Morgunblaðið - 30.07.2019, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoðið
nýju
heimas
íðuna
islands
hus.is
ERTU AÐ FARA Í HESTAFERÐ ?
Þú færð hestavörurnar hjá okkur !
Sendum um allt land
www.fodur.is
Sýningin 1238 : Baráttan um Ísland
sem segir sögu Sturlungaaldarinnar
hefur nú verið opin á Sauðárkróki í
rúman mánuð, en Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
opnaði hana 14. júní sl.
Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirs-
sonar, framkvæmdastjóra sýning-
arinnar, fer starfsemin mjög vel af
stað og aðsóknin verið umfram
væntingar.
„Aðsókn hefur verið mjög góð,
áhugi fólks á sögunni er mikill og
margir eru forvitnir að prófa sýnd-
arveruleikatæknina. Viðbrögð gesta
eru mjög jákvæð og það er mjög
skemmtilegt að heyra fólk lýsa
þeirri upplifun að hverfa aftur til
ársins 1238 og berjast við hlið Sturlu
Sighvatssonar á Örlygsstöðum,“
segir Áskell Heiðar í samtali við
Morgunblaðið.
Sýningin fjallar um þau miklu
átök sem voru hér á landi á 13. öld
og kennd eru við Sturlunga. Auk
hefðbundinna leiða til miðlunar nýtir
sýningin nýjustu tækni til að miðla
sögunni til gesta sinna.
Fyrirtækið RVX Studios hafði yf-
irumsjón við þróun þessara lausna
og er sýningin m.a. fyrst allra í Evr-
ópu til að nýta sér svonefndan 360°
Ultra HD-skjá til miðlunar, en hann
var fluttur sérstaklega hingað til
lands fyrir sýninguna.
Heildarkostnaður við endurbætur
á húsnæðinu við Aðalgötu og upp-
setningu sýningarinnar er áætlaður
um 700 milljónir króna. Einnig var
opnað veitingahús, Grána Bistro,
sem byggir á mat úr héraði og við
hlið sýningarinnar er minja-
gripaverslun og upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn.
Ljósmynd/Hallmar Fr.
Sturlungaöld Áskell Heiðar Ásgeirsson stýrir sýndarveruleikasafninu á
Sauðárkróki, þar sem gestir geta skyggnst aftur til ársins 1238.
Sýningin 1238 hef-
ur farið vel af stað
Sýndarveruleiki um Sturlungaöld
Heimssýning frímerkja, World
Stamp Exhibition, var haldin í Kína
á dögunum. Þrír Íslendingar tóku
þátt í sýningunni að þessu sinni og
fengu þeir allir verðlaun fyrir söfn
sín.
Sigtryggur Rósmar Eyþórsson
fékk gullverðlaun og sérverðlaun
til viðbótar en hann sýndi safn ís-
lenskra bréfspjalda frá 1879 til
1920. Hjalti Jóhannesson sýndi ís-
lenska upprunastimpla og fékk fyr-
ir það stórt silfur, eins og það var
kallað á sýningunni, og loks fékk
Vilhjálmur Sigurðsson brons-
verðlaun en hann sýndi bók í tveim-
ur bindum, Frímerki íslenska lýð-
veldisins I frá 1944 til 1999 og
Frímerki íslenska lýðveldisins II
frá 2000 til 2014.
Sýningin var haldin í borginni
Wuhan, sem er höfuðborg Hubei-
héraðs Mið-Kína, á milli Yangtze-
og Han-ánna, og er viðskiptamið-
stöð með um 11 milljónir íbúa. Sýn-
ingin var haldin sem liður í að
minnast 70 ára afmælis Alþýðu-
lýðveldisins Kína. Annar tilgangur
hennar var að stuðla að vinsam-
legum samskiptum og nánu sam-
starfi stofnunarinnar og frímerkja-
safnara um allan heim.
Sýningin var skipulögð af Ríkis-
póststofu Alþýðulýðveldisins Kína
og flutningadeild Hubei-héraðs sá
um framkvæmd hennar. Þetta var
þriðja heimssýning frímerkjasafn-
ara sem haldin er í Kína. Hinar
tvær voru haldnar 1999 í tilefni af
50 ára afmæli Kínverska alþýðu-
veldisins og árið 2009 á 60 ára af-
mæli þess. Íslendingar tóku þátt í
báðum þeim sýningum með góðum
árangri.
Á næsta ári verður heimssýning
frímerkjasafnara haldin í London.
Frímerkjasafnari Sigtryggur Rósmar Eyþórsson fékk gullverðlaun í Kína.
Verðlaunaðir á
frímerkjasýningu
Þrír Íslendingar sýndu í Kína
Héraðssaksóknari hefur ákært
systurnar Berglindi Björk og Ragn-
heiði Jónu Jónsdætur fyrir meiri-
háttar brot gegn skattalögum með
því að hafa staðið skil á efnislega
röngum skattframtölum vegna
tekjuáranna 2007 og 2008.
Berglind er ákærð fyrir að hafa
ekki gefið upp fjármagnstekjur upp
á rúmar 404 milljónir króna og því
ekki staðið skil á 40,4 milljónum
króna í fjármagnstekjuskatt.
Ragnheiður er ákærð fyrir að
hafa ekki talið fram fjármagns-
tekjur upp á rúmar 148 milljónir
króna, meðal annars vegna gengis-
hagnaðar, og þar með ekki staðið
skil á 14,8 milljónum í fjármagns-
tekjuskatt.
Krefst héraðssaksóknari þess að
systurnar verði dæmdar til refs-
ingar og greiðslu alls sakarkostn-
aðar.
Héraðssaksóknari hafði áður
gefið út ákæru á hendur bróður
þeirra Berglindar og Ragnheiðar,
Haraldi Reyni Jónssyni, fyrir að
hafa ekki gefið upp fjármagns-
tekjur upp á rúmar 245 milljónir
króna.
Systkinin eru öll kennd við út-
gerðarfélagið Sjólaskip. Árið 2016
greindi Fréttatíminn frá því að
skattrannsóknarstjóri hefði sent
viðskipti systkinanna, Berglindar,
Ragnheiðar, Haralds og Guð-
mundar Steinars, í skattaskjólinu
Tortóla til rannsóknar héraðs-
saksóknara.
Í fréttinni kom m.a. fram að
aflandsfélög í Tortóla hefðu greitt
kreditkortareikninga fyrir ein-
staklinga í útgerðarfjölskyldunni.
Kortin voru gefin út í erlendum
bönkum og tengd við bankareikn-
inga aflandsfélaga eða systkinanna
sjálfra.
Bryndís Kristjánsdóttir skatt-
rannsóknarstjóri sagði aðferðina
alþekkta þegar kæmi að því að taka
peninga út úr aflandsfélögum.
Sjólaskipasysturnar ákærðar fyrir 245 milljóna króna skattsvik