Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 14

Morgunblaðið - 31.07.2019, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Netglæpirfara vax-andi í heiminum og Ís- land er þar síður en svo undan- skilið. Allir þekkja til dular- fullra tölvupósta. Í þeim er iðulega lofað gulli og grænum skógum, en einnig er reynt að kúga fé út úr viðtakandanum eða koma á trúnaðar- eða kærleikssambandi til að fá hann til að láta fé af hendi rakna og algengt er að fyrir- tækjum berist póstar með fyr- irmælum um að millifæra fé. Yfirbragð slíkra pósta og samskipta hefur breyst með árunum og er orðið mun fág- aðra en áður var, ef svo má að orði komast. Allt of oft lætur fólk blekkjast af slíku og læt- ur fé af hendi. Á undanförnum 12 mánuð- um hafa Íslendingar tapað hátt í hálfum milljarði króna til svindlara á netinu. Hefur málum vegna fjárfestasvika fjölgað um 77% á þessu ári miðað við allt árið í fyrra. Í frétt í Morgunblaðinu á mánudag kom fram að stór hluti þessa taps væri vegna svokallaðra fjárfestasvika þar sem svindlarar hefðu sam- band við fólk á netinu og byðu hlutabréf á hagstæðu verði með fyrirheitum um að þau myndu rjúka upp í verði. Síð- an hyrfu peningarnir einfald- lega. G. Jökull Gísla- son, rannsóknar- lögreglumaður hjá ríkislögreglu- stjóra, segir í fréttinni að þetta sé orðið alvarlegt vandamál. Einkum verði fólk með lélegt netlæsi fyrir barðinu á þess- um glæpum, en einnig fólk sem af persónulegum ástæð- um sé berskjaldað þegar herjað er á það. „Við höfum séð dæmi þess að einstaklingar með mikla reynslu úr viðskiptalífinu falla fyrir svona boðum og þar sjáum við sama mynstur; það hefur eitthvað komið upp hjá þeim nýlega,“ segir Jökull. Hann kveður sérstakt áhyggjuefni hvað erfitt sé orðið að átta sig á gildrum svindlaranna. Bæði séu þær á betri íslensku og orðnar trú- verðugri. Ekki sé loku skotið fyrir að þeir sem stundi þessa glæpastarfsemi séu með Ís- lending í vinnu hjá sér við að semja skilaboðin. Augljóst er að seint verður nógsamlega hamrað á nauð- syn þess að hafa varann á sér í samskiptum á netinu, ekki síst þegar peningar eru í spilinu, og vara aðra við grun- samlegu atferli á félagsmiðl- um og vafasömum tölvu- póstum. Staðreyndin er sú að virðist eitthvað vera of gott til að vera satt, þá er það of gott til að vera satt. Íslendingar töpuðu hálfum milljarði til svindlara á einu ári} Netsvindl ágerist Kínverskstjórnvöld neituðu því fyrst en urðu svo að við- urkenna að þau hefðu komið upp sérstökum búðum þar sem múslimum í Xinjiang-héraði hefði verið safnað saman. Allt bendir til að þetta séu í raun fangelsi þar sem unnið er markvisst í að „endur- mennta“ fangana, eins og það er kallað. En kínversk stjórn- völd tala um þetta sem menntastofnanir þar sem þeim sem í þeim dvelja sé kennd færni sem nýtist við vinnu. Nú hafa kínversk stjórn- völd kynnt „árangur“ af „end- urmenntuninni“ og segja að fækkað hafi verulega í búð- unum og meirihluti þeirra sem þar hafi verið sé kominn á vinnumarkaðinn og hafi fengið vel launaða vinnu við hæfi. Ekki var þó upplýst um hve margir væru í búðunum um þessar mundir og sú skýr- ing gefin að þær tölur væru mjög á floti enda straumur bæði inn og út. Allt er þetta auðvitað mjög ótrúverðugt, en má þó skoða í samhengi við mat sérfræðinga á Vest- urlöndum sem telja að fyrir nokkru hafi yfir ein milljón manna verið í búðunum, sem bendir til að þó að nýjasta til- kynning kínverskra stjórn- valda um málið sé rétt þá dvelji þar enn einhver hundr- uð þúsund, sennilega mun stærri hópur en allir Íslend- ingar. Það er í senn sláandi og óhugnanleg