Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 2

Morgunblaðið - 30.07.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Fjárfestir í heilsulind á Kársnesi  VIAD kaupir meirihluta í Geothermal Lagoons ehf.  Stefnt að opnun heilsulindar með sjávarútsýni Guðni Einarsson gudni@mbl.is Alþjóðlega upplifunarfyrirtækið VI- AD hyggst leggja 11 milljónir Bandaríkjadala (um 1,35 milljarða króna) í nýjan baðstað og heilsulind á höfuðborgarsvæðinu þar sem jarð- hiti verður nýttur. Þetta kemur fram á heimasíðu VIAD sem skráð er í kauphöllina í New York. Þar er vitn- að í Steve Moster, forstjóra VIAD, sem segir að staðurinn verði við sjáv- arsíðuna og nálægt miðborg Reykja- víkur. Dótturfyrirtæki VIAD, Pursuit, mun vinna að þessu verk- efni í samvinnu við Geothermal Lagoon ehf. Stefnt er að opnun stað- arins árið 2021. Rekur marga ferðamannastaði Fréttavefurinn Think Geoenergy greindi frá því í gær að með fjárfest- ingunni eignist VIAD meirihluta, 51%, í íslenska fyrirtækinu sem mun þróa og eiga baðstaðinn og heilsu- lindina. Pursuit mun annast það sem að gestunum snýr og nýta til þess reynslu sína af rekstri víða um heim. VIAD rekur marga ferðamanna- staði í þjóðgörðum Kanada, í Banda- ríkjunum auk þess sem það vinnur m.a. að opnun Flyover Iceland í Reykjavík. Flyover Iceland verður í sérhönnuðu 2.000 m2 húsi á Fiskislóð í Reykjavík og þar boðið upp á sýnd- arflugferð í náttúru Íslands. Frétta- vefurinn segir að frá heilsulindinni verði fagurt útsýni yfir sjóinn og til forsetasetursins á Bessastöðum. Heilsuparadís fyrir borgarbúa Eyþór Guðjónsson er stjórnarfor- maður Geothermal Lagoon, sam- kvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskatt- stjóra. Ekki náðist í hann í gær. Hann greindi Markaði Fréttablaðs- ins í nóvember 2017 frá áformum um að reisa heilsuparadís fyrir alla borgarbúa á Kársnesi í Kópavogi. Þá var rætt um baðstað, veitingarekst- ur, líkamsræktarstöð og aðra útivist- artengda afþreyingu á 34.000 m2 lóð vestast á Kársnesi. Nature Resort, einkahlutafélag Eyþórs og Jakobs Sigurðssonar for- stjóra, keypti lóðirnar Vesturvör 42- 48 af Kópavogsbæ í ársbyrjun 2017. Deiliskipulagi á svæðinu var breytt vegna áformanna. Eldri Herjólfur mun sigla aukaferð kl. 13.00 á föstudag frá Landeyja- höfn og aðra ferð kl. 11.30 á mánu- dag frá Vestmannaeyjum. Farþega- miðar verða seldir á dalurinn.is og farartækjamiðar á herjolfur.is. Þungi flutninganna um þjóðhátíð- arhelgina mun hvíla á nýja Herjólfi. „Það er aðeins verið að létta á þrýstingnum. Þetta er á þeim tíma sem flestir eru að fara yfir,“ sagði Guðbjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdstjóri Herjólfs ohf. Hann sagði að mögulega verði bætt við fleiri aukaferðum. Aukaferðunum er stillt á vaktaskipti og þurfa áhafn- irnar að lengja aðeins vaktir til að þetta gangi upp. Þegar er orðið uppselt í nokkrar ferðir fyrir farþega á föstudag og á mánudag. Ekki er orðið uppselt fyr- ir bíla. Flestir sem koma með bíla á þjóðhátíð eru með ferðavagna. Eldri ferjan tekur 517 farþega og sú nýja 540. gudni@mbl.is Báðir Herjólfarnir sigla  Aukaferðir með gömlu ferjunni á föstudag og mánudag  Orðið var uppselt fyrir farþega í nokkrar ferðir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestmannaeyjar Báðar ferjurnar, sú gamla og sú nýja, sigla um helgina. „Þetta var hlýjasti dagur sumarsins,“ sagði Haraldur Eiríks- son, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, síðdegis í gær. Heitast var á Hjarðarlandi í Biskupstungum 26,9°C og 26,7°C við Gullfoss. Á Þingvöllum mældist 25,6°C hiti. Á hálendinu var mjög hlýtt og tæplega 25 stiga hiti í Þúfuveri, á Hvera- völlum og í Veiðivatnahrauni. Haraldur sagði að mjög hlýtt hafi verið á öllu landinu í gær nema á Austurlandi þar sem var svalt í austanáttinni. Mjög hlýtt verður á landinu næstu daga, en ekki jafn hlýtt og í gær. Í dag á hitinn að fara í 23-24 stig vestan til á landinu frá uppsveitum á Suðurlandi og norð- ur í land. Búast má við svipuðu veðri á morgun. Spáð var skúrum í nótt sem leið og þeirra gæti gætt um sunnanvert landið í dag en líklega verður þurrt fyrir norðan. Í gær var út- lit fyrir að á morgun verði bjart víða á landinu en ef til vill ein- hver væta syðst. Horfur eru á ágætis veðri á fimmtudag. Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Það var við hæfi að taka sjálfu í 26°C hita við Gullfoss í gær Hlýjasti dagur sumarsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.