Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Honeywell keramik hitarar
Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell 40 ára Magnús erfæddur í Reykjavík og
uppalinn í Svíþjóð, á
Akureyri en lengst af í
Kópavogi. Hann er
með BS-gráðu í tölv-
unarfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík frá
2002 og hefur starfað sem tölv-
unarfræðingur síðan. Nú býr hann í
Mosfellsbæ og hefur gert í tíu ár.
Börn: Guðjón, f. 2008, og Dagur,
f. 2011.
Eiginkona: Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir,
gullsmiður úr Reykjavík, f. 1979.
Foreldrar: Hjónin Unnur Valgerður Ing-
ólfsdóttir, sem starfar hjá Mosfellsbæ, f.
1952, og Guðjón Magnússon, sem vann
hjá Landgræðslunni en er nú eft-
irlaunaþegi, f. 1952. Þau búa í Kópa-
vogi.
Magnús
Guðjónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er nauðsynlegt að þú undir-
búir mál þitt vel áður en þú reynir að vinna
aðra á þitt band. Á hverju hefurðu áhuga?
Sestu niður og reyndu að finna það út.
20. apríl - 20. maí
Naut Gerðu það að reglu að ljúka þeim
verkefnum sem þú hefur tekið að þér áður
en þú bætir við. Hver er sinnar gæfu smið-
ur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ættir að dusta rykið af göml-
um fjáröflunarhugmyndum. Vinir eru
meira en tilbúnir til þess að hlusta á þig og
það sem þú hefur fram að færa.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Samkeppni er af hinu góða, hvetur
þig til að gera þitt besta. Þú kaupir lang-
þráðan hlut í dag.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það gæti verið rétt í stöðunni að
leyfa hlutunum að þróast af sjálfu sér. Ein-
faldaðu líf þitt og þá færðu meiri tíma í
áhugamálin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Loksins öðlast þú viðurkenningu
fyrir framlag þitt og mátt gjarnan
skemmta þér af því tilefni. Þú ert alveg að
ná markmiði þínu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þótt verkefnin hlaðist upp máttu ekki
vanrækja sjálfa/n þig. Leggðu af alla ósiði
og taktu upp heilbrigt líferni. Mundu að
allir hafa eitthvað til síns ágætis.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Veldu orð þín af kostgæfni. Ef
þú slakar aðeins á eru miklu meiri líkur á
að þú dettir niður á réttu lausnina. Ásta-
málin blómstra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur unnið mikið og þarft
því dálítla hvíld í dag. Áður en þú veist af
verður þú á leið í draumaferðina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er alltaf skemmtileg tilfinn-
ing að sjá draumana rætast. Þú hefur unn-
ið heimavinnuna vel og lengi og átt þetta
skilið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki neikvæðni annarra
draga úr þér kjarkinn. Gakktu í lið með
fólki sem þú treystir og lærðu af reynslu
þess.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Besta leiðin til þess að lækna
hjartasár er að eyða deginum í félagsskap
einhvers sem er góður hlustandi. Þér eru
allir vegir færir.
einfalt líf. Þetta var fólk sem kunni að
lifa af jörðinni. Ég man að það var
ekki plast eða neitt rusl sem safnaðist
á bænum. Það voru engar umbúðir,“
segir Unnur. Hún fór í stærð-
fræðideild í MR og lenti þar í bekk
með eiginmanni sínum. „Það að ég
skyldi síðar gerast fiskifræðingur var
dálítið tilviljanakennt, en ég ákvað að
sækja um vist í Glasgow-háskóla og
var þá helsta fyrirmynd mín Jakob
Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar fyrrverandi,“ segir
Unnur.
Unnur lítur ánægð um öxl á afmæl-
inu. „Lífið hefur á margan hátt verið
gott og við höfum haft mikið barna-
lán. En mikil var sorgin að missa son
úr vöggudauða. Á stundum var erfitt
að vera útivinnandi með mörg börn
en þar naut ég dyggrar aðstoðar
Ólínu (Ollu) ömmusystur barnanna
og einnig tengdaforeldra minna sem
bjuggu í sama húsi. Sjóferðirnar voru
líka nokkrar, einkum hvað snertir út-
var síðan send í sveit til afa síns og
ömmu í Nýlendu við Hvalsnes allt frá
fæðingu til 16 ára aldurs. „Sveita-
störfin í Nýlendu voru margvísleg.
Fyrir utan heyskap og garðrækt var
mikið kríuvarp sem nýtt var sem bú-
bót og lagði á vissan hátt grunn að
áhuga mínum á dýrafræði. Bónda-
bærinn var útvegsbýli og það var ein-
staklega skemmtilegt að stunda skak
og aðrar fiskveiðar,“ segir Unnur,
sem þarna upplifði tímamótabreyt-
ingu í skakinu, þegar nælonþráður
var tekinn í notkun í stað trolltvinn-
ans. „Ég man hvernig færið hætti að
flækjast þegar þráðurinn var settur á
rúllu,“ segir hún.
Unnur fór á sjóinn í Nýlendu. „Í
því var visst jafnrétti, því þarna þótti
ekkert tiltökumál að konur væru sjó-
menn. Ég var bara kaupamaðurinn,
eða kaupakonan, og fór á sjóinn. Það
var bara eitt af störfunum,“ segir
Unnur. Dvöl á svona stað gerir hvern
sem er að umhverfissinna. „Þetta var
U
nnur fæddist 30. júlí
1939 í Reykjavík og
ólst þar upp. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1959 og stundaði síðan nám
við Glasgow-háskóla árin 1959-1963
og lauk BSc.-prófi í fiskifræði 1963.
Hún var fiskifræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun árin 1963-2010 að und-
anskildum tæpum þremur árum sem
hún var búsett í Danmörku vegna sér-
náms eiginmannsins. Hún var með
fyrstu konunum til að vinna á Haf-
rannsóknastofnun. Fyrir voru tvær.
„Við vorum fáar þegar ég byrjaði.
Kannski áttu sjómennirnir erfitt með
að ég væri að reyna að stjórna þeim,
sérstaklega í Ísafjarðardjúpi. En ég
var bara að passa að veitt væri sam-
kvæmt því sem stofninn þyldi,“ segir
Unnur. „Einu sinni sögðu þeir mér að
ef ég kæmi vestur myndu þeir kjöl-
draga mig en ég vissi nú að þeir
myndu ekki gera það,“ segir hún og
hlær.
Unnur var formaður Nátt-
úruverndarfélags Suðvesturlands
1976-1977. Hún var stundakennari í
fiskistofnfræði við líffræðideild HÍ ár-
in 1991-1993. Eftir hana liggja ýmsar
greinar um rækjuna, stóra kampa-
lampa, sem veiðist meðal annars við
Ísland. Hún tók þátt í rannsóknum á
rækju við Flæmingjagrunn og var í
nokkur ár í forsvari fyrir rækjustofn-
inn á Flæmingjagrunni á fundum
Norður-Atlantshafsráðsins. Aðallega
fékkst Unnur við rækjurannsóknir en
í byrjun starfstímans voru henni feng-
in fleiri verkefni svo sem kúfskelja- og
humarrannsóknir en þær ráðstafanir
voru tímabundnar og lengst af sá hún
aðeins um rækjuna. „Það hefur ým-
islegt breyst. Það voru til dæmis eng-
ar tölvur þegar ég byrjaði, bara ein-
faldar reiknivélar. Stærstu
breytingarnar á stofnunum eru að
mjög lítið er nú af rækju, miðað við
það sem var á síðustu öld,“ segir Unn-
ur. Þar komi til stærri þorskstofn fyr-
ir norðan land og loftslagsbreytingar.
Unnur ólst upp í Reykjavík þar sem
var nálægð við sjóinn og höfnina.
„Margar ferðir voru farnar í Örfirisey
og út í Hólma, sem liggur fyrir vestan
grandann í Örfirisey,“ segir hún. Hún
hafsrækju. Eiginmaðurinn þurfti þá
stundum að sjá um heimilishaldið,
ásamt fyrrgreindum hjálparhellum,“
segir Unnur. Helstu áhugamál Unnar
hafa verið handavinna hvers konar.
Hún hóf hjólreiðar til vinnu 1975 en
þá var nær ekkert kvenfólk á hjóli á
Íslandi. Hún og eiginmaður hennar
dveljast mikið í sumarbústað sínum
við Hafravatn.
Fjölskylda
Eiginmaður Unnar er Kristján Sig-
urjónsson röntgenlæknir, f. 3. mars
1939. Foreldrar hans voru Sigurjón
Guðjónsson, f. 6. júní 1904, d. 29. sept-
ember 1986, bílstjóri í Reykjavík, og
Jóhanna Katrín kristjánsdóttir, f. 5.
janúar 1906, d. 14. febrúar 1991,
húsfrú í Reykjavík.
Börn Unnar og Kristjáns eru 1)
Steinunn, f. 23. maí 1964, arkitekt í
Reykjavík, gift Helga Erlendssyni
sjúkraþjálfara, og eiga þau tvö börn,
Unni og Kristján. 2) Jóhanna Katrín,
f. 18. desember 1966, sjúkraþjálfari á
Akureyri, gift Pétri Halldórssyni,
kynningarstjóra Skógræktarinnar, og
eiga þau þrjú börn, Birnu, Ragnheiði
og Sigurjón. 3) Margrét Kristjáns-
dóttir, f. 8. mars 1970, sálfræðingur í
Óðinsvéum í Danmörku, gift Sigurði
Eyjólfssyni sálfræðingi í Óðinsvéum í
Danmörku, og eiga þau þrjú börn,
Helen, Áróru og Óríon. 4) Sigurjón, f.
19. apríl 1972, d. 28. júní 1972. 5)
Katrín, f. 21. ágúst 1973, kven-
sjúkdómalæknir í Reykjavík, gift
Andra Steinþóri Björnssyni, sálfræ-
ðiprófessor í Reykjavík, og eiga þau
tvö börn, Álfheiði og Arnór Björn. 6)
Kristín Ólína Kristjánsdóttir, f. 24.
febrúar 1980, röntgenlæknir í Stokk-
hólmi í Svíþjóð. Sambýlismaður henn-
ar er Sigurður Árni Svanbergsson,
vefforitari í Stokkhólmi í Svíþjóð.
Eiga þau eina dóttur, Margéti.
Bróðir Unnar er Magnús Skúlason,
arkítekt í Reykjavík, f. 15. október
1937.
Foreldrar Unnar eru Skúli Krist-
ján Halldórsson, f. 28. apríl 1914, d.
23. júlí 2004, tónskáld og skrif-
stofustjóri hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur, og k.h., Steinunn Guðný
Magnúsdóttir, f. 14. ágúst 1917, d. 13.
október 1997, bókhaldari í Reykjavík.
Unnur Skúladóttir, fyrrverandi fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun – 80 ára
Afkomendur Fjölskyldan á gullbrúðkaupsdegi hjónanna. Talið frá vinstri
Steinunn, Katrín, Kristján, Unnur, Jóhanna Katrín, Kristín Ólína og Margrét.
Varð umhverfissinni í sveitinni
Fiskifræðingar Skólafélagar
sem hófu nám í Glasgow-há-
skóla árið 1959. Frá vinstri
dr. Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur og Unnur,
sem bæði voru starfandi hjá
Hafrannsóknastofnun,
James Forbes kennari í Glas-
gow og dr. Ralph Halliday,
fiskifræðingur hjá Bedford
Institute í Halifax í Kanada.
30 ára Hólmfríður
er fædd og uppalin í
Grafarvogi og býr
nú í Kópavogi. Hún
er með BA-gráðu í
íslensku frá Háskóla
Íslands frá 2013 og
MS í talmeinafræði
frá sama skóla 2018. Hún vinnur sem
talmeinafræðingur á þjónustu-
miðstöðinni í Laugardal og Háaleiti.
Hún vann á sínum tíma hjá Morg-
unblaðinu.
Dóttir: Sóley Inga, f. 2015.
Eiginmaður: Hrannar Már Gunn-
arsson lögfræðingur, f. 1988.
Foreldrar: Hjónin Ingveldur Valsdóttir
aðalgjaldkeri hjá Orkuveitu Reykjavík-
ur, f. 1960, og Hreggviður Daníelsson
rafvirki, f. 1958. Þau eru bæði Reyk-
víkingar.
Hólmfríður
Hreggviðsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is