Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 25

Morgunblaðið - 16.07.2019, Side 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLÍ 2019 Mu-so Verð áður 159.990,- Verð nú127.990 Mu-so QB Verð áður 99.990,- Verð nú 79.990 Sumartilboð á Naim Mu-so og Mu-so QB 20% afsláttur Um helgina fór stærsta knattspyrnumót landsins fram, Símamótið hjá Breiðabliki, sem 5., 6. og 7. flokkur kvenna taka þátt í. Mótið hefur aldrei verið stærra í sniðum en í ár þar sem þátttakendur voru um 2.300 í 344 liðum frá 41 félagi. Það má þá einnig rétt ímynda sér þær þúsundir foreldra, þjálfara, sjálf- boðaliða og starfsmanna í viðbót sem að mótinu koma. Ég vil senda mikið hrós á skipuleggjendur. Þótt mörg þús- und manns hafi verið á mótinu um helgina fann maður aldrei fyrir því; skipulagið var til fyrir- myndar og dreifing viðburða um svæðið mjög góð. Það er svo sannarlega ekki sjálfgefið að halda svona viðburð, hvað þá svona vel, og maður sá í verki þann sterka félagsanda og ein- ingu sem ríkir innan Breiðabliks. Án þess væri erfitt að gera þetta að veruleika. Ég vil vitna í skrif Hákons Gunnarssonar sem birtust á stuðningsmannasíðu Breiðabliks eftir mótið þar sem hann tengir það við heimsmarkmið Samein- uðu þjóðanna. „Inntak heimsmarkmiðanna er að „allir taki þátt“ og að allir íbúar jarðar fái tækifæri til að nýta hæfileika sína á sem bestan hátt. Símamótið hefur nákvæm- lega það inntak að leiðarljósi og það var unun að horfa á gleðina og ánægju allra um helgina á Símamótinu 2019.“ Þetta finnst mér fanga vel hvað viðburður á borð við þetta mót er mikilvægur. Það var frá- bært að fylgjast með stelpunum gefa allt inni á vellinum og bæta sig greinilega með hverjum leiknum. Umfram allt virtust þær svo skemmta sér konunglega, sem að sjálfsögðu skiptir mestu máli. BAKVÖRÐUR Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is HANDBOLTI Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Handknattleikskonan Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir vildi komast út úr þægindarammanum á Selfossi þegar hún ákvað að söðla um og semja við franska A-deildarliðið Bourg-de-Péage Dróme en hún skrifaði undir samning við liðið síð- asta föstudag. Þessi 24 ára gamla stórskytta hefur verið einn besti leikmaður íslensku úrvalsdeild- arinnar undanfarin ár en hún segir að draumurinn hafi allaf verið að spila sem atvinnumaður. „Þetta er virkilega nýtt fyrir mér auðvitað því ég er búin að spila á Selfossi alla mína ævi. Ég er fyrst og fremst spennt fyrir þessu frá- bæra tækifæri og tímabilinu sem er fram undan hérna í Frakklandi. Liðið kom saman á föstudaginn síð- asta eftir sumarfrí þannig að ég var að hitta alla hjá félaginu þá í fyrsta sinn. Það var tekið mjög vel á móti mér og þetta leggst bara hrikalega vel í mig,“ sagði Hanna sem flaug út til Frakklands á föstudaginn en hún var á leið á sína fyrstu æfingu með franska liðinu þegar Morgun- blaðið heyrði í henni. „Þetta kom upp í byrjun sumars þegar forráðamenn Bourg-de- Péage settu sig fyrst í samband við umboðsmann minn. Eftir það gerð- ust hlutirnir mjög hratt og að lok- um ákvað ég að stökkva á tækifær- ið að spila í frönsku A-deildinni. Þetta lið á sér ekki langa sögu í efstu deild Frakklands og er til- tölulega nýkomið upp úr B- deildinni. Þær héldu sér uppi í fyrra en að sama skapi eru ákveðnar breytingar í gangi í leik- mannahópnum og markmið sum- arsins var að styrkja hópinn. Ég er hluti af þessum breytingum hjá lið- inu og markmiðið er að gera betur í deildinni í ár en í fyrra.“ Stóra stökkið í djúpu laugina Hanna tók þá ákvörðun að yfir- gefa uppeldisfélag sitt Selfoss síð- asta vor en hún stundar nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands, sem hefur meðal annars haldið henni hér á landi undanfarin ár. „Ég tók þá ákvörðun þegar liðið féll í vor að ég ætlaði mér ekki að vera áfram á Selfossi. Ég hefði hins vegar skoðað það að vera áfram ef við hefðum haldið okkur uppi. Þeg- ar allt kemur til alls var þetta bara fínt spark í rassinn fyrir mig per- sónulega því ég vil auðvitað ná lengra í handboltanum. Ég hef hins vegar verið í háskólanámi meðfram handboltanum þannig að það hent- aði mér ágætlega að spila á Íslandi. Ég ákvað hins vegar að taka stóra stökkið núna í sumar og skella mér út í djúpu laugina og það verður forvitnilegt að sjá hvernig mér mun ganga. Þetta er hörkudeild hérna í Frakklandi og það verður gaman að kljást við leikmennina og liðin sem spila hérna á næstu leiktíð.