Morgunblaðið - 31.07.2019, Síða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
Fiskidagurinn mikli verður haldinn
hátíðlegur á Dalvík þarnæstu helgi. Í
ár verður hann ekki haldinn sama dag
og hinsegin gangan í Reykjavík, líkt
og verið hefur undanfarin ár, en af því
tilefni verða hinsegin dagar hafðir í
heiðurssessi á hátíðinni. Því til marks
var máluð regnbogagata á Dalvík í
Sunnutúni og Martröð sem er með-
fram sjónum.
Júlíus Júlíusson, framkvæmda-
stjóri fiskidagsins mikla, segir að há-
tíðin hafi ávallt stuðlað að náunga-
kærleik.
„Hinsegin dagar eru heiðursgestir
hjá okkur í ár en ramminn utan um
hátíðina er með sama sniði og áður,“
segir Júlíus. Hann segir að um leið og
upp hafi komið að hinsegin gangan
yrði viku seinna en vant er hafi strax
verið ákveðið að bjóða hinsegin dög-
um til Dalvíkur.
Fiskidagurinn hefst laugardaginn
10. ágúst klukkan 10.30 og stendur
yfir allan daginn. Þá er fram undan
matardagskrá sem mun halda gest-
um og gangandi söddum, með 25
rétta matseðli. Allir geta smakkað
matinn og borðað allan daginn til
klukkan 17 og ekkert kostar inn á há-
tíðina.
„Fiskidagurinn mikli og hinsegin
dagar hafa verið á sama degi í 19 ár.
Við höfum aldrei verið í neinni sam-
keppni, hátíðirnar hafa alltaf vitað af
hvor annarri. Friðrik Ómar hefur í tvö
skipti mætt á báðar hátíðirnar, komið
og sungið hér og farið síðan suður, og
öfugt.
Í rauninni höfum við alltaf verið að
stuðla að náungakærleik og við hefj-
um hátíðina á því að allir knúsast, við
leggjum þannig línurnar fyrir hátíð-
ina,“ sagði hann.
Regnbogagata Fiskidagurinn mikli verður haldinn hátíðlegur þarnæstu helgi.
Hinsegin dagar verða í heiðurssessi í Dalvík á hátíðinni þetta árið.
Regnbogagata og náungakær-
leikur á Fiskideginum mikla
Dalvík
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Mikil spenna er meðal Ís-lendinga vegna heims-leikanna í crossfit semhefjast á morgun
fimmtudag en leikarnir eru haldnir
dagana 1. til 4. ágúst í Madison í Wis-
consin-ríki í Bandaríkjunum.
Sex Íslendingar keppa í opnum
flokkum á heimsleikunum, fimm kon-
ur og einn karl. Keppendurnir eru
Katrín Tanja Davíðsdóttir, Ragnheið-
ur Sara Sigmundsdóttir, Annie Mist
Þórisdóttir, Björgvin Karl Guðmunds-
son, Oddrún Eik Gylfadóttir og Þur-
íður Erla Helgadóttir.
Fleiri Íslendingar munu þó taka
þátt í leikunum en Brynjar Ari Magn-
ússon keppir í aldursflokknum 14-15
ára, Sigurður Þrastarson og Stefán
Helgi Einarsson keppa í aldurs-
flokknum 35-39 ára og Hilmar Harð-
arson tekur þátt í flokki 60 ára og
eldri.
Tvöfaldir heimsmeistarar
Annie Mist er reyndasti crossfit-
keppandi Íslands í ár en hún er að
keppa á heimsleikunum í tíunda sinn.
Hún er tvöfaldur heimsmeistari í
crossfit en hún bar sigur úr býtum á
heimsleikunum árið 2011 og 2012.
Annie er þó ekki eini tvöfaldi sig-
urvegari heimsleikanna sem keppir í
ár því Katrín Tanja, sem keppir á sín-
um sjöundu leikum í ár, var í fyrsta
sæti bæði árið 2015 og 2016 en hún
endaði í þriðja sæti á síðasta ári.
Björgvin Karl, eini karlmaðurinn
sem keppir í opnum flokki, er að
keppa á heimsleikunum í sjötta sinn
en hann náði sínum besta árangri árið
2015 þegar hann lenti í þriðja sæti.
Ragnheiður Sara og Þuríður Erla
keppa báðar á sínum fimmtu leikum í
ár. Ragnheiður náði sínum besta ár-
angri árin 2015 og 2018 en hún hafnaði
bæði árin í þriðja sæti og Þuríður náði
sínum besta árangri árið 2012 en þá
endaði hún í 18. sæti.
Oddrún Eik er að keppa í opnum
flokki á heimsleikunum í annað sinn
en hún endaði í 26. sæti í fyrra.
Mikil spenna í lofti vegna
heimsleikanna í crossfit
Ljósmynd/Haraldur Leví Jónsson
Dugnaðarforkur Katrín Tanja er tvöfaldur heimsmeistari í crossfit.
Morgunblaðið/Hari
Sterk Annie Mist keppir nú á
heimsmeistaramótinu í tíunda sinn.
Tíu Íslendingar taka
þátt í heimsleikunum
í Bandaríkjunum
Svonefndir Félagsleikar fara fram í
Fljótum í Skagafirði um versl-
unarmannahelgina. Fljótamenn kalla
þetta félags- og samveruhátíð og
verða fjölbreyttir viðburðir í boði.
Morgunverðarfundur verður um fé-
lagssögu Fljóta, en þar mun Jón
Kristjánsson, fv. ráðherra og alþing-
ismaður, ávarpa gesti og rifja upp
kynni af Fljótamönnum. Samvinnu-
félag var stofnað í Fljótum fyrir 100
árum, þar var stunduð mikil hákarla-
útgerð á árum áður og af mörgu er að
taka varðandi félagssöguna.
Íslandsmót í félagsvist fer fram,
tónleikar af ýmsu tagi verða í boði og
gönguferðir með leiðsögn, m.a. um
slóðir Bakkabræðra eins og þeim er
lýst í nýrri Byggðasögu Skagafjarðar.
Kvöldvaka verður á Ketilási á laug-
ardagskvöldinu þar sem fram fer
Dalalífs „bar-kvissi“, harmonikku-
leikur og fjöldasöngur.
Sérstök dagskrá verður tileinkuð
skáldkonunni Guðrúnu frá Lundi og
munu bókmenntafræðingarnir Dagný
Kristjánsdóttir og Silja Aðalsteins-
dóttir flytja erindi auk þess sem far-
andsýningin Kona á skjön verður
opnuð, en hún fjallar um ævi og störf
skáldkonunnar. Þá verður Fljótahlaup
Orkusölunnar þreytt en þar er m.a.
hægt að fara í 13,1 km Skeiðsfoss-
hlaup, í framhaldi af því bjóða kven-
félagið í sveitinni og Orkusalan til
kjötsúpuveislu.
Félags- og samveruhátíð íbúa í Fljótum um verslunarmannahelgina
Hlaupið, gengið, sungið og spilað
Morgunblaðið/Einar Falur
Fljótin Fjölmargt verður í boði um verslunarmannahelgina, fyrir íbúa og gesti.