Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 ✝ Garðar Guð-mundsson fæddist á Ísafirði 26. janúar 1924. Hann lést 7. júlí 2019. Garðar var sonur hjónanna Aðal- heiðar Guðmunds- dóttur húsmóður, f. 17.6. 1888, d. 10.10. 1975, og Guðmund- ar Björnssonar, f. 21.3. 1888, d. 23.2. 1971, kaup- manns í Björnsbúð. Systkini Garðars voru Björn, f. 1911, Gunnar, f. 1913, Guð- mundur, f. 1914, Elísabet, f. 1915, Hulda, f. 1916, Guðrún, f. 1917, Aðalbjörn, f. 1919, Krist- ján, f. 1921, Kjartan, f. 1922, Að- alheiður, f. 1925, Kristjana, f. 1927, og Sigurður, f. 1928. Lifði Garðar öll systkini sín. Garðar og Jónína Jakobs- dóttir frá Kvíum í Jökulfjörðum, f. 18.5. 1926, gengu í hjónaband 17. september 1960. Synir þeirra eru: 1) Björn, f. 12.6. 1962, maki Margrét Sverrisdóttir, f. 10.2. 1965. Börn þeirra eru Sverrir Falur, f. 22.3. 1989, í sambúð með Önnu Fríðu Gísladóttur, f. 9.5. 1990, og Kristín Björg, f. 27.3. 1991. 2) Jakob Falur, f. 6.6. 1966, maki Vigdís Jakobsdóttir, f. 25.1. 1970. Börn þeirra eru Dagur, f. 22.10. 1997, og Júlía, f. 24.8. 1999. 3) Atli, f. 5.6. 1974. Sem ungur maður sinnti Garðar ýmsum störfum, svo sem byggingarvinnu við Mjólkár- virkjun og Nónhornsvirkjun og á Straumnesfjalli, hann fór á síld og var sundlaugarvörður við Sundhöll Ísafjarðar við opnun árið 1943. Garðar var með kennarapróf frá Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni og síðar Kennara- skóla Íslands 1948. Að loknu kennaranáminu kenndi Garðar m.a. á Fáskrúðs- firði, Sandgerði og á Ísafirði. Lengstan hluta starfsævi sinn- ar sinnti Garðar kaupmennsku í Björnsbúð á Ísafirði. Björn Guð- mundsson, afi Garðars, hóf verslunarrekstur á Ísafirði árið 1894. Guðmundur sonur hans tók síðan við og rak verslunina fram eftir tuttugustu öldinni. Árið 1960 kom Garðar til starfa við búðina. Saman ráku þeir bræður, Garðar og Aðalbjörn, verslunina ásamt eiginkonu og sonum Garðars allt til ársins 1997. Þar með lauk því 103 ára verslunarsögu fjölskyldunnar í Björnsbúð við Silfurgötu. Garðar bjó sín síðustu ár á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísa- firði. Útför hans fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag, 16. júlí 2019, klukkan 14. Það var haustið 1987. Ég hafði þá kynnst Birni, syni þeirra Garðars og Jónínu, í febrúar sama ár. Ég fór í helgarferð til Ísafjarðar, lenti seinnipart föstu- dags, sem var þá líkt og enn í dag álagstími í matvöruverslunum. Björn mátti því lítið vera að því að sinna kærustunni og var ég því leidd upp á þriðju hæð á heimili Jónínu og Garðars og beið ég þar á meðan fólk lauk sínum störfum. Ég borðaði kvöldverð með fjöl- skyldunni og voru þetta fyrstu kynni mín af dásamlegum tengdaforeldrum mínum, en þau áttu eftir að dýpka og þróast með árunum. Á þessari stundu var það ekki ætlun mín að flytja til Ísafjarðar, en raunin varð önnur og þremur mánuðum síðar var ég farin að búa þar með Birni. Þau ár sem við bjuggum á Ísa- firði voru samskiptin við tengda- foreldrana mikil. Björn vann með foreldum sínum og voru vinnu- dagarnir langir. Ég kom alltaf eitthvað að búðinni, þrátt fyrir að vinna þar ekki að staðaldri. Haustið 1990 fluttum við Björn í