Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 14

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Erfitt geturverið aðátta sig á því hvað meirihlut- anum í Reykjavík gengur til í herferð sinni gegn einka- bílnum. Í þeim efn- um virðast ekki vera til nein mörk. Það birtist nú síðast í furðulegri deilu vegna breyt- inga á umferðarlögum í þá veru að hreyfihamlaðir eigi að fá heimild til að aka á göngu- götum. Í Morgunblaðinu í gær verst fulltrúi meirihlutans með því að segja að borgin hafi ekki fengið næga aðkomu að gerð laganna, vill fara aðrar leiðir og bendir á að ekki sé komið til móts við hreyfihamlaða með því að hleypa bílum inn í Kringluna. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, hefur tekið upp málstað hreyfi- hamlaðra og lagði í fyrrahaust fram tillögu um að handhafar stæðiskorta fengju heimild til að aka á göngugötum. Kolbrún kvaðst í Morgun- blaðinu í gær ekkert hafa á móti göngugötum, en hún væri fylgjandi því að hreyfihamlaðir hefðu þar aðgengi. „Ég fagna því að þetta hafi farið í gegn hjá löggjafanum af því að ég fékk ekki áheyrn hjá borg- inni,“ sagði Kolbrún. „Mér fannst mjög skrýtið hve rosa- lega neikvæð þau voru þegar ég lagði þetta fram.“ Ýmislegt hefur verið gert til að þrengja að bílnum í borginni. Í stað þess að greiða fyr- ir vegfarendum í gatnakerfi, sem var skipulagt þeg- ar umferðarþungi var sýnu minni eru götur þrengdar og akreinum fækkað. Nauðsynlegar framkvæmdir eru látnar sitja á hakanum í þeirri von að þrengslin á göt- unum verði svo mikil að borgarbúar hætti að keyra. Þess í stað eru peningar settir í Strætó án þess að það hafi haft nokkur áhrif á fjölda far- þega. Öngþveitið á götunum á annatíma vex hins vegar nán- ast dag frá degi (án þess að hér verði látið undan orðaleiks- freistingu á kostnað borgar- stjóra). Skipulagið í miðborginni snýst ekki um að gera þeim, sem eru á einkabílum, auðvelt fyrir. Þetta bitnar ekki síst á þeim, sem erfitt eiga með að fara ferða sinna fótgangandi. Nokkur dæmi eru um að versl- unum, sem lengi hafa haft að- setur í miðbænum, sé lokað og þær færðar þangað, sem auð- veldara er að leggja og komast að. Það segir sína sögu. Stríðið gegn einkabílnum er þekkt stærð á forgangslista meirihlutans í borginni, en steininn tekur úr þegar blásið er í herlúðra gegn hreyfihöml- uðum bílstjórum. Borgin á ekki bara í stríði við einkabíl- inn, heldur líka hreyfihamlaða bíl- stjóra} Skrýtnar áherslur Jafnræði ergrundvallar- atriði þegar ríkið leggur skyldur og gjöld á fyrirtæki og atvinnurekstur. Ber þá að gæta þess að skekkja ekki sam- keppnisstöðu og passa upp á að hygla ekki einum umfram ann- an. Í Morgunblaðinu í gær kvarta bjórframleiðendur undan því að hærri gjöld séu lögð á bjór en vín. Ríkið heimtar bæði áfeng- isgjald og virðisaukaskatt af áfengi auk álagningar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Áfengisgjaldið er miðað við styrkleika drykkjarins, en ekki verð. Um leið er gerður grein- armunur á því hvort um bjór, vín eða sterka drykki er að ræða. Við það kemur upp sú an- kannalega staða að hærra áfengisgjald er tekið af bjór heldur en ávaxtasíder þótt áfengismagnið sé það sama. Þetta eiga innlendir bjórfram- leiðendur í harðri samkeppni við erlenda framleiðslu erfitt með að skilja, sem vonlegt er. Áfengi veldur miklu tjóni í ís- lensku samfélagi. Hárri gjaldheimtu af áfengi er ætlað að draga úr áfengisneyslu og minnka þetta tjón. Látum vera að oft virðist trúin á fælingar- mátt gjaldanna ekki meiri en svo að gert er ráð fyrir hærri tekjum í ríkissjóð þegar gjald- ið er hækkað. Ef ráðstöfunin virkaði ættu tekjurnar auðvit- að að minnka. Framleiðsla á bjór hefur tekið rækilega við sér hér á landi á undanförnum árum. Sérstaklega á það við um svo- kallaðan handverksbjór. Dýr- ara getur verið að framleiða bjór með þeim hætti. Hver eru rökin