Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 28

Morgunblaðið - 30.07.2019, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 2019 Áður óþekkt teikning eftir austur- ríska listamanninn Egon Schiele, sem fannst í verslun með notuðum vörum, er nú á uppboði hjá Galerie St. Etienne. Samkvæmt The Art Newspaper er teikningin metin á 12- 25 milljónir ísl. kr. Maðurinn sem fann og keypti teikninguna fyrir lít- inn pening í verslun sem Habitat for Humanity rekur í Queens í New York hafði samband við Jane Kallir, yfirmann Galerie St. Etienne, í júní 2018 og óskaði eftir að hún mæti hvort um ekta verk eftir Schiele væri að ræða. Ljósmynd sem fylgdi af verkinu var of óskýr svo Kallir bað manninn, sem óskar nafn- leyndar, að senda betri mynd sem hann gerði, en þó ekki fyrr en tæpu ári seinna. Þegar Kallir sá nýju ljós- myndina í maí sl. taldi hún góðar lík- ur á því að um verk eftir Schiele væri að ræða og bauð eigandanum að funda með sér. Niðurstaða Kallir, sem rannsakað hefur verk Schieles í yfir 30 ár og skorið úr um hvort verk séu í reynd listamannsins, er að ný- fundna teikningin sé eftir Schiele. „Stúlkan á myndinni sat reglulega fyrir hjá Schiele árið 1918, bæði ein og stundum með móður sinni,“ segir Kallir og bendir á að teikningin sé unnin á svipuðum tíma og 22 aðrar þekktar teikningar sem Schiele gerði af sömu stúlku. Segir hún ljóst að tvær þeirra séu augljóslega teikn- aðar sama daginn og nýfundna teikningin. Í frétt The Art Newspa- per kemur fram að umræddar teikn- ingar hafi verið undirbúningsteikn- ingar Schieles áður en hann skapaði síðasta steinþrykk sitt sem nefnist „Stúlka“ árið 1918, en seinna sama ár lést Schiele úr spænsku veikinni í Vín aðeins 28 ára að aldri. Nokkrar teikninganna eru í eigu MoMA í New York og Leopoldssafnsins í Vín. Nýfundna teikningin er ásamt fleirum verkum eftir Schiele til sýnis á uppboðssýningu í Galerie St. Eti- enne sem lýkur 11. október. Þegar og ef teikningin verður seld segist eigandinn ætla að gefa hluta af sölu- andvirðinu til Habitat for Humanity, sem eru sjálfseignarstofnun sem byggir og gerir við heimili fyrir fólk í neyð. „Við erum himinlifandi,“ seg- ir Karen Haycock, framkvæmda- stjóri Habitat for Humanity í New York, og tekur fram að hún geti ekki varist þeirri hugsun að hefði ekki verið fyrir verslun samtakanna hefði „listaverkið mögulega endað í land- fyllingu og þar með glatast að ei- lífu“. Óþekkt Áður óþekkt teikning eftir Egon Schiele af nakinni útafliggjandi stúlku. Áður óþekkt teikning eftir Schiele Ljósmynd/Galerie St. Etienne Bandaríska leikkonan Russi Taylor er látin 75 ára að aldri. Taylor er frægust fyrir að hafa talað fyrir Mínu mús í yfir 30 ár, en hún léði fjölmörgum persónum rödd sína á löngum ferli, m.a. í sjónvarpsteikni- myndaseríunum Gló magnaða og Simpsons- fjölskyldan. „Mig hefur aldrei dreymt um frægð. Per- sónurnar sem ég leik eru frægar og það nægir mér,“ sagði Taylor. Hún var árið 1986 valin úr hópi yfir 200 umsækj- enda um hlutverk Mínu. Sem ung stúlka heimsótti hún Disneyland og hitti þar Walt Disney, sem léði Mínu og Mikka rödd sína á upphafsárum persónanna. „Í spjalli okkar spurði hann mig hvað mig langaði að verða þegar ég yrði stór og ég svaraði: „Mig langar að vinna hjá þér“ og hann svaraði: „Allt í lagi.“ Og nú hefur það ræst!“ sagði Taylor eitt sinn í viðtali. Eiginmaður hennar, Wayne Allwine, talaði fyrir Mikka mús þar til hann lést 2009. Þegar Taylor var útnefnd ein af goðsögnum Disney árið 2008 sagð- ist hún binda vonir við að leikurunum sem tækju við hlutverkum þeirra hjóna myndi „þykja jafnvænt um persónurnar og okkur hefur þótt“. Kát Russi Taylor og Mína mús árið 2018. Léði Mínu mús rödd sína í rúm 30 ár AFP Systkinin Lilja María og Mikael Máni Ásmundsbörn, sem skipa dúó- ið Innri felustað, halda tónleika í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í kvöld kl. 21, en húsið verður opnað kl. 20.45. Tekið er við frjálsum fram- lögum við innganginn. Í tónsmíðum sínum blanda systkinin saman bak- grunni sínum í djasstónlist og sí- gildri samtímatónlist. „Tónlistin mætti því teljast til- raunakennd, eins konar leit að nýj- um blæ sem þau vinna út frá mis- munandi tónlistarstefnum,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að verkefnið hafi kviknað út frá sam- starfsverkefni sem þau unnu sum- arið 2018 í tengslum við meist- araverkefni Lilju Maríu þar sem þau rannsökuðu náið samstarf milli tónskálds og flytjanda. Innri felustaður í Alþýðuhúsinu í kvöld Morgunblaði/Arnþór Birkisson Systkini Lilja María og Mikael Máni. Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason var um helgina valin besta mynd kvikmyndahátíð- arinnar í Motovun í Króatíu. Ingvar E. Sigurðsson, aðalleikari mynd- arinnar, tók við verðlaununum. Í umsögn dómnefndar um mynd- ina segir: „Við verðlaunum kvik- mynd sem tekst á við tilfinninga- lega og sálræna byrði ástvinamissis á sérviskulegan hátt. Þessi ljúfsára mannlýsing á önugum þunglyndum lögreglumanni hafði djúpstæð áhrif á okkur. Dómnefndin er einhuga í niðurstöðu sinni.“ Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda eru þetta þriðju verð- launin sem myndin fær, en Ingvar hlaut Louis Roederer Rising Star- verðlaunin í Cannes og einnig leik- araverðlaunin á Alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni í Rúmeníu. Kvikmyndin Hvítur, hvítur dagur verður frumsýnd hérlendis 6. sept- ember. Mynd Hlyns þótti best í Króatíu Sigursæll Ingvar E. Sigurðsson, sem fer með aðalhlutverkið, tók við verðlaununum. Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Sýningin Jafnvel lognið er hvasst verður opnuð í galleríinu Ramskram á fimmtudag, 1. ágúst. Á sýningunni má sjá lokaverkefni Huldu Sifjar Ás- mundsdóttur frá ljósmyndadeild Listaháskólans í Haag í Hollandi. „Í náminu hafði ég verið að vinna mikið með femínísk þemu, t.d. með móður- hlutverkið,“ segir hún. Um svipað leyti og Hulda Sif átti að velja sér lokaverkefni sagði systir henn- ar, sem er greind með geðhvarfa- sýki, henni að sig dreymdi um að verða móðir. „Í hennar tilfelli er það flóknara en fyrir margar aðr- ar konur,“ skýrir Hulda Sif. Hún hafi þurft að taka þá áhættu að vera án lyfja í gegnum allt ferlið. Systir Huldu Sifjar féllst á að hún gerði þetta óvenjulega ferli að efnivið lokaverkefnisins. Hulda Sif fylgdi systur sinni í gegnum ferlið frá upphafi til enda og fangaði það í ljósmyndum. Sól en haglél augnabliki síðar „Við litum á þetta sem samstarfs- verkefni frá upphafi. Ég fylgdi henni frá því að hún byrjar sinn undirbún- ing og svo meðgönguna.“ Á þessu tímabili var Hulda Sif búsett í Hol- landi og segist hún hafa komið fjór- um sinnum til Íslands til þess að hitta systur sína. Þess á milli hafi þær verið í stöðugu símasambandi. „Í stað þess að mynda hana í ein- hverju ákveðnu ástandi, góðu eða slæmu, til þess að reyna að lýsa því hvað hún gengur í gegnum þegar hún er lyfjalaus valdi ég frekar að myndgera það sem hún sagði mér þegar við hittumst,“ segir Hulda Sif. Hún hafi myndað systur sína í stúd- íói sem og á öðrum stöðum, t.d. við hugleiðslu í Vesturbæjarlauginni. Hulda Sif lýsir ferlinu sem systir hennar fór í gegnum á myndrænan hátt í verkum sínum. „Ég fór þá leið að nýta mér íslenskt veðurfar og náttúru. Við þekkjum öll hvernig það getur verið sól og augnabliki síð- ar komið haglél.“ Hið óútreiknan- lega veðurfar er lýsandi fyrir mann- eskju með geðhvarfasýki. Titill sýningarinnar Jafnvel lognið er hvasst kallast því á við þema verk- efnisins. Hulda Sif segir að það hafi verið gott að vinna þetta persónu- lega verkefni með systur sinni. „Þetta var ákveðin þerapía fyrir okkur báðar en auðvitað var þetta krefjandi, sem er bara eðlilegt. Þetta gekk ótrúlega vel.“ „Okkur finnst svo mikilvægt að opna þessa umræðu um geð- sjúkdóma og móðurhlutverkið og það hvetur mann áfram,“ segir Hulda Sif. Verkefnið fjalli að miklu leyti um það hvað geðsjúkdómar séu mikið tabú í samfélaginu, ekki síst hvað viðkemur móðurhlutverkinu. Sýningin Jafnvel lognið er hvasst verður opin í Ramskram, Njálsgötu 49, til 1. september. Galleríið er opið um helgar milli kl. 14 og 17. Myndræn lýsing á óvenjulegu ferli  Ljósmyndasýning Huldu Sifjar í Ramskram  Myndgerir meðgöngu systur sinnar  Íslenskt veðurfar og náttúra Ljósmynd/Hulda Sif Ásmundsdóttir Systur „Þetta var ákveðin þerapía fyrir okkur báðar en auðvitað var þetta krefjandi, sem er bara eðlilegt,“ segir Hulda um samstarfið við systur sína. Hulda Sif Ásmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.