Morgunblaðið - 30.07.2019, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
Tæki sem lesa sjálf ástand rafgeyma og
tryggja að ekki er hægt að tengja rangt.
Neistafrí og hættulaus.
STARTTÆKI
FYRIR ÖLL ÖKUTÆKI
ER RAFGEYMIRINN DAUÐUR
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Tveimur Edduhótelum sem bæði
eiga sér langa sögu verður lokað
eftir líðandi sumarvertíð. Þetta eru
sumarhótelin á Laugum í Sælings-
dal í Dalasýslu og í húsi áður
Íþróttakennaraskóla Íslands á
Laugarvatni (ÍKÍ). Nýjar kröfur
og breyttar aðstæður á markaði
ráða þessari ákvörðun, segir
Tryggvi Guðmundsson, for-
stöðumaður hjá Icelandairhotels.
Hótelið á Laugum er 44 her-
bergi og er starfrækt í gömlum
heimavistarskóla þar. Herbergin
eru nokkur í nýlega uppgerðri
álmu og með þægindum nútímans.
Önnur eru í gamalli heimavista-
rálmu og eru án snyrtingar og
baðs og svara því ekki kröfum
dagsins í dag. „Húsið þarf viðhald
og undanfarin sumur hefur að-
sóknin að Laugum ekki verið við-
unandi. Þá er Dalabyggð, sem er
eigandi bygginganna á Laugum,
með þær í sölu, sem setur Ice-
landair hotels sem leigjanda í
óvissu,“ segir Tryggvi.
Á Laugarvatni hafa lengi verið
starfrækt tvö Edduhótel; 101 her-
bergi í heimavist menntaskólans
og 28 í ÍKÍ. „Aðsóknin á ÍKÍ hefur
dregist saman með aukinni sam-
keppni og meiri kröfum við-
skiptavina. Að reka tvö hótel nán-
ast hlið við hlið er sömuleiðis
óhagkvæmt og því varð þetta nið-
urstaðan,“ segir Tryggvi. Til skoð-
unar er enn fremur að hætta starf-
semi Edduhótelsins á Skógum
undir Eyjafjöllum. Ræður þar að
byggingarnar á staðnum þarfnast
viðhalds og í takt við nýjar kröfur
þarf að fara í ýmsar breytingar,
sem þó eru engin áform um af
hálfu ríkisins, sem á húsin.
Löng saga hótelanna
Edduhótelin eiga sér sögu sem
spannar áratugi. Þau hafa verið
starfrækt í heimavistarskólum og
voru á annan tuginn þegar best
lét. Næsta sumar verða þau aðeins
fimm; á Akureyri, Stórutjörnum í
Ljósavatnsskaði, Egilsstöðum,
Höfn í Hornafirði og á Laug-
arvatni. Starfsemi sumra Eddu-
hótelanna hefur verið hætt en önn-
ur eru starfrækt árið um kring, til
dæmis undir merkjum Icelandair
hotels; svo sem á Flúðum og Hótel
Klaustur á Kirkjubæjarklaustri.
Edduhótelum verður fækkað
Tvö tekin úr rekstri eftir sumarið Lokað verður í Sælingsdal og að
Laugarvatni Breyttar kröfur og minnkandi nýting Skógar eru í skoðun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Dalir Skólahús og íþróttamannvirki að Laugum í Sælingsdal eru til sölu og
Edduhótelið þar, sem á langa sögu, verður aðeins starfrækt út sumarið.
„Við erum ekki í nokkrum vafa um
það að þessi ákvörðun afurðastöðv-
anna að flytja út 15-20% framleiðsl-
unnar í desember hafi skapað skort á
markaði. Enda
heyri ég það að
mjög algengt er
að verð til versl-
ana hafi hækkað
um 20 til 30 pró-
sent.“ Þetta segir
Andrés Magnús-
son, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka verslun-
ar og þjónustu
(SVÞ), í samtali
við Morgunblaðið um tillögu ráðgjaf-
arnefndar um inn- og útflutning
landbúnaðarvara um að gefinn verði
út tímabundinn innflutningskvóti á
lækkuðum tollum til að bregðast við
skorti á innlendum lambahryggjum
og hryggjarsneiðum. Eins og víða
hefur komið fram lagði nefndin til að
flytja mætti inn þessar vörur með
magntolli frá 29. júlí til 30. ágúst. Er
tillagan allt of seint fram komin að
mati Andrésar.
Segir hann að í desember hafi af-
urðastöðvar, ekki sé vitað hvaða
stöðvar, flutt út á bilinu 15-20% af
framleiðslu síðasta árs af lamba-
hryggjum. Kílóverðið í útflutningi
hafi verið um 900 krónur. „Á sama
tíma var algengt verð sem smásölu-
verslunum bauðst þessi vara á 1.600-
1.800 krónur.“
Segir Andrés að síðastliðna þrjá
mánuði hafi tvö stærstu matvöru-
verslanafyrirtæki á Íslandi ekki
fengið umrædda vöru. Aðildarfyrir-
tæki hjá SVÞ hafi tvívegis sent ráð-
gjafarnefndinni erindi vegna málsins
og fengið höfnun. SVÞ hafi gert slíkt
hið sama í maí og fengið höfnun en í
lok júní hafi SVÞ sent erindi á ný og
á grundvelli þess erindis hafi ráð-
gjafarnefndin tekið ofannefnda
ákvörðun.
„Um leið og ráðgjafarnefndin tók
þessa ákvörðun á þriðjudaginn opn-
uðust allar gáttir hjá afurðastöðvun-
um,“ heldur hann áfram og tekur
fram að SS hafi hafnað viðskiptum
við tvö stærstu matvöruverslana-
fyrirtæki landsins. Sagði Steinþór
Skúlason, forstjóri SS, í samtali við
Morgunblaðið í gær að SS ætti „nóg
af hryggjum fram til sláturtíðar fyrir
allar SS-vörur og þá viðskiptavini
sem hafa keypt hryggjarvörur af
okkur“.
„Allt í einu þegar ákvörðun ráð-
gjafarnefndarinnar liggur fyrir eru
þau tilbúin að eiga í viðskiptum,“
segir Andrés.
Ekki náðist í Kristján Þór Júlíus-
son landbúnaðarráðherra vegna
málsins.
Andrés
Magnússon
Hafi vísvitandi
skapað skort
Umhverfis-
stofnun opnaði í
gær fyrir um-
ferð gesta um
Gróttu.
Almennt er
umferð óvið-
komandi aðila
bönnuð frá 1.
maí til 15. júlí og
var svæðið því opnað tveimur vik-
um seinna en vant er. Er þetta í
fyrsta skipti sem svæðið er lokað
umfram venjulegan tíma.
Umhverfisstofnun taldi mik-
ilvægt að hafa svæðið lokað tveim-
ur vikum lengur þar sem hætta var
á verulegri röskun á fuglalífi ef
svæðið hefði verið opnað á til-
settum tíma.
Samkvæmt upplýsingum frá
landverði fór varp mjög seint af
stað í ár, líklega eftir að svæðinu
var lokað almennilega, og kríuung-
ar voru enn mjög litlir og við-
kvæmir þegar hefðbundinn tími
sem lokað er var að renna út.
Umrætt svæði er skilgreint sem
friðland samkvæmt auglýsingu nr.
13/1984. Ber gestum að fara um
það með mikilli gát.
ragnhildur@mbl.is
Grótta opnuð tveim-
ur vikum seinna