Morgunblaðið - 30.07.2019, Blaðsíða 32
Kvartett píanóleikarans Söru Mjall-
ar Magnúsdóttur leikur á Kex host-
eli í kvöld kl. 20.30. Kvartettinn
skipa, auk Söru, Óskar Guðjóns-
son á saxófón, Valdimar Ol-
geirsson á kontrabassa og
Matthías Hemstock á tromm-
ur. Flytja þau vel valin djasslög
sem flest eiga uppruna sinn í
Skandinavíu, auk tónlistar Söru.
Aðgangur er ókeypis.
Kvartett Söru Mjallar
á Kex hosteli í kvöld
ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 211. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Þegar átta umferðir eru eftir eru
KR-ingar með tíu stiga forskot á
toppi úrvalsdeildar karla í knatt-
spyrnu. Breiðablik tapaði fyrir Vík-
ingi R. í gærkvöld og tókst ekki að
minnka forskotið niður í sjö stig. Þá
hafa nýliðar HK ekki tapað í fjórum
leikjum í röð, gerðu jafntefli við
Stjörnuna og hindruðu Garðbæinga
frá því að jafna Blika að stigum í
öðru sætinu. »26-27
Blikum mistókst að
minnka forskot KR
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
ÍR-ingar þurfa að setja saman nýtt
karlalið í körfubolta fyrir komandi
keppnistímabil. Þeir fengu silfur-
verðlaunin á síðasta Íslandsmóti en
nú er nánast allt byrjunarliðið horf-
ið á braut og Breiðhyltingar eru að
leita að mönnum til að fylla í skörð-
in. Formaður körfuknatt-
leiksdeildar ÍR seg-
ist bjartsýnn á að
félagið geti teflt
fram góðu liði í
vetur, ágæt áætl-
un sé fyrir hendi
og nú snúist málið
um að finna réttu
leikmennina. Lík-
legt er að ÍR þurfi
aðallega að leita
sér að liðsauka að
utan. »25
ÍR þarf að setja saman
nýtt lið fyrir veturinn
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sá sem tekur á móti vegfarendum
þegar komið er Kaldadal að Húsafelli
í Borgarfirði er Johann Sebastian
Bach. Svipmótið er auðþekkt í högg-
mynd Páls Guðmundssonar sem er á
stórum steini í vegbrún. „Ég held
mikið upp á Bach og spila hann oft;
sellósvítuna og hina frægu prelúdíu í
B-dúr. Sem tónskáld er Bach stór á
alla mælikvarða og hann gefur mér
endalausan kraft,“ sagði Páll á Húsa-
felli þegar Morgunblaðið tók á honum
hús á dögunum.
Tíu metra hljóðfæri
Við Húsafellskapellu er nú orðinn
til áhugaverður listastaður með
mörgum fallegum verkum. Sjá má
alls konar svipi og andlit sem Páll
hefur meitlað og höggvið í steinana í
garðinum sem umluktur er hlöðnum
vegg. Verið er að reisa byggingar á
svæðinu, en þar eru fyrir gamalt fjós
sem Páll hefur gert að listasafni og
skammt frá því pakkhús, sem áður
stóð í Englendingavík í Borgarnesi. Í
byggingunni er nú að finna stein-
hörpu Páls, en af mörgu eftirtektar-
verðu sem hann hefur skapað sem
listamaður ber hörpuna hvað hæst.
„Harpan verður stöðugt stærri.
Fyrir hvert nýtt verkefni eða tónleika
safna ég nýjum steinum og bæti við
hljóðfærið sem nú er orðið um það bil
tíu metra langt,“ segir Páll þegar
hann sýnir hljóðfærið. Í tímans rás
hefur Páll leitað uppi og fundið í nær-
umhverfi sínu líparítflísar sem tóna
má finna úr. Í vinnustofunni eru þær
lagðar á tréstokk með dúk á brík-
unum og þegar á þær er slegið með
sleglunum má heyra hina fegurstu
músík. Er hver flís einn tónn í þriggja
og hálfrar áttundar hljóðfæri.
Stutt á milli listgreina
Fyrst var leikið á steinhörpuna ár-
ið 2001, það var í listasafni Ásmundar
Sveinssonar í Reykjavík. Seinna var
leikið á hörpuna þegar Sigur Rós
flutti Hrafnagaldur Óðins – og sömu-
leiðis hefur Páll spilað á hana í Bar-
bican-listamiðstöðinni í Lundúnum, í
Þrándheimi í Noregi, í París og víðar.
Það síðasta voru tónleikar með
Kammerkór Suðurlands í Hafnar-
borg í Hafnarfirði í síðasta mánuði.
Þar söng kórinn undir stjórn Hilmars
Arnar Agnarssonar,sem einnig kom
að tóngerð þeirra 10 laga sem Páll lék
á tónleikunum.
„Samstarf okkar Hilmars Agnars
er gjöfult og gott. Við störfum í sam-
hug. Höggmyndagerð og teikning
hefur verið mitt helsta viðfangsefni
síðan ég var fimmtán ára eða svo – og
svo er tónlistin alltaf meðfram. Er
góð hvíld frá myndlistinni, en hver
sem listgreinin annars er þá er alltaf
stutt á milli þeirra og tilgangurinn
alltaf sá að gleðja og skapa,“ segir
Páll í Húsafelli.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónlist Með sleglunum slær Páll Guðmundsson á Húsafelli flísar steinhörpunnar, sem hver hefur sinn töfrandi tón.
Steinharpan stækkar
Tíu metra hljóðfæri í Húsafelli Páll myndhöggvari
reynir við mörg listform Gleði og sköpun er tilgangur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Höggmynd Bach á Kaldadal.