Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrirsjáanlegtvar þegargatnamótum Geirsgötu og Lækj- argötu/Kalkofns- vegar var breytt að þar væri verið að búa til umferðarteppu. Það hindraði borgaryfirvöld ekki í að fara þá leið sem raun ber vitni og þó að samgöngustjóri borgar- innar segi nú að tæknilega séð væri hægt að gera breytingar og færa götuna í stokk er ljóst að ekkert verður af því enda enginn vilji til að leysa umferðarhnúta. Þvert á móti eru þeir hertir við hvert tækifæri. Samgöngustjórinn svarar kvörtunum vegna ljósastýringar á þessum gatnamótum með því að þær séu endurskoðaðar ef þurfa þyki og hafi verið endur- skoðaðar einu sinni. „Við viljum auðvitað hafa þetta sem allra best fyrir alla en forgangsröðun- in er skýr,“ segir hann, og á við að aftast í röðinni komi einka- bíllinn, enda eru þeir sem ferðast með slíkum farartækjum neðstir á lista borgaryfirvalda. Á fundi borgarráðs fyrir skömmu var rætt um málefni Strætó. Tilefnið var umferðar- öngþveiti sem skapast reglulega á leiðinni frá Nauthólsvík að BSÍ. Þar hafa engar ráðstafanir verið gerðar til að liðka fyrir um- ferð og afleiðingarnar eru þær að breyta þarf leiðakerfi Strætó til að vagnarnir sitji ekki fastir með einkabílunum í heimatil- búinni umferðarstöppunni. Borgarfulltrúi Flokks fólksins leyfði sér í þessum umræðum að finna að Strætó, en slík gagnrýni er sem kunnugt er ekki heimil í Reykjavík. Þess vegna bókuðu borgarfulltrúar Viðreisnar, Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna: „Strætó hefur tekið stakkaskiptum á undanförnum árum. Farþegum fjölgar jafnt og þétt, þjónustan verður betri og betri á hverju ári og fram- tíðarsýn fyrirtækisins skýr. Borgarfulltrúar eru hvattir til að kynna sér metnaðarfulla starfsemi Strætó og strauma og stefnur í almenningssam- göngum.“ Bókun meirihlutaflokkanna er ekki aðeins full af yfirlæti og ranghugmyndum, heldur bein- línis villandi. Fullyrðingin um að farþegum fjölgi jafnt og þétt er fjarstæðukennd. Engin hlut- fallsleg fjölgun hefur orðið á notkun Strætó á síðustu árum þrátt fyrir að fé hafi verið ausið í reksturinn til að auka notkun- ina. Notkunin er í besta falli jafn lítil nú og áður en fjárausturinn hófst. Fordómarnir í garð þeirra sem kjósa að ferðast með einka- bílum innan borgarmarkanna er því miður það sem einkennir alla umræðu og alla forgangsröðun meirihlutans í borgarstjórn í samgöngu- og skipulagsmálum. Þau mál komast ekki í lag fyrr en fordómarnir fá að víkja við stefnumörkun hjá höfuðborg- inni. Hroki og rang- hugmyndir eru ekki gott veganesti við stefnumörkun} Forgangsröðun fordómanna Ríkisútvarpiðsagði frá því í gær að almenningur á Kúbu fengi nú að tengjast netinu í heimahúsum og kaupa og setja upp netbúnað í þeim tilgangi. Fram að því hefði ríkið komið fyrir búnaði til að fólk gæti tengst þráðlaust á svokölluðum heitum reitum. Tekið var fram að fólk sem vildi setja nettengingu upp heima hjá sér þyrfti að sækja um leyfi til ráðuneytis fjarskipta- mála, en þetta er aðeins hálf sag- an. Ekki var sagt frá því að það net sem almenningur á Kúbu fær nú náðarsamlegast að skoða er ekki sama netið og fólk í hinum frjálsa heimi þekkir. Aðstoðarráðherra samskipta- mála á Kúbu tjáði sig af þessu tilefni og fór ekki leynt með að netið á, rétt eins og allt annað á Kúbu, að styðja við byltinguna. Netið er að hans mati ekki hlut- laust og á að hjálpa stjórnvöldum í þeirri viðleitni að halda áfram að heilaþvo almenn- ing í landinu, þó að hann orði hugsunina ekki nákvæmlega með þeim hætti. Hann vill „mennta“ almenning til að nota netið og telur ekkert gagn í því að láta opið netið í hendur þeirra sem geti ekki greint á milli þess sem sé gagnlegt og hins