Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Líkt og greint var frá um helgina var
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, kjörinn varafor-
maður bankaráðs asíska innviðafjár-
festingarbankans (AIIB). Kínverjar
höfðu forystu um stofnun bankans,
sem hóf starfsemi í janúar 2016. Í
fréttaskýringu The Guardian segir að
AIIB hafi verið stofnaður til höfuðs
hinum svokölluðu „Washington-
stofnunum“, þar á meðal Alþjóða-
bankanum og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum, til þess að mæta betur
auknu vægi Kínverja í heims-
búskapnum.
Ísland var á meðal 57 stofnríkja AI-
IB ásamt öllum hinum Norðurlanda-
ríkjunum en eftir aðalfundinn sem
haldinn var á föstudag og laugardag
eru meðlimir bankans orðnir 97. Á
meðal þjóða sem ekki eiga aðild eru
Bandaríkin og Japan. AIIB var stofn-
aður utan um samstarf þjóða til þess
að mæta þeirri innviðafjárfestingar-
þörf sem fyrir hendi er í Asíu. Er
henni ætlað að styrkja tengingar og
hagræna þróun á svæðinu og styðja
þannig við hagvöxt og aðgengi íbúa að
grunninnviðum að því er fram kemur
á vef stjórnarráðsins.
Aðild veitir aukin tækifæri fyrir
íslenskt viðskiptalíf í Asíu
Við stofnun bankans í ársbyrjun
2016 sagði á vef stjórnarráðsins að að-
ild Íslands að innviðafjárfest-
ingarbankanum myndi „styrkja enn
frekar góð samskipti Íslands og Asíu-
ríkja og styðja við nýja vaxtarbrodda
á viðskiptasviðinu sem getur þýtt
aukin tækifæri fyrir íslenskt við-
skiptalíf í Asíu, auk þess að gera Ís-
land sýnilegra á þessu stærsta vaxt-
arsvæði heimsins“.
Í ríkisreikningi fyrir árið 2018 sést
að samtals nemur erlent stofnfé Ís-
lands í stofnunum og sjóðum erlendis
í lok árs 2018 um 10,7 milljörðum
króna. Stærstur hluti af þeirri upp-
hæð hefur komið í hlut Alþjóðafram-
farastofnunarinnar (IDA) eða tæpir
sex milljarðar, en framlag Íslands á
árinu 2018 til IDA nam 716 milljón-
um. Þar sést einnig að fyrir árið 2018
hafi framlag Íslands til AIIB á árinu
2018 verið 86 milljónir. Eign Íslands í
lok árs 2018 í bankanum var bókfærð
á 327 milljónir króna. Til samanburð-
ar nam eign Íslands í lok árs 2018 1,4
milljörðum í Norræna þróunarsjóðn-
um (NDF), 1,2 milljörðum króna í Al-
þjóðabankanum (IBRD) og 836 millj-
ónum í Endurreisnar- og þróunar-
banka Evrópu (EBRD).
45 verkefni í 27 löndum
Hlutafé bankans er 100 milljarðar
bandaríkjadala en bankinn hefur nú
samþykkt fjárfestingar í 45 verkefn-
um í 27 löndum fyrir samtals um 8,48
milljarða Bandaríkjadala, eða um
1.064 milljarða króna, að því er fram
kemur á heimasíðu bankans. Á vef
stjórnarráðsins segir að tvö íslensk
ráðgjafarfyrirtæki hafi komið að ný-
samþykktu jarðvarmaorkuverkefni
bankans í Tyrklandi en ekki var
greint frá því hvaða fyrirtæki það
voru. Lán bankans vegna verkefnis-
ins nemur allt að 200 milljónum
Bandaríkjadala, eða rétt rúmlega 8,5
milljörðum króna. Verður það nýtt til
þess að fjármagna verkefni er tengj-
ast endurnýjanlegum orkugjöfum á
borð við vatns-, vind- og sólarorku,
verkefni sem snúa að bættri nýtingu á
orku, en lánið fjármagnar einnig upp-
byggingu innviða á sviði samgangna,
vatnsveitna, orkuflutnings og fjar-
skipta. Stærsta lánveiting bankans,
um 600 milljónir bandaríkjadala árið
2018, var einnig veitt til Tyrklands, til
gerðar neðanjarðargasgeymslu við
Tuz Golu til þess að auka orkuöryggi.
Óverulegt framlag Íslands
AFP
Innviðafjárfestingar Frá árinu 2017 hefur asíski innviðafjárfestingarbank-
inn komið að níu verkefnum sem snúa að uppbyggingu innviða á Indlandi.