fyrir því að hærra áfengisgjald er lagt á bjór en vín? Er þetta einhver arfleifð frá því að bjórinn var leyfður fyrir 30 árum? Erfitt er að sjá hvers vegna ríkisvaldið sér ástæðu til að haga gjaldheimtu þannig að hún sé sérstaklega íþyngjandi fyrir þessa inn- lendu framleiðslu. Mishátt áfengisgjald skekkir samkeppni}Ójafnræði í skattheimtu E r ný löggæsluáætlun ríkisstjórn- arinnar ákall á frekari fordóma í fíkniefnamálum? Baráttan við fíkniefnavand- ann, bæði gagnvart löglegum og ólöglegum efnum eins lyfseðilsskyldum efnum, heldur áfram. Stefna sem mörkuð var 1997 um fíkniefnalaust Ísland árið 2000 gekk ekki upp og kom fáum á óvart. Á dögunum birti dómsmálaráðuneytið lög- gæsluáætlun fyrir árin 2019 til 2023 þar sem meðal annars eru skilgreindar stefnur í vímu- efnamálum. Í áætluninni er lögð mest áhersla á að koma í veg fyrir innflutning, framleiðslu og sölu efna. Ekki er að sjá hvaða mælikvarða á að nota til að meta árangurinn af þeirri stefnu. Í fréttum var Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði, spurður út í þessa löggæslu- áætlun. Þar minntist hann einmitt á að það skorti hvaða mælikvarða eigi að nota til að mæla árangur þessarar áætlunar. Erlendar rannsóknir sýni að haldlagning jafn- vel stórra sendinga af fíkniefnum hafi sáralítil áhrif á markaðinn. Þau séu í mesta lagi tímabundin. „Það er að segja, efnin gæti skort í stuttan tíma og það gæti líka hækkað verð efnanna og það bitni illa á þeim sem eiga um sárt að binda vegna fíknar, ekki síst þeim sem sprauta sig í æð. Síðan er þetta fljótt komið í sama farið aftur. Það virð- ist aldrei vanta fíkniefni á markaðinn og alltaf framboð enda eftirspurnin og hagnaðarvonin mikil,“ segir Helgi. Og áfram í viðtalinu segir Helgi: „Það skortir í áætlunina umfjöllun um fíklahópinn, það er að segja hvað eigi að gera í vanda þess hóps, horfa ætti til vanda hópsins á grundvelli heilsuverndar í stað þess að ýta fíklum út í jaðar samfélagsins án eftirlits. Það stingur í augun að refsa ein- staklingum fyrir sjúkdóm. Það er þar sem ég vildi sjá breytingar gerðar í dag. Það er Al- þingi sem ber ábyrgð á að breyta fíkniefnalög- gjöfinni. Víða erlendis sjást merki um breyttar stefnur í málaflokknum sem löggjafinn ætti að líta til,“ segir Helgi að lokum. Biðlistarnir á Sjúkrahúsið Vog hafa verið um 500 til 600 manns undanfarin ár og á þeim biðlista eru fíklar sem eru jaðarsettir í sam- félaginu meðal annarra. Árangur starfsfólks á Sjúkrahúsinu Vogi eru viðurkenndur og nær sú viðurkenning langt út fyrir landsteinana. Það er löngu kominn tími til að þeirri starf- semi sé gert hærra undir höfði af hinu opinbera. Fólk á biðlistanum er að deyja að völdum fíknisjúkdómsins og við því þarf að bregðast strax. Allir sjúkdómar eru alvarlegir, misjafnlega þó. Virkur fíkill eða alkóhólisti er sjúklingur sem ber að meðhöndla sem slíkan og hefur rétt á læknis- þjónustu eins og hver annar sjúklingur, burtséð frá því hvort viðkomandi hafi neytt löglegra eða ólöglegra fíkni- efna. Þetta er dauðans alvara og ætti að vera fordómalaus. Sigurður Páll Jónsson Pistill Fíkn virðir ekki landamæri boða og banna Höfundur er þingmaður Miðflokksins, NV. sigurdurpall@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Allir geta minnkað líkurnará að fá heilabilun með þvíað lifa heilbrigðu lífi,einnig þeir sem koma úr fjölskyldum þar sem heilabilun er arfgeng. Á vefsíðu breska ríkis- útvarpsins, BBC, er fjallað um nið- urstöður rannsóknar sem gerð var í háskólanum í Exeter og kynnt á al- þjóðlegri ráðstefnu Alzheimer- samtakanna. 