sem sé skaðlegt. „Netið er ekki allt gott,“ segir hann og réttlætir með því ritskoðun stjórnvalda. Það má aldrei gleymast í um- fjöllun um Kúbu að stjórnvöld þar eru eðlisólík þeim á Vestur- löndum og í öðrum lýðræðisríkj- um. Stjórnvöld á Kúbu byggjast á hugmyndafræði sósíalismans, stefnu sem stöku Íslendingar segjast aðhyllast og fáeinir aðrir í hinum frjálsa heimi. Flestir átta sig þó sem betur fer á því að sósíalismi og frelsi einstaklings- ins fara ekki saman. Sósíalisma fylgir jafnan kúgun og ofbeldi gagnvart almenningi á sama tíma og elítan nýtur forréttinda. Kúba leyfir netið í heimahúsum, en ekki það net sem Íslendingar þekkja} Kúgunin á Kúbu S amfélag manna hefur aldrei breyst eins mikið og á undanförnum árum og áratugum. Hver áratugur und- anfarna öld hefur verið gjörólíkur þeim á undan, af bæði tæknilegum og pólitískum ástæðum. En stundum líður mér eins og draugar fyrri áratuga sæki á okkur og reyni að troða upp á okkur sínum gildum og skoðunum. Jólasaga Dickens í einhvers konar skrítinni skrumkælingu þess að við verðum að hverfa aftur til fortíðar í staðinn fyrir að læra af henni og verða betri. Það er svo óendanlega mikið sem við gætum gert betur en við höfum gert hingað til. Við gætum haft betri stjórn- sýslu, sem veit hvenær upplýsingalög gilda. Við gætum haft betri pólitík sem reynir ekki sífellt að hverfa aftur í hugmyndafræði kalda stríðs- ins og sterku leiðtoganna. Við gætum verið með nýja stjórnarskrá þar sem auðlindaákvæði tryggir að næsta kynslóð erfir alltaf auð landsins okkar, þar sem málskotsrétturinn tryggir aðkomu þjóðarinnar þegar ann- aðhvort Alþingi eða ríkisstjórnin hlustar ekki. Við ættum að hætta að hlusta á það þegar draugar fortíðarinnar reyna að tæla okkur til íhaldssemi og stöðnunar af því að þeim finnst óþægilegt að búa í breytilegum heimi. Sem dæmi þá langar mig rosalega mikið til þess að sjá krakkana mína upplifa söguna endalausu, aftur til fram- tíðar, stjörnustríð. Lesa bækurnar sem mér fannst svo spennandi þegar ég var að alast upp. Fara í sömu ferða- lögin og ég fór í þegar ég var yngri. Það sem er hins vegar eins augljóst og sólsetrið er að sá tími er liðinn. Í dag eru aðrar myndir sem ég mun ekki upp- lifa á sama hátt og krakkarnir mínir. Aðrar bækur og allt annað samfélag. Samfélag sem þau munu lifa í og móta. Dægurmenning kyn- slóðar þeirra verður ekki sama dægurmenning og ég ólst upp í sem hefur áhrif á það hvernig þeirra samskipti eru. Þau munu skilja heiminn á allt annan hátt en ég mun eiga möguleika á. Það besta sem ég get gert er að reyna að halda í við þau. Það versta sem ég get gert er að reyna að halda aftur af þeim. Þess vegna svíður það þegar draugar póli- tísku fortíðarinnar draga upp penna og skrifa um fortíð sína eins og hún skipti einhverju öðru máli en að læra af svo við endurtökum ekki sömu mistökin. Við skulum til dæmis ekki lána banka aftur gjaldeyrisvaraforðann okkar þegar við vitum að þeir peningar fást ekki endurgreiddir. Ekki kvitta aftur undir stríð til þess að fá peninga frá hernaðarbrölti. Hættum að tala um leiðréttingu skulda þegar stórir hópar fengu enga leiðréttingu skulda. Tölum ekki um sameiningar í flokkakerfinu þegar kerfið er gallað hvort sem er. Kerfi sem þjónar valdinu er slæmt kerfi. Það er kerfið sem draugar fortíðarinnar bjuggu til. Við þurfum kerfi sem þjónar fólkinu. Fyrsta skrefið í átt að slíku kerfi er ný stjórnarskrá. Björn Leví Gunnarsson Pistill Fortíðarstjórnmál Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Dómnefnd sem í síðustuviku mat Eirík Jónssonhæfastan til að gegnaembætti dómara í Lands- rétti lagði sömu forsendur til grund- vallar mati sínu og nefndin sem í hitteðfyrra skilaði mati