Morgunblaðið - 15.07.2019, Blaðsíða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 2019
BORÐPLÖTUR
OG SÓLBEKKIR
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenix og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
3. deild karla
Kórdrengir – KH...................................... 3:1
Reynir S. – KV.......................................... 2:2
Vængir J. – Höttur/Huginn..................... 1:1
Álftanes – Skallagrímur .......................... 4:0
KF – Augnablik ........................................ 2:0
Einherji – Sindri....................................... 2:2
Staðan:
Kórdrengir 12 9 2 1 33:14 29
KF 12 8 2 2 28:12 26
KV 12 8 2 2 26:14 26
Vængir Júpiters 12 8 1 3 23:16 25
Reynir S. 12 5 4 3 21:20 19
Einherji 12 4 4 4 17:15 16
Álftanes 12 4 3 5 20:19 15
Sindri 12 4 2 6 26:29 14
Höttur/Huginn 12 2 5 5 16:20 11
Augnablik 12 1 4 7 14:25 7
KH 12 2 1 9 16:35 7
Skallagrímur 12 2 0 10 14:35 6
2. deild kvenna
Álftanes – Sindri....................................... 3:4
FHL – Hamrarnir.................................... 2:1
Staðan:
Völsungur 6 5 1 0 12:6 16
Fjarð/Hött/Leikn. 8 5 0 3 26:8 15
Grótta 6 4 1 1 13:4 13
Álftanes 7 3 0 4 18:14 9
Sindri 7 3 0 4 11:18 9
Hamrarnir 7 2 1 4 7:10 7
Leiknir R. 7 0 1 6 2:29 1
Bandaríkin
Sky Blue – Utah Royals .......................... 1:0
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fór af velli í
liði Utah Royals á 82. mínútu.
Portland Thorns – Orlando Pride......... 4:3
Dagný Brynjarsdóttir lék allan tímann
með Portland Thorns.
Efstu lið: North Carolina 22, Portland
Thorns 22, Reign 20, Washington Spirit 18.
Svíþjóð
Djurgården – Malmö............................... 1:1
Arnór Ingvi Traustason fór meiddur af
velli á 43. mínútu í liði Malmö.
AIK – Elfsborg......................................... 3:0
Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 75 mín-
úturnar fyrir AIK, skoraði tvö fyrstu mörk-
in og lagði það þriðja upp.
Östersund – Norrköping ........................ 2:1
Guðmundur Þórarinsson lék allan tím-
ann með Norrköping og lagði upp mark
liðsins en Alfons Sampsted var ekki í leik-
mannahópnum.
Staða efstu liða:
Malmö 16 10 5 1 28:11 35
AIK 16 9 4 3 20:11 31
Djurgården 15 8 5 2 25:12 29
Häcken 15 8 3 4 23:12 27
Gautaborg 15 7 5 3 23:14 26
B-deild:
Brage – Brommapojkarna ..................... 3:1
Bjarni Mark Antonsson lék allan tímann
með Brage og skoraði annað markið.
Frej Täby – Mjällby ................................. 1:2
Óttar Magnús Karlsson lék fyrri hálf-
leikinn með Mjällby.
Trelleborg – Syrianska........................... 1:2
Nói Snæhólm Ólafsson lék ekki með
Syrianska.
KNATTSPYRNA
KÓRINN/EYJAR
Víðir Sigurðsson
Arnar Gauti Grettisson
Staða HK og KA í úrvalsdeild karla
í fótbolta hefur heldur betur breyst
síðustu daga og vikur. Nýliðarnir úr
Kópavogi virtust framan af sumri
ekki eiga mikla möguleika á að
halda sér í deildinni en KA þótti lík-
legt til að komast í baráttu um
Evrópusæti.
En eftir sigur HK, 2:1, í drama-
tískum leik í Kórnum í gær er Kópa-
vogsliðið komið upp í áttunda sæti í
fyrsta sinn á tímabilinu, eftir þrjá
sigra í síðustu fjórum leikjum. Á
meðan hefur KA sigið stöðugt neð-
ar, tapaði fjórða leik sínum í röð og
gæti ef allt fer á versta veg setið í
fallsæti þegar umferðinni lýkur í
kvöld. Akureyrarliðið er í það
minnsta komið í fallbaráttu upp fyr-
ir haus eftir þennan ósigur.
Leikurinn var jafn og skemmti-
legur enda mættust þarna tvö lið
sem geta spilað virkilega góðan fót-
bolta þegar sá gállinn er á þeim.
Staðan var 1:1 lengi eftir mörk í
fyrri hálfleik. Björn Berg Bryde
kom HK yfir eftir hornspyrnu en
Hallgrímur Mar Steingrímsson jafn-
aði úr vítaspyrnu. KA tók nánast
völdin þegar um fimmtán mínútur
voru eftir og gerði harða hríð að
marki HK. Nýliðarnir stóðu óveðrið
naumlega af sér, sluppu fyrir horn
þegar Elfar Árni Aðalsteinsson
skaut yfir mark þeirra úr dauðafæri,
og á 84. mínútu skoraði hinn 16 ára
gamli Valgeir Valgeirsson sigur-
markið með stórglæsilegu skoti frá
vítateig í kjölfarið á hornspyrnu.