staðreynd. Ekki þarf að koma á óvart að íbúar Hong Kong bregðist ókvæða við þegar þeir finna að kommúnistastjórnin í Kína reyni að herða tökin í landinu. Um leið hlýtur að vera í meira lagi ónotalegt fyrir þá sem þar mótmæla að hugsa til þess hvers konar ráðstafana yfirvöld í Peking eru reiðubú- in að grípa til gegn þeim sem ekki eru þóknanlegir. Íbúar Hong Kong hafa ástæðu til að hafa áhyggjur} Kínversk „endurmenntun“ E ins og ég hef greint frá áður á þessum vettvangi þá var heil- brigðisstefna til ársins 2030 samþykkt á Alþingi í byrjun júní. Stefnan var samþykkt með 45 atkvæðum og án mótatkvæða. Stefnan skapar heilbrigðisþjónustunni í landinu mikil- vægan ramma og framtíðarsýn að vinna eftir til næstu 10 ára og því dýrmætt að hún hafi verið afgreidd frá Alþingi í sátt. Í stefnunni er kveðið á um að árlega verði lögð fram á Alþingi aðgerðaáætlun til fimm ára meðan heilbrigðisstefnan er í gildi og lagði ég fyrstu aðgerðaáætlunina fram á Alþingi nokkrum dögum eftir samþykkt stefnunnar í byrjun júní. Að innleiða jafn umfangsmikla stefnu og heilbrigðisstefnu krefst samstilltra vinnu- bragða þeirra fjölmörgu þjónustuveitenda og hags- munaaðila sem starfa innan heilbrigðiskerfisins. Mikil ábyrgð hvílir á stjórnendum þeirra stofnana sem heyra til ráðuneytisins, að mörkuð sé stefna og starfsáætlun fyrir hverja stofnun sem tekur mið af heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Heilbrigðisráðuneytið ber ábyrgð á að öll- um sé ljóst hvað á að gera, hvenær og hver sé ábyrgur og fylgja eftir innleiðingu stefnunnar. Undanfarin ár hef ég lagt áherslu á að efla samstarf og samvinnu heilbrigðis- stofnana víðs vegar um landið. Ég á reglulega samráðs- fundi með forstjórum þar sem farið er yfir þau fjölmögu verkefni og áskoranir sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir með það að markmiði að leita leiða og lausna í sameiningu til hagsbóta fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Ég er sannfærð um að stefnan verði þeim mikil- vægur vegvísir og að stofnanirnar séu vel í stakk búnar til að tryggja innleiðingu hennar. Í þeim tilgangi að kynna nýja heilbrigðis- stefnu tók ég ákvörðun um að efna til opinna kynningarfunda um stefnuna í öllum heil- brigðisumdæmum landsins. Ég hef haldið tvo fundi nú þegar, á Akureyri og á Ísafirði. Fyr- irhugað er að halda fundaröðinni áfram í ágúst með fundum á Selfossi hinn 14. ágúst, á Akranesi hinn 15. ágúst, á Suðurnesjum hinn 19. ágúst og á Egilsstöðum hinn 22. ágúst. Við ljúkum svo fundaröðinni á höfuðborgar- svæðinu í september. Á fundunum er fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins. Það er sannfæring mín að aðgerðaáætlun til fimm ára, kynningarfundir, samráðsfundir og önnur úrræði við að kynna og innleiða stefnuna ásamt þeirri gildavinnu sem fram undan er á komandi heilbrigðisþingi muni leiða til þess að heilbrigðisstefnan verði okkur öllum leiðarljós við uppbyggingu á heildstæðu og öflugu heilbrigðiskerfi til framtíðar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Innleiðing heilbrigðisstefnu til 2030 Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Þessi vitundarvakning skiptirheld ég meginmáli, ekkiviðhald vélanna heldur aðfólk sé ötult við að viðhalda færni,“ segir Sigurður Ingi Jónsson, flugmaður og fyrrverandi forseti Flugmálafélagsins, spurður hvort viðhaldi einkaflugvéla sé ábótavant hérlendis. „Ekkert hefur enn þá komið í ljós sem bendir til þess að viðhaldi sé áfátt og þegar horft er til sögunnar þá hefur lágt viðhald ekki verið or- sakavaldur í slysum hér á landi,“ seg- ir Sigurður. Tvö banaslys hafa orðið í flugi í sumar og fjórir látið lífið í þeim. Sigurður segir að viðhald vél- anna sé jafnvel of strangt. „Það sem hefur, held ég, verið vandamál og í raun kom upp að hluta til vegna innleiðingar á mjög stífum reglum um viðhald á litlum flug- vélum, er kostnaður og erfiðleikar við að uppfylla kröfur eins og þær voru þegar þær voru innleiddar. Þær urðu til þess að margir flugu minna, þá að- allega sjaldnar og það er eins með flug og íþróttir eða hvað eina að tíðni þjálfunar skiptir gríðarlega miklu máli.