Silfurgötu 1 og bjuggum við þar næstu sjö árin. Björnsbúð var á jarðhæðinni, við bjuggum á mið- hæðinni og Jónína, Garðar og Atli, yngsti bróðir Björns, bjuggu á efstu hæðinni. Húsið var því bæði heimili og vinnustaður fjöl- skyldunnar. Garðar var tilfinningaríkur maður og þótt hann bæri þær ekki á torg fór það ekki framhjá neinum sem til þekktu hversu mikla ást hann bar til Jónínu, sem hann kallaði alltaf Ninnu. Hann var líka einstaklega stoltur af sonum sínum, okkur tengda- dætrunum og barnabörnum sín- um fjórum. Garðar var maður hefða. Hann fór í sund á hverjum morgni, fór snemma til vinnu og vann langan dag. Hann fór alltaf heim í hádeg- inu og eftir matinn lagði hann sig í nokkrar mínútur, eða þar til tími var kominn að fara aftur niður. Snyrtimennska, hreinlæti og góð umgengni skiptu hann miklu máli, bæði í vinnu og heima og átti hver hlutur sinn stað. Hann tók fullan þátt í heimilisstörfum, sem var sérstakt fyrir menn af hans kynslóð. Þrátt fyrir langa vinnudaga gaf Garðar sér tíma til að sinna hugðarefnum sínum. Hann las alltaf mikið, helst þá ævisögur. Hann var einnig duglegur að sækja tónleika og listsýningar sem í boði voru. Þá átti trúin sinn stað í huga hans og sótti hann oft kirkju. Afabörnin, Sverrir Falur og Kristín Björg, voru alltaf í miklu og nánu sambandi við afa og ömmu. Þau voru ætíð velkomin, hvort sem það var upp á efstu hæðina eða í búðina. Það var allt- af tími fyrir bros, umhyggju og klapp á koll. Þau minnast afa í stólnum sínum í stofunni með bók eða Morgunblaðið sitt í fanginu, á leið í göngutúr eða út í sundlaug. Þau minnast hans sem spjallara, þar sem hann er að spyrja þau um hagi þeirra. Ég minnist Garðars sem trausts einstaklings sem hægt var að reiða sig á. Tengdapabba sem stóð með sínum gildum og með fjölskylduna alltaf sem fast- an punkt í tilverunni. Þrátt fyrir að búðin og aldalöng saga hennar væri greypt í hverja taug hans hvatti hann og studdi syni sína og fjölskyldur til að velja sér sína eigin framtíð. Ég kveð í dag traustan og ein- lægan tengdaföður og vin. Hvíl í friði, elsku Garðar minn. Margrét Sverrisdóttir. Hann stendur reffilegur á bak við búðarborðið, klæddur snyrti- legum sloppi, kvikur í hreyfing- um og hillurnar í kringum hann svigna undan varningnum. Kaup- maðurinn er glettinn og ræðinn, reiðubúinn að stökkva til eftir kenjum og óskum viðskiptavina sinna. Flestir sem koma í versl- unina eru fastakúnnar. Skóla- krakkar ryðjast með hlátrasköll- um inn um dyrnar til að kaupa nesti, sýslumannsfrúin hringir inn stóra pöntun í heimsendingu, eldri kona fær hjálp við að setja í pokana og ógæfumaður fær kaffi- pakkann upp á krít. Þetta er Björnsbúð og svona hefur hún alltaf verið. Viðskiptavinirnir eru númer eitt, enda er hver þeirra samborgari kaupmannsins og vinur kær. Þessi mynd af Garðari er sú sem ég, eins og aðrir Ísfirðingar, þekkti vel áður en ég kom inn í fjölskylduna, þá enn á mennta- skólaaldri. Smátt og smátt átti ég eftir fá að kynnast tengdaföður mínum betur og komast að því að metnaður hans, vandvirkni og heilindi náðu langt út yfir versl- unarreksturinn. Hann ræktaði bæði sál og líkama, fór í sund á hverjum degi, las