Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Sópun og þvottur á gangstéttum, götum, bílastæðum og bílageymslum 577 5757 | www.igf.is | igf@igf.is Pantaðu sópun og þvott á igf.is eða í síma 577 5757 Er planið skítugt? Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Svo virðist sem vandi vegna ósnyrti- legra ferðamanna, sem t.d. ganga örna sinna og skilja eftir sig rusl því tengt úti í náttúrunni, fari dvínandi. Víða voru fluttar af því fréttir í fyrra að umræddur vandi væri landlægur. Sem dæmi ákváðu landeigendur í landi Voga í Mývatnssveit í fyrra að loka Kvennagjá í hellinum Grjótagjá, en hellirinn hafði verið vinsæll bað- staður í gegnum tíðina. Höfðu ferða- menn þá m.a. verið staðnir að því að hafa hægðir og þvo skó og leirtau í og við gjána. Ólöf Hallgrímsdóttir, einn landeigenda þar, segir í samtali við Morgunblaðið að eftir að tveimur kömrum var komið fyrir á staðnum og Kvennagjánni lokað sé umgengn- in mun betri. „Umgengni er allt önnur“ Ekki stendur þó til að opna Kvennagjána fyrir almenningi eins og er. Til að það kæmi til greina þyrfti starfsmaður að vera á staðnum. „Landeigendur ákváðu að setja upp þurrkamra. Við vorum með einn í fyrra. Núna erum við með tvo. Við erum líka komin með ruslafötur og umgengni er allt önnur,“ segir Ólöf og segir að landeigendur sjái um uppsetningu þessa búnaðar á eigin spýtur. Hún segir að þrátt fyrir að umgengni sé betri við Kvennagjána, enda læst þar fyrir, finni umhverfið fyrir ágangi ferðamanna engu að síð- ur. „Það sem við erum að glíma við er að það eru hér fleiri staðir sem hægt er að dýfa sér í, en það er ekki leyfi- legt. Þrátt fyrir upplýsingar og skilti hunsar fólk það algjörlega. Það er farið að sjá verulega á landinu.“ „Ekki eins slæm umgengni“ Björg Halldórsdóttir, formaður Ferðafélags Árnesinga og íbúi á Kot- strönd II í Ölfusi, segir í samtali við Morgunblaðið að sín tilfinning sé sú að minna sé um að ferðamenn skilji eftir úrgang úti í náttúrunni í ár en í fyrra. „Ég held ég geti alveg fullyrt það að umgengnin sé ekki verri í ár en í fyrra.“ Spurð hvort hún sé ein þeirra sem hafi séð ferðamenn skilja eftir sig ókræsileg verksummerki á ferðum hennar um landið svarar hún: „Nánast í garðinum heima líka. Ekki bara á gönguferðum.“ Útskýrir hún að hún búi í sveit „og þar er kirkjugarður við hliðina á mér. Ferðamenn lögðu margir þar og notuðu skjólbeltin. Svo maður þurfti ekki að labba langt“. Þá bætir hún við: „Á gönguferðum mínum um landið í sumar finnst mér ekki vera eins slæm umgengni og áður var.“ Aðspurð segist hún ekki vita hvort ástæðan sé að ferðamenn séu færri eða einfaldlega snyrtilegri. Dóra Sigurðardóttir, bóndi á Vatnsdalshólum í Vatnsdal, Austur- Húnavatnssýslu, sagði frá því í sam- tali við mbl.is í fyrra að hún hefði komið að ferðamanni ganga örna sinna á túni skammt frá bæ hennar. Segist hún aðspurð ekki hafa í sumar gengið fram á ferðamann í landi sínu í viðlíka erindagjörðum og tekur í sama streng og Björg: „Þetta hefur ekki verið jafn áberandi hér á Norðurlandi, að því sem ég hef séð.“ Segir hún að vandinn sé þó líklega ekki alveg úr sögunni. Hún sé sem dæmi nýkomin úr Landmannalaug- um, en þar hafi hún heyrt af rútubíl- stjóra sem þurfti að „stíga varlega úr rútunni“ eftir að gistibíll erlendra ferðamanna hafði staðið í námunda við rútuna yfir nóttina. Færri ferðamenn sóðalegir í sumar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ferðamenn Mörgum fannst erlent ferðafólk of duglegt að rusla til í fyrra.  Ekki stendur til að opna Kvennagjá fyrir almenningi eins og er  Formaður Ferðafélags Árnesinga segist hafa tekið eftir færri sóðum í sumar  Ferðamenn gengu örna sinna „nánast í garðinum heima“ „Ég býst við að þetta fari að fjara út í þess- ari viku ef allt virkar eins og maður vonast til að það geri,“ segir Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir í samtali við mbl.is um E. coli-sýkingu sem hefur greinst hjá 19 börnum. Í gær var stað- fest E. coli-smit hjá tveimur börnum til viðbótar. Þau eru tveggja og ellefu ára gömul og höfðu bæði neytt íss í Efstadal II fyrir 4. júlí. Þórólfur segir að enn berist fjöldi saursýna til rannsókna en niðurstaða úr þeim öllum liggi ekki fyrir. thorunn@mbl.is Býst ekki við að smitum fjölgi Þórólfur Guðnason Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Fjöldi