“ Missa færni í verra veðri Sigurður segir mikilvægt að tryggja að fólk fljúgi tíðar. „Þá frekar oftar og lítið í senn en sjaldnar og lengi í einu, vegna þess að þetta eru sífelldar færniæfingar. Það er heilmikil vakning í gangi með þessa þætti og Samgöngustofa hefur verið að standa sig mjög vel með að halda á lofti svona markmiðum fyrir flugmenn sem þeir setja þá sjálfum sér, að stunda flugið reglulega og bera virðingu fyrir því á alla vegu.“ Sigurður segir að vegna veðurs hafi fáir flogið á einkavélum síðasta sumar. „Ef við horfum núna bara til þess að sumarið í fyrra var afleitt fyr- ir almannaflugið, það var rigningar- sumar og menn flugu lítið og margir jafnvel ekkert, síðan kemur núna eft- ir þetta hlé þetta góðviðristímabil og menn rjúka út og byrja að fljúga og átta sig jafnvel ekki á því að þeir hafi misst niður færni því það er kannski komið á annað ár síðan þeir stunduðu flugið af einhverju ráði.“ Hann bend- ir á að færni á stórar vélar og litlar sé ekki sú sama. „Þótt flugstjórar fljúgi jafnvel oft í viku milli lands- eða heimshluta þá missir viðkomandi færni á litlu flugvélarnar ef ekki er flogið nógu oft eða nógu títt. Það ætti að vera eðli- legasti hlutur að fara með ein- hverjum sem er búinn að stunda þetta tíðar, eða bara með flugkenn- ara til þess að dusta rykið af færn- inni.“ Atvinnuflugmenn þurfa að end- urnýja réttindi sín á minni vélar ann- að hvert ár. „Mögulega gæti verið sniðugt að gera þetta oftar,“ segir Sigurður. Skoðanir á flugvélum eru að jafnaði framkvæmdar á 50 og 100 flugtíma fresti og ársskoðun á hverju ári. Ekkert hefur komið fram varð- andi nýleg tvö banaslys í flugi sem gefur tilefni til að auka skoðanir eða herða eftirlit með skoðunum á einka- flugvélum sem eru skráðar á Íslandi, samkvæmt upplýsingum frá Sam- göngustofu. Önnur um- ræddra flugvéla var ekki á skrá á Íslandi og viðhald þeirrar flugvélar var í sam- ræmi við banda- rískar reglur en ekki evr- ópskar. Mikilvægasta við- haldið viðhald á færni „Þessi hræðilegu slys hafa náttúrulega vakið okkur til um- hugsunar um hvert við erum að fara með flugið og flug- öryggi,“ segir Haraldur Unason Diego, formaður Félags flug- manna og flugvélaeigenda á Ís- landi. Nú verður Fjölskylduhátíðin í Múlakoti, sem að stærstum hluta snýst um flug, haldin um helgina. Félag flugmanna og flugvélaeigenda stendur að henni. Annað banaslysa sum- arsins varð við flugbrautina í Múlakoti. Flugslysin munu ekki verða til þess að hátíðinni verði aflýst. Haraldur segir að skuggi þeirra liggi þó yfir há- tíðinni og flugmönnum. „Það komu alveg upp spurn- ingar um það hvort við mynd- um halda hátíðina en það þurfti ekki að hugsa það lengi. Auðvitað höldum við áfram og auðvitað höldum við minningu þessara félaga okkar á lofti.“ Halda minn- ingu á lofti FLUGHÁTÍÐ Í MÚLAKOTI Haraldur Unason Diego Morgunblaðið/Ómar Einkaflug Einkaflugvélum hlekkist stundum á. Myndin er af lítilli einka- flugvél sem hlekktist á á Reykjavíkurflugvelli 2011, enginn slasaðist þá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.