Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 10

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Hjörtur Ármann Ei- ríksson, fv. fram- kvæmdastjóri Iðn- aðardeildar Sambands íslenskra samvinnu- félaga og síðar Vinnu- málasambands sam- vinnufélaga, er látinn, 90 ára að aldri. Hjörtur lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 13. júlí sl. Hann fæddist í Reykjavík 11. nóvember 1928 og var yngsta barn hjónanna Eiríks Hjartarsonar, raf- magnsfræðings og skógræktar- frömuðar, og Valgerðar Kristínar Ármann húsfreyju sem fyrir áttu sjö dætur. Hjörtur ólst upp í Laugardalnum þar sem faðir hans hóf skógrækt en þar er nú Grasa- garður Reykjavíkur. Hjörtur tók verslunarpróf frá Verslunarskóla Íslands 1946 og fór þá til náms í Englandi og starfaði fyrir Loftleiðir í London að námi loknu. Hann nam ullarfræði við Háskól- ann í Aachen í Þýska- landi á árunum 1953- 1956. Hjörtur starfaði nær allan sinn starfs- aldur fyrir Samband íslenskra samvinnu- félaga. Hann gegndi mörgum nefndar- og ábyrgðarstörfum, m.a. fyrir ullarráð Íslands, fagráð textíliðnaðarins og iðnaðarráðuneytið. Skógrækt var honum hugleikin eins og föð- ur hans og ræktun landsins hans hjartans mál. Hjörtur Ármann var umdæmisstjóri fyrir Rótarý árið 1973 og síðar gerður að heiðurs- félaga klúbbsins. Hjörtur Ármann giftist 17. júní 1957 Þorgerði Septínu Árnadóttur, húsmóður og myndlistarkonu, f. 8. maí 1928, d. 3. maí 2002. Börn þeirra eru fjögur, barnabörn átta og barnabarnabörn sex. Andlát Hjörtur Ármann Eiríksson SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Búsetu og starfi í dreifbýlinu fylgir að fólk þarf að geta sinnt fjöl- breyttum hlutverkum og gengið fumlaust í verkefnin sem upp koma hverju sinni. Taka því sem að hönd- um ber, enda enginn annar sem gríp- ur boltann,“ segir Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, hjúkrunarstjóri við heilsugæsluna á Kirkjubæjar- klaustri. Þar eystra hafa á síðustu misserum orðið nokkur alvarleg slys svo manntjón hefur hlotist af. Í að- gerðum á vettvangi þar hefur Auð- björg verið í aðalhlutverki, hjúkr- unarfræðingurinn sem 17. júní sl. fékk riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu „fyrir framlag til heil- brigðis- og björgunarstarfa í heima- byggð,“ eins og komist var að orði. Bið eftir hjálp er alltaf löng Þann 27. desember 2017 valt rúta í Eldhrauni skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur; í því slysi lét- ust tveir og tíu slösuðust alvarlegra. Nákvæmlega sama dag í fyrra létust svo þrír og fjórir hlutu alvarleg meiðsl þegar jeppi fór út af hring- veginum á einbreiðri brú yfir Núps- vötn á Skeiðarársandi. Í báðum þessum tilvikum kom að málum björgunarlið víða að, en fyrst á stað- inn var fólk úr héraði. Kemur þá að þætti Auðbjargar, sem starfað hefur á Kirkjubæjarklaustri síðastliðin tólf ár. Hún flutti á svæðið árið 2007 og býr á Maríubakka í Fljótshverfi. Þaðan af bæ er Bjarki Vilhjálmur Guðnason, eiginmaður Auðbjargar, og eiga þau þrjú börn. „Í dreifbýli er bið eftir fyrstu hjálp alltaf löng. Sérhæfðar björgunar- aðgerðir og fyrstu viðbrögð eru á höndum fárra. Ég er reyndar lán- söm að hafa fjölbreytta menntun sem hentar vel; það er að vera menntuð bæði sem hjúkrunarfræð- ingur, ljósmóðir og sjúkraflutn- ingamaður. Að mínu mati eru for- réttindi að starfa í héraði, það eru fjölbreytt og margvísleg verkefni sem þarf að takast á við. Þetta er ákveðinn lífsstíll,“ segir Auðbjörg. Óvissan gerir starfið heillandi Verkefnin á Heilsugæslunni á Klaustri segir Auðbjörg annars vera mjög fjölbreytt. Þangað komi fólk vegna veikinda, smávægilegra sem alvarlegra, og til að leita hjálpar eftir slys af af öllum stærðargráðum. „Þetta er blanda af almennri heilsu- gæslu og fyrsta viðbragði í neyð. Maður veit aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér – og vissulega gerir sú óvissa starfið á sinni hátt heillandi.