bein en
hann varð Íslandsmeistari í kringlukasti í gær.
Í mark Ingibjörg Sigurðardóttir, til hægri, og Iðunn Björg Arnaldsdóttir
koma í mark í 800 metra hlaupinu í Laugardalnum í gær.
Meistari Aníta Hinriksdóttir
í 800 metra hlaupinu þar sem
hún kom fyrst í mark.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
Glerborg
Mörkinni 4
108 Reykjavík
565 0000
glerborg@glerborg.is
www.glerborg.is
2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG
FÁÐU TILBOÐ
ÞÉR AÐ
KOSTNAÐAR-
LAUSU
Ertu að byggja eða þarf að
endurnýja gamla glerið?
Það skiptir miklu máli að velja einangrunargler sem
reynist vel við íslenskar aðstæður.
Fáið tilboð hjá Glerborg í Mörkinni 4 eða
á heimasíðunni okkar WWW.GLERBORG.IS
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir,
landsliðskona í handknattleik og lykil-
maður í liði Selfyssinga, er gengin í
raðir franska A-deildarliðsins Bourg-
de-Péage Drome Handball. Liðið hafn-
aði í neðsta sæti á síðustu leiktíð en
hélt sæti sínu eftir umspil. Hrafnhild-
ur, sem er 24 ára gömul, hefur leikið
með uppeldisfélagi sínu Selfossi frá
árinu 2011. Hún var markahæsti leik-
maður Olísdeildarinnar 2015-2017 og
skoraði 101 mark í 14 leikjum á síðustu
leiktíð þar sem Selfoss féll úr deild-
inni. Hrafnhildur hefur spilað 22 lands-
leiki og hefur í þeim skorað 47 mörk.
Markvörðurinn Frederik Schram er
orðinn leikmaður danska úrvals-
deildarliðsins SönderjyskE, þar sem
hann er liðsfélagi Eggerts Gunnþórs
Jónssonar. Hann var í hópnum í fyrsta
leik liðsins í úrvalsdeildinni á nýju
tímabili í gær. Frederik, sem var í ís-
lenska landsliðshópnum á HM í Rúss-
landi í fyrra, yfirgaf danska B-
deildarliðið Roskilde í vor, en hann
hefur spilað með liðinu undanfarin ár.
Frederik á fimm leiki að baki með ís-
lenska A-landsliðinu.
Dagbjartur
Daði Jónsson hafnaði í
sjötta sæti á EM 23 ára og
yngri sem lauk í Sví-
þjóð í gær. Dag-
bjartur kastaði
76,30 metra í úr-
slitunum. Cypri-
an Mrzyglód frá
Póllandi sigraði,
en hann kastaði
84,97 metra og
setti mótsmet.
Eitt
ogannað
Skagamaðurinn Arnór Smárason reimaði á sig
markaskóna með liði Lilleström í norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gær. Arnór skoraði bæði mörk
sinna manna í 2:1 sigri á heimavelli gegn Ströms-
godset. Mörkin tvö skoraði hann á þriggja mínútna
kafla undir lok fyrri hálfleiks en staðan í hálfleik var
2:0. Gestunum tókst að minnka muninn 20 mínútum
fyrir leikslok en Lilleström hélt út og fagnaði góðum
sigri.
Þetta voru fyrstu mörk Arnórs fyrir Lilleström í
norsku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, en meiðsli
hafa verið að hrjá hann á tímabilinu.
Með sigrinum komst Lilleström upp í tíunda sæti deildarinnar með
18 stig eftir 15 leiki en Strömsgodset situr á botni deildarinnar með 10
stig.
KR-banarnir í Molde tróna á toppi deildarinnar. Þeir eru stigi á
undan Bodö/Glimt sem á leik til góða. Meistararnir í Rosenborg virð-
ast vera að vakna til lífsins, en þeir burstuðu Viking 5:1 og eru komnir
upp í fimmta sæti deildarinnar. gummih@mbl.is
Arnór með fyrstu mörk sín
Arnór
Smárason