gildra stæðiskorta, P-merkja, fyrir hreyfihamlaða um mitt ár 2017 var 6.415 og þar af voru 4.247 á höfuðborgarsvæðinu. Heildarfjöldi útgefinna korta allt árið 2016 var 1.526. Ekki feng- ust nýrri tölur hjá sýslumanninum á höfuðborgar- svæðinu. Handhöfum P- merkja verður í upphafi næsta árs heimilt að keyra vélknúin ökutæki á göngugötum og leggja þar í sér- merkt stæði, samkvæmt breytingu á umferðar- lögum. Pawel Bartoszek, borgar- fulltrúi Viðreisnar, telur aðrar lausn- ir ákjósanlegri en að hleypa bílum á göngugötur og hefur t.d. nefnt að tryggja megi aðgengi að tækjum til að fólk komist ferða sinna. Gangi upp þegar fámennt er Bergur Þorri Benjamínsson, for- maður Sjálfsbjargar, er ósammála Pawel og segir vegalengd frá brott- fararstað skipta öllu máli. „Þótt sumir hafi skerta göngugetu geta þeir kannski gengið styttri vega- lengdir. Það er mun meiri fyrirhöfn, þótt þú hafir aðgang að hjólastól, að ná í hann og koma þér í hann en að labba þessi fáu skref ef það er í boði,“ segir Bergur Þorri. Bergur Þorri segir að þegar séu göngugötur hreyfihömluðum erfið- ar. „Sumar göturnar gera fólki sem t.d. vinnur í borginni eða vill sækja þar fundi mjög erfitt fyrir,“ segir hann og nefnir, hvað bílastæði nærri göngugötum varðar, að stór hluti miðbæjarins standi í brekku, t.d. Skólavörðustígur og Laugavegur. „Það gerir fólki mjög erfitt fyrir. Hliðarstæðin sem sett hafa verið upp eru góðra gjalda verð en þau standa mörg hver í miklum halla og það er ansi snúið að nota þau,“ segir hann. Aðspurður segir Bergur Þorri gang- andi vegfarendum geta stafað hætta af bílaumferð á göngugötum í fjöl- menni, en ólíklega annars. „Ég skil það mætavel að til dæmis á menn- ingarnótt og ýmsum minni viðburð- um myndi þetta líklega ekki ganga upp en alla jafna ætti þetta að ganga upp,“ segir hann. Þegar er erfitt að ferðast um  6.415 P-merki voru í gildi árið 2017 Bergur Þorri Benjamínsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Ísland var meðal 57 stofnenda AIIB bankans (Asíska innviðafjárfest- ingarbankans) ásamt hinum Norður- löndunum, en eftir ársfund bankans í liðinni viku eru meðlimir orðnir 100. Hlutafé bankans er 100 millj- arðar Bandaríkjadala. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra var á ársfundi bankans kjörinn varaformaður bankaráðs AI- IB, en Bjarni hefur setið í banka- ráðinu frá stofnun bankans með stuttu hléi, þegar Benedikt Jó- hannesson, þáverandi fjármála- ráðherra, sat í ráðinu. Bjarni var í gær spurður um setu sína í bankaráði AIIB í tilefni af fyrirspurn Björns Levís Gunnars- sonar, þingmanns Pírata, til fjár- laganefndar Al- þingis um hvort Bjarni hefði brot- ið gegn siða- reglum ráðherra með því að taka sæti sem varaformaður bankaráðs AIIB. „Sú umræða sem ég hef orðið vitni að ber vott um algjöra vanþekkingu á málefnum bankans og hlutverki okkar sem eiganda að bankanum. Raunar er það furðulegt að vera vændur um brot á á siðareglum við það eitt að gegna starfsskyldum mínum sem fjármálaráðherra,“ sagði Bjarni. Um 80 ráðherrar í ráðinu „Í bankaráði AIIB sitja fulltrúar allra eigenda bankans, þ.e. allra þjóðríkjanna. Við höfum átt stjórnarmann í bankanum frá því að við gerðumst stofnaðilar og lengst af hef ég verið stjórnarmaður þar sem fjármálaráðherra Íslands, eins og fjármálaráðherrar svo fjölmargra þjóðríkja. Almennt sitja fjármála- ráðherrar þjóðríkjanna í ráðinu, þótt á því séu einhverjar undantekn- ingar. Enginn í ráðinu þiggur laun fyrir setu sína í ráðinu,“ sagði Bjarni. „Það sem gerðist á ársfund- inum í síðustu viku var það að bankaráðið var einfaldlega að skipta með sér verkum og það kom í hlut ríkja eigendahópsins utan Asíu að fylla eitt varaformannssæti í banka- ráðinu og það féll í Íslands hlut að þessu sinni, samkvæmt sam- komulagi um skiptinguna,“ sagði Bjarni. Bjarni segir að tæplega 80 ráð- herrar aðildarríkja AIIB beri ábyrgð á framkvæmd ársfundarins einu sinni á ári, ráðningu forstjóra þegar það eigi við, en það sé banka- stjórnin sem stjórni daglegum rekstri. „Í bankastjórninni eigum við ekki sæti og munum ekki eiga sæti,“ sagði fjármálaráðherra. »12 Féll að þessu sinni í hlut Íslands Bjarni Benediktsson  Segir umræðuna bera vott um algjöra vanþekkingu á Asíuinnviðabankanum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.