um 15 dóm- ara, þegar Landsréttur tók til starfa, að öllu nema litlu leyti. Þetta segir Eiríkur Tómasson, fyrrverandi hæstaréttardómari og formaður dómnefndarinnar, í samtali við Morgunblaðið. Áherslur breyttust lítillega „Við fórum eftir dómum Hæsta- réttar þar sem fundið var að mati fyrri nefndar og brugðumst við því,“ segir Eiríkur og vísar til tveggja dóma Hæstaréttar frá 2017 þar sem var fundið að því einu að nefndin hefði í hitteðfyrra ekki sérstaklega lagt mat á færni hvers og eins um- sækjanda til að semja dóma. Eins og fram kemur í umsögn dómnefnd- arinnar sem birt var í seinustu viku var því brugðist við þessu og lagði nefndin sérstaklega mat á þennan þátt. Þá segir Eiríkur að áherslur í matinu hafi einnig breyst að ein- hverju leyti. Segir í umsögn dóm- nefndarinnar að mat fyrri dóm- nefndar hafi verið haft til hliðsjónar en vikið hafi verið frá því ef ástæða þótti til. „T.d. var að þessu sinni litið meira til þess en áður hvort umsækj- endur hefðu sinnt störfum, svo sem innan stjórnsýslunnar, sem að- alstarfi eða aðeins í aukastarfi, svo og hvort langur tími væri nú liðinn frá því að þeir sinntu þeim störfum sem um var að ræða,“ segir í um- sögninni. Spurður hvort hæfni umsækj- enda hafi verið einkunnasett, þ.e. reiknuð í excel-skjali eins og það sem komst í hámæli eftir að Sigríður Á. Andersen, þáverandi dóms- málaráðherra, vék í fjórum tilvikum frá mati dómnefndar árið 2017, segir Eiríkur að slíkt „vinnuskjal“ dóm- nefndar hafi verið gert, en það hafi ekki verið birt með umsögn nefnd- arinnar. Er það í takt við upplýsingalög sem kveða á um að vinnugögn séu undanþegin upplýsingarétti. Eins og víða hefur komið fram sóttu átta um stöðu nýs landsrétt- ardómara og drógu tveir umsókn sína til baka. Eftir stóðu þeir sex sem dómnefnd fjallaði um í umsögn sinni en auk Eiríks Jónssonar voru það Ásmundur Helgason, Ástráður Haraldsson, Guðmundur Sigurðs- son, Jón Höskuldsson og Jónas Jó- hannsson. Reynslan skiptir máli Ásmundur er einn fjögurra dómara sem Sigríður Á. Andersen skipaði í embætti landsréttardóm- ara þrátt fyrir að hafa ekki verið metinn meðal hæfustu af dómnefnd. Hafa fjórmenningarnir ekki verið við störf frá því að Mannréttinda- dómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið rétt staðið að skipan dómara við réttinn. Segir Eiríkur dómnefndina ekki hafa tekið afstöðu til þess hvort Ás- mundur gæti sótt um embættið heldur hefði dómsmálaráðuneytið skorið úr um það. Voru í hitteðfyrra Ástráður og Jón, auk Eiríks Jóns- sonar, metnir hæfari en Ásmundur. Var Ásmundur hins vegar af dóm- nefnd metinn næsthæfastur í þetta skiptið og segir Eiríkur Tómasson að þar hafi reynsla hans sem lands- réttardómari seinasta eina og hálfa árið vegið þungt. Nefndin brást við að- finnslum Hæstaréttar Morgunblaðið/Hanna Dómstóllinn Eiríkur Jónssson er að mati dómnefndar hæfastur til að verða landsréttardómari. Hann og Ásmundur þóttu færastir til að semja dóma. Mat á umsækjendum » Eiríkur og Guðmundur þóttu að mati dómnefndar standa framar öðrum umsækj- endum hvað varðaði menntun, en báðir hafa þeir lokið dokt- orsprófi. » Ásmundur þótti standa fremstur þegar kom að reynslu af dómstörfum, en hann hefur starfað sem landsréttardómari frá því dómstóllinn tók til starfa. » Ástráður stóð fremst að mati dómnefndar þegar kom að reynslu af lögmanns- störfum, vegna fjölbreyttra lögmannsstarfa hans í um 25 ár. » Guðmundur og Eiríkur þóttu standa best þegar kom að kennslu á háskólastigi og öðrum akademískum störfum, en báðir hafa verið prófessorar um árabil. Guðmundur á að baki lengri kennsluferil en Ei- ríkur og þótti hann því standa fremstur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.