196.383 einstaklingar á aldrinum 64 til 80 ára tóku þátt í rannsókninni. Tekin voru DNA-sýni úr þátt- takendum og kannað hvort þeir ættu á hættu að fá heilabilun vegna arfgengi. Í ljós kom að 18 af hverj- um 1þ000 sem báru með sér arf- genga áhættu lifðu óheilbrigðu lífi. Með heilbrigðum lífsstíl meðan á rannsókninni stóð lækkaði þetta hlutfall í 11 af hverjum 1.000 þátt- takendum. Rannsakendur segja að þriðj- ungslækkun gæti virst lítil, en taka verði tillit til þess að líkur á minnis- glöpum hjá þeim sem eru 60 ára séu minni en þeirra sem nálgast 80 árin. Í umfjöllun BBC er vitnað í David Llewellyn, sérfræðing í öldrunar- rannsóknum við læknaháskólann í Exeter í Bretlandi, sem segir að niðurstöðurnar megi heimfæra upp á hundruð eða þúsundir manna, en taka verði með í reikninginn að með aðferðafræði rannsóknarinnar sé ekki hægt að fullyrða að niðurstöð- urnar séu réttar. Þær séu hins veg- ar í takt við niðurstöður annarra rannsókna sem m.a. hafa birst í The Journal of the American Medical og ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO. Fiona Car- ragher, talsmaður bresku Alzheimersamtakanna, brást við niðurstöðum rannsóknarinnar með þeim orðum að það væri fátt mik- ilvægara en að vita hvernig draga mætti úr líkum á heilabilun, ekki síst í ljósi þess að á þriggja mínútna fresti bætist einn Breti í hóp heila- bilunarsjúklinga. Heilbrigt og óheilbrigt Það að stunda líkamsrækt, reykja ekki, borða þrjá skammta af grænmeti og ávöxtum á dag, neyta fisks tvisvar í viku og sneiða hjá unnum matvörum flokkast undir heilbrigðan lífsstíl. Aftur á móti telst það óheilnæmur lífsstíll að stunda ekki reglulega líkamsrækt, reykja, borða fæði sem inniheldur minna en þrjá skammta af ávöxtum og grænmeti á viku, borða tvo eða fleiri skammta af unnu kjöti og rauðu kjöti á viku og drekka í kringum einn og hálfan lítra af bjór á dag. Pálmi Jónsson öldrunarlæknir segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki náð að kynna sér þessa rann- sókn séu niðurstöðurnar í takt við það sem búast mátti við. Þær sýni í raun og veru að ef einstaklingur fær góð gen í vöggugjöf getur hann kannski leyft sér óheilbrigðan lífs- stíl. Sá sem er ekki jafn heppinn og fæðist með óhagstæð gen getur bætt fyrir það með því að temja sér heilbrigðari lífsstíl. Pálmi segir að það sem komi fyrir okkur sé venju- lega samspil erfðaþátta og lífsstíls. „Sumt af því sem er veikt í genabúnaði okkar reynir ekki á ef við leggjum ekki álag af því tagi á líkamann. Ef einstaklingur veit að hann er í aukinni áhættu hefur hann aukinn hvata til þess að temja sér góðan lífsstíl. Þeir sem eru með góð gen hafa líka hvata til að til- einka sér hann,“ segir Pálmi, sem telur niðurstöður rannsókn- arinnar almennt skyn- samlega nálgun á lífið og tilveruna sem sýni sig að skili árangri í rann- sóknum. Heilbrigt líf minnkar líkur á heilabilum Á doktor.is er heilabilun skil- greind sem heilkenni sjúkdóma í heila sem leggst einkum á aldrað fólk, en dæmi eru um að fólk á fertugs- og fimmtugs- aldri fái þessa sjúkdóma. Ein- kenni heilabilunar eru fyrst og fremst minnistap, erfiðleikar einstaklingsins við að átta sig á umhverfi, tjá sig eða skilja aðra og framkvæma ýmsar at- hafnir daglegs lífs, svo sem að klæðast, borða og snyrta sig. Á vef Landspítala kemur fram að í 70% tilfella orsakast heilabilun af hrörnunar- sjúkdómi í heila, sem getur t.d.verið Alz- heimer, Lewy- sjúkdómurinn, framheilabilun eða aðrir sjald- gæfari hrörn- unar- og æða- sjúkdómar. Hrörnunar- sjúkdómur HEILABILUN Pálmi Jónsson Heilbrigði og mismunandi lífsstíll Undir heilbrigð- an lífsstíl flokkast ■ Að stunda líkamsrækt a.m.k. 2,5 klst á viku ■ Að mataræðið sé samansett af meira en þremur skömmtum af ávöxtum og grænmeti á dag, fiski tvisvar í viku og að unnar kjötvörur séu varla snertar Óheilbrigður lífsstíll ■ Reykingar ■ Að stunda ekki reglulega líkamasrækt ■ Borða fæði sem inniheldur minna en þrjá skammta af ávöxtum og grænmeti á viku ■ Borða tvo eða fleiri skammta af unnu kjöti og rauðu kjöti á viku ■ Drekka í kringum 1,5 lítra af bjór á dag ■ Að reykja ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.