“ Í umfangsmiklum verkefnum og slysum koma margir að aðgerðum, svo sem hjúkrunafræðingar og læknar, sjúkraflutningamenn, lög- regla, björgunarsveitarfólk og fleiri. Er þá unnið eftir skipulagi sem al- mannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra hefur innleitt, sem gerir alla vinnu skilvirkari og þar með örugg- ari. Allir hafa sitt ákveðna hlutverk og tala sama tungumál, að sögn Auð- bjargar. „Oft er það sama fólkið sem maður fer með í útköll; svo sem lögreglu- þjónar, björgunarsveitarfólk, sjúkrabílstjórar og fleiri. Vissulega reyna svona mál á alla en skila líka því að við byggjum öll á sameigin- legri reynslu sem nýtist í næsta út- kalli. Samvinna og traust hefur ein- kennt alla vinnu en það er lykilatriði ef árangur á að nást. Í erfiðum að- stæðum á vettvangi slysa eru þá til staðar tengsl og virðing og af því skapast drifkraftur sem drífur okkur til að leysa verkefnin og sinna þeim með sóma,“ segir Auðbjörg Brynja, sem telur svonefnda viðrunarfundi sem jafnan eru haldnir eftir um- fangsmiklar aðgerðir vera mjög mik- ilvæga. Þar fái allir tækifæri til að segja sitt og miðla af reynslunni. „Fólk sem tekur þátt í svona að- gerðum getur sótt sér handleiðslu eða sálfræðiaðstoð telji það þörf á. Að koma að alvarlegu slysi og jafnvel látnu fólki reynir á alla. Baklandið þarf því að vera traust; félagastuðn- ingurinn er því ómetanlegur og skil- ar alltaf sínu.“ Alla jafna er heilbrigðisþjónustan í dreifbýlinu sterk þó ekki séu allar margir á útkallslistanum. Við slík- ar aðstæður er reyndar björgunar- lið annars staðar frá yfirleitt nokk- uð fljótt á vettvang, en fyrsta hjálp sem heimafólk veitir skiptir samt alltaf mestu. „Það er nauðsynlegt að mann- skapurinn hafi færni og þjálfun til að takast á við krefjandi verkefni – og því þarf þjálfun, endur- menntun, góðan búnað og svo framvegis. Og sé horft til þess að verkefnunum fjölgar er mikilvægt að tryggja fastar og reglulegar af- leysingar. Að ætla fólki að vera alltaf til taks og á bakvakt gengur ekki upp til lengdar,“ segir Auð- björg Brynja um verkefnin og held- ur áfram: Hugað að slysavörnum „Síðast en ekki síst verður að huga að slysavörnum, en mörg slys verða hér við Kirkjubæjar- klaustur. Þar vitum við að vega- kerfið ber ekki þann mikla umferðarþunga sem nú er, ein- breiðar brýr eru slysagildrur og ökumenn ef til vill ekki vanir þeim akstursaðstæðum sem hér eru. Síðast en ekki síst mætti notkun öryggisbelta vera meiri enda duga slíkar slysavarnir jafn vel og hafa bjargað óteljandi mannslífum.“ Sterk þjónusta og reynt fólk FÆRNI OG ÞJÁLFUN TIL AÐ MÆTA KREFJANDI VERKEFNUM Slys Þrennt lést og fjórir slösuðust þegar bíll fór út af Núpsvatnabrú í desember sl. Baklandið þarf að vera traust  Hjúkrunarfræðingurinn Auðbjörg Bjarnadóttir stendur vaktina á Kirkjubæjarklaustri  Fékk fálkaorðuna fyrir björgunarstörf  Bið eftir hjálp er alltaf löng  Alvarleg slys hafa orðið á svæðinu Tilbúin Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir hefur fjölþætta menntun og reynslu að baki sem kemur sér vel í starfi við heilsugæsluna á Kirkjubæjarklausti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.