mikið og sótti meira og minna alla klassíska tónleika og menningarviðburði sem í boði voru í bænum. Hann var kærleiksríkur eigin- maður, lagði meira af mörkum við heimilisstörfin en menn af hans kynslóð almennt gerðu og var stuðningsríkur og góður pabbi og afi. Þau Jónína, eða „Ninna mín“ eins og hann kallaði hana nær undantekningalaust, höfðu bæði ferðast mikið og menntað sig áður en þau festu ráð sitt og eignuðust drengina þrjá. Hlutu þeir uppeldi sem ein- kenndist af einstöku umburðar- lyndi og víðsýni. Garðar tranaði sér aldrei fram, en var þess háttar máttarstólpi í samfélaginu sem styður við án þess að mikið beri á, bæði í leik og starfi. Það fékk mikið á tengdaföður minn þegar ákveðið var að selja Björnsbúð sem hafði þá verið rekin af fjölskyldunni samfleytt í yfir hundrað ár. Hann var þá kominn á áttræðisaldur og þurfti að horfast í augu við að farið var að halla undan fæti almennt fyrir kaupmennina á horninu sem urðu hver af öðrum undir í samkeppni við stórar verslanakeðjur. Fyrir Garðari var Björnsbúð nefnilega svo miklu meira en bara lifibrauð. Björnsbúð var órjúfanlegur hluti af honum sjálfum og fjölskyldu- sögu hans. Björnsbúð var sam- félag í sjálfu sér og mikilvægur hlekkur í taugakerfi kaupstaðar- ins Ísafjarðar. Á síðustu árum gaf líkaminn smátt og smátt eftir hjá Garðari. Þegar hann gat ekki lengur farið í sund, á skíði eða í göngutúra í Engidal urðu reglulegir bíltúrar með Atla yngsta syni hans og göngutúrar í hjólastólnum á góð- viðrisdögum að dýrmætum stundum. Samband þeirra feðga var einstakt og reyndist Atli föð- ur sínum ómetanleg stoð síðustu árin sem við fjölskyldan öll erum óendanlega þakklát fyrir. Morguninn sem Garðar kvaddi baðaði sólin Ísafjörð geislum sín- um. Hún hefur sennilega viljað kasta kveðju í síðasta sinn á þennan gamla félaga og þakka honum fyrir allt og allt. Ef það er tilgangur lífsins að láta gott af sér leiða þá má sannarlega full- yrða að Garðar Guðmundsson hafi skilað góðu ævistarfi. Hvíl í friði, elsku tengdapabbi. Vigdís Jakobsdóttir. Elsku afi. Þó að við höfum aldrei búið í sama bæjarfélagi hefur þú alltaf verið mér náinn og átt mikilvæg- an stað í hjarta mínu. Þú varst hógvær maður en á sama tíma virkilega stoltur af afrekum þín- um í gegnum tíðina og máttir vera það. Ég var ekki svo hepp- inn að fá að upplifa tíma þinn sem kaupmaður á Ísafirði en ég hef heyrt alla þína sögu og er hún mér mikil hvatning og leiðsögn fyrir lífið. Ég mun alltaf líta upp til þín þegar ég þarf á fyrirmynd að halda. Við sem nutum þeirra forrétt- inda að þekkja þig lærðum af þér að hógværð, nægjusemi og bros- mildi eru lykilatriði í lífinu. Þú kenndir mér það með framkomu þinni. Þú kenndir mér reyndar líka að drekka Earl Grey te þeg- ar ég var fimm ára og hvernig það ætti alltaf að kreista tepok- ann til þess að sóa nú engu tei. Elsku afi, það er erfitt að lýsa tilfinningunum í brjósti mér nú þegar þú ert fallinn frá. Ég vil þó segja að ég hef alltaf og mun allt- af bera fyrir þér djúpa virðingu og mun aldrei gleyma því hversu fagnandi og fallega þú tókst alltaf á móti mér þegar við komum vestur til ykkar ömmu. Ég mun aldrei gleyma samverustundun- um með þér, fyrst í Björnsbúð og síðar á Eyri. Ég mun aldrei gleyma þér. Þinn Dagur. Garðar Guðmundsson ✝ Einar Bene-diktsson fædd- ist í Nefsholti 5. janúar 1933. Hann lést á Landspítal- anum Hringbraut 9. júlí 2019. Foreldrar hans voru Benedikt Ágúst Guðjónsson, f. 5.8. 