Um 400 milljónir króna hafa runnið frá Íslandi til asíska innviðafjárfestingar-
bankans frá stofnun Hefur skuldbundið sig til að leggja allt að 2,3 ma í bankann
AIIB
» Framlag Íslands til AIIB á
þessu ári nemur 86 milljónum
króna. Samtals nemur framlag
Íslands til bankans 401 milljón
króna.
» Við stofnun bankans skuld-
batt Ísland sig til að leggja
honum allt að 2,3 milljarða
króna til í stofnfé.
» Það kann að greiðast út yfir
langt tímabil.
unum og víðar um heiminn áður
en vélarnar fá að taka á loft að
nýju. Ekki hefur verið gefin út
nákvæm dagsetning til þessa um
hvenær búist er við að flugbann-
inu verði aflétt. Hins vegar gaf
Icelandair Group, sem á sex vélar
af þessari tegund, út að það gerði
ekki ráð fyrir að taka þær í notk-
un fyrr en í lok október. Sam-
kvæmt upplýsingum frá fyrir-
tækinu er enn unnið eftir þeirri
línu að vélarnar verði komnar í
notkun fyrir lok þessa árs.
Ósennilegt er nú talið að kyrr-
setningu 737 MAX-véla flug-
vélaframleiðandans Boeing verði
aflétt á þessu ári. Þetta hefur
Wall Street Journal eftir heimild-
armönnum innan úr bandaríska
stjórnkerfinu. Þannig munu fleiri
atriði en áður var talið standa út
af borðinu svo að fulltryggt sé
talið að hugbúnaður tengdur
stjórnkerfi vélanna sé fullkom-
lega öruggur. Þá mun það taka
nokkurn tíma að fá heimildir
flugmálayfirvalda í Bandaríkj-
Stefnir í mun lengri kyrrsetningu
MAX-vélarnar ekki í loftið á árinu
AFP
Kyrrsetning Icelandair átti að fá þrjár vélar á þessu ári til viðbótar við þær
sex sem þegar hafa verið afhentar. Þær standa óhreyfðar í Bandaríkjunum.
● Í kaupum Berjaya Property Ireland
Limited á Icelandair Hotels og tengdum
fasteignum fylgdu ekki fasteignir þær
sem til stendur að opna nýtt hótel í við
Austurvöll árið 2020. Þetta kemur fram
í sérstakri tilkynningu frá Icelandair
Group sem send var í gegnum Kauphöll
Íslands í gær. Fasteignirnar, sem standa
á hinum svokallaða Landssímareit, eru í
eigu félagsins Lindarvatns ehf. sem er í
jafnri eigu Icelandair Group og Dals-
ness ehf. Síðarnefnda félagið er að
fullu leyti í eigu Ólafs Björnssonar. Dals-
nes er einnig eigandi heildsölunnar Inn-
ness. Stefnt er að opnun Curio by Hil-
ton-hótels á Landssímareitnum þegar
framkvæmdum lýkur en mikill styr hef-
ur staðið um þær á undanförnum árum.
Keypti ekki fasteign-
irnar við Austurvöll
16. júlí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.78 126.38 126.08
Sterlingspund 157.58 158.34 157.96
Kanadadalur 96.43 96.99 96.71
Dönsk króna 18.948 19.058 19.003
Norsk króna 14.723 14.809 14.766
Sænsk króna 13.413 13.491 13.452
Svissn. franki 127.38 128.1 127.74
Japanskt jen 1.1595 1.1663 1.1629
SDR 173.85 174.89 174.37
Evra 141.5 142.3 141.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.9553
Hrávöruverð
Gull 1405.6 ($/únsa)
Ál 1799.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.83 ($/fatið) Brent
● Riaan Dreyer
hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri
upplýsingatækni-
sviðs hjá Íslands-
banka. Riaan er af-
ar reyndur á sviði
tækni- og hugbún-
aðarmála, en hann
starfaði áður sem
forstöðumaður
hugbúnaðar-
þróunar hjá Arion banka og við hugbún-
aðarlausnir hjá Meniga.
Að sögn Birnu Einarsdóttur, banka-
stjóra Íslandsbanka, endurspeglar
ráðningin vilja bankans til að efla staf-
rænar lausnir og grunnkerfi.
Íslandsbanki fær Riaan
Dreyer til liðs við sig
Riaan
Dreyer
STUTT