Í uppbótartímanum urðu mikil
læti þegar brotið var á Bjarna
Gunnarssyni, sóknarmanni HK, upp
við hornfána KA-megin. Hann sló
frá sér og uppskar rauða spjaldið, og
rétt á eftir fór Steinþór Freyr Þor-
steinsson sömu leið. Þessir tveir
munu eiga frí í næstu umferð.
Lennon með tvö í sigri FH
FH-ingar gerðu góða ferð til
Vestmannaeyja og sóttu öll þrjú
stigin sem í boði voru þegar þeir
mættu ÍBV á Hásteinsvelli og sigr-
uðu 2:1. Þeir eru þar með komnir
upp í fimmta sætið.
Steven Lennon kom gestunum yf-
ir með marki úr vítaspyrnu á 35.
mínútu þegar Diogo braut á Jákup.
Steven Lennon skoraði svo annað
mark sitt á 71. mínútu þegar hann
tvöfaldaði forskot gestanna. Gary
Martin klóraði svo í bakkann fyrir
heimamenn á 90. mínútu þegar hann
skoraði einnig úr vítaspyrnu, jafn-
framt fyrsta mark sitt fyrir félagið.
Leikurinn var ekki mikið fyrir
augað fótboltalega séð en það var
ljóst að bæði lið ætluðu sér að notast
við langa bolta upp völlinn og vonast
til að framherjar liðanna myndu
gera sér mat úr því. Það upplegg
gekk betur hjá gestunum úr
Hafnarfirði en manni fannst að allt-
af þegar þeir komust í sókn væru
þeir hættulegir, annað en Eyja-
menn, sem náðu ekki að skapa sér
nein færi af viti og átti Gary Martin
erfitt uppdráttar gegn Guðmanni og
Pétri sem voru í hjarta varnarinnar.
Með sigrinum unnu FH-ingar
annan leik sinn í röð í Pepsi Max
deildinni og mætti segja að þeir séu
komnir í gang eftir ansi erfiðar um-
ferðir fram að því. Staða Eyjamanna
verður hins vegar verri með hverj-
um deginum, en þeir sitja á botni
deildarinnar með 5 stig og færast
nær 1. deildinni með hverri umferð-
inni. Þeir hafa ekki náð að halda
hreinu í deildinni það sem af er og
þegar þú nærð ekki að stoppa í götin
í varnarleik þínum áttu ekki von á
því að vinna marga fótboltaleiki, það
eitt er víst, því ekki eru þeir heldur
að skora mörg mörk.
Martin skoraði fyrir fimmta lið
Þegar Gary Martin skoraði úr
vítaspyrnunni fyrir ÍBV undir lokin
gegn FH gerði hann mark fyrir
fimmta lið sitt í deildinni. Hann hef-
ur áður skorað fyrir ÍA, KR, Víking
R. og Val. Andri Marteinsson og
Arnar Gunnlaugsson hafa áður leik-
ið þennan leik í deildinni.
Breytt staða hjá HK og KA
HK upp í áttunda sæti eftir annan sigurinn í röð en KA gæti lent niður í fall-
sæti í kvöld Tvö rauð spjöld í lokin í Kórnum FH komið í fimmta sætið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kórinn Birkir Valur Jónsson, hægri bakvörður HK, og Hallgrímur Mar Steingrímsson, vinstri kantmaður KA, í einu
af mörgum návígjum sínum í leiknum. Hallgrímur jafnaði fyrir KA úr vítaspyrnu en Birkir og félagar fögnuðu sigri.
1:0 Björn Berg Bryde 33.
1:1 Hallgrímur Mar Steingrímsson
43.(víti)
2:1 Valgeir Valgeirsson 84.
I Gul spjöldÁsgeir Marteinsson og Atli
Arnarson (HK), Ýmir Már Geirsson
og Hrannar Björn Steingrímsson
(KA).
I Rauð spjöldBjarni Gunnarsson (HK),
Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA).
HK – KA 2:1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson, 6.
Áhorfendur: 790.
M
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Ásgeir Börkur Ásgeirsson (HK)
Leifur Andri Leifsson (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Hallgrímur Jónasson (KA)
Daníel Hafsteinsson (KA)
Hallgrímur Mar Steingrímss. (KA)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
0:1 Steven Lennon 35.
0:2 Steven Lennon 71.
1:2 Gary Martin 90.
I Gul spjöldSindri Snær Magnússon,
Diogo Coelho, Gary Martin og Sig-
urður A. Magnússon (ÍBV), Jónatan
Ingi Jónsson, Cédric D’Ulivo og Daði
Freyr Arnarsson (FH).
I Rauð spjöldVíðir Þorvarðarson (ÍBV).
ÍBV – FH 1:2
Dómari: Erlendur Eiríksson, 6.
Áhorfendur: 432.
M
Matt Garner (ÍBV)
Telmo Castanheira (ÍBV)
Sigurður A. Magnússon (ÍBV)
Pétur Viðarsson (FH)
Cédric D’Ulivo (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Davíð Þór Viðarsson (FH)
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Steven Lennon (FH)