1896, d. 25.5 1991, og Ingibjörg Guðnadóttir, f. 27.6. 1894, d. 2.1. 1980. Einar var giftur Rögnu Ólafsdóttur, f. 5.9. 1940, og sonur þeirra er Ólafur Einarsson, f. 30.10. 1960. Útförin fer fram frá Grafarvogs- kirkju í dag, 16. júlí 2019, klukkan 13. Mig langar að minnast tengda- föður míns, Einars Benedikts- sonar, sem kvaddi okkur nýverið. Kynni okkar Einars hófumst fyrir 17 árum þegar ég kynntist Ólafi syni hans. Einar var ein- staklega hlýr, traustur og góður maður. Ég er lánsöm að hafa kynnst honum og átt með hon- um dásamlegar samverustund- ir. Góð nærvera hans og yfirveg- un var einstök og handabandið traust. Gaman var að spjalla við hann því hann var vel að sér í hinum ýmsum málum og hafði gaman af að segja okkur sögur, sérstaklega frá hans æskuslóð- um. Einar hafði gaman af ferða- lögum og fórum við Ólafur með þeim heiðurshjónum í nokkur slík. Eftirminnilegust var sigl- ing sem við fórum í Karíbahaf- inu en þar naut Einar sín vel þar sem við upplifðum saman nýjar slóðir og sérstaklega þegar við heimsóttum eyjuna Jamaíka en þar fórum við í ógleymanlega ferð um eyjuna sem Einar vitn- aði oft í. Samband þeirra hjóna, Rögnu og Einars, var afar fallegt og Einar sýndi okkur fjölskyldunni ávallt mikla umhyggju. Hann var barngóður maður og það kom vel í ljós þegar hann var nálægt barnabarninu, en þá skein ást og aðdáun úr augum hans um leið og hann gaf fallegt vink. Hans nærveru verður sárt saknað. Eftir sitjum við með sorg í hjarta en eigum dýrmætan fjár- sjóð sem er minning um einstak- an mann. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hvíl í friði, elsku Einar. Jenný Davíðsdóttir. Einar Benediktsson Þorgeir tengda- faðir minn er fallinn frá – hann var hvíld- inni feginn. Þegar ég hitti Þorgeir fyrst, þá var ég búinn að þekkja Fjólu dóttur hans í tvær vikur – óvænt þurftum við gistingu á Norðurlandi, þá var ekkert annað en að heimsækja Brekkugötuna á Akureyri. Þorgeir sat í horni sínu, í blámálaða eldhúsinu, með kaffi- bolla á fallegri undirskál. Hann spurði mig hvað ég gerði og hver mín stefna væri í lífinu. Hann sýndi því mikinn áhuga og fannst greinilega mjög jákvætt þegar ég sagðist hafa áhuga á vísindum. Ég komst reyndar að því nýlega að á sínum tíma varð Þorgeir sér úti um efni um efnafræði til að dýpka skilning sinn á mínu fagi. Þetta þótti mér mjög vænt um, þarna sýndi hann áhuga á starfi mínu enda ræddum við mikið saman um mál sem tengdust raun- og heilbrigðisvísindum. Þetta er jafn- framt ágætt dæmi um fróðleiks- þorsta Þorgeirs, metnað og for- vitni vísindamannsins. Þorgeir hafði mikinn áhuga á list, hvort sem var myndlist, tón- list eða bókmenntir, og var fróður um sögu. Vinnuherbergið góða, þar sem hann gat setið tímunum saman og grúskað, er gott dæmi um þennan mikla áhuga. Þorgeir var jafnframt góður penni og var reglulega beðinn að yfirfara texta, skrifa greinargerðir og fleira. Í einu af þeim verkefnum sem Þor- geir tók að sér tengdist saman áhugi hans á sögu og læknisfræði, en þar fór hann m.a. í gegnum sjúkraskýrslur Jónasar Hall- grímssonar til að komast að lík- legu banameini hans. Helsta ástríða Þorgeirs var samt sem áður ljóðaskrif. Hann notaði ljóð sem tjáningarform og skrifaði fjöldann allan af ljóðum um ævina. Á efri árum tók hann þá ákvörðun að safna helstu ljóð- um sínum saman og gaf alls út fjórar ljóðabækur, sú fyrsta var gefin út af Læknafélagi Íslands, síðan komu út eftir hann þrjár bækur eftir að hann settist í helg- an stein. Mér er minnisstætt hvernig hann sýndi tónlistarnámi barna minna áhuga og mætti nær und- antekningarlaust ásamt Kristjönu á hádegistónleika í tónlistarskóla þeirra. Þorgeir notaði m.a. lífs- Þorgeir Þorgeirsson ✝ Þorgeir Þor-geirsson fædd- ist 1. ágúst 1933. Hann lést 20. júní 2019. Þorgeir var jarð- settur 12. júlí 2019. reynslu sína sem efnivið í ljóðabækur sínar og eru nokkur ljóð þar sem barna- börnin hafa veitt honum innblástur, bæði úr tónlistar- námi þeirra og hversdagsleikanum. Eitt ljóð úr Dags- forminu þykir mér einna vænst um, sem lýsir atgangi dóttur minnar við að sparka af sér stígvélum úr fangi mínu, þriggja ára gömul. Stígvél Þegar ég kom heim voru tvö lítil stígvél á tröppunum, ég get ekki gleymt því, tvö lítil stígvél, hlið við hlið rauð og blá með gulri rönd, númer 22, og mér varð hugsað til þess að sú litla er vön að sparka þeim af sér svo sokkarnir fjúka með, ákefðin leynir sér ekki og glóð augnanna, þetta og ótal margt annað hafa tvö lítil stígvél hlið við hlið að segja mér. (Þorgeir Þorgeirsson) Þorgeir var lúmskur húmoristi sem gat séð spaugilegu hliðina á flestu. Síðasta bókin var ekki ljóðabók í þeim skilningi, heldur eins konar samtalsbók milli öld- ungs og æskunnar, þar kemur húmor Þorgeirs glöggt fram. Ég man að hann átti það til að sitja og horfa á samskipti barna sinna og barnabarna með ákveðnu brosi, greinilegt var að hann sá eitthvað sem honum þótti afar merkilegt, en um leið afar bros- legt. Aðstæður leiddu til þess að við Fjóla bjuggum hjá Þorgeiri og gátum sinnt honum áður en hann fór á hjúkrunarheimili. Þrátt fyrir veikindi hans var alltaf stutt í húmorinn. Hann hélt sinni ein- kennandi kurteisi og hófsemi, vildi helst ekkert láta hafa fyrir sér. Heiðarlegri mann er erfitt að finna. Minning um Þorgeir lifir í huga okkar, blessuð sé minning hans. Trú Ég trúi á fegurð tilveru sálar uppljómun hugans, samhug hárra hnatta alvídd (Þorgeir Þorgeirsson) Baldur Bragi Sigurðsson. Hjartans þakkir fyrir hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, HAFSTEINS STEINSSONAR Sérstakar þakkir fá Hera og heimaþjónusta Reykjavíkur fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Kristín Þórdís Davíðsdóttir Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR ÖNUNDARDÓTTUR frá Neskaupstað. Minningin er ljós í lífi okkar. Bjarni Gunnarsson Gerður Gunnarsdóttir Salóme Rannveig Gunnarsd. Þorkell Guðmundsson Kristján Gunnarsson Hrafnhildur H. Rafnsdóttir Haraldur Gunnarsson Kolbrún Jónsdóttir Kristjana Una Gunnarsdóttir Kristján Hjálmar Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.