“ Eftirsóttur biti Hanna var markahæsti leik- maður úrvalsdeildarinnar árin 2015, 2016 og 2017 og voru mörg stór lið sem reyndu að fá hana, bæði hér heima og erlendis. „Ég var með tilboð í höndunum frá bæði liðum heima á Íslandi sem og á Norðurlöndunum. Það voru þónokkur lið sem vildu fá mig þannig að ég er í raun bara búin að liggja undir feldi síðan deildin klár- aðist að skoða mín mál. Ég taldi það hins vegar rétta skrefið fyrir mig á þessum tímapunkti á ferl- inum að fara til Frakklands. Það var mikill áhugi á Norðurlöndunum en ástæðan fyrir því að ég valdi Frakkland er einfaldlega sú að mér fannst það mest spennandi stökkið af því sem í boði var. Ég er aðeins að hoppa út í djúpu laugina hérna og það heillaði mig á einhvern hátt að sjá hvernig mér mun takast að kljást við þetta verkefni.“ Hefur fylgst með franska landsliðinu Frakkar eru ríkjandi heims- meistarar í handbolta en þótt Hanna hafi ekki fylgst neitt sér- staklega mikið með efstu deild Frakklands á undanförnum árum hefur hún fylgst vel með heims- meisturunum sem leika flestir í frönsku A-deildinni. „Ég get ekki sagt að ég hafi fylgst neitt mikið með frönsku deildinni í gegnum tíðina. Ég hef hins vegar fylgst mun meira með franska landsliðinu og flestallir leikmenn þess spila í frönsku A- deildinni. Ég hef hins vegar ekki fylgst jafn vel með deildinni og til dæmis deildunum á Norðurlönd- unum þannig að ég er spennt að kynnast þessu öllu mun betur. Ég get alveg viðurkennt það að ég var í ákveðnum þægindaramma á Sel- fossi þar sem mér leið mjög vel enda þekki ég alla þar. Það var mjög vel hugsað um mig hjá félag- inu, það voru allir boðnir og búnir að aðstoða mig hvenær sem var og það er þeim að þakka að ég er komin á þann stað sem ég er á í dag í handboltanum. Ég vil hins vegar fara aðeins út úr þæginda- rammanum, meðal annars því þar gerast hlutirnir, og sjá hvort ég verð ekki betri handboltaleikmaður fyrir vikið.“ Meiðslin skemmdu fyrir Hanna segir að draumur hennar hafa alla tíð verið að reyna fyrir sér í atvinnumennsku og hún hefði ver- ið löngu farin út ef ekki hefði verið fyrir krossbandsslit árið 2017, sem hélt henni frá keppni í tæpt ár. „Frá því að ég byrjaði í hand- bolta hefur drauminn alla tíð verið að fara út í atvinnumennsku og kljást við það. Fyrir tveimur árum meiddist ég illa þegar að ég sleit krossband en á þeim tímapunkti var ég í raun á leiðinni út að skoða aðstæður hjá öðru liði. Það fór allt út um gluggann eftir meiðslin þar sem ég var frá í heilt ár og það var erfitt tímabil fyrir mig. Ég tók því þá ákvörðun að fara í háskólanám og vera áfram á Íslandi en stefnan hefur alltaf verið að fara utan í at- vinnumennsku,“ sagði Hanna í samtali við Morgunblaðið. Tvær íslenskar landsliðskonur leika í frönsku A-deildinni í vetur því Mariam Eradze hefur verið í röðum Toulon síðustu ár og verður þar áfram. Helena Rut Örvars- dóttir hefur hins vegar yfirgefið Di- jon eftir að hafa leikið þar seinni hluta síðasta tímabils og er komin til danska B-deildarliðsins Sönder- jyskE. Á endanum reyndist fallið vera gott spark í rassinn  Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir samdi við Bourg-de-Péage í Frakklandi  Stefnan alltaf sett á atvinnumennsku  Vildi komast úr þægindarammanum Morgunblaðið/Eggert Frakkland Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir á landsliðsæfingu. Hún er komin í frönsku alpana þar sem hún leikur með Bourg-de-Péage í efstu deild Frakklands á komandi keppnistímabili.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.