Morgunblaðið - 16.07.2019, Blaðsíða 32
Kvartett söngkonunnar Önnu Sól-
eyjar kemur fram á Kex Hosteli í
kvöld kl. 20.30. Sveitina skipa, auk
Önnu Sóleyjar, Mikael Máni
Ásmundsson á gítar, Snorri Skúla-
son á kontrabassa og Magnús
Trygvason Eliassen á trommur. Á
efnisskránni eru meðal annars öll
sungnu lögin af plötunni Save Your
Love For Me. Aðgangur er ókeypis.
Kvartett Önnu Sóleyjar
leikur á Kex í kvöld
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Leikið var í efstu deildum karla og
kvenna í knattspyrnu í gærkvöld
þar sem kvennalið Vals vann meðal
annars fyrsta deildarsigur sinn á
Akureyri í níu ár og Stjarnan hefur
ekki skorað síðan í maí. Grinda-
víkurlið karla gerði svo sjöunda
jafntefli sitt í deildinni þegar ÍA
kom í heimsókn og Víkingur R. og
Fylkir skildu einnig jöfn. »26-27
Jafnt karlamegin en
öruggir kvennasigrar
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir,
landsliðskona í handknattleik frá
Selfossi, kveðst hafa ákveðið að
taka stórt stökk og skella sér í
djúpu laugina með því að semja
við franska félagið Bourg-de-
Péage. Hún fór á sína fyrstu æf-
ingu í gær. „Ég vil fara aðeins út
úr þægindaramm-
anum og sjá
hvort ég verði
ekki betri fyrir
vikið,“ segir
Hrafnhildur
Hanna m.a. í
ítarlegu
viðtali á
íþróttasíð-
um blaðs-
ins í dag.
»25
Skellti sér í djúpu
laugina í Frakklandi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Danir unnu Íslendinga 14:2 í lands-
leik í fótbolta fyrir nær 52 árum.
Kylfingurinn Nökkvi Gunnarsson,
Plane Truth og PGA-golfkennari hjá
Nesklúbbnum, minnti á úrslitin á
Idrætsparken í Kaupmannahöfn 23.
ágúst 1967 þegar hann varð meistari
Nesklúbbsins í meistaraflokki karla
fyrir rúmri viku. Þetta var annar
sigur hans í keppninni, en hann hef-
ur fjórtán sinnum hafnað í öðru sæti,
14:2.
„Ekki eru þetta skemmtilegar
tölur, en það var mikill léttir að sigra
loks aftur í þessu móti eftir eyði-
merkurgöngu frá 2010,“ segir
Nökkvi. Hann byrjaði að æfa golf
1990, náði fyrst öðru sæti í klúbb-
mótinu 1992 og var útnefndur
Íþróttamaður Seltjarnarness 2016.
Efnilegur fótboltamaður
Golfið var tilviljun hjá Nökkva.
Hann segir að þegar hann hafi verið
14 ára hafi hann verið á röltinu með
sett á bakinu á leið „að fikta úti á
velli“, þegar Pétur Orri Þórðarson,
þáverandi framkvæmdastjóri Nes-
klúbbsins, hafi boðið honum far.
„Hann sagði mér að hann vantaði
mann í vinnu og réð mig á leiðinni,“
rifjar Nökkvi upp. „Ég hef nánast
verið í vinnu hjá klúbbnum síðan.“
Nökkvi fórnaði fótboltanum fyrir
golfið. „Ég hef stundum séð eftir því
að hafa hætt í fótboltanum vegna
golfsins en ég hef lært að sættast við
það með árunum,“ segir Nökkvi.
„Ég er enn að keppa í golfi en væri
fyrir löngu hættur að spila fótbolta.
Ég fékk golfbakteríuna og hætti að
hafa mig á fótboltaæfingar vegna
þess að ég tímdi ekki að sleppa því
að vera í golfi. Þetta var ekki með-
vituð ákvörðun, það bara gerðist.“
Til að byrja með fólst vinnan í að
slá grasið og hirða völlinn. Það varð
til þess að þegar Nökkvi var 17 ára
fór hann og lærði umhirðu golfvalla í
Skotlandi. „Ég vann síðan áfram á
þessu sviði en fór svo að fara á golf-
námskeið og byrjaði að kenna 25
ára. Síðustu ár hefur fátt annað
komist að, ég hef farið á kennara-
námskeið árlega, bæði í Bandaríkj-
unum og víðar, og stundað kennsl-
una af kappi.“
Jim Hardy, einn þekktasti golf-
kennari í Bandaríkjunum, sem rek-
ur meðal annars golfskólana The
Plane Truth, hefur leiðbeint
Nökkva, sem þýddi fyrir nokkrum
árum bók eftir meistarann, Bættu
boltaflugið. Fyrir jólin í fyrra kom út
bókin GæðaGolf, handbók kylfings-
ins eftir Nökkva. „Ég skrifaði þessa
bók fyrir hinn almenna kylfing,“
segir hann.
Vegna vinnunnar hefur Nökkvi
ekki mikinn tíma til þess að keppa,
en hann segist alltaf æfa vel. „Ég
spila ekki nema einu sinni til tvisvar
í viku og þetta var annað mótið mitt í
sumar, en ég slæ kúlur reglulega.“
Hjónin Nökkvi og Ellen Rut
Gunnarsdóttir eignuðust dótturina
Söru Aþenu fyrir rúmu ári. „Þetta er
kraftaverk,“ segir hann og lítur
stoltur á dótturina, sem fer stundum
með þeim á golfvöllinn. „Við vorum
búin að vera saman í 25 ár og höfð-
um reynt allt sem við gátum til að
eignast barn, en svo kom hún bara
náttúrulega fyrir rúmum 13 mán-
uðum og það er dekrað við hana.“
Sara Aþena þarf sinn tíma en
Nökkvi vill ekki vera með 14:2 á bak-
inu lengur en þörf krefur og stefnir
á að vera ótengdur yfir 50 ára minn-
ingunni að ári. „Næsta skref á þess-
um vettvangi er að breyta tölunum,
14:3 hljómar mun betur!“
Ekki bara 14:2 í boltanum
Morgunblaðið/Eggert
Nesklúbburinn Nökkvi Gunnarsson, Plane Truth og PGA-golfkennari.
Kylfingurinn Nökkvi Gunnarsson hefur fjórtán sinnum
orðið í öðru sæti í móti Nesklúbbsins og tvisvar sigrað
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 70 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-