Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 2
Framkvæmdastjóri SVÞ segir tugi tonna á leiðinni Ráðherra sendi mál varðandi innflutning
lambahryggja aftur til ráðgjafanefndar Kjötviðskipti milli afurðastöðva algeng, segir forstöðumaður
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Tugir tonna af erlendum lamba-
hryggjum eru á leið til landsins og
gætu mögulega komið í búðir í
næstu viku, að sögn Andrésar
Magnússonar, framkvæmdastjóra
Samtaka verslunar og þjónustu
(SVÞ). Hann sagði að þegar ráð-
gjafanefnd um inn- og útflutning
landbúnaðarvara lagði til við ráð-
herra að gefinn yrði út tímabund-
inn innflutningskvóti á lækkuðum
tollum til að bregðast við skorti á
innlendum lambahryggjum og
hryggjarsneiðum hafi fyrirtæki
innan SVÞ pantað þessar vörur frá
erlendum birgjum.
„Þær vörur eru á leiðinni vegna
þess að það hefur aldrei gerst í
sögu ráðgjafanefndarinnar að
ákvörðun hennar hafi verið aftur-
kölluð,“ sagði Andrés. Hann sagði
að samkvæmt búvörulögum gegni
nefndin sjálfstæðu hlutverki. Hlut-
verk ráðherrans sé eingöngu að
ganga úr skugga um að nefndin
hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni.
„Við höfum ekki nokkra ástæðu til
að ætla annað en að nefndin hafi
gegnt sínu hlutverki og í því ljósi
töldum við ekkert því til fyrirstöðu
að fyrirtækin færu að búa sig undir
innflutning á þessari vöru,“ sagði
Andrés.
Skortur hjá tveimur birgjum
Kristján Þór Júlíusson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
hefur óskað eftir því að ráðgjafa-
nefndin endurmeti hvort þörf sé á
því að opna tollkvóta á lamba-
hryggjum í ljósi nýrra upplýsinga
sem nefndinni bárust frá framleið-
endum. Nefndinni ber að skila nið-
urstöðu í þess-
ari viku. Þetta
kom fram í
fréttatilkynn-
ingu frá at-
vinnuvega- og
nýsköpunar-
ráðuneytinu í
gær.
Andrés sagði
að þessi ákvörð-
un ráðherrans
komi SVÞ í opna skjöldu. „Þegar
ráðgjafanefndin var að undirbúa
málið eftir síðasta erindi frá okkur
hafði hún samband við alla aðila til
að kanna birgðastöðu, lögum sam-
kvæmt,“ sagði Andrés. „Nefndin
fékk þær upplýsingar að það væri
skortur á lambahryggjum hjá að
minnsta kosti tveimur birgjum.
Lögin segja að það þurfi að vera
skortur hjá minnst tveimur birgj-
um til að opnir tollkvótar verði
heimilaðir. Það var gefinn fjögurra
virkra daga frestur á þriðjudag í
síðustu viku til að gera athuga-
semdir við þetta. Fresturinn rann
út á mánudag. Samkvæmt upplýs-
ingum sem við höfum voru engar
athugasemdir komnar áður en
fresturinn rann út. Við höfum upp-
lýsingar um að ein afurðastöð,
Kaupfélag Skagfirðinga (KS), hafi
keypt lambahryggi frá Fjallalambi
á Kópaskeri og sent inn nýja til-
kynningu á mánudag. Á grundvelli
þess telji ráðherra sér skylt að
biðja nefndina að endurmeta stöð-
una.“
Fengu hryggi frá Fjallalambi
Ágúst Andrésson, forstöðumaður
Kjötafurðastöðvar KS, sagði að
ráðgjafanefndin sendi sláturleyfis-
höfum reglulega fyrirspurnir um
birgðastöðu. Fyrr í júlí hafi KS
svarað því að þeir ættu nóg af af-
urðum úr hrygg en heilir hryggir
væru búnir. „Mörg undanfarin ár
höfum við keypt lambakjöt, m.a.
hryggi og framparta, af öðrum slát-
urleyfishöfum til að uppfylla þarfir
okkar viðskiptavina. Við töldum
okkur vera með samkomulag við
Fjallalamb um að þeir myndu láta
okkur fá það af hryggjum sem þeir
gætu. Eftir að ég svaraði þessu
bréfi bárust okkur tvö tonn af
hryggjum frá Fjallalambi,“ sagði
Ágúst. Hann sagði að það skýri
breyttar birgðir af hryggjum á
milli kannana ráðgjafanefndarinn-
ar.
Í tilkynningu ráðuneytisins segir
að frá því í vor hafi ráðgjafanefndin
fengið tilkynningar um skort á
lambahryggjum frá dreifingaraðil-
um. „Hinn 22. júlí síðastliðinn fékk
nefndin upplýsingar sem bentu til
þess að það stefndi í skort hjá
stórum hluta framleiðendanna sem
ýmist voru búnir að tæma sínar
birgðir, áttu lítið eftir eða gátu ekki
annað dreifingu með góðum hætti.
Til að tryggja framboð á vörunni
til neytenda lagði nefndin til við
ráðherra að felld yrði niður inn-
flutningsvernd á lambahryggjum
tímabundið, eða frá 29. júlí fram til
30. ágúst 2019. Áður en ráðherra
tók afstöðu til tillögu nefndarinnar
fékk nefndin upplýsingar um
breytta birgðastöðu framleiðenda
sem kunna að hafa áhrif á hvort
lagaskilyrðum fyrir opnun tollkvóta
sé fullnægt.“
Lambahryggir eru á leið til landsins
Ágúst
Andrésson
Kristján Þór
Júlíusson
Andrés
Magnússon
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
og eiginmaður þeirrar yngstu fylgdi
sinni konu.
Gréta sagði að mamma hennar
skilji færeyskuna vel en henni hætti
til að blanda aðeins saman íslensku
og færeysku þegar hún talar við
landa sína, enda sé það ekki óeðli-
legt eftir 74 ára dvöl á Íslandi.
Gestirnir voru upp undir fjörutíu
talsins. Kristín á frænku suður í
Hafnarfirði og tveir synir hennar
komu í afmælið en frænkan er
stödd í Færeyjum þessa dagana.
Einnig komu fimm gestir frá
Færeyjum. Það eru þrjár syst-
urdætur Kristínar, mágkona þeirra
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Maren Kristín Þorsteinsson, dag-
lega kölluð Kristín, hélt upp á 100
ára afmælið sitt í gær. Hún fæddist
30. júlí 1919 á Sandi í Sandey í
Færeyjum. Faðir hennar var Har-
ald Johan Jensen og móðir hennar
Marin Margretha Petersen Jensen,
kölluð Greta.
Langlífi er í ættinni og náði móð-
ir Kristínar 98 ára aldri, föð-
urbróðir hennar varð 100 ára,
amma hennar varð 94 ára og systir
Kristínar er orðin 92 ára, að því er
fram kom á Facebook-síðunni
Langlífi.
Kristín kom til Íslands árið 1945
til að vinna á Vífilsstöðum þegar
berklarnir geisuðu á Íslandi. Hún
hafði þá starfað á sjúkrahúsinu í
Þórshöfn í Færeyjum. Síðar vann
hún á Kleppsspítala og starfaði svo
lengi á Landspítalanum.
Hún giftist Kjartani Þorsteins-
syni leigubílstjóra árið 1948. Hann
lést árið 1970. Þau bjuggu lengi við
Miklubraut í Reykjavík. Dóttir
þeirra er Gréta og ber hún nafn
móðurömmu sinnar.
Aðeins einn annar Íslendingur
fæddur í Færeyjum hafði áður náð
100 ára aldri og það gerðist árið
2003.
Kát og frísk í afmælinu
Haldið var upp á afmæli Krist-
ínar í gær á Grund, dvalar- og
hjúkrunarheimili, við Hringbraut í
Reykjavík, þar sem Kristín býr.
„Hún var mjög kát í afmælinu,“
sagði Gréta Kjartansdóttir, dóttir
Kristínar. „Það kom fólk sem hún
hafði ekki séð í dálítinn tíma. Hún
gat alveg fylgst með hver var hvað
og spjallað við fólkið. Henni leið
bara mjög vel og var vel frísk.“
Kristín kom frá Fær-
eyjum fyrir 74 árum
Vel frísk og
hélt upp á 100 ára
afmælið í gær
Ljósmynd/Aðsend
100 ára Maren Kristín Þorsteinsson var kát og glöð í afmælinu í gær.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS, segir
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóra SVÞ, hafa farið með rang-
færslur í tengslum við umræðu um
framboð á lambahryggjum hér á landi,
en Andrés sagði 15-20% framleiðslu
lambahryggja hafa verið flutt út á kíló-
verðinu 900 krónur, en smásöluversl-
unum hefðu boðist hryggir á 1.600-
1.800 krónur. Í skriflegri yfirlýsingu
segir Steinþór að útfluttir hryggir séu
fyrst og fremst svokallaðir spánar-
hryggir, þ.e. stykki sem nær frá herð-
um, aftur á mjöðm og niður á síðuna.
„Þyngd þessa stykkis er rúmlega
tvöföld þyngd á hrygg og því fráleitt að
bera saman verðið á spánarhryggjum
og venjulegum íslenskum hryggjum,“
segir Steinþór. Spánarhryggir séu af
skrokkum sem eru 12-15 kíló, en inn-
lendur markaður vilji ekki venjulega
hryggi úr svo litlum skrokkum.
Andrés sagði SS hafa hafnað við-
skiptum við tvö stærstu matvöruversl-
unarfyrirtæki landsins. „Þetta er
ósanngjörn ásökun. SS á nóg af öllum
SS-vörum sem hafa verið í vöruvali
þessara verslanakeðja og innihalda
hrygg og mun eiga til hausts,“ skrifar
Steinþór. Hefðu þessir aðilar samið við
SS að hausti um tiltekið magn lamba-
kjöts væri það tekið frá fyrir þá aðila.
„Ef hins vegar þessir aðilar hafa val-
ið að skipta við aðra en SS með hryggi
og vilja svo að vori eða sumri kaupa
magn sem aðrir geta ekki afgreitt, þá
liggur SS að sjálfsögðu ekki með
aukalager upp á von og óvon af
hryggjum eða öðrum pörtum lamba-
kjöts.“ Vandinn sé því að kaupendur
hafi ekki skipulagt innkaup að hausti,
er ráðstöfun framleiðslu afurðastöðva
er ákveðin. Þá segir Steinþór það al-
rangt og „mjög alvarlega ásökun“ að
afurðastöðvar hafi „með sameig-
inlegum hætti“ ákveðið útflutning
hryggja til að skapa skort. „Fram hef-
ur komið að SS á nóg af hryggjum en
sumar afurðastöðvar minna. Ef hug-
mynd Andrésar er sú að SS hafi látið
aðrar afurðastöðvar flytja út hryggi á
lágu verði, sem þær lenda svo í skorti
með, til að SS geti hækkað verð á sín-
um birgðum þá sér hver barna-
skólakrakki hvaða vit er í þeim mál-
flutningi.“ jbe@mbl.is
Segir Andrés